Morgunblaðið - 07.11.1975, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÖVEMBLR 1975
Þeir stóru eftir í
meistarakeppninni
Ekkert lið frá Norðurlöndunum kamst áfram
Það verður sannkallaður
hákarlaslagur þegar átta liða
úrslitakeppni Evrópubikar-
keppni meistaraliða í knatt-
spyrnu hefst I marz. Segja má að
iiðin sem eftir eru f keppninni
séu hvert öðru frægara og betra,
en f hópi þessum eru meistarar
Frakklands, Vestur-Þýzkalands,
Spánar, Sovétrfkjanna, Hollands,
Portúgals og Júgóslavfu, auk nú-
verandi bikarhafa, Bayern
Miinchen frá Vestur-Þýzkalandi.
Þau úrslit sem komu mest á
óvart f Evrópubikarkeppninni í
fyrrakvöld voru í leik spænsku
meistaranna, Real Madrid og
ensku meistaranna, Derby
County. Fyrri leik liðanna, f Eng-
Iandi, hafði Iyktað með stórsigri
Derby 4—1, og fráleitt hafa þeir
verið margir sem talið hafa mögu-
leika á því að Spánverjunum tæk-
ist að vinna upp þennan mun á
heimavelli sfnum, jafnvel þótt vit-
að væri að þar yrðu þeir erfiðir
viðureignar.
Fyrir leikina á Spáni sögðu
Derby-menn að þeir myndu
leggja áherzlu á varnarleikinn
hjá sér, og freista þess að ná
jöfnu. Það kom líka fljótlega
fram, að Derby-menn'stilltu upp
liði sínu þannig að flestir voru
Holbœk í forystu
ÞEGAR tveimur umferðum er ólokið
I dönsku 1. deildar keppninni I knatt-
spyrnu, er staða efstu liðanna sú, að
Holbæk er I fyrsta sæti með 38 stig,
en Köge i öðru sæti með 37 stig og
Næstved I þriðja sætimeð 36 stig.
Ýmislegt getur þvi enn gerst, en
Holbæk-liðið á fremur létta andstæð-
inga eftir, og er þvt almennt spáð
sigri I 1. deildinni ! ár. Sem kunnugt
er lék Jóhannes Eðvaldsson með
Holbæk liðinu um tima ! vor, eða
fram til þess að hann gerði samning
við skozka liðið Celtic.
Meistarar fyrra árs, KB, eru !
fjórða sæti ! deildinni með 33 stig,
en síðan koma Esbjerg með 32 stig.
B 1903 með 31 stig, AaB með 30
stig, B 1901 með 30 stig, Vanlöse
með 30 stig, Randers Freja með 25
stig, Vejle með 24 stig. Frem með
22 stig, Fremad með 22 stig, B 93
með 21 stig og á botninum eru
Slagelse með 20 stig og B 1909
með 1 7 stig.
staðsettir við vftateigslínuna. En
Real Madrid lét þetta ekki á sig
fá. Þegar á 5. mfnútu skoraði
Martinez fyrsta mark leiksins, eft-
ir að vörn Derby hafði verið leik-
in sundur og saman, og slíkt kom
reyndar hvað eftir annað fyrir f
fyrri hálfleiknum, án þess að
Spánverjunum tækist að bæta við
mörkum. Máttu Derby-menn þvf
vera bjartsýnir er gengið var til
leikhlés.
I seinni hálfleiknum hélt svo
sama pressan áfram að marki
Derby, og brátt kom að því að
staðan var 3—0. Þá skoraði Carlie
George fyrir Derby, en sjö
mínútum fyrir leikslok var dæmd
vftaspyrna á Englendingana sem
Pirri skoraði sfðan úr. Að leiks-
lokum var staða liðanna því jöfn
og varð að framlengja leikinn.
Ákaft hvattir af um 120 þúsund
áhorfendum börðust Spánverj-
arnir eins og ljón og tókst að
skora það mark sem með þurfti.
Þá vakti það athygli að Bayern
Miinchen Ienti f miklum erfiðleik-
um með sænska liðið Malmö FF.
Svfarnir höfðu unniðfyrri leikinn
1—0, og f Þýzkalandi var staðan
0—0 þangað til skammt var til
leiksloka en þá tók þreytu að gæta
í sænska liðinu og Durnberger
tókst að skora fyrir lið sitt og
örfáum mínútum fyrir leikslok
bætti svo Svíinn í Bayern-liðinu,
Conny Thorstensson, öðru marki
við og meistararnir halda þvf
áfram í keppninni.
Liðin átta sem eftir eru í
meistarakeppninni eru eftirtalin:
St. Etienne, Frakklandi
Borussia Mönchengladbach, V-
Þýzkalandi
Bayern Miinchen, V-Þýzkalandi
Real Madrid, Spáni
Dynamo Kiev, Sovétríkjunum
PSV Eindhoven, Hollandi
Benfica, Portúgal
Hadjuk Split, Júgóslavíu.
Eftir leikina í fyrrakvöld verða
veðmangarar að endurskoða
afstöðu sína, en fyrir þá var
staðan þannig í Bretlandi að flest-
ir veðjuðu á Derby County.
Bikarhafar
Þá má búast við að slagurinn í
8-liða úrslitunum í keppni bikar-
hafa verði ekki sfðri en hjá
meistaraliðunum. Því miður er
okkur ókunnugt um úrslit eins
leiks f sextán liða úrslitunum:
Halada og Sturm Graz, en þau lið
sem tryggt hafa sér rétt til að
leika f átta liða úrslitunum eru:
West Ham United (Englandi),
Eintracht Frankfurt (V-
Þýzkalandi), Wrexham (Wales),
Celtic (Skotlandi), Sachsenring
Zwickau (Póllandi), Anderlecht
(Belgfu) og FC den Haag (Hol-
landi).
UEFA-bikarkeppnin
Sextán lið eru nú eftir f UEFA-
bikarkeppninni í knattsDvrnu oe
eru þau eftir talin: Club Briigge
(Belgíu), Ajax (Hollandi), FC
Porto (Portúgal), Stal Mielec
(Póllandi) Spartak Moskvu
(Sovétríkjunum), Milan AC
(Italfu), Liverpool (Englandi),
Hamburger SV (Þýzkalandi),
Inter Bratislava
(Tékkóslóvakíu), Vasas (Ung-
verjalandi) AS Roma (Italíu),
Barcelona (Spáni) Levski
Spartak Sofia (Búlgarfu),
Torpedo Moskvu (Sovétríkjun-
um) og Dyanmo Dresden (A-
Þýzkalandi).
Af upptalningunni má sjá að í
keppninni ef nú ekkert Norður-
landalið eftir, en þrjú komust
áfram f aðra umferð, Akranes frá
íslandi og Malmö FF og öster frá
Svfþjóð.
Blakmennirnir fð mörg verkefni f vetur, en ef að likum lætur eru ekki vonir
um marga sigra I landsleikjum hjð þeim. Myndin er úr landsleik islands og
Englands ð dögunum, og er það Indriði Anrórsson sem þarna reynir aS skella.
10 6LAKL1HIDSLEIKIR FYRIRHUGABIR
Á FUNDI sem stjórn BLl hélt
með blaðamönnum sl. miðviku-
dag kom fram að fyrirhugaðir eru
10 landsleikir f vetur. Um sfðustu
helgi var leikið gegn Englend-
ingum, síðan verður leikið gegn
Færeyingum 5. og 6. desember og
fara þeir báðir fram hér heima.
Það kom einnig fram að Færey-
ingar eru mjög fúsir til samvinnu
við okkur og hafa ákveðið að gefa
bikar, sem keppt verði um næstu
fimm ár.
Lftið er vitað um getu Færey-
inga í blaki, en þeir eru með álfka
mörg lið í sínu landsmóti og við. í
janúar er svo undankeppni
Ólympíuleikanna, sem fram fer á
Italíu og lentu Islendingar í riðli
með Austur-Þjóðverjum,
Minnispeningor Ólppínnefndar
ÓLYMPÍUNEFND islands hefur gef-
ið út minnispenlng úr silfri i tilefni
Ólympiuleikanna í Montreal og
Innsbruck á næsta ári. Penmginn
teiknaði Pétur Halldórsson Annars
vegar á peningnum er merki
Ólympiuleikanna í Montreal og hin-
um megin merki Ólympíunefndar
Islands. Gefnir verða út 2000
peningar og hver peningur númer-
aður, en fs-spor annaðist fram-
leiðsluna.
Þetta er i annað sinn sem
Ólympiunefnd islands gefur út
minnispening Hinn fyrri var gefinn
út fyrir leikana i Múnchen 1972.
Nokkur stykki af honum eru til enn
þá og fást þau á skrifstofu (Si i
Laugardal Ágóða af sölu minnis-
peningsins verður varið til að standa
straum af kostnaði við þátttöku
íslands i Ólympiuleikunum.
Olympíunefndin sér um 30%
kostnaðar vegna þátttöku
íslendinga í Ólympíuleikum
ÓLYMPÍUNEFND íslands efndi i
gær til fundar með fréttamönnum
og var þar greint frá starfi nefndar-
innar fyrir Ólympiuleikana i Inns-
bruck og Montreal á næsta ári Frá
þvi i desember 1973 hafa verið
haldnir 40 fundir hjá framkvæmda-
nefndmni og á þeim m a. ræddar
fjárhagsleiðir vegna kostnaðar við
þátttöku islenzkra Iþróttamanna á
leikunum Auk almennrar fjársöfn-
unar hefur verið gefinn út minnis-
peningur, um aðrar beinar fjár-
öflunarleiðir er ekki að ræða af hálfu
nefndarinnar, nema hvað Ólympiu-
dagurinn siðastliðið sumar gaf um
200 þúsund krónur i tekjur
Hversu margir íslendingar verða
meðal keppenda á Ólympiuleikun-
um næstu er enn ekki ákveðið, en á
vetrarleikunum i Innsbruck verða
keppendurnir 8 talsins Nær öruggt
má telja að frjálsar íþróttir, lyftingar,
sund og jafnvel júdó eigi þar sína
fulltrúa. Þá er enn möguleiki á því
að islenzka handknattleikslandsliðið
komist til Montreal, en varla verður
um aðrar íslenzkar keppnisiþróttir að
ræða. Rætt hefur verið um að
islenzk glíma verði sýnd á leikunum
og framkvæmdaraðilum verið ritað í
þvi sambandi Unglingabúðir verða
starfræktar i sambandi við OL i
Montreal og er unnið að þvi að
íslenzk ungmenni verði í þeim báð-
um.
Það kom fram á fundinum í gær
að fjárskortur háir mjög starfsemi
Ólympíunefndarinnar, enda eru fjár-
öflunarleiðir fáar. Riki mun þó
væntanlega greiða 55% af kostnaði
vegna þátttöku í leikunum eins og
áður, sveitarfélögin um 15% og
verður hlutur Ólympíunefndarinnar
þvi um 30%, auk þess sem sérsam-
böndunum verða væntanlega veittir
einhverjir styrkir til undirbúnings.
Búlgarfu, Spáni og Indónesíu.
Landinn á sennilega litla mögu-
leika á sigri gegn þessum þjóðum
og er ferðin meira farin til að
okkar menn fái að sjá og kynnast
með eigin augum því bezta í
íþróttinni.
A bakleiðinni frá Italíu verður
svo komið við i Englandi og leikn-
ir tveir- leikir. Þá kom fram á
fundinum að væntanlegur er
hingað til lands erlendur þjálfari,
Erík Skarback frá Svíþjóð, og
mun hann taka við þjálfun lands-
liðsins frá miðjum desember og
fara með því út í janúar og
stjórna þvl í sex landsleikjum.
Erik þessi er blakmönnum ekki
með öllu ökunnur, því hann kom
hingað veturinn sem við spiluðum
við Noreg og þjálfaði þá lands-
liðið nokkurn tfma. — Þá eru
fyrirhugaðir landsleikir við Fær-
eyinga í des. '76 og einnig við Ira
bæði heima og heiman 1976—77,
og þá væntanlega með bæði karla
og kvennalandslið, og yrði það þá
fyrsti blaklandsleikur Islands í
kvennaflokki.
Á þessu sést að mikil gróska er i
blakinu og á þessi skemmtilega
fþrótt án efa eftir að auka
vinsældir sínar hérlendis, en talið
er að um 65 milljónir manna iðki
nú blak í heiminum (1973) en
íþróttin er ekki nema 80 ára
gömul og aðeins 11 ár frá því að
hún var viðurkennd sem
Ölympíufþrótt.
HG í forystu
Kvennalið HG í Kaupmanna-
hofn, sem mætir Valsstúlkunum f
Evrópubikarkeppni meistaraliða í
handknattleik, hefur forystu f
dönsku 1. deildar keppninni og
hefur liðið hlotið 9 stig eftir 6
leiki.
Elnkunnagiöfln
VEGNA mikilla þrengsla f blaðinu f gær, varð einkunnagjöf
fyrir leiki Vals og Ármanns og Fram og Vfkings 1 1. deiidar
keppni Islandsmótsins 1 handknattleik að bfða, en hún birtist
hér með.
LIÐ ÁRMANNS:
Ragnar Gunnarsson 2
Olfert Naabye 1
Stefán Hafstein 2
Gunnar Traustason 2
Friðrik Jóhannsson 2
Hörður Kristinsson 2
Jón Ástvaldsson 1
Pétur Ingólfsson 3
Ilörður Harðarson 1
Jón Viðar Sigurðsson 2
LIÐVALS:
Ólafur Benediktsson 3
Bjarni Guðmundsson 3
Þorbjörn Guðmundsson 2
Jóhannes Stefánsson 2
Guðjón Magnússon 1
Steindór Gunnarsson 2
Stefán Gunnarsson 2
Jón Karlsson 1
Jón Pétur Jónsson 3
Gunnar Björnsson 1
DÓMARAR:
Hannes Þ. Sigurðsson
og Karl Jóhannsson 3
LIÐ FRAM:
Guðjón Erlendsson 4
Andrés Bridde 2
Kjartan Gfslason 2
Pálmi Pálmason 4
Arnar Guðlaugsson 2
Pétur Jóhannesson 2
Hannes Leifsson 1
Gústaf Björnsson 2
Jón Árni Rúnarsson 2
Sigurbergur Sigsteinsson 2
Ragnar Hilmarsson 1
LIÐ VÍKINGS:
Sigurgeir Sigurðsson 2
Rósmundur Jónsson 2
Skarphéðinn Óskarsson 2
Páll Björgvinsson 3
Magnús Guðmundsson 1
Jón Sigurðsson 2
Viggó Sigurðsson 2
Erlendur Magnússon 2
Þorbergur Aðalsteinsson 1
Ólafur Jónsson 1
Ólafur Friðriksson 1
Stefán Halldórsson 3
DÓMARAR:
Valur Benediktsson
og Magnús Pétursson 3