Morgunblaðið - 23.10.1975, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 23.10.1975, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTOBER 1975 13 Bessí Jóhannsdóttir: Það var á kvennaráðstefnunni á Hótel Loftleiðum f júnf sl. að fram kom tillaga um að konur tækju sér frí frá störfum á degi Sameinuðu þjóðanna 24. október n.k. Að flutningi þessarar tillögu stóðu konur úr öllum stjórnmála- flokkum og ólíkum starfsgrein- um. Sfðan gerðist það í ágúst- mánuði að sá hópur sem að tillög- unni stóð, kom saman að nýju og hófust þá umræður um það hvort ekki hvíldi sú skylda á flutnings- mönnum að gera könnun á mögu- leikum þess að víðtæk samstaða gæti náðst um málið. Niðurstaðan af þeirri umræðu varð sú, að um 80 félagasamtökum þar sem kon- ur eiga aðild að var ritað bréf og þau beðin að senda fulltrúa til að skipuleggja væntanlegt kvenna- frí. í því bréfi var komið inn á þá hugmynd að í stað þess að konur tækju sér frf frá störfum allan daginn yfirgæfu þær störf sín á ákveðnum tíma dagsins og hittust á útifundi og að honum loknum hyrfu þær á ný til starfa sinna. Á þann hátt mætti áþreifanlega finna hversu mikil áhrif kvenna eru í fslensku atvinnulífi. Um 60 félagasamtök sendu fulltrúa sinn á undirbúningsfund. Þar var mál- ið reifað og sýndist sitt hverjum. kvenna í atvinnulífinu treysti sér ekki til að taka sér frí frá störfum hluta úr degi. Má þar nefna verkakonur i fiskvinnu, barna- kennara, og fóstrur. Eftir þessa umræðu var ákveðið að haldið skyldi við upphaflegt orðalag „að konur taki sér frí frá störfum á degi Sameinuðu þjóðanna þ. 24. október n.k.“. Framkvæmda- nefnd var skipuð og skipti hún Kvennafrí á kvennaári Ljóst var þó að allstórir hópar með sér verkefnum enda skipti nú miklu máli að vel og skipulega væri unnið að málinu. Þannig hef- ur f stuttu máli verið aðdragandi þessa kvennafrfs. Það hlýtur að teljast til mikilla tfðinda þegar það gerist að konur úr öllum stjórnmálaflokkum þessa lands taka höndum saman um jafn veigamikla aðgerð. Jafn- réttisbarátta er ekki einkamál neins stjórnmálaflokks. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur ætíð stað- ið í fararbroddi f þessum málum enda má segja að það sé eðlilegt þar sem hann hefur flestar konur þessa lands innan sinna vébanda. Konur taka nú í vaxandi mæli þátt í störfum og ákvarðanatöku f þjóðfélaginu. Þó er langt í land að þær standi þar jafnfætis karl- mönnum. Menn greinir á um leið- ir í jafnréttisbaráttunni. Við sjálf- stæðismenn teljum að sú barátta geti farið fram innan ríkjandi þjóðskipulags. Við þurfum vax- andi urhræðu sem leiðir til auk- innar þekkingar manna á jafn- réttismálum. Mjög oft eru for- dómar látnir ráða ferðinni í skoðunum manna á þessum mál- um. Konur eru þar jafnsekar og karlar. Kvennaárið hefur vissulega haft margt gott i för með sér. Konur sem áður vildu ekki taka ákvörðun um eitt eða neitt hafa þurft að horfast í augu við sjálfar sig og viðurkenna að þær eru full- gildar manneskjur f okkar þjóð- félagi. Húsmæðrum þykir mörg- um að sér vegið og taka þessu þannig að búið sé að lýsa yfir vanþóknun á þeirra störfum á heimilunum. Þegar þær hafa af raunsæi farið að lfta á málin kom- ast þær að hinu gagnstæða. Karl- menn hafa orðið sér í ríkara mæli meðvitandi um skyldur sínar gagnvart börnum sínum. At- vinnurekendur hvort sem um er að ræða opinbera aðila eða einka- aðila eru í vaxandi mæli gagn- rýndir opinberlega ef vart verður við mismun f launum og störfum eftir kynferði. Þetta eru allt veigamikil atriði en hins ber líka að geta að konur hafa löngum viljað njóta ýmissa réttinda en oft ekki vjljað taka á sig þær skyldur sem þeim réttindum fylgja. Þjóðfélag okkar er ungt. Við höfum á stuttum tfma gengið f gegnum það að breytast úr sveita- þjóðfélagi í borgasamfélag. Þetta hefur haft í för með sér mikla röskun á hinni hefðbundnu fjöl- skyldu. Fjölskyldan er hornsteinn íslensks þjóðfélags. Þetta er auð- velt að segja nú en við verðum að vera vel á verði þannig að staða hennar verði trygg um alla fram- tíð. Hún er griðastaður einstakl- ingsins. Þar getur hann leitað hvatningar, trau'sts og verndar. Engar ómanneskjulegar stofnanir geta sinnt þeim hlutverkum jafn vel. Nú er kvennafríið orðið stað- reynd og öllum konum er það mikilvægt að dagurinn takist vel og verði íslenskum konum til sóma. Atvinnurekendum til sóma er hægt að segja að þeir hafa sýnt þessum aðgerðum mikinn skiln- ing. Þrátt fyrir það má enn heyra úrtöluraddir. Sumar konur segja: „Ég hef það ágætt og aldrei hef ég liðið fyrir það að vera kona.“ Vissulega ber enginn brigður á slfkt. En er svo um allar konur? Það er skylda okkar í lýðræðis- þjóðfélagi að styðja við bakið á þeim sem þurfa þess með. Okkur sjálfstæðismönnum er það mikilvægt að haldið sé á þessum málum af skynsemi og raunsæi. Öfgar eru hér ekki til fagnaðar fremur en á öðrum svið- um mannlegs lffs. Islenskar konur! Sýnum sam- stöðu undir kjörorðinu jafnrétti — framþróun — friður. Bessl Jóhannsdóttir. Garðahreppur Byggung, Garðahreppi Aðalfundur Byggung í Garðahreppi verður haldinn I félagsheimilinu við Lyngás, miðvikudaginn 22. okt. kl. 8.30 stundvislega. Auk venjulegra aðalfundarstarfa, mun Páll Friðriksson, framkv.stj. segja frá nýjungum i byggingariðnaði og rætt verður um stofnun nýrra byggingarhópa. Fjölmennið og mætið stundvíslega. Stjórnin Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar verður í Sjálstæðishúsinu, litla sal, í kvöld, fimmtudaginn 23. oktöber kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Heimir F.U.S. í Keflavík heldur fund um íþróttahússmálið. Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um byggingu iþróttahúss. Fundurinn verður haldinn í sjálfstæðishús- inu laugardaginn 25. október n.k. kl. 1:30. Stjórnin. Árshátíð Sjálfstæðis- félaganna á Húsavík, verður haldin á hótel Húsavík laugardaginn 25. okt. og hefst með borðhaldi kl. 20.00. Skemmtiatriði Árshátíðin er haldin í tengslum við aðalfund kjördæmisráðs. Sjálfstæðisfólk í Þingeyjasýslu er hvatt til að sækja árshátíðina. FUS Húsavik. Málfundafélagið Óðinn heldur aðalfund sinn sunnudaginn 26. október kl. 14 i Sjálfstæðishúsinu v/Bolholt. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Lagabreytingar 3. Dr. Gunnar Thoroddsen, iðnaðar- og félags- málaráðherra flytur ræðu. Félagar eru hvattirtil að mæta stundvíslega. Stjórnin. Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisfélaganna í Norðurlandi- Eystra, verður haldinn á Húsavik laugardaginn 25. okt. og sunnudaginn 26. okt. Fundurinn hefst á Hótel Húsavík kl. 14,00 fyrri daginn. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Lárus Jónsson alþm. ræðir hugmyndir um Norðurlandsvirkjun, orkumál og samgöngumál kjördæmisins. 3l Önnur mál. Stjórnm. Alltásama stað Laugavegi 118 - Símar 22240 og 15700 EGILL VILHJALMSSON HE Þekkirðu LANCERt Honum er vert að kynnast. Hann fór hringveginn fullhlaðinn s.l. sumar á 126 lítrum af bensíni = Kr. 7.182. Þó skortir hann aldrei afl, 97 ha vélin sér um það. Hann er einn fárra sem sigrað hafa í African-Safari keppninni. Það undrar þig ekki þegar þú kynnist honum. Lancerinn er fjögurra manna bíll með styrk stóru bílanna. Hann er frá Mitsubishi í Japan og verðugur fulltrúi japanskrar vandvirkni í bílaiðnaðinum. KYNNINGARVERÐ FRÁ KR. 989 ÞÚS. I t I ' .MliUlUIÍ C‘k / billlé i i'd »iUO>i k M kkíí b > ij.4 Uixic

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.