Morgunblaðið - 07.11.1975, Page 24

Morgunblaðið - 07.11.1975, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÖVEMBER 1975 Brezku sérfræðingarnir ræða við Hans G. Andersen f utanrfkisráou neytinu í gær. (Ljósm. Mbl. Sv.Þorm.) — Viðræður Framhald af bls. 40 fræðingarnir beittu við saman- tekt og gerð skýrslu sinnar, þar sem m.a. er lagt til að dregið verði verulega úr þroskveiðum hér við land og talið æskilegast að ekki verði veiddar nema 230 þúsund lestir af þorski hér við land á næsta ári. Brezku vísinda- mennirnir véfengja þannig ekki meginéfni skýrslunnar um ástand þorskstofnsins hér við land. Guðjón Guðmunds- son - Minningarorð Fæddur l(i. maí 1917. Dáinn 30. september 1975. „Inn f dauðans hljóðu hallir hurfu þeir mér einn — og tveir.“ Eftir því sem á ævina líður, verða þeir æ fleiri og fleiri, sem hverfa inn í hinar „hljóðu hallir“ hins ókomna, er bfður okkar allra. Þetta er Iðgmál lífsins, en þó ei' alltaf eins og maður hrökkvi við, sérstaklega þegar góður vinur hverfur skyndilega af sjónarsvið- inu — og líf hans allt í einu orðið minningin ein. Fyrir aðeins fáum dögum kom dálitill vinahópur saman hér heima hjá okkur eina kvöldstund, þar á meðal var Guðjón Guð- mundsson mágur minn, og Elín kona hans. Þá var hann hress óg óvenju glaður, og ekki hefði neinum dottið i hug þá, að þetta yrði í síöasta sinn, sem hann væri nreðal okkar. En þannig varð það. Guðjón Guðmundsson fæddist 16. mai 1917 að Reykjanesi í Grfmsnesi. Foreldrar hans voru hjónin Ingibjörg Ilróbjartsdóttir og Guðmundur Guðmundsson, er þar bjuggu þá; bæði Árnesingar að ætt. Um það bil, að Guðjón var 7 ára flutti fjölskyldan til Reykjavíkur og nokkru seinna slitu hjónin samvistum. Tvö yngstu börnin urðu með móður sinni, en fjórir elztu drengirnir, og þar á meðal Guðjón, fóru mcð föður sfnum að Melum í Melasveit í Borgar- fjarðarsýslu. Guðmundur hafði þá fest kaup á þeirri jörð. Ólst Guðjón þar upp með föður sínum og stjúpu. Innanvið tvítugsaldur varð hann fyrir því áfalli aö fá höfuðmeinsemd. Var hann þá fluttur til Danmerkur og gekkst undir aðgerð hjá hinum fræga dr. Bush — var einhver fyrsti sjúkl- ingurinn héðan, sém til hans fór. Aðgerðin tókst vel, en þó gekk Guðjón aldrei heill til skógar síðan. Það vita þeir, sem kunnug- ir voru. En um veikindi sín talaði Guðjón aldrei. Hann „bar ekki erfiðleika sína á torg“, eins og sagt er, Þann 31. ágúst 1940 gekk Guðjón að eiga Elinu Gísla- dóttur frá Akranesi, sem staðið hefur síðan við hlið hans sem styrkasta stoðin i blíðu og stríðu liðinna ára. Þau eignuðust tvö myndarleg og vel gefín börn: Guðmund húsgagnameistara kvæntan Jóhönnu Sigurðar- staðið, hefur jafnan ríkt kyrrlátur friður, og ég er viss um, að það átti sinn mikla þátt í þvi, hve lengi Guðjóni entist lif og starfs- kraftar. Guðjón kunni Iíka vel að meta heimili sitt og ástvini, og þá hamingju, sem lífið gaf honum í gegnum þau. Eftir að Guðjón settist að hér í Reykjavik, fékk hann réttindi sem húsgagnasmiður, og vann síðan i þeirri iðn hjá ýmsum meisturum, en lengst hjá Ilerði Þorgeirssyni, Ilann var framúr- skarandi vandvirkur og laginn. Og mér finnst þaö lýsa vel hug þeirra manna, sem hann vann hjá, að þó að Guöjón væri oft vikum saman í veikindafríi, þá var hann alltaf velkominn aftur, hvenær sem hann gat. Já, Guðjón Guömundsson var líka einstaklega vandaður og grandvar maður til orðs og æðis; prúður, góðviljaður og hjálp- samur. Því gleymum við seint, sem ótal sinnum nutum greiða- semi hans og góðvildar. Ég vil svo að endingu þakka Gui'.iónf mági minum vináttu, sem aldrei bar skugga á — og bið honum blessunar guðs. Hans „hlýja bros og hljóða. prúða ró“ mun geymast í minningu vina hans, þó árin líði. G. A. Eldur í óðali dóttur, og Þóru Elínu hjúkrunar- konu, gifta Jóni Bachmann húsa- smið. Barnabörnin eru orðin þrjú. Guðjón og Elfn áttu sitt fyrsta heimili á Akranesi, sfðan nokkur ár í Skógum undir Eyjafjöllum, þar sem bróðir hennar var fyrsti skólastjóri, en síðustu 20 árin hafa þau átt heima í Reykjavfk. Ilvar sem heimili þeirra hefur Inverary, Skotlandi, 6. nóv. AP. HERTOGINN af Argyll sagði í dag að Gainsboroughmálverk frá 1786, sem virt er á 600 þús- und sterlíngspund, hefði að lík- indum eyðilagzt f eldsvoða sem varð á ættaróðali hertogans í Inversarykastala í Skotlandi síðast liðna nótt. Vitni vantar að fjórum ákeyrslum Rannsóknarlögreglan hefur beðið Morgunblaðið að auglýsa eftir vitnum að eftirfarandi ákeyrslum f Reykjavfk að undan- förnu, en f öllum tilfellunum stungu tjónvaldar af vettvangi án þess að láta vita um atburðinn. Frá miðvikudagskvöldi 29. októ- ber til mánudagsmorguns 3. nóv- ember stóð bifreiðin R6515, sem er brún Cortina, árgerð 1971, á móts við Grettisgötu 64. Á þessu tímabili hefur verið ekið á bif- reiðina og vinstra frambretti all- mikið beyglað. Sunnudaginn 2. nóvember var ekið á bifreiðina R 26746 sem er hvít Fiatbifreið 128 þar sem hún stóð við gamla Sjálfstæðishúsið við Austurvöll. Gerðist þetta á timabilinu 21.30 til kl. 01 um nótt- ina. Vinstra frambretti var dæld- að. Mánudaginn 3. nóv. á tímabil- inu frá klukkan 8 um morguninn til 12 á hádegi var ekið á bifreið- ina R 9492, sem er Passat 1974, græn að lit, þar sem hún stóð i Þingholtsstræti við Borgarbóka- safnið. Vinstri afturhurð var dælduð og hliðin rispuð. Loks var mánudaginn 3. nóv- ember, á timabilinu 11.30 til 10, ekið á bifreiðina R 46465, sem er Mazda, brúnsanseruð. Bifreiðin stóð við verzlunina Geysi, Vestur- götumegin. Vinstri hurð var dælduð og er talið líklegt að vöru- bifreið hafi valdið tjóninu. Ef einhverjir telja sig geta veitt upplýsingar um ákeyrslur þessar eru þeir beðnír að snúa sér til umferðardeildar rannsóknarlög- reglunnar. — Sahara Framhald af bls. 1 an héldu þeir áfram ferðinni, sem er, heitið til E1 Aaiun, höfuðborg- ar Spænsku Sahara, 88 km frá Iandamærunum. í Madrid sat spænska stjórnin á löngum fundi um ástandið og viðurkennt var að sóknin til E1 Aaiun gengi fljótar en búizt hefði verið við. Spænskt herlið virðist ekki hafa fengið fyrirmæli eftir fundinn þrátt fyrir hótun Spán- verja um að beita hervaldi ef nauðsynlegt reynist. Fulltrúi Kurt Waldheims, aðal- framkvæmdastjóra SÞ, fór til New York í dag að lokinni ferð til þeirra landa, sem deila um Spænsku Sahara, en án þess að tilkynna að miðað hefði f sam- komulagsátt. öryggisráðið var kvatt saman f kvöld til að ræða ályktun eftir forseta þess, Rússann Jakob Malik, en efni hennar var ekki birt. — Luanda Framhald af bls. 1 menn hans hefðu sótt inn f Lobito og að MPLA hefði hörfað frá höfninni þar og frá Benguela. I Lissabon sagði portúgalski kommúnistaflokkurinn að hvers konar töf á því að viðurkenna MPLA sem eina lögmæta fulltrúa angólsku þjóðarinnar mundi stofna samskiptum Portúgala við sovézku valdablökkina i hættu. I Washington neitaði talsmaður utanrikisráðuneytisins að láta hafa nokkuð eftir sér um fréttir um bandaríska fhlutun f Angola, en sagði að engin sönnun væri fyrir því að bandarísk hergögn væru send þangað frá Zaire. — Vöru- markaðurinn Framhald af bls. 2 maður aðeins einn ásamt Ebeneser. I hinni nýju matvörudeild sem opnar í dag verður sérstök kjötdeild, þar sem fryst og nýtt kjöt verður selt f sjálfssölu. Einnig er gert ráð fyrir mjólkursölu. — Þess má geta, að kæli- og frystibúnaður vegna þessarar viðbótar kostaði 15 milljónir króna. Sérfræðingur frá norsku kaupmannasamtökunum var fenginn til að hanna innréttingar og niðurröðun þeirra. Tveir kæliklefar og einn frystiklefi eru til hliðar við verslunina. Þar eru geymdir ávextir og annar viðkvæmur varningur. Þessir klefar voru keyptir tilbúnir og tók um 3 klukkustundir að ganga frá hverjum þeirra. Mikil aukning hefur orðið í allri verzlun fyrirtækisins. Á þessu ári hefur orðið 92% aukning í sölu matvöru, og hef- ur verzlunin því vel undan verðbólgunni. — Svæðamótið Framhald af bls. 40 Hcl — Bd7, 16. Hc2 — Hfb8, 17. Hhcl — Hb7, 18. Rdl — a5, 19. Hc5 — a4, 20. Dc2 — Hc8, 21. Rel — c6, 22. dxc6 — Hxc6, 23. Rd3 — b4, 24. Dc4 — Hcb6, 25. R3f2 — Bb5, 26. Dc2 — b3, 27. axb3 — axb3, 28. Hc8+ — Rxc8, 29. Dxc8+ — Bf8, 30. Bxb5 — Hxb5, 31. Hc6 — Dd2 og hvítur gafst upp. — Isabella Framhald af bls. 17 allra fyrst af öllum völdum, áður en gripið verði til byltingar gegn stjórn hennar. Forsetinn sagði í ræðu sinni að landinu væri ógnað af hættuleg- um öflum innanlands og utan og rógur og áróður gegn henni væri | uppi hafður. Sagði hún að ríkis- stjórnin myndi refsa þeim grimmilega sem bæru ábyrgð á hvers konar skemmdarstarfsemi. Hún sagði að engar lagalegar for- sendur væru fyrir því að reyna að svipta hana völdum þótt hún hefði veikzt um litla hríð, enda I væri það í andstöðu við vilja meirihluta þjóðarinnar. — Evensen Framhald af bls. 1 við franska ráðamenn og heldur blaðamannafund. Hann verður í Bonn 10. og 11. nóvember og ræðir við Gelhoff, ráðuneytis- stjóra utanríkisráðuneytisins, og Zalkin ambassador. Evensen verður í Briissel 12. og 13. nóvember. Ferð hans lýkur með viðræðum í utanríkisráðu- neytinu í Haag 14. nóvember. — Rockefeller Framhald af bls. 1 hefði fallizt á hana án þess að biðja hann að halda áfram störfum. Hann forðaðist að ræða hvaða hlutverki hann mundi gegna í kosningabaráttunni en viður- kenndi að ákvörðunin ætti meðal annars rót sína að rekja til um- mæla yfirmanns kosningabaráttu Fords, Howard Calloway, þess efnis að hann yrði forsetanum til byrði sem varaforsetaframbjóð- andi. Rockefeller viðurkenndi að hann og Ford hefðu ekki alltaf verið sammála og sagði að hann mundi láta í ljós skoðanir sfnar sem fyrr ef ágreiningur risi í framtíðinni. Um helzta ágreining- efni þeirra, fjármál New York- borgar, sagði hann að gjaldþrot borgarinnar yrði gífurlegt áfall. — Borgarstjórn þakkar Framhald af bls. 3 Sveinn um eins árs skeið. Hann hefur átt sæti í útgerðarráði allar götur síðan og verið for- maður þess síðan 1963. Af þessari litlu upptalningu er ljóst, að Sveinn Benedikts- son hefur verið i fararbroddi fyrir stofnun, eflingu og rekstri Bæjarútgerðar Reykjavíkur frá upphafi og starfað óslitið á veg- um borgarinnar að þessum mál- um í 35 ár. Enginn einn maður hefur komið þar meir við sögu. Við, sem höfum með Sveini starfað, þekkjum elju hans, áhuga og ósérhlífni, þegar Bæjarútgerð Reykjavíkur er annars vegar. Um störf Sveins Benediktssonar að öðrum út- gerðarmálum verður ekki fjall- að hér, en þau eru mikil og hafa skilað góðum árangri. Ég veit, að ég mæli fyrir munn allrar borgarstjórnar, þegar ég nú flyt Sveini Benediktssyni beztu þakkir fyrir þessi frábæru störf. Ég veit, að hugur hans verður áfram hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur, og ég vona, að við megum áfram njóta hans góðu ráða, þótt hann hverfi nú úr útgerðarráðinu. — Herranótt Framhald af bls. 5 þess með eitt af aukahlutverkunum i Járnhausnum. „Að minnsta kosti finnst mér hafa verið verulega þrosk- andi að fá innsýn inn í þetta starf sem fram fer I leikhúsinu og maður lærir mikið þvl að vinna með öðrum á þenn- an hátt." Aðrir tóku I sama streng. „Já, þetta er alveg sérstakt llf — að vera leikari, held ég," sagði t.d. Haraldur. „En ekki vildi ég þó gera það að ævistarfi, ég held að mesti glansinn færi af þessu eftir nokkur skipti. Það þarf örugglega sérstakar manngerðir til að standa I þessu árum saman, þvl að þetta er rosalegt álag og svakalega bindandi " En það er með þvl hugarfari sem fram kemur hér á undan, sem aðstand- endur Herranætur ætla að flytja Járn- hausinn „Við ætlum fyrst og fremst að koma fram með hressilega sýningu," sögðu þau, „ekki neina glansmynd, heldur á allt að vera blátt áfram og skemmtilegt. En við viljum líka nota tækifærið og koma sérstöku þakklæti til forsvarsmanna Félagsheimilisins á Seltjarnarnesi, sem hafa verið einstak- lega hjálplegir og vakað með okkur um nætur meðan við vorum við æfingar án þess að krefjast nokkurrar borgunar. Þeirra aðstoð hefur verið okkur ómet- anleg." — Byggja Framhald af bls. 3 störf. Teikningum af mjólkursam- laginu er í höfuðatriðum lokið. Húsið verður um 3200 ferm. að stærð, gólffletir alls rúmlega 5000 ferm. og rúmmál um 29000 rúm- metrar. Nú í haust er áformað að jafna lóð og grafa og sprengja það sem þarf fyrir væntanlegu húsi. Ef ástand 1 peningamálum yfirleitt og fjárhagur félagsins leyfir verða framkvæmdir síðan hafnar að nýju tímanlega næsta vor. 1 þessu sambandi skiptir miklu hver fyrirgréiðsla lánastofnana verður við þessa framkvæmd. Á því tímabili, sem núverandi samlagshús hefuj: verið í notkun, hefur mjólkurmagn margfaldast, vaxið úr 1,5 millj. kg árió 1937 í 11,2 millj. kg árið 1974. Alúðar þakkir til ættingja, vina og samstarfsfólks sem með gjöfum og heimsóknum glöddu mig á sextugsaf- mæli mínu 2. nóvember. Sérstaklega þakka ég öllum þeim sem veittu mér ógleymanlegar gleðistundir i Húsafelli á afmæli minu. Jón Jónsson, frá Litla-Hvammi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.