Morgunblaðið - 30.11.1975, Page 32

Morgunblaðið - 30.11.1975, Page 32
 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÖVEMBER 1975 UMSJÓN: Bergljót Halldórsdóttir, Björg Einarsdóttir, Erna Ragn- arsdóttir og Lilja Ólafsdóttir. Iþróttakennslan Við höfðum tal af Þorsteini Einarssyni fþróttafulltrúa ríkisins og spurðumst fyrir um leikfimiskennslu í skólum. Þor- steinn sagði okkur frá drögum að nýrri námskrá, sem lokið var við í vor og samþykkt af skóla- rannsóknardeild. Tilrauna- kennsla mun fara fram á næst- unni og hafa verið ráðnir 2 tilraunastjórar. Guðmundur Harðarson, sundkennari mun taka að sér tilraunakennslu i sundi og dr. Ingimar Jónsson er ráðinn til að stýra tilrauna- kennslu í leikfimi. Námskrá í leikfimi, sem gildir í dag er frá 1960. Mark- mið með kennslunni er það sama fyrir bæði kynin, að stuðla að andlegum, líkamleg- um og félagslegum þroska nem- endanna. Námsefni 7—9 ára pilta og stúlkna er það sama, aðallega leikfimi, hljóðfallsbundnar æf- ingar og leikir. ,i Um drengi segir f náms- skránni: 10—12 ára drengir: Nú er horfið að mestu leyti frá hinu frjálsa og barnalega leikfimiformi að skipulegri, formbundnari æfingum og starfsháttum. 13—15 ára drengir. Jöfn stígandi í vali æfinga og þyngd viðfangsefná hverrar stundar. Mikil þörf er fyrir margvíslegar mótandi æfingar og léttar samsettar æfingar. Hjá drengjum er lögð áherzla á: Næga hreyfingu, alhliða áreynslu, næga fjölbreytni í vali æfinga og sérstaklega skal leggja áherzlu á liðkun og mót- andi áhrif, svo og stökk á hest- um og dýrum, kraftstökk, höf- uðstokk, hryggstökk, Araba- stökk og svifstökk. Síðan segir í námsskránni: 10—12 ára stúlkur: Heppilegast er talið, að frá og með tíu ára aldri sé farið að taka verulegt tillit til kynjanna varðandi val æfinga. 13—15 ára stúlkur: Vegna hinna öru líkams- breytinga, sem eiga sér stað á gelgjuskeiði, og vegna erfið- leika, sem oft eru samfara að- lögun stúlkna að siðum og hátt- um fullorðinna, má ekki líta á íþróttakennslu unglingastigs- ins sem beint framhald íþrótta- kennslu í barnaskólum. I leikfimi stúlkna er aðal áherzla lögð á: Hitandi og mótandi æfingar, hlaup, gang, jafnvægi, söngleiki, dansa, viki- vaka, létta þjóðdansa, dansspor og aðrar hljóðfallsbundnar æf- ingar (leturbr. okkar). Við hittum að máli dr. Ingi- mar Jónsson, námsstjóra í íþróttum og inntum hann eftir, hvaða almennar breytingar væru væntanlegar með nýju námsskránni Dr. Ingimar sagði: I nefndaráliti eru megin markmið og námsmarkmið á eintjökum námsárum skyl- greind ítarlegar og betur en áður hefur verið gert. Með nefndarálitinu er i fyrsta sinn gerð tilraun til þess að koma á kerfisbundinni íþrótta- kennslu í öllum skólum lands- ins. Meginbreytingin er þó sú, að nefndarálitið gerir ráð fyrir íþróttakennslu, sem miðar að þvi fyrst og fremst, að æfa lík- amlegan þroska og likamlega afkastagetu nemenda, jafnan f samræmi við þroska og getu nemenda á hinum ýmsu aldur- skeiðum, (leturbr. okkar). I stuttu máli er sú stefna tekin i nefndarálitinu, að íþrótta- kennsla i skólum skuli stuðla að sem mestum líkamlegum þroska allra nemenda og veita þeim tækifæri til að þroska hæfileika sina. Þetta gildir jafnt fyrir stúlkur sem pilta. Endurskoðun námsefnis og kennslu í íþróttum í kafla nefndarálitsins um samkennslu stúlkna og pilta stendur m.a.: Eðlilegt þykir að bæði kynin njóti sama réttar til náms og sömu menntunar. 1 samræmi við þetta hefur kennsla í skól- um og starfshættir þeirra tekið talsverðum breytingum á und- anförnum árum og sú þróun heldur eflaust áfram. Líkams- uppeldi í skólum á tslandi hefur jafnan markast af rikj- andi viðhorfum og er þvi ekki að neita að fram til þessa hefur verið talsverður munur á líkamsuppeldi stúlkna og pilta. Þau drög að námsskrá, sem hér eru lögð fram, fela i sér breyt- ingu í þessum efnum. Þau gera ráð fyrir að stúlkur og piltar njóti sama likamsuppeldis og sömu menntunar þótti nokkur aðgreining á námsefni komi til i efri bekkjum. Iþróttakennsl- an býr auk þess yfir ýmsum möguleikum til þess að skapa heilbrigð viðhorf milli kynja. Næst hittum við að máli Guðrúnu Nielsen Iþróttakenn- ara. Hún hefur kennt íþróttir í 30 ár. Þess má geta, að hún átti sæti í nefnd þeirri, sem samdi drög að nýrri námsskrá. Þar sem Guðrún kennir stúlkum íþróttir á aldrinum 13—17 ára, báðum við hana að segja okkur frá reynslu sinni við kennslu þessara aldurshópa. Guðrún sagði: Stúlkur á kyn- þroskaskeiði þarfnast mikillar hreyfingar og vilja æfingar, sem krefjast átaka og áreynslu, en ekki endilega danskenndar hreyfingar. Hér áður fyrr var því haldið fram að hlífa skyldi stúlkum við miklu álagi á þessu skeiði. En nú hefur á seinni árum komið í ljós, að þær eru þá hvað hæfastar t.d. til þol- þjálfunnar. Þýðingarmikið er að foreldrar og nemendur skilji hve mikilvægt það er, að stúlk- ur fái næga áreynslu á þessum árum. Á Iþróttakennaraþingi 1974 flutti dr. Baskar, forstöðumað- ur íþróttavísindadeildar háskólans í Rostok erindi. Hann gat þess m.a., að það væri vísindalega sannað, að tíðir stúlkna ættu ekki að hindra að þær tækju þátt í íþróttum meðan áþeimstæði. Við spurðum um hennar eigin reynslu af þessu máli og svaraði Guðrún: Ég hef sett stúlkum þá reglu að mæta í leikfimi þá daga sem á tíðum stendur. Reynslan hefur ætíð verið sú, að þær hafa tekið þessu mjög vel. Ég hef haft þann háttinn á að lofa þeim að fara fram 10 mín. fyrir lok tímans og ljúka böðum áður en hinar koma fram. Ég hef hins vegar sagt stúlkunum, að þær megi hlífa sér við erfiðum æf- ingum ef þær þurfa á því að halda, en reynslan hefur ætíð verið sú, að þær hafa tekið þátt í öllu sem fram fer í tímanum. I nefndarálitinu er vikið að samkennslu drengja og stúlkna í leikfimi og báðum við Guðrúnu að skýra okkur frá einhverja viðvíkjandi þessu fyrirkomylagi. Rannsóknir sýna, að frá líf- fræðilegu sjónarmiði séð, er aðskilnaður kynjanna í íþrótt- um talinn með öllu óþarfur frám að kynþroskaaldri, en sé þá vegna ýmissa ástæðna nauð- synlegur í sumum greinum en öðrum ekki. Samkennsla hefur farið fram í tilraunaskyni viða um lönd og skoðanir manna verið skiptar. Þeir kennarar, sem reynt hafa samkennslu hér á landi telja árangurinn mjög jákvæðann.. Alit þeirra er að þetta fyrir- komulag efli gagnkvæma virðingu og skilning milli kynj- anna, stuðli að raunhæfu mati þeirra hvoru á öðruogtillitsemi og hafi örvandi áhrif á náms- árangur þeirra. Að lokum sagði Guðrún, að hin hefðbundna skipting kennslustunda og námsefnis, sem ríkt hefur fram til þessa hefur stuðlað mjög að sérgreindum áhuga ungling- anna. Við hringdum til Margrétar Bjarnadóttur fimleikakennara i Kópavogi og spurðum hana um álit hennar á íþróttaiðkun barna og unglinga sem tómstundastarfi. Hún sagði að eftir að skólaskyldu lýkur eru svo til eingöngu piltar 1 íþrótta- þjálfun. Þáttaka stúlkna er mjög lítil. Astæðuna taldi hún að miklu leyti uppeldislegs eðlis leikfimiskennsla stúlkna hefur ekki beinst eins inn á skipulagðar íþróttagreinar né keppni og sjálfsagt eru ástæðurnar fleiri. Ég vil nefna í þessu sambandi að i stjórn I.S.I. situr engin kona og hefur aldrei verið. Engin kona er heldur í Landssamtökum l.S.Í. Einkennilegt er, sagði Margrét að lokum, „að engin kona á sæti í Æskulýðsráði Ríkisins, þrátt fyrir að konur hafi með hönd- um stærstan þátt uppeldis barna i landinu." E.R. B.H.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.