Morgunblaðið - 07.11.1975, Qupperneq 1
40 SÍÐUR
255. tbl. 62. árg.
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Rockefeller vill ekki
íþyngja Ford forseta
Washington, 6. nóvember.
AP. Reuter.
NELSON Rockefeller varaforseti
sagði f dag að hann hefði ákveðið
að gefa ekki kost á sér til endur-
kjörs til að forða Ford forseta frá
innbyrðis átökum f flokknum.
Hann vildi ekkert um það segja
hvort hann mundi gefa kost á sér
sem forsetaefni en útilokaði ekki
þann möguleika.
Þannig kvaðst hann ekki hafa í
hyggju að berjast við Ford um
tilnefningu sem forsetaefni og
taldi líklegt að hann yrði tilnefnd-
ur en sagði að hann hefði aldrei
staðið nær því að vera forseti en
nú.
Hann taldi að Ford þyrfti ekki
að hafa áhyggjur af hægri sinn-
uðum stuðningsmönnum Ronald
Reagaris fyrrverandi ríkisstjóra
ROCKEFELLER
Kalifornfu en réð Reagan að
fara að ráðum Barry Goldwaters
öldungadeildarmanns og endur-
skoða þá ákvörðun sína að keppa
að tilnefningu.
Rockefeller sagði að ákvörðun
sín mundi auðvelda Ford að
hljóta tilnefninguna þar sem
hann hefði verið undirrót mikilla
deilna f flokki repúblikana. Þar
sem hann hefði ákveðið að hætta
væri ekkert til að deila um og
hægrimenn I \flokknum hefðu
hann ekki lengur sem vopn I
baráttu þeirra gegn Ford.
Hann sagði að þessar deilur
hefðu valdið forsetanum erfið-
leikum og hann hefði viljað
hjálpa honum með því að vera
varaforseti hans, ekki að valda
honum erfiðleikum.
Rockefeller kvaðst hafa til-
kynnt Ford ákvörðun sína 28.
október og sagði að forsetinn
Framhald á bls. 24
JENS EVENSEN
Evensen
af stað í
ferðalag
Ósló, 6. nóvember. NTB.
JENS Evensen hafréttarráðherra
mun eiga undirbúningsviðræður
um landhelgismál Norðmanna I
París, Bonn, Brússel og Haag dag-
ana 7. til 14. nóvember að sögn
norska utanríkisráðuneytisins i
dag.
1 París ræðir Evensen á morgun
Framhald á bls. 24
Marxistar ná
Luanda-höfn
Luanda, 6. nóvember. AP. Reuter.
HREYFING marxista I Angola, MPLA. náði höfninni f Luanda S sitt
vald f dag eftir bardaga við portúgalska hermenn. Þar með getur
hreyfingin fengið send vopn án afskipta portúgalskra hermanna, sem
hörfa frá Angola þegar nvlendan fær sjálfstæði eftir fimm daga.
Hermenn MPLA reyndu einnig
að ná flugvellinum á sitt vald og
bæði þeir og hermenn Portúgala
voru í dag á verði á götum höfuð-
borgarinnar Luanda sem er á
valdi hreyfingarinnar.
Samkvæmt óstaðfestum frétt-
um héfur herlið hreyfingar þjóð-
ernissinna, FNLA, einnig gert
stórskotaárás á flugvöllinn.
FNLA hefur umkringt Luanda og
er aðeins 32 km frá miðborginni.
Greinileg skothrfð heyrðist i
dag í Luanda frá veginum til
Caxito þar sem FNLA virðist hafa
gert gagnárás eftir sókn MPLA
yfir ána Bengo. Þar reyna
marxistar að stöðva sókn FNLA til
Luanda.
í Brazzaville sagði talsmaður
MPLA að suður-afríski flugher-
inn hefði gert árásir á hafnarbæ-
öimamynd AP
Eyðimerkurganga
Hluti mannhafsins sem flæddi
f gær inn f Spænsku Sahara.
Myndin er frá landamæra-
bænum Tah.
Tugþúsundir streyma
inn 1 Spænsku Sahara
Tah, Vestur-Sahara,
6. nóv. Reuter. AP.
FJÖRUTÍU þúsund Marokkó-
menn með Ahmed Osman for-
sætisráðherra f broddi fylkingar
streymdu yfir landamæri
Spænsku Sahara f dag. t kvöld
tjölduðu þátttakendur f þessari
„friðargöngu" á svæði, sem er
þakið spænskum jarðsprengjum
og hafast þar við f nótt.
Göngumenn mættu engri mót-
spyrnu Spánverja og tjölduðu að-
eins tveimur kílómetrum frá hæð,
þar sem spænskir hermenn hafa
hreiðrað um sig. Á svæðinu þar
sem þeir tjölduðu stóðu skilti við
veginn með áletrunum á
arabísku, frönsku og spænsku:
„Hætta — sprengjur."
350.000 sjálfboðaliðar hafa
orðið við áskorun Hassans kon-
ungs um að taka þátt í göngunni
og meírihlutinn bíður Marokkó
megin landamæranna eftir
skipun konungs um að sækja
fram. t kvöld var ekki vitað hvort I þjóðanna á Hassan konung að
göngumenn mundu halda göng-
unni áfram eða hvort fleiri kæmu
til tjaldstæðis þeirra frá Marokkó.
Skömmu áður en gangan hófst
skoraði örygggisráð Sameinuðu
aflýsa henni. Hann svaraði þvf til
að gangan væri hafin og sagði:
„Ákvörðun mín hefur verið
tekin.“
Þegar gangan hófst var logn og
Sadat hjá drottningu
London, 6. nóvember. Reuter.
ANWAR Sadat forseti sat f dag hádegis-
verðarboð Elísabetar drottningar í
Buckingham-höll skömmu eftir að hann
kom til London í þriggja daga opinbera
heimsókn sem sýnir að sambúð Breta og
Egypta hefur batnað. Talsmaður forsetans
sagði að Egyptar hefðu áhuga á samvinnu
við Breta á sviðum iðnaðar, viðskipta og
menningar. Hann kvaðst einnig vona að
Bretar og Egyptar gætu unnið í
sameiningu að lausn deilumálanna f Mið-
austurlöndum. Sadat er sagður hafa
áhuga á Jaguar-flugvélum og brezkum
fjárfestingum f Egyptalandi.
ina Lobito og Benguela í gær og
fyrradag og valdið miklu mann-
tjóni. I Pretoriu sagði talsmaður
Suður-Afríkustjórnar að þetta
væri ein af mörgum hviksögum
frá Angola.
Talsmaðurinn neitaði þvf að
MPLA hefði hörfað frá Lobito og
Benguela. Dr. Jonas Savimbi, for-
ingi Unita, sagði f gær að her-
Framhald á bls. 24
svalt í veðri. Göngumenn gengu
sex til tíu saman í röð, sungu og
héldust í hendur. Flestir þeirra
eru úr hópi fyrstu sjálfboðalið-
anna, sem komu til búðanna í
Tarfaya hjá landamærunum, og
eru aðallega frá héruðunum
Ouarazazate og Ksar Es Souk.
Auk Osmans forsætisráðherra
voru nokkrir ráðherrar marokkó-
stjórnar og opinberir fulltrúar frá
Saudi-Arabíu, Jórdaníu og Gabon
í broddi fylkingar. Flutninga-
bifreiðar fylgja göngumönnum og
fluttu matvæli og vatn í allan dag
til tjaldbúðánna.
Gangan sniglaðist áfram og yfir
henni sveimuðu fjórar þyrlur
spænska hersins, sem fylgdust
vandlega með öllu sem fram fór.
Þrjár litlar marokkóskar eftirlits-
flugvélar voru einnig á sveimi.
Þegar göngumenn komu yfir
landamærin námu þeir staðar
stundarkorn og báðust fyrir. Síð-
FramhaM á þls. 24
Karami
hótar
að hætta
Beirút, 6. nóvember. Reuter.
RASHID Karami forsætisráð-
herra krafðist þess f dag að
herliði yrði beitt til að binda
enda á uppskipun vopna handa
hægrisinnuðum falangistum úr
hergagnaflutningaskipi f
höfninni í Beirút.
Hann sagði blaðamönnum að
hermenn fylgdust með upp-
skipuninni úr búðum sfnum f
20 km fjarlægð án þess að
aðhafast nokkuð. „1 Ijósi þess
verð ég sfðar að tilkynna
ákvörðun," sagði hann leyndar
dómsfullur.
Ýmsir töldu
að þar með hefði
Karami óbeint
hótað að segja af
sér en embættis-
menn reyndu að
gera lítið úr slfk-
um bolla-
leggingum. Ef
Karami segir af
sér mun það enn
auka stjórn-
málaumrótið f
Lfbanon.
Tólfta vopna-
hléð frá upphafi
siðustu átak-
anna er enn virt,
en kunnugir
telja að deilu-
aðilar nöti það
aðéins til að
hvíla slg og
byrgja sig upp af matvælum og
skotfærúm.
Karami hefur nokkrum
sinnum hótað að segja af sér
sfðan hann varð forsætisráð-
herra fyrir fjórum mánuðum
en alltaf dregið hótunina til
baka.