Morgunblaðið - 07.11.1975, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1975
Sambandið
eykur
skipastólinn
SAMBANDIÐ hefir nú keypt
frystiskip í stað Jökulfells,
sem selt var á s.l. ári.
Skipið sem keypt hefir verið
heitir „BYMOS“ og var það
byggt 1968 í Þýzkalandi, hjá
sömu skipasmfðastöð og
byggði „SKAFTAFELL“ og
„HVASSAFELL" fyrir Sam-
bandið.
Skipið er svipað að stærð og
„SKAFTAFELL". Það hefir
milliþilfar og má sigla sem op-
ið eða lokað milliþilfarsskip,
og sem slíkt er burðargeta þess
1678 smálestir. Rúmtak lesta
Frystiskipið sem Sambandið
fær afhent f mánaðarlokin.
er 70.300 teningsfet. Gang-
hraði er liðlega 14 sjómílur.
Skipið er byggt samkvæmt
ströngustu Lloyd’s flokkunar-
kröfum og styrkt til siglinga í
ís.
Skipið er keypt af dönsku
útgerðarfyrirtæki og er kaup-
verðið um 300 millj. kr. Verður
það afhent Sambandinu í nóv-
emberlok.
Enn biðskák hjáGuðmundi
Heim úr róðri og fýllinn fer ekki fjarri. Myndina tók Sigurgeir í Eyjum einn
haustdaginn fyrir skömmu og þessi tígulega eyja í bakgrunni er Bjarnarey, annar
útvörður Vestmannaeyja i austri.
„Kvótaatriðið ekki
notað gegn okkur”
GUÐMUNDUR Sigurjónsson stór-
meistari tefldi f gærkvöldi við
Netzker frá Tékkóslóvakfu f 1.
umferð svæðamótsins f Búlgarfu.
Skákin fór f bið og hefur Guð-
mundur heldur betri stöðu. Guð-
mundur á einnig biðskák úr 10.
umferð við Vogt frá A-Þýzkalandi
og er skákin jafnteflisleg að sögn
Björgvins Vfglundssonar
aðstoðarmanns Guðmundar.
Staðan f mótinu er mjög óljós
vegna biðskáka og frestaðra
skáka, en veikindi hafa hrjáð 4
keppendur á mótinu.
Urslit skáka hjá helstu keppi-
nautum Guðmundar urðu þau í
gærkvöldi, að Ermenkov gerði
jafnteflí, Matanovic vann en
Matulovic á biðskák. Guðmundur
er nú með 5,5 vinninga og 2 bið-
skákir. Hann teflir í dag við
rúmenska stórmeistarann
Georghiu og hefur hvítt en í
tveimur síðustu umferðunum
teflir hann við tvo létta menn þá
Letselster frá Frakklandi og
Cerniak frá ísrael.
— segir utanríkisráðherra um Norðursjávarveiðarnar
MATVÖRUDEILDIN — Ebeneser Asgeirsson f hinni nýju 900 fer-
metra matvörudeild Vörumarkaðarins.
Vörumarkað-
urinn stækkar
Morgunblaðið hafði í gær
samband við Einar Ágústs-
son utanríkisráðherra og
spurði hann hvort hann
teldi að mótmæli íslend-
inga í sumar við síldveiði-
kvótanum í Norðursjó
hefðu haft neikvæð áhrif á
afstöðu grannþjóða okkar í
I FRÉTT Morgunblaðsins í gær
um vandamál frystihúsa var
rangt farið með niðurstöður
þeirra viðræðna, sem farið hafa
fram um þau vandamál síðustu
daga.
Hið rétta er, að á fundi
forsætisráðherra hinn 5. nóv. sl.
landhelgismálinu og bar-
áttu okkar fyrir friðun
fiskimiðanna.
„Ég hef ekki heyrt einn
einasta mann,“ svaraði ráð-
herra, „minnast á þetta
kvótaatriði og það hefur
hvergi komið fram sem rök
gegn okkur í viðræðum
með fulltrúum frystihúsa á Suð-
vesturlandi, viðskiptabanka og
Seðlabanka, varð samkomulag
um, að viðskiptabankarnir kanni,
með hvaða hætti þeir geti veitt
frystihúsum bráðabirgðafyrir-
greiðslu, miðað við birgðasöfnun
og óhagstæða samsetningu aflans.
sem við höfum átt við tals-
menn annarra þjóða.“
Þá innti Morgunblaðið utanrík-
isráðhérra einnig eftir því hvort
íslenzk stjórnvöld hygðust svara á
einhvern hátt mótmælum Dana
við miðlfnufyrirkomulaginu varð-
andi Færeyjar og Grænland við
útfærsluna i 200 mílur.
„Við höfum ekkert hugsað okk-
ur að gera í því sambandi," sagði
Einar, „útfærslan á þessum svæð-
um er í samræmi við samræmda
textann frá Hafréttarráðstefn-
unni, sem gerir ráð fyrir miðlínu
þar sem minna en 400 sjómílur
eru milli Ianda.“
Fisksölur
I gær seldi Elliði frá Sandgerði
34 tonn f Hull fyrir 4 millj. kr. og
var meðalverð á kg. kg. 119. Fylk-
ir frá Neskaupstað seldi 23 tonn f
Grimsby fyrir 2,6 millj. kr.,
meðalverð 115 kr. og þar seldi
einnig Fróði frá Ólafsvfk 44 tonn
fyrir 5,1 millj. kr. , meðalverð á
kg kr. 116.
VÖRUMARKAÐURINN við
Ármúla opnar formlega f dag
viðbótarhúsnæði sem verður
notað fyrir matvörudeild fyrir-
tækisins. Matvörudeildin
stækkar um 600 fermetra, úr
300 í 900 fermetra. Þá er um
þessar mundir unnið að inn-
réttingu 760 fermetra
verzlunarhúsnæðis á jarðhæð
fyrir húsgagna- og heimilis-
tækjadeild og þegar það verður
komið I gagnið verður gólfflöt-
ur állra deilda Vörumarkaðar-
ins um 3000 fermetrar á fjórum
hæðum. Þegar fyrirtækið var
stofnað 1967 var gólfflötur 100
fermetrar.
Ebeneser Asgeirsson, for-
stjóri Vörumarkaðarins, kallaði
blaðamenn á sinn fund í gær í
tilefni af stækkun matvöru-
deildarinnar. Ebeneser opnaði
verzlun sína í september 1967,
en hafði áður rekið Hansa hf.
um 15 ára skeið. Hugmynd
Ebenesers var sú að láta við-
skiptavininn afgreiða sig að
mestu leyti sjálfan og spara
þannig vinnuafl. Laun starfs-
fólks af heildarveltu eru 4%
hjá Vörumarkaðnum, en al-
gengt er að þessi kostnaður sé
um 10% hjá verzlunum. Með
þessu og því að selja í stórum
eigningum getur Vöru-
markaðurinn boðið vörur á
lægra verði en leyfilegu
hámarksverði nemur og sagði
Ebeneser að vöruverð hjá sér
væri að jafnaði 10% lægra en
leyfilegt hámarksverð. Hjá
fyrirtækinu vinna nú 30 manns,
en fyrst eftir opnun var starfs-
Framhald á bls. 24
Eyrbekkingar geta ekki af eigin ramm-
leik endurbyggt það sem skemmst hefur
— segir Ingólfur
ENN er ekki séð fyrir af-
leiðingar sjófyllingarinnar á
Ey.rarbakka aðfararnótt -
mánudags s.I. Eitt er vfst, að
það verður Eyrbekkingum um
megn, * að fá atvinnuhjól
staðarins til að snúast strax aft-
ur, nema með einhverri aðstoð’
opinberra aðila. Vegna þessa
máls, hafði Morgunblaðið sam-
band við Ingólf Jónsson, 1.
þingmann Suðurlandskjör-;
dæmis, og bað hann, að gera
grein fyrir málinu frá sfnum
bæjardyrum séð.
— Mikið tjón hefur orðið á.
sjóvarnargarðinum á löngum
kafla og mun verða mikill
kostnaður við að endurbæta
garðinn. Þá hefur orðið mikið
tjón á höfninni og mikið grjþt
farið ofan í hana. Kostnaður við
að hreinsa hana verður vafa-
laust mikill. Þá hefur orðið
mikið rask á svæðinu um-
hverfis höfnina og land-
skemmdir innan við sjóvarnar-
garðinn. Þá þarf að athuga
Ölfusárós, bæði austan og
Jónsson alþm.
vestan óssins og virðist vera
þörf á því, að gera talsverða
fyrirhleðslu til þess að koma í
veg fyrir frekari skemmdir.
Miklar skemmdir hafa orðið á
húsum á Eyrarbakka, saltfisk-
vcrkunarhúsið skemmdist mjög
mikið og saltbirgðir eyðilögð-
ust, trésmiðjuhús skemmdist,
auk þess fór sjór í kjallara á
mörgum húsum og olli talsverð-
um sfíemm(lurn- Vinna hefur
stöðvast í plastverksmiðjunni
vegha þess að vatn flæddi inn f
húsið og skemmdi "^ímagns-
mótora. ^
Ingólfur sagði ennfremur: Þá
hefur þess verið getið að þrír
bátar skemmdust í flóðinu og
er talið að ekki verði unnt að
gera við tvo, en líklegt að það
muni svara kostnaði að gera við
þriðja bátinn.
Allt atvinnulíf á Eyrarbakka
er lamað eins og geta má nærri,
þar sem aðeins 1 bátur sem
gerður er út í kauptúninu er nú
gangfær, en tveir bátar eru í
viðgerð og hafa verið undanfar-
Ingólfur Jónsson
ið og talið er líklegt að þeir
múni vera útgerðarfærir í byrj-
un vetrarvertíðar.
Tjónið hefur ekki verið
endanlega metið, 100 milljónir
hafa verið nefndar, en kunnug-
ur maður nefndi í morgun
hærri upphæð og þykir rétt að
þessu sinni að fullyrða ekkert
hversu mikið tjónið er, en
atvinnulíf hefur lamast og
eignatjónið er likt þvi, sem það
hefði getað orðið i snjóflóði,
sem flestum hefði þótt sjálfsagt
að bæta. Eyrbekkingar eru hóg-
værir og því vanastir að bjarga
sér sjálfir. Þeir munu því ekki
gera hóflausar kröfur um hjálp
eða greiðslu fyrir skemmdum,
sem orðið hafa, en sýnt er að
þeir geta ekki af eigin ramm-
leik endurbyggt það, sem
skemmst hefur, og mun þvf að
athuguðu máli verða talið, að
opinber aðstoð verði að koma
til umfram það sem viðlaga-
trygging bætir og umfram það,
sem tekið yrði á fjárlög til
endurbyggingar sjóvarnar-
garðsins.
— Kosin hefur verið nefnd
þriggja heimamanna til þess að
fylgja þessum málum fram og
mun hún í dag koma til við-
ræðna við þingmenn Suður-
landskjördæmis, um þann
vanda sem af tjóninu leiðir,
sagði Ingólfur Jónsson að
lokum.
Viðskiptabankarnir:
Kanna aðstoð
við frystihús