Morgunblaðið - 24.10.1975, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÖBER 1975
17
Jóhann
Hjálmarsson:
ÞEGAR Salvatore Quasimodo
fékk Nóbelsverðlaunin I bðk-
menntum 1959 voru margir,
sem töldu að Giuseppe Ungar-
etti eða Eugenio Montale hefðu
verið jafnvel eða betur að verð-
laununum komnir. Þessir þrjú
skáld hafa oft verið kölluð þrf-
stirni ftalskrar ljóðlistar á þess-
ari öld. Það er erfitt að gera
upp á milli þeirra, en það, sem
einkum greinir Montale frá
þeim Ungaretti og Quasimodo,
er að Ijóðlist hans er mun lok-
aðri en þeirra og afköst hans
hafa verið furðulftil, aðeins fá-
einar ljóðabækur á langri ævi.
Montale er nú einn á lífi
þeirra félaga. Um leið og fréttir
berast frá Stokkhólmi um
óvænt Nóbelsverðlaun honum
til handa er ástæða til að
hyggja að skáldskap hans, en
ttalska ljóðskáldið Eugenio Montale, sem hlotið hefur Nóbels-
verðlaunin f bókmenntum. Myndin er tekin að heimili hans f
Mflanó f gær.
Ljóðið og einstaklingurinn
vegna tímaleysis verða fáein
orð að nægja.
Hinn svokallaði hermetismi
itaiskrar ljóðlistar kemur vei
fram í ljóðum Montales.
Hermetisminn var í andstöðu
við mælskulega Ijóðlist, sem
lengi hafði tíðkast á ftalíu, ekki
sist I verkum Gabriele
D’Annunzios, hirðskálds
Mussolinis. Montale var vikið
úr starfi bókavarðar í Flórens
1939 vegna andfasiskrar af-
stöðu sinnar, en í ljóðum hans
er litið af þólitík. Eitt pólitiskt
ljóð eftir hann má þó nefna:
Hitiersvor, sem er dulbúin
ádeila á þá Hitler og Mussolini,
en í þessu ljóði er lögð áhersla á
sök allra manna: Enginn er sak-
laus. Abyrgðin er allra.
Montale býr f Milano og hef-
ur einkum fengist við tónlistar-
gagnrýni, en hann hefur lika
átt þátt í að kynna ítölum skáld
eins og T.S. Eliot með þýðing-
um sínum og greinum. Honum
er oft líkt við Eliot vegna þess
hve ljóðlist þeirra beggja er
þung aflestrar og krefst mikils
af lesandanum. Eins og Eliot
yrkir Montale mikið um haf og
strönd og ljóð hans eru hljóm-
mikil og margræð. En víðfeðmi
Eliots er fjarri Montale. Hann
er mun takmarkaðra skáld.
Ég held að Montale hafi ein-
hvers staðar minnst á mikil-
vægi þess að hinn persónulegi,
sérstaki heimur ljóðsins fengi
að vera óáreittur f heimi
hávaða og tækni, fólk ætti að
geta leitað sér athvarfs í ljóð-
inu þegar annað brysti og ljóð-
inu bæri að standa vörð um
einstaklinginn og kenndir
hans. Þetta er mikill sannieikur
áokkar tímum, en þó ekki allur
sannleikur.
Montale er í hópi siðustu stór-
Framhald á bls. 24
Bretar og Norðmenn
ræddu 200 mílurnar
I.ondon, 23. október — Reuter.
JENS Evensen, hafréttar-
ráðherra Noregs, ræddi í
dag við David Ennals, vara-
utanríkisráðherra Bret-
lands, i London um 200
mílna fiskveiðilögsögu,
einkum ervarðar Norð-
austur-Atlantshaf og
Norðursjó.
Var ákveðið að hafa þessi mál
undir stöðugri endurskoðun á
næstunni, viðræðurnar voru fyrst
og fremst til undirbúnings frek-
ari funda sem haldnir verða hið
fyrst, að þvf er fram kemur í
Kissinger
bað INixon
afsökunar
HENRY Kissinger, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, hefur beðið
Richard Nixon, fyrrum forseta,
afsökunar á móðgandi ummælum
i hans garð sem hann lét falla í
veizlu í Ottawa í síðustu viku, að
því er Newsweek segir. Sagði
Kissinger í óformlegu spjalli við
borðhaldið að Nixon væri „ein-
kennilegur”, „ógeðfelldur” og
„falskur” og að hann hefði varla
verið fær að stjórna þá mánuði
sem Watergatemálið hefði verið
að koma í dagsljósið. Fréttamenn
heyrðu þessi ummæli af tilviljun
vegna þess að hljóðnemi á borði
Kissingers var opinn af vangá. Er
ummælin voru birt hringdi Kiss-
inger samdægurs til Nixons og
baðst afsökunar og kvað þau hafa
verið tekin úr samhengi, að sögn
yfirlýsingu brezka utanríkisráðu-
neytisins. Evensen lagði áherzlu á
að Norðmenn vildu semja um
lausn á vandamálum sem fyrir-
ætlun þeirra um 200 mílna efna-
hagslögsögu kann að valda við-
komandi löndum, — Bretum,
Vestur-Þjóðverjum, Frökkum,
Belgum, Hollendingum, Svíum,
Dönum, Pálverjum, Austur-
Þjóðverjum og Sovétmönnum.
Hin fyrirhugaða efnahagslög-
saga myndi taka til svæða sem nú
eru friðuð fyrir togveiðum og
hermdu áreiðanlega norskar
heimildir að Norðmenn vildu
stækka þessi svæði innan 200
mílnanna. Brezkar heimildir
hermdu hins vegar að Ennals
legði áherzlu á að tryggja
brezkum togurum aðgang að hefð-
bundnum veiðisvæðum þeirra.
Sprenja ætluð brezkum íhaldsþingmanni:
Caroline Kennedy
slapp naumlega
London, 23. október — AP
CAROLINE Kennedy, 17 ára dótt-
ir John heitins Kennedy Banda-
rfkjaforseta, slapp naumlega er
sprengja sprakk f morgun fyrir
utan hús sem hún dvaldist f f
London, og þykir Ijóst að hún hafi
verið ætluð gestgjafa hennar
fhaldsþingmanninum Hugh
Fraser, scm einnig slapp ómeidd-
ur. Hins vegar beið bana f
sprengingunni nágranni Frasers,
prófessor Gordon Hamilton Fair-
ley, einn kunnasti sérfræðingur
Bretlands f krabbameinslækning-
um. Sprengjunni hafði verið
komið fyrir undir bifreið Frasers
og sprakk hún f þann mund er
prófessor Fairley gekk framhjá
henni í gönguferð með kjöltu-
rakkanum sfnum, sem einnig
beið bana.
Að öllu jöfnu hefðu þau Fraser
og Caroline verið setzt upp í bif-
reiðina er sprengjan sprakk en
þau töfðust í nokkrar mínútur
vegna símhringingar til Frasers.
Sjö manns særðust við sprenging-
una, þ. á m. eldabuska Frasers.
„Það er enginn vafi á að
sprengjan var ætluð mér“, sagði
þingmaðurinn en hann hefur í
Portúgal:
Vopnaðar varnar-
sveitir öfgamanna
til vinstri í felur
Lissabon, 23. október. Reuter.
SJALFSKIPAÐAR og vel vopn-
um búnar varnarsveitir vinstri
öfgahóps tilkynntu f kvöld að þær
ætluðu að fara f felur og starfa f
Ieynum til að koma f veg fyrir að
ólöglegar vopnabirgðir þeirra
fyndúst og yrðu gerðar upptækar.
Isabel do Carmo, leiðtogi „Bylt-
ingarflokks öreiganna", PRP-BR,
sagði f kvöld að herfylki flokksins
væru reiðubúin til að svara þvf
ofbeldi sem endurskoðunarsinn-
ar og borgarasinnar væru með f
undirbúningi gegn verkalýðnum
f landinu. Sagði hún nauðsyn á að
byltingaröflin sameinuðu og sam-
ræmdu stefnu sfna til stórbrot-
inna aðgerða alþýðunnar.
Costa Gomes forseti Portúgals
sem hefur reynt að uppræta hinar
sjálfskipuðu og vopnuðu sveitir
sem hafa sprottið upp eins og mý
á mykjuskán siðustu mánuði,
sagði um daginn að átta daga
frestur yrði veittur til að skila
ólöglegum vopnum. Sá frestur
rennur út á morgun.
Dagblaðið O Seculo í Lissabon
sem er fylgjandi kommúnistum
hafði það eftir forsetanum í dag
að gagnbyltingartilraun kynni að
verða reynd í tengslum við sjálf-
stæðisdag Angola þann 11. nóv-
ember. Carlos Fabiao hershöfð-
ingi sagði f gærkvöldi að hann
óttaðist valdarán frá hægri
vængnum og gagnrýndi agaleysi i
hernum. Hann vísaði þeim mögu-
leika á bug að valdarán frá öfga-
öflum til vinstri yrði reynt, þar
sem „þáu myndu tapa þvf“.
I kvöld hafa kommúnistar og
aðrir vinstri hópar undirbúið
göngu um Lissabon til að heimta
breytingu á stjórninni. Vegna
þess hve Mbl. fer snemma í prent-
un í kvöld höfðu ekki borizt
fregnir um þá gerð.
Eþíópía:
Brezkum ræðísmanm
í Asmara rænt
Addis Abeba 23. okt. — AP.
TVEIR vopnaðir menn réðust inn
i skrifstofu brezka ræðismannsins
í Asmara, höfuðborg Eritreu, í
gær, og höfðu hann á brott með
sér. Ræðismaðurinn, Basil Bur-
wood-Taylor, hefur gegnt starfi
sínu um fjögurra ára skeið.
Eþíópska útvarpið telur mann-
ræningjana í tengslum við frelsis-
hreyfingu þá i Eritreu, sem átt
hefur í útistöðum við Eþiópiu-
stjórn um árabil. Eftir mannránið
var gæzlulið sett við allar leiðir út
úr Asmara.
FRANCO TREGÐAST VIÐ
Sendir Hassan erindreka til Madrid?
Madríd, 23. okt. — Reuter.
ÞESS ER nú beðið með eftirvænt-
ræðum sínum barizt fyrir harka-
legum aðgerðum gegn hermdar-
verkamönnum. Ungfrú Kennedy
hefur dvalið á heimili hans þar eð
hún stundar nú nám i listum hjá
Sothebys, og þangað ætlaði
Fraser að aka henni er sprengjan
sprakk i morgun. Ekki var vitað
hvaða hermdarverkahópur kom
sprengjunni fyrir.
Gæzlulið SÞ
áfram á Sínaí
New York, 23. okt. — NTB.
ÖRYGGISRAÐ Sameinuðu
þjóðanna endurnýjaði ( dag
umboð gæzlusveita sinna á
Sfnaf til 24. október 1976, og
samþykktu bæði tsraelsmenn
og Egyptar ráðstöfun þessa.
Aður en ákvörðun um þetta
var tekin, var lesið upp bréf
frá Ismail Fahmi, utanrfkis-
ráðherra Egyptalands, þar sem
fram kom krafa um að Genfar-
ráðstefnan um frið f Mið
Austurlöndum kæmi saman f
náinni framtfð. Þá hefur Kurt
Waldheim lagt til að fjölgað
verði f gæzluliðinu um rúm-
lega 800 manns, auk þess sem
tækjakostur verði aukinn.
ingu á Spáni hvort læknar telji
ráðlegt, að Franco haldi áfram
fullum völdum, sem þjóðarleið-
togi landsins. I dag verður hald-
inn rfkisstjórnarfundur, en tals-
maður Francos sagði í gær, að
enda þótt hann væri nú óðum að
ná sér eftir vægt hjartaáfall s.l.
þriðjudag, væri óvíst hvort hann
gæti tekið þátt f fundinum. „Sú
ákvörðun er á valdi lækna,“ sagði
talsmaðurinn.
Áreiðanlegar heimildir herma,
að Franco sé tregur til að láta af
völdum á þeim óvissutímum sem
nú rikja, er Hassan konungur
Marokkó skipuleggur 350 þús.
manna göngu inn í spænsku Sah-
ara. Spánverjar hafa boðið er-
indreka Hassans til viðræðna um
málið í Madrid.
Rússnesk skip skemma
japönsk veiðarfæri
Otaru, Japan 22. okt. — Reuter
JAPANIR hafa nánar gætur á
sovézkum fiskiskipum f nánd við
eyna Hokkaido, sfðan fregnir
bárust af eyðileggingu japanskra
veiðarfæra á þessum slóðum, að
þvf er talsmenn strandgæzlunnar
sögðu f dag. Varðskip aðvara rúss-
nesku skipin, samkvæmt upp-
lýsingum strandgæzlunnar, en
skipin hafa verið að veiðum suður
af eynni sfðan f júnf, til að forðast
japönsk skip.
Meðal sovézku skipanna eru 12
þús. tonna verksmiðjuskip og
veiðarfæratjón af völdum þeirra
nemur nú sem svarar um 3 millj.
fsl. króna.
Starfsmenn strandgæzlunnar
segjast hafa orðið varir við um 75
soyézk skip 4 Þf’ssum slóðum eftir
20. júní s.l. og hafa sum þeirra
veitt sex mílur frá ströndinni.
7. júní s.l. komust Japanir og
Sovétmenn að samkomulagi um
að forðast deilur vegna veiða
rússneskra skipa við Japans-
strendur og var kveðið á um
skaðabætur vegna hugsanlegs
tjóns í samninginum. Búizt er við
því, að japanska þingið staðfesti
samninginn á næstunni.
ttl« S f 111 IU *-*. tfitf Ull 9 5