Morgunblaðið - 07.11.1975, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÖVEMBER 1975
17
Varar við endur-
skoðun á afstöðu
Islands til Evrópu
Genf, 6. nóvember. Reuter.
ÓLAFUR Jóhannesson viðskipta-
ráðherra sagði f dag á fundi ráð-
herranefndar Fríverzlunarbanda-
lagsins, EFTA, að afstaða nokk-
urrar aðildarlanda Efnahags-
bandalagsins gæti leitt til þess að
tslendingar endurskoðuðu af-
stöðu sfna til frfverzlunarsamn-
inga sinna við bandalagið.
Ráðherrann sagði að útfærslan
í 200 mílur væri aðalbaráttumál
íslenzku stjórnarinnar. Um við-
ræðurnar við Breta, Vestur-
Þjóðverja og Belga sagði hann:
„Um það er engu hægt að spá,
hvernig þeim viðræðum lyktar.“
„Núverandi afstaða eins eða
tveggja aðildarlanda EBE getur
þegar fram í sækir neytt okkur til
að endurskoða þátttöku okkar í
samstarfi Evrópurfkja í efnahags-
og viðskiptamálum,“ sagði Ölafur
Jóhannesson.
Mexíkó í
200 mílur
Mexíkóborg, 6. nóvember.
Reuter.
MEXÍKÓSTJÖRN lagði í gær
fram frumvarp um 200 mflna
fiskveiðilögsögu. Búizt er við að
þingið samþykki frumvarpið og
útfærslan taki gildi snemma á
næsta ári.
Einhver auðugustu fiskimið
heimsins eru við strendur
Mexíkó og erlendum skipum
verður bannað að veiða f hinni
nýju lögsögu án leyfis stjórn-
valda. Erlendum skipum
verður þó leyft að sigla í hinni
nýju landhelgi.
Stór hluti túnfiskafla heims-
ins er veiddur innan 200 mílna
frá ströndum Mexfkó. Mikill
fjöldi japanskra og bandarískra
skipa stundar veiðar á þessum
miðum.
Lögin taka gildi 120 dögum
eftir birtingu þeirra í lögbirt-
ingarblaði stjórnarinnar að
fengnu samþykki þjöðþingsins
að sögn fréttaritara AP f Mexf-
kóborg.
Hækkunum
mótmælt
Bucarmanga, Kolumbíu,
6. nóv. Reuter.
HERMENN og lögregla urðu að
beita táragasi til að dreifa 400
manna mótmælafundi sem lét í
ljós gremju sína vegna hækk-
aðra strætisvagnafargjalda.
Voru um 30 manns handteknir
en síðan mótmæli hófust vegna
hækkana þessara fyrir viku
hafa fimm hundruð manns
verið teknir höndum.
Jörgensen
í Caracas
Caracas, 6. nóv. Reuter.
ANKER Jörgensen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, hitti
Carlos Andres Perez, forseta
Venezuela, hér f dag, en
Jörgensen er hingað kominn í
þriggja daga heimsókji. Við
komuna sagði Jörgensen frétta-
mönnum að Danir væru reiðu-
búnir að aðstoða Venezuela
meðal annars með tækniaðstoð
og vélum og tækjum sem þá
skortir til að ýmsar iðngreinar
geti þróazt eðlilega. Þá hvatti
Jörgensen til aukinnar sam-
vinnu Caracas og Venezuela.
Jenny
má klifra
San Fransisco, 6. nóv. Reuter.
HUNDINUM Jenny í San
Fransisco hefur formlega verið
veitt heimild til að klifra í
trjám f skemmtigörðum borgar-
innar. Jenný er tveggja ára
gamall hundur og eigandi
hennar Jerry Gerbracht
kvartaði undan því að fólk f
skemmtigörðum hefði amast
við því að hún fengi _að leika sér
að því að klifra í trjám.
„Hundinum þykir bersýni-
lega mjög skemmtilegt að
klifra,“ sagði lögreglustjóri,
borgarinnar í dag. „Ég tel það
sé meinlaust gaman," og síðan
undirritaði lögreglustjórinn
skriflegt leyfi þanda Jenny.
AP mynd
Elizabeth
fær aftur
gimsteina
frá Burton
Jóhannesarborg. 6. nóv.
Reuter.
RICHARD Burton hefur verið
hér í mikilli gimsteinaleit síð-
ustu daga og hefur nú loks-
ins fundið hring sem hann
telur að samboðinn sé eigin-
konu sinni, Elizabeth Taylor,
í tilefni þess að þau hafa nú
gengið í eina sæng á ný eftir
að hafa verið skilin i ár.
Skartið sem Burton keypti
mun vera milljón dollara
virði. Hringurinn hefur 25
karata smaragðsskorinn
demant og bláhvitan demant
sem er 1 6 karata. Hringurinn
er forn og hefur verið i eigu
fjölskyldu demantssalans
Sohwarts i mörg ár.
í fyrradag keypti Burton
annan hring handa eigin-
konu sinni sem alsettur var
fjölmörgum örsmáum og
hinum dýrustu demöntum.
Isabella Peron neit-
ar að segja af sér
Buenos Aires, 6. nóv. Reuter.
MARIA Isabella Peron, forseti Argentlnu, flutti stutt ávarp til þjóðar
sinnar af sjúkrabeði, en hún þjáist af gallblöðrukvilla, og lýsti þvf yfir
að það væri alls ekki I hennar huga að segja af sér embætti, enda engin
ástæða til.
Hún sagði að hún myndi gegna
forsetaembættinu áfram með
stuðningi frá hernum, kirkjunni,
stjórnmálaflokkum og verklýðs-
hreyfingu landsins, en öll þessi
öfl hefðu heitið sér stuðningi.
Mikill þrýstingur hefur verið á
forsetann að segja af sér, nú síð-
ast eftir að upplýst varð um fjár-
drátt hennar úr opinberum sjóð-
um. Að máli hennar loknu sögðu
áreiðanlegar heimildir í Buenos
Aires að áfram myndu ýmis öfl
reyna að telja frúna á að segja af
sér, enda færi óánægja meðal al-
mennings vaxandi og ólga væri
innan hersins og ýmissa þeirra
samtaka og flokka sem forsetinn
sagði að hefðu lofað sér stuðningi.
Segir I Reuter fréttum að í raun
njóti forsetinn aðeins stuðnings
hægrisinnaðra Peronista, og í
hennar eigin flokki verði raddir
æ háværari um að hún láti sem
Framhald á bls. 24
Nýr forseti tekur
við í Bangladesh
BREZKIR TOGARAMENN
HEIMTA ÚTFÆRSLU1976
Frá Mike Smartt í Hull.
SAMBAND brezkra togara-
manna hvetur til þess I yfir-
lýsingu að brezka fiskveiðilög-
sagan verði færð út I 200 mflur
fyrir árslok 1976.
I yfirlýsingunni segir að frek-
ari dráttur stofni brezkum
sjávarútvegi og fiskmarkaðn-
um í Bretlandi i alvarlega
hættu.
Talið er æskilegast að sam-
komulag náist um slíka út-
færslu í viðræðum við
nágrannaríki, þar á meðal
aðildarlönd Efnahagsbanda-
lagsins, Noreg og fleiri ríki, en
tekið fram að landhelgin skuli
færð út hvort sem samkomulag
næst eða ekki á næstu haf-
réttarráðstefnu.
Austen Laing, framkvæmda-
stjóri brezka togaramannasam-
bandsins, segir:
„Við getum ekki beðið átekta
og sá uggur fer vaxandi í
sjávarútveginum að við munum
bíða of lengi. Líklegt virðist að
fleiri þjóðir færi út landhelgina
skömmu eftir hafréttarráð-
stefnuna og á undan okkur. Það
mun hafa hörmulegar afleið-
ingar í för með sér fyrir at-
vinnuveg okkar. Við getum
ekki farið að dæmi Islendinga
og fært út einhliða, en nú er
ekki lengur um það að ræða og
bíða og sjá hverju fram vindur.
Við vitum hvað mun gerast og
við ættum að fara að undirbúa
okkur eins og Norðmenn.
Togarasambandið, BTF, segir
að það vilji að brezka stjórnin
kalli saman ráðstefnu ríkja sem
útfærslan hefur áhrif á strax
eftir hafréttarráðstefnuna en
telur nauðsynlega forsendu
þess vera þá að breyting verði
gerð á stefnu Efnahagsbanda-
lagsins í sjávarútvegsmálum
þannig að brezkir hagsmunir
verði tryggðir.
BTF segir að bjóða ætti fleiri
ríkjum til slíkrar ráðstefnu og
að þau ættu að verða aðilar að
samkomulagi sem kunni að
nást.
I Iok yfirlýsingarinnar segir:
„Við verðum að marka slfka
stefnu og miða hana við
ákveðna dagsetningu. Nú þegar
sjáum við þess merki að sókn
erlendra fiskiskipa hefur færzt
að ströndum okkar í uggvæn-
legum mæli og þar sem tvö
hundruð mílurnar eru það sem
koma skal mun þessi þrýst-
ingur aukast svo mjög að hann
mun valda óbætanlegu tjóni.“
Ekkert bendir enn til þess að
hafinn sé undirbúningur undir
hugsanleg átök á Islandsmið-
um. Enn hafa engar viðræður
farið fram milli sjómanna og
flotans.
Baráttunefnd eins og sú
þingaði i sfðasta þroskastríði
hefur enn ekki verið mynduð.
Þó hafa fulltrúar flestra aðila
sem stóðu að henni nýlega
haldið óformlegan fund í Hull.
Nýju Delhi, 6. nóv. NTB. Reuter.
NÝR forseti Bangladesh A.M.
Sayem, forseti hæstaréttar lands-
ins, sór í dag embættiseið sinn, en
f gær lét af starfinu Kondakar
Musjtak Ahmed. Indverska
fréttastofan skýrði frá þessu I dag
og hafði eftir fréttamanni sfnum f
Dacca. Sayem sór embættiseið
sinn I viðurvist yfirmanna hers
landsins, hæstaréttar, erlendra
sendimanna og æðstu embættis-
manna landsins. Tilkynningin
um forsetaskiptin var send út í
gærkvöldi. Þar kom og fram að
Bangladesh verði á næstunni
stýrt af byltingarráði sem I sitja
tfu fulitrúar.
Ahmed sem lét af störfum for-
seta landsins í gær tók við því
eftir valdaránið i ágúst, þegar
Mujibur Rahman var tekinn af
lífi. Staða Ahmeds hefur verið
heldur óljós allar götur síðan en
eftir að óeirðir og ólga blossuðu
upp í landinu nú síðustu daga,
meðal annars innan hersins, var
ljóst að Ahmed réð ekki við
ástandið né hin stríðandi öfl.
Þegar ágústbyltingin var gerð var
núverandi forseti Sayem í Kal-
kútta, en kom til Dacca nokkrum
dögum síðar.
Búizt er við að tekið verði á
málum af verulegri hörku i
Bangladesh og útvarpið þar hefur
birt harðorðar tilkynningar um
refsingar og viðurlög til þeirra
sem hafi ólögleg vopn undir hönd-
um ef þeim verði ekki skilað hið
bráðasta.
Páskar verði á
sama degi ár hvert
Genf, 6. nóv. Reuter.
MEIRIHLUTI 271 kirkjudeildar
mótmælenda, ortodoxa og gamal-
kaþólikka sem eiga aðild að
Alkirkjuráðinu samþykkti í dag
að æskilegt væri að ákveða fasta
dagsetningu páskahátíðarinnar
sem yrði hin sama ár hvert. Gerð
hefur verið athugun á vegum
Alkirkjuráðsins og segir að
fáeinar kirkjudeildir aðeins virt-
ust hika við að leggja þessu máli
lið. Ef þetta verður samþykkt
verða páskar hvert ár annan
sunnudag í apríl.
Fulltrúi ráðsins sagði að
kaþólska kirkjan væri því hlynnt
að þetta nýja fyrirkomulag yrði
tekið upp frá og með árinu 1977,
en þá ber páskadag upp á þennan
dag.
Er nú í athugun að þeirri hvatn-
ingu verði beint frá ráðinu eftir
fund þess í Kenya seinni hluta
nóvember að aðildarkirkjur fall-
ist formlega á að fastsetja páska-
dag.