Morgunblaðið - 23.10.1975, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTOBER 1975
35
Skagamenn sluppu vel
frá leiknum í Kiev
Bezta lið Evrópu
r
vann IA aðeins 3:0
Akurnesingar komust vel
frá glímu sinni við Dynamo
Kiev austur í Kænugarði í
gærkvöldi. Sovézka liðið
sem nýlega ávann sér
titilinn bezta knattspyrnu-
lið Evrópu vann aðeins 3:0,
eftir að hafa verið 2:0 yfir í
leikhléi. Þess má geta að
Dynamo Kiev sigraði
nýlega þýzku Evrópu-
meistarana Bayern
Míinchen 2:0 — og það á
útivelli. Davíð Kristjáns-
son átti stórleik í marki
Akurnesinga og bjargaði
liði sínu frá stórtapi.
Það var ekki oft i leikn-
um í gærkvöldi, sem Skaga-
menn komust fram yfir
miðju í leiknum. Þeir lögðu
aóaláherzluna á vörnina.
Illa gekk í gærkvöldi að ná
sambandi' við Akurnes-
ingana í Kiev, en eftir þeim
fréttum sem bárust frá er-
lendu fréttastofunum
NTB, AP og Reuter, þá
tóku Sovétmennirnir öll
völd í leiknum þegar í upp-
hafi. í skeyti frá Reuter
segir að „Reykjavíkur-
liðið“ hafi ekki gert sér
vonir um að sleppa betur
frá leiknum en með þriggja
marka ósigri.
Markakóngur Sovét-
ríkjanna, Oleg Blokhin,
skoraði fyrsta markið í
leiknum, það kom á 31.
mínútu leiksins, en hin tvö
mörkin gerði Vladimar
Buryak, á 28. mínútu og
síðan eina mark seinni
hálfleiksins á 57. mínútu.
Jón Gunnlaugsson hefur ef-
laust haft nóg að gera I leikn-
um f gærkvöldi sem og aðrir
félagar hans f liði ÍA. Á með-
fylgjandi mynd berst Jón um
knöttinn við nafna sinn Jóns-
son f Keflavfkurliðinu. Árni
Sveinsson fylgist með.
Akurnesingar og Dyna-
mo Kiev leika að nýju á
Melavellinum á miðviku-
daginn í næstu viku og
verður leikið í flóðljósum.
Búizt er við allt að 5
þúsund áhorfendum á
þann leik, en áhorfendur
að leiknum í gærkvöldi
voru 50 þúsund talsins.
Haukar unnu FH
HAUKAR sigruðu FH 18:16 I 1. deild íslandsmótsins I gærkvöldi eftir að
staðan í hálfleik hafði verið 9:4 Haukum í vil. Leikið var í Hafnarfirði.
Mestur varð markamunurinn 8 mörk þegar 18 mínútur voru eftir af
leiknum, en þá var staðan 14:6. Þá tóku FH-ingar bæði Hörð Sigmarsson
og Elías Jónasson úr umferð og kom við það nokkurt los á vöm
Haukaliðsins sem hafði staðið sig frábærlega fram að þessu. Við það
bættist, að einum Haukamanni, Ingimar Haraldssyni, var visað útaf i 5
mínútur og annar fór útaf í 2 minútur þegar hann var nýkominn inná.
Þegar 8 minútur voru til leiksloka var staðan 18:12, en FH gerði 4
siðustu mörkin. Sigur Hauka var mjög sanngjarn og hefði átt að vera
stærri.
Mörk Hauka: Hörður Sigmarsson 11, Sigurgeir Marteinsson 3, Ingimar
Haraldsson 2, Ellas Jónasson og Jón Hauksson eitt hvor.
Mörk FH: Geir Hallsteinsson 5, Guðmundur Sveinsson 3, Þórarinn
Ragnarsson 3, Guðmundur Á. Stefánsson 2, Viðar Simonarson 2 og Örn
Sigurðsson 1.
Meistarar
Fjölmargir leikir fóru fram í gærkvöldi í Evrópumótunum
þremur og var þar um aS ræSa fyrri leiki liSanna í 2.
umferSinni. Úrslitin í leikjunum fara hér á eftir. Fyrst eru
þaS leikir i meistarakeppninni.
Dynamo Kiev — Akranes 3:0. Mörk Dynamo Blokhin og Buryak (2).
Áhorfendur 50.000.
Derby County — Real Madrid 4:1. Mörk Derby Geroge 3 (2 úr vltum)
og Nish. Áhorfendur 35.000.
Malmö — Bayern Miinchen 1:0. Mark Malmö geröi Tommy Anderson.
23.000 áhorfendur.
Borussia Mönchengladbach — Juventus 2:0. Mörk Borussia gerðu
Heynckes og Simonsen. Áhorfendur 65.000.
St. Etienne — Glasgow Rangers 2:0. Mörk Frakkanna gerðu Revelli og
Baphenay. Áhorfendur 35.000.
Bikarhafar
Boavisto Porto — Celtic 0:0 25.000 áhorfendur.
Ararat Yerevan — West Ham Utd. 1:1. Petroysan skoraði fyrir
Sovétmennina, en Alan Taylor fyrir West Ham. 70.000 áhorfendur.
Anderlecht — Borac Banja Luca 3:0. Rensenbrink (2) og Coeck
skoruðu mörkin að viðstöddum 30.000 áhorfendum.
. . . Wrexham — Stal Rzeszow 2:0. Achscroft skoraði bæði mörk
leiksins. 10.000 áhorfendur.
Sturm Graz — Haladas Vasutas 2:0. Stendal og Steinar skoruðu
mörkin. 10.000 áhorfendur.
FC Haag — RC Lens 3:2. Schoenmaker, Van Vliet og Van Leeuwen
skoruðu fyrir Haag, en Zuraszek og Jankovic fyrir Lens.
MSV Duisburg (V Þýzkalandi) — Levski (Búlgaríu) 3—2 Duisburg
skoraði Schneider, Worm og Krause en mörk Levski skoraði Panov.
Áhrofendur voru 20.000.
UEFA -keppnin
Dundee Utd. — FC Porto 1:2 . Mark Dundee gerði Rennie, en Oliveira
og Seninho fyrir Porto. 55.000 áhorfendur.
Ipswich — FC Brúgge 3:0. Mörk Ipswich gerðu Gates, Peddalty og
Austin. 27.000 áhorfendur.
Hertha Berlin — Ajax 1:0. Kostedde skoraði. 55.000 áhorfendur.
Öster Vaxsjö — AS Roma 1:0. Mark Svíanna skoraði Tommy Eversson.
10 þúsund áhorfendur sáu leikinn.
Red Star Belgrad — Hamborg SV 1:1
Susic skoraði fyrir Red Star en Ole Björnmose tyrir þýzka liðið. 35.000
áhorfendur.
Magnús íFram
Grótta - Fram 12: 16
FRAM sigraði Gróttu 16:12 I 1.
deild Islandsmótsins f handknatt-
leik i gærkvöldi. Leikurinn fór
fram I fþróttahúsi Hafnarfjaröar
og var heldur Iftil skemmtun
fyrir áhorfendur.Var leikurinn
ákaflega slakur af beggja hálfu
og bæði lið gerðu sig sek um
fjölmörg mistök af þeirri gerð-
inni, sem varla byrjendur sýna.
forystu, 4:2, og hélt liðið foryst-
unni til loka leiksins. Minnstur
var munurinn 2 mörk en mestur
5 mörk þegar nokkrar mínútur
voru til leiksloka, en þá var
staðan 14:19. I hálfleik var staðan
8:6. Gróttumenn gerðu tilraun tii
að taka Pálma Pálmason úr
umferð en það stoðaði lítið, þvf
það varð aóeins til þess að losnaði
um aðra leikmenn liðsins.
Mörk Fram gerðu þessir leik-
menn: Pálmi Pálmason 7, Arnar
Guðlaugsson 5, Andrés Bridde 2,
Pétur Jóhannesson og Gústaf
Bjarnason eitt mark hvor.
Mörk Gróttu: Björn Magnússon
3, Björn Pétursson 3, Árni
Indriðason 2, Magnús Sigurðsson
2, Kristmundur Ásmundsson og
Atli Þór Héðinsson eitt mark
hvor.
Handknattleiksmaóur-
inn Magnús Sigurðsson
hefur tilkynnt félaga-
skipti úr Víkingi yfir í
Fram. Magnús, sem er
vinstri handar skytta,
var fastur maður í liði
Víkings fyrir 2—3 árum
og lék þá 1 landsleik og
nokkra leiki með
unglingalandsliði. Hann
hefur lítið verið með
síðustu mánuðina vegna
meiðsla en fyrir skömmu
gekk hann undir aðgerð á
öxl. Sagði hann við Mbl. í
gær, að hann væri nú á
batavegi og væri byrjað-
ur æfingar með Fram.
Ármenningar ætla sér að sigra Playboys
Leikurinn hélzt f jafnvægi í
byrjun en um miðjan fyrri hálf-
leik náði Fram tveggia marka
Pálmi skoraði flest mörk
FYRRI leikur bikarmeistara Ármanns
I körfuknattleik og finnsku bikar
meistaranna Playboys fer fram !
Laugardalshöll n.k. fimmtudag.
Þetta er I fyrsta skipti sem Armann
tekur þátt I Evrópukeppninni, enda
hefur liSið ekki átt þess kost áður
þótt óllklegt megi virðast. Ármann
hefur verið I fremstu röð i körfu-
knattleiknum undanfarin ár, þótt oft
hafi þeir misst af íslands- og
bikarmeistaratitlinum á slðustu
stundu. En I fyrra tókst þeim loks að
kraakja sér I Bikarmeistaratitilinn,
Fyrir nokkrum dögum varði Play-
boys bikarmeistaratitilinn, sigraði þá
I úrslitaleik með 6 stiga mun. Þá var
bandarlkjamaður í liði Playboys
langstighæstur með 36 stig af 78
stigum liðsins, en þessi leikmaður er
sagður langbesti maður liðsins.
Ármenningar hafa ákveðið að
kalla Símon Ólafsson til leikjanna,
en hann er við nám i Bandarlkjunum.
Liðið tjaldar þv! með 7 landsliðs
menn t leikjunum gegn Playboys.
Birgir Örn Birgis sem leikur nú sitt
17. keppnistlmabil I m.fl. er með
flesta landsleikina. alls 32, Jón
Sigurðsson er með 29 landsleiki,
Simon Ólafsson 10, en þeir Björn
Christenssen, Haraldur Hauksson,
Hallgrimur Gunnarsson og Jón
Björgvinsson hafa færri leiki. Þá
hafa þeir Björn Magnússon og Guð-
steinn Ingimarsson leikið unglinga-
landsleiki.
Og ekki má gleyma Bandarikja-
manninum í liði Ármanns, Jimmy
Rogers. Siðan hann hóf að leika með
liðinu hefur leikur þess gjörbreyst,
liðið leikur nú mjög harðan körfu-
bolta, þar sem þeir eru aðalmenn
Jón Sig, Guðsteinn og Rogers. Koma
Jimmy Rogers hefur haft mjög góð
áhrif á liðið og það verður fróðlegt
að fylgjast með þvi i leikjunum gegn
..plebbunum" frá Finnlandi. Sigur-
móguleikar ættu vissulega að vera
talsvert miklir, og ekki minnka þeir
við góðan stuðning og hvatningu frá
áhorfendum. gk.