Morgunblaðið - 24.10.1975, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1975
5
Dýrmæt
bók
ÁSMUNDUR Eiríksson hefir í
sumar sent frá sér annað bindi af
bók sinni Skyggnzt um af skapa-
brún. Þessi bók er álíka stór og
fyrsta bindi, sem kom út í fyrra,
eða 320 bls. Hér er skammt milli
mikilla afreka og mjög merki-
legra: Bókmenntalega og menn-
ipgarlega séð. — Eins og áður er
stílsmáti höfundarins listrænn:
Ljúflega talað við lesandann,
málið óþvingað og bragðið gott,
aukasetningalaust. Skýra sann-
leiksást höf. má lesa út úr hverri
málsgrein, sem allar miða að
sama marki: Utskýra og efla mál
málanna, kristna trú. Bókin ber
einkenni beztu bóka. Hún biður
að lesa sig oftar og oftar. —
Höfundurinn dregur fram ótrú-
lega mörg dæmi til stuðnings máli
sínu, sem sannar hans víða sjón-
deildarhring. Hann segir frá bar-
áttu og sigri í trúnni, bænheyrslu
Guðs og árangri við að hjálpa
ýmsu fólki til trúar á drottin. A
bls. 114 segir höf: „Og hvílfk náð
að mega þekkja guðs rödd i sínu
eigin hjarta og framkvæma síðan
kærleiksríkan vilja Hans.“
Stórkostlegt er að lesa það sem
Ásmundur ritar í bókinni um
„hvfta dauðann": örlagmiótt á
föstudaginn langa o.m.fl. Á bls.
221 segir höf: „Ég legg allt í Guðs
hönd, get ekki neitað þvi að það
hefir hvarflað að mér að það gæti
verið f áætlun Guðs, að óreyndir
menn f trúnni, en sannir í anda,
sem Iesa bók þessa, fái nokkurn
lærdóm af reynslu minni. Þess
vegna hvíldi ábyrgðartilfinningin
eins og þungi á mér um það að
segja satt frá málefnum eins þar
sem það var állra sárast fyrir
mig.“
Ég vil að lokum þakka Ásmundi
Eiríkssyni fyrir þessa bók, hvet
alla til að Iesa hana. Hún er vissu-
lega þess virði.
10/10 1975.
Jón H. Þorbergss'ot'
Fræðslustjórar
settir nyrðra
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
fréttatilkynning frá menntamála-
ráðuneytinu um setningu
fræðslustjóra f Norðurlands-
umdæmunum tveimur.
Hinn 16. þ.m. setti menntamála-
ráðuneytið Svein Kjartansson,
skólastjóra, fræðslustjóra í
Norðurlandsumdæmi vestra, og
Valgarð Haraldsson, námsstjóra,
fræðslustjóra í Norðurlands-
umdæmi eystra, báða um eins árs
skeið frá 1. nóvember nk. að telja.
Fræðslustjóri Norðurlands-
umdæmis éystra hefur aðsetur é
Akureyri, en hinn á Blönduósi.
Vitni vantar
SL. MÁNUDAG var árekstur á
Reykjanesbraut, skammt norðan
við Heiði í Blesugróf. Þar rákust
saman Fiat bifreið, R-32120, og
Volgabifreið, R-40728. Vegna
þessa áreksturs langar rannsókn-
arlögregluna að ná tali af öku-
manni, sem hafði ekið í bíl á und-
an Fiat-bifreiðinni, en beygt til
hægri framhjá Volgu-bifreiðinni.
Er hann góðfúslega beðinn að
hafa samband við rannsóknarlög-
regluna.
Fullar búðir af nýjum vörum
Opið j dag til kl. 7 og’
til kl. 12.00 á hádegi á morgun laugardag a
TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a
SIMI FÁ SKIPTIBOPÐI 2S155