Morgunblaðið - 23.10.1975, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKT0BER 1975
Fyrirlestrar um kvenna-
sögu og kjör norskra kvenna
KENNSLA I kvennasögu hefur á
síðustu árum verið tekin upp við
marga háskóla í nágrannalöndum
okkar, einkum þó á Norðurlönd-
um. Cand. philol. Gro Hage-
mann kennir kvennasögu við
háskólann í Ósló og er hún komin
hingað til landsins í boði Norræna
hússins, Háskóla íslands,
Nordmannslaget og Kvennasögu-
safns Islands. Hér flytur Gro
Fundur í
Selfossbíói
Á kvennafridaginn 24. október
verður sérstakur fundur haldinn í
Selfossbíói kl. 11.30 fyrir hádegi.
Á fundinum verða flutt erindi,
leikþáttur, nokkrar konur munu
syngja, en fyrir þessum þáturri
stendur Leikfélag Selfoss. Að
loknum fundinum verður séð fyr-
ir sætaferðum fyrir þær konur
sem hug hafa á að sækja fundinn
á Lækjartorgi, annars verður opið
hús fyrir þær sem vilja í Tryggva-
skála.
1880 - 1914
Hagemann tvo fyrirlestra og varð
sá fyrri i Háskola Islands á þriðju-
dag, en sá hinn síðari verður í
Norræna húsinu í kvöld kl. 20.30.
I fyrirlestri sínum á þriðjudag
fjallaði Gro Hagemann um
kvennasögu og kvennasögurann-
sóknir. Sagði hún þar frá rann-
Styðja
kvenfólkið
I fréttatilkynningu, sem Mbl.
hefur borizt frá stjórn Landssam-
bands framhaldsskólakennara,
segir, að félagið lýsti yfir
stuðningi sínum við aðgerðir
kvenna en þær leggja áherzlu á
mikilvægi vinnuframlags síns í
þjóðfélaginu með kvennafríi á
degi Sameinuðu þjóðanna 24.
október. n.k.
sóknum á sögu kvenna við norska
háskóla og reynslu sinni í þeim
efnum. Auk þess, að Gro Hage-
mann kennir kvennasögu við
háskólann i Ósló, starfar hún við
Einkaskjalasafnið í Osló en safnið
fékk fjárveitingu frá Almenna
vísindasjóðnum norska til að láta
skrá heimildir um kvennasögu i
eigu stærstu kvenfélaga og
kvennasamtaka í Noregi. Einnig
er safninu ætlað að fylgjast með
samtímarannsóknum á sögu
kvenna við norska hásk-óla og
leita uppi gögn um kvennasögu-
legt efni.
Gro Hagemann sagði, að i
Noregi væri fylgt þeirri stefnu
við uppbyggingu kvennasögusafn
að skrá allar heimildir en safna
þeim ekki endilega öllum á einn
stað. I þeim tilgangi væri vísir að
kvennasögusöfnum við fjóra
háskóla í Noregi, háskólana í
Ósló, Bergen, Þrándheimi og
Tromsö en á þessum stöðum fer
einnig fram kennsla í kvenna-
sögu. Meðal þeirra atrióa, sem
vikið verður sérstaklega að í þess-
um fyrirlestri, er sérstök vinnu-
vernd iðnkvenna í Noregi.
I fyrirlestri sínum í Háskóla
Gro Hagemann
íslands ræddi Gro Hagemann m.a.
þá spurningu hvar kvennasaga
eigi heima, hvort kenna skuli
hana sem sérstaka einangraða
grein eða í tengslum við aðrar
greinar s.s. almenna sögu og fé-
lagsfræði. Þessi spurning hefur
mjög verið til umræðu I Noregi á
siðustu árum.
Seinni fyrirlestur Gro Hage-
mann verður í Norræna húsinu I
kvöld og ræðir hún þá um kjör
norskra kvenna á árunum
1880—1914, en i Noregi fór fyrst
að komast skriður á aðgerðir i
málefnum norskra kvenna eftir
1884 með stofnun „Norsk
kvinnesaksforening". Þá var
fyrsta verkakvennafélagið i
Noregi stofnað árið 1889. Rakinn
verður aðdragandinn að stofnun
samtaka kvenna í Noregi. öllu
áhugafólki er heimill aðgangur að
fyrirlestrunum.
Álaf oss hefur flutt út
50 þús. flíkur á árinu
— segir sýslumaður um sprengjumálið
Á ÞESSU ári hefur orðið veruleg
aukning á útflutningi ullarvöru
frá Álafoss hf. Mest er aukingin 1
tilhúnum fatnaði og lætur nærri
að fyrirtækið sé búið að flytja 50
þúsund fllkur út, og fyrir liggja
verulegar pantanir til afgreiðslu
á næstu mánuðum og er af-
greiðslugeta fyrirtækisins þá full-
nýtt.
Fatnaður sá sem Álafoss flytur
út er að Iitlu leyti framleiddur hjá
fyrirtækinu sjálfu. Að fram-
leiðslunni standa prjóna- og
saumastofur, sem eru viðsvegar
um land, en Álafoss hefur um
nokkurra ára skeið haft samvinnu
við þessi fyrirtæki og séð um út-
flutning á framleiðsluvöru þeirra.
Þessi tílhögun hefur komið sér
vel fyrir alla.
I fréttatilkynningu frá Álafoss
segir, að all veruleg útflutnings-
aukning hafi einnig orðið á hand-
prjónabandi fyrirtækisins. Að
venju á hespulopi sinn stærsta
þátt þar í . Á árinu hefur fyrir-
tækið kynnt nýjar ullarbandsteg-
undir sem þegar hafa haslað sér
völl viða um lönd og virðast ekki
ætla að verða siður vinsælar en
hinn gamalkunni hespulopi.
„ÉG hef ekki séð ástæðu til þess
að kosta flokk að sunnan til að
eyðileggja sprengjuna og ekki
heldur fyrirrennarar mínir í
starfi enda sprengjan langt utan
alfaraleiðar," sagði Valtýr
Guðmundsson sýslumaður á Eski-
firði er Morgunblaðið hafði sam-
Dagsbrún seg-
ir upp samningum
FÉLAGSFUNDUR Verka-
mannafélagsins Dagsbrún-
ar, sem haldinn var í Iðnó
s.l. sunnudag, samþykkti
meö atkvæðum allra
fundarmanna að segja upp
öllum kjarasamningum
Dagsbrúnar með tilskild-
um fyrirvara. Á fundin-
um var einnig samþykkt
tillaga um stuðning við sjó-
menn í kjarabaráttu þeirra
og þeim sendar sérstakar
baráttukveðjur. Ennfrem-
ur fagnaði fundurinn út-
færslu fiskveiðilögsög-
unnar í 200 sjómílur. Þá
segir: „Fundurinn minnir
á, að efnahagslegt sjálf-
stæði þjóðarinnar er undir
því komið, að vel takist til
um verndun fiskstofnanna
við strendur landsins, en
þeir eru þegar í geigvæn-
legri hættu.
Því skorar fundurinn á þjóðina
alla að standa einhuga saman um
þá ófrávikjanlegu kröfu, að Is-
lendingar einir nýti auðlindir
íslenzka landgrunnsins."
Einnig var samþykkt á fundin-
um að skora mjög alvarlega á
hafnaryfirvöld Reykjavíkur að
beita sér fyrir þvl að bæði
gömlu höfninni og Sundahöfn
verði lokað fyrir allri óþarfa
umferð að nóttu til vegna
tíðra slysa, er átt hafa sér
stað á undanförnum árum.
Jafnframt er talin fyllsta
þörf á að næturvarðmenn á skip-
um hafi aðgang að litlum talstöðv-
um þar sem víða er ókleyft að
komast í síma við höfnina.
Kristinn Hrólfsson formaður
Iðnnemasambands Islands
ÞRÍTUGASTA og þriðja þing Iðn-
nemasambands fslands var haldið
dagana 18. og 19. október s.l. ð
Hótel Loftleiðum. Þingið ályktaði um
eftirfarandi málaflokka: Iðnfræðslu,
kjaramál, félags- og fræðslumái og
þjóðmál.
Þinginu lauk seint á sunnudags-
kvöld Umræður voru mjög frjóar og
málefnalegar, segir í fréttatilkynningu
frá Iðnnemasambandinu. Þar segir, að
þingið hafi setið 150 fulltrúar víðs
vegar af landinu, og lýsi það mjög vel
áhuga iðnnema á baráttumálum
sinum.
Á þinginu var kosin sambandsstjórn,
og úr henni var síðan skipuð fram-
kvæmdastjórn. í framkvæmdastjórn
eiga nú sæti: Formaður, Kristinn
Hrólfsson, varaformaður Jason Stein-
þórsson, ritari Haraldur Bjarnason, 1
gjaldkeri Hallgrimur Valsson 2 gjald-
keri Hallgrímur G Magnússon,
meðstj Kristln Ásmundsdóttir oc
Sveinn Ingvason
Fræðslustjóri var endurkjörinn
Ragnar Bragason og veitir hann for-
stöðu Félagsmálaskóla Iðnnemasam-
bandsins Ritstjóri Iðnnemans (mál-
gagn Iðnnemasambandsins) var kjör-
inn Jakob Ólafsson
band við hann vegna sprengju-
málsins, sem skýrt var frá á blað-
síðu 3 á sunnudaginn.
Við höfum haft vitneskju um
þessa sprengju allt frá þvi flug-
vélin hrapaði 1941. Hún er í
brattri skriðu á afskekktum stað
og erfitt að komast að henni nema
í góðu veðri“, sagði sýslumaður.
Og hann bætti við: „Þarna er
sáralftil umferð manna og
skepna. Ég hef ekki orðið var við
áhuga nema eins manns á því að
eyðileggja sprengjuna. Fyrir
nokkrum árum voru staddir
hérna menn sem voru að gera
sprengju óvirka. Ég bað þá að líta
á sprengjuna úr þýzku vélinni
fyrst þeir voru komnir á annað
borð en þeir komust þá ekki
vegna veðurs.“
Gunnar sýnir í New York
Gunnar Hannesson Ijósmynd-
ari er um þessar mundir 1 New
York þar sem hann sýnir myndir
sfnar á hátíð hjá íslendingafélag-
inu. Mun Gunnar sýna 400 lit-
skuggamyndir á Hótel Biltmore
auk 20 stækkaðra litmynda í
stærðinni 70—100 sm. Þá mun
Gunnar einnig ræða við forsvars-
menn Nikon-house, en þeir hafa
boðið honum að sýna myndir
sfnar 1 hinum kunna sýningarsal
þeirra f New York. Gunnar fór
utan með um 20 þús. litmyndir,
sem voru tryggðar á litlar 6
milljónir kr.
Þegar ljósmyndari Mbl.
Sv.Þorm. renndi f hlað hjá
Gunnari var hann að leggja upp f
vesturför sína með myndirnar í
töskum og pinklum og Sveinn
náði einni mynd með hraða 500.
„Ekki ástæða til að
kosta flokk að sunnan”