Morgunblaðið - 07.11.1975, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÖVEMBER 1975
39
Frá leiðbeininga-
stöð húsmæðra:
Um glasaþvott
í uppþvottavél
Þar sem uppþvottavél er á
heimilum hafa menn komist að
raun um að glösin skemmast
smám saman. Þau verða mött
og ljót enda komin skemmd í
glasið sem ekki verður bætt.
Fyrir nokkru birtist grein um
þetta vandamál í „Rád og
resultater" sem Statens
Husholdningsrád í Danmörku
gefur út. Þar segir svo:
A alþjóða vettvangi er verið
að rannsaka hvað veldur
þessum skemmdum, ekki virð-
ist unnt að finna viðeigandi
skýringu á þeim og ekki heldur
unnt að koma í veg fyrir þær.
öll glös hvernig sem þau eru
samsett, skemmast á þennan
hátt, sum fljótt önnur eftir að
búið er að þvo þau f langan
tíma í uppþvottavél. Ódýr glös
geta enst lengi, einnig dýr
krystalsglös, en ógerlegt er að
vita það fyrirfram. Jafnvel þótt
glösin hafi verið framleidd
samtímis I sömu verksmiðju
verða sum þeirra mjög mött
önnur lítillega.
Einhver spenna kann að vera
í glasinu t.d. rétt fyrir neðan
glasbarminn vegna þess að
þegar það er framleitt er glas-
barmurinn glóðaður til þess að
hann verði alveg sléttur. í slfk-
um tilvikum kemur mattur
hringur 1 sm fyrir neðan glas-
barminn.
Uppþvottaefni og gljávökvi
virðast hafa einhver áhrif á
glösin en jafnvel þótt þau séu
einungis þvegin með vatni í
uppvottavélinni verða þau
mött. Vatnið, úðunin og þær
vatnsgufur sem myndast i vél-
inni þegar glösin eru þurrkuð
geta skemmt þau.
Niðurstaðan virðist vera sú,
að ekki sé unnt að koma í veg
fyrir að glös skemmist fyrr eða
síðar séu þau þvegin í upp-
þvottavél (sum glös jafnvel
eftir nokkra þvotta). Annað-
hvort verða menn að fá sér ný
glös við og við eða þvo upp með
handafli eins og gert var áður
en uppþvottavélin kom til sög-
unnar. Það er a.m.k. æði
kostnaðarsamt að endurnýja
glasasafnið ef um krystalsglös
er að ræða.
Einnig skal tekið fram að
gylltar rendur og annað gull-
flúr á glösum skemmist fljótt í
uppþvottavélum.
Vilji menn þvo glösin sfn f
uppþvottavél þarf að gæta
eftirfarandi atriða til að draga
úr skemmdunum:
1. Nota stysta þvottakerfið
eða kerfið fyrir glasaþvott.
2. Hafa vatnið ekki of heitt í
mesta lagi 55°C.
3. Minnka vatnsþrýstinginn f
vélinni ef unnt er.
4. Nota það magn af upp-
þvottadufti og gljávökva sem
fram er tekið í leiðarvisi vélar-
innar.
5. Taka glösin úr uppþvotta-
vélinni eða opna lokið á henni
um Ieið og glösin eru þurr, svo
að vatnsgufurnar fari burt.
6. Láta ekki glös með gullflúri
í uppþvottavél.
Aður en möttum glösum er
fleygt skal athuga hvort raun-
verulega sé um skemmd á yfir-
borði glasanna að ræða. Látið
glösin í heitt borðedik, ef til vill
hverfa þá möttu skýin. Þau
hafa kannski myndast vegna
þess að ekki var þvegið upp á
réttan hátt, of mikið eða of lítið
hafi verið notað af uppþvotta-
dufti og/eða gljávökva eða þá
að uppþvottavélin vinnur ekki
á réttan hátt og þarfnast við-
gerðar.
Sigrfður Haraldsdóttir.
KARLMENN
Ný sendlng
Nýjasla tízka
LJOSIR
TÍZKULITURINN
og svo auðvitað
svartir og brúnir
Pðstsendum
Verð kr. 8950
Austurstraeti
alMIHistratir
SKRIFSTOFHVELAR H.F.
Hverfisgötu 33 Sími 20560
FACO - HLJOMDEILD
NYJAR
PLÖTUR
Litlar
Paloma Blanca
Im On Fire
Feelings
Bad Blood
Brazil
Run Joey Run
Thats The Way
Our Day Will Come:
It Only Takes A Minute:
Hotel Garabage Can:
Spáðu í mig:
Wild Night:
Jonathan King
5000 Volts
Morris Albert
Neil Sedaka
The Ricehie Family
David geddes
KC And The Sunshine
Band
Frankie Walli
Tavares
Eik
Megas
Bjarki Tryggvason.
Pop/Country rokk/soft rokk/
Split Coconut / Dave Mason kr. 1.990,-
Allt The Fun Of The Fair / David Essex kr. 1.990.-
Oh What A Mighty Time / New Riders kr. 1.990.-
Rock and Roll Moon / Billy Swan kr. 1.990.-
The Hungry Years / Neil Sedaka kr. 2.250.-
Flying Again / Flying Burrito Brothers kr. 1.990.-
ThoughtTalk / Starry Eyed and Laughing kr. 1.990.-
Extra Texture / George Harrison kr. 2.190,-
Rhinestone Cowboy / Glen Campbell kr. 2.190,-
Between The Lines / Janis lan kr. 1.990,-
Portrait Gallery / Harry Chapin kr. 2.250,-
Still Crazy After. . . / Paul Simon kr. 1.990.-
Breakaway / Art Garfunkel kr. 1.990.-
Wind OnThe Water / Crosby & Nash kr. 2.250 -
Dream / Nitty Gritty Dirt Band kr. 2.390.-
The Very Best of Poco / Poco (tvöf.) kr. 2.990,-
New Lovers and Old Friends /
Johnny Rivers kr. 1.990.-
Þungt og/eða þróað rokk
Rock of the Westies / Elton John kr. 2.250.-
Born To Run / Bruce Springsteen kr. 1.990,-
Wish You Were Here / Pink Floyd kr. 2.390.-
DriveOn / Mott kr. 1.990.-
The Edgar Winter Group /
With Rick Derringer kr. 1.990.-
Stealin Home / Baby Ruth kr. 2.190.-
Mother Focus / Focus kr. 2.200,-
Free Hand / Gentle Giant kr. 2.190,-
Blues For Allah / Greatful Dead kr. 2.390 -
The Who By Numbers / Who kr. 2.290,-
LIVE / The Sensational Alex Harvey Band kr. 2.250,-
Jass og Soul
Man-Child / Herbie Hancock
Don't It Feel Good / Ramsey Lewis
Music Keeps MeTogether / Taj Mahal
The Best Of / The Stylistics
City of Angels / The Miracles
kr. 1.990.
kr. 1.990.
kr. 1.990.
kr. 2.250.
kr. 2.250.
Laugavegi 89
Simi 13008
Hafnarstræti 17
Simi 13303.
Sendum
í póstkröf u