Morgunblaðið - 30.11.1975, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÖVEMBER 1975
Matarlausir
í Héðinsfirði
á 4. sólarhring
Skíðamenn reyndu að brjótast til þeirra
Olafsfirði 29. nóv.
FRÁ ÞVl á miðvikudag hefur verið hér norðan hvassviðri með
snjókomu. Hefur verið algerlega ófært sjóleiðina til Héðinsf jarðar þar
sem þrfr menn eru cnn tepptir eftir hrakninga scm þeir lentu I á
miðvikudag þegar þeir fóru að sækja þangað fé.
Mennirnir hafa hafzt við í
björgunarskýli Slysavarnafélags
íslands. Haft hefur verið sam-
band við þá í gegnum talstöð. Þeir
hafa haft nægan hita og líðan
þeirra verið ágæt að öðru leyti en
því, að þeir hafa verið nær alger-
lega matarlausir, en í skýlinu var
aðeins kaffi og nokkrir súpu-
skammtar.
I dag, þegar komið er á fjórða
sólarhring frá því mennirnír
tepptust, er ætlunin að þrír menn
á skíðum fari landlciðina til Héð-
insfjarðar með mat handa þre-
menningunum. Voru þeir dregnir
á snjósleðum á skíðum fram Ytri-
Árdal í morgun og siðan ætluðu
þeir að ganga yfir skarðið yfir í
Héðinsfjörð. Þá hafa þeir einnig
meðferðis skíðaútbúnað fyrir
hina tepptu menn, og er mein-
ingin að þeir komi landleiðina
heim til Ölafsfjarðar á morgun, ef
það reynist mögulegt vegna
veðurs. Ef fært er á sjó verða þeir
sóttir á báti.
— Jakob.
Guðmundur Kjærnested:
Maður vikmmar hjá
Financial Times
Lundúnablaðið The
Financial Times hefur útnefnt
Guðmund Kjærnested, skip-
herra, mann vikunnar og birti f
laugardagsblaði sínu grein um
hann, sem ber fvrirsögnina
„Þjóðhetjan af Islandi". Segir f
upphafi greinarinnar að vinir
Guðmundar segi að honum sé
mjög hlýtt til Breta og að hann
sé orðinn nokkurs konar þjóð-
hetja á tslandi, sem helzti ógn-
valdur brezkra togara við ís-
land.
„Enginn skipherra Land-
helgisgæzlunnar hefur skorið
jafnmarga togvíra og sent jafn-
marga erienda togara heim
hálftóma í þessu og fyrri
þorskastríðum eins og hann,“
segir blaðið. „Síðan íslendingar
færðu út fiskveiðilögsöguna í
200 sjómílur í október, hefur
Guðmundur stjórnað frá flagg-
skipinu Tý aðgerðunum á sjó
gegn brezku togurunum, sem
veiða innan 200 mílna mark-
anna.
Kjærnested hefur helgað lífi
sínu íslenzku landhelgisgæzl-
unni og bæði vinir og and-
síæðingar líta á hann sem einn
bezta sjómann Islendinga."
Siðan segir blaðið frá ævi-
ágripum Guðmundar og heldur
svo áfram „Skipherrann er
strangur yfirmaður. Hann held-
ur uppi strangri reglu og aga
um borð en samt sem áður er
hann vinsæll meðal undir-
manna sinna og kollega hjá
iandhelgisgæzlunni.“
Blaðið segir svo nánar frá
störfum Guðmundar bæði á sjó
og sem skipherra á flugvélum
Landhelgisgæzlunnar og endar
með þessum orðum:
„Fyrir tveim árum síðan,
þegar hann kom sem farþegi til
Heathrowflugvallar í London,
var hann stöðvaður í vcgabréfs-
eftirlitinu. Fulltrúi útlendinga-
eftirlitsins leit í vegabréf hans
og sagði svo „Svo þú ert þessi
frægi kapteinn Kjærnested,
sem sýnir að þessi duglegi varð-
skipsherra er ekki aðeins
þekktur í sínu heimalandi."
Raufarhöfn:
I ráði að loka frystihúsinu
vegna fjárhagsörðugleika
Atvinnulíf staðarins mun þá lamast
Raufarhöfn — 29. nóvember.
ÖLLU starfsfólki hraðfrystihúss-
ins hér á staðnum hefur nú verið
sagt upp með viku fyrirvara.
Fyrirtækið á við alvarlega fjár-
hagsörðugleika að etja og er
framkvæmdastjóri og stjðrnar-
formaður frystihússins fyrir
sunnan um þessar mundir til að
reyna að finna einhverja úrlausn.
Eitthvað hefur þeim þó gengið
erfiðlega f þessum erindagjörð-
um úr þvf að gripið var til þessara
uppsagna. Frystihúsið er f eigu
hreppsfélagsins og segir það
nokkuð um hug fólksins hér til
fyrirtækisins að það hefur haldið ,
áfram að starfa þótt það hafi ekki
fengið launauppgjör í 5—6 vikur.
Ljóst er að ef hraðfrystihúsið
stöðvast mun það hafa hinar
alvarlegustu afleiðingar, því að
segja má að þá lamist alit atvinnu-
líf þorpsins að miklu leyti. Á
undanförnum árum hefur rekstur
F’ramhald á bls. 46
Héðinsþjófnaðurmn:
Maður
í haldi
EINN maður er f haldi vegna
þjófnaðarins I skrifstofu vél-
smiðjunnar Héðins aðfarar-
nótt s.l. föstudags, og sagt var
frá í gær.
Þjófurinn hafði lykla að pen-
ingaskáp fyrirtækisins og
hafði hann á brott með sér 600
þúsund krónur I peningum og
400 þúsund krónur í
ávisunum. 1,8 milljón i
ávísunum fannst I peninga-
kassa ekki allfjarri Héðni.
Saga Reykjavíkurskóla
Aðventukvöld 1
Kópavogskirkju
Fyrsta bindi komið út
ÚT ER komið fyrsta bindi af Sögu
Reykjavfkurskóia, sem fyrst var
ncfndur Hinn lærði skóli í
Rcykjavfk, sfðar Hinn almenni
menntaskóli f Reykjavfk og nú
Menntaskólinn í Reykjavfk. Hér
er um að ræða fyrsta bindi af
tveimur til þremur um sögu þessa
merka skóla en ritverkið er gefið
út af Sögusjóði Menntaskólans f
Reykjavík, sem flestir afmælis-
stúdentar stofnuðu vorið 1974.
I bókinni eru m.a. myndir af
útskrifuðum stúdentum í meira
en 100 ár og nafnaskrá með rúm-
lega 6100 nöfnum. Tekið er við
áskrifendum að verkinu hjá af-
greiðslu Bókaútgáfu Menningar-
sjóðs, Skálholtsstíg 7, og fá áskrif-
endur fyrsta bindið með veru-
legum afslætti. 1 fréttatilkynn-
ingu um útkomu bókarinnar
segir:
Þetta fyrsta bindi sem hlotið
hefur undirtitlinn Nám og nem-
endur, er ofið úr tveimur þáttum.
Annar er ritgerð, sem Kristinn
heitinn Ármannsson rektor tók
saman um reglugerðir skólans og
nám I einstökum greinum fram til
1946. Hinn þátturinn er safn
mynda af nemendum skólans á
árabilinu 1869—1975, sem Heimir
Þorleifsson cand mag. hefur náð
saman og nafnsett með aðstoð
fjölmargra nemenda skólans eldri
og yngri. Þá hafa rektorarnir
Einar Magnússon og Guðni Guð-
mundsson samið kafla um reglu-
gerðir skólans eftir 1946. 1 þessu
bindi eru enn fremur skrár um
kennara skólans í hverri grein frá
upphafi og þar eru margar
myndir af kennurum, kennslu-
tækjum og kennslubókum. Þá eru
nokkrar F’aunumyndir af
„inspectorum“.
Ritverkið um sögu Reykjavikur-
skóla er gefið úr af Sögusjóði
Menntaskólans í Reykjavík, sem
flestir afmælisstúdentar stofnuðu
vorið 1974 og allir afmælis-
stúdentar 1975 styrktu mjög veru-
lega. I stjórn sögusjóðs eru Guðni
Guðmundsson rektor, Ölafur
Framhald á bls. 46
MEÐ aðventu hefst nýtt kirkjuár
og andi jólanna færist nær. Þann
andblæ á aðventan að efla, —
auðvelda okkur að opna hugina
fyrir hinum helga og háa, —
honum, sem kom og kemur himn-
um frá sem lítið saklaust barn, —
að við megum lifa.
Örugglega er öldinni ekkert
brýnna en þetta, að hann megi
eiga æ greiðarí leið inn í mann-
legt lif.
Aðventusamkomurnar eru einn
þátturinn í viðleitni kirkjunnar,
er að þessu miðar. Ein slík verður
1 Kópavogskirkju í kvöld kl. 20.30.
Vandað hefir verið til dagskrár,
eins og áður. Það er von mín, að
eldri sem yngri megi eiga góða
stund í helgidöminum, sem nú
hefir fengið verulega búningsbót.
Margir iðnaðarmenn hafa þar að
unnið, — aðrir lagt lið með ýmsu
móti. Skal þeim hér öllum enn
þakkað, einstaklingum, félögum
og fyrirtækjum, — um leið og
látin er i ljós sú ósk og bæn, að
bættur búnaður kirkjuhússins
megi auðga helgihaldið, — verða
til blessunar og uppbyggingar öll-
um er þangað koma.
Ég vona, að svo margir komi í
kvöld, að kirkjan verði þétt setin.
Efnisskráin er i höfuðatriðum
þannig, að Guðmundur Gilsson
leikur á kirkjuorgelið og kirkju-
kórinn syngur undir stjórn hans,
þær Helga Ingólfsdóttir og Elín
Guðmundsdóttir leika saman á
tvo sembala, dr. Ármann
Snævarr, hæstaréttardómari, flyt-
ur erindi, Jóhann Hjálmarsson,
skáld, flytur ljóð.
Formaður sóknarnefndar,
Salómon Einarsson, setur sam-
komuna og henni lýkur á stutri
helgistund með almennum söng.
Verið hjartanlega velkomin í
Kópavogskirkju.
Þorbergur Kristjánsson.