Morgunblaðið - 25.01.1976, Síða 1
44 SÍÐUR
19. tbl. 63. árg. SUNNUDAGUR 25. JANUAR 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Geir Hallgrímsson forsætisráðherra við komuna til Lundúna:
„Vona að allir möguleikar
til lausnar verði kannaðir”
Callaghan með í
STYRMIR Gunnarsson rit-
stjóri Morgunblaðsins fór
til Lundúna f gær til að
fylgjast með viðræðum
Geirs Hallgrfmssonar for-
sætisráðherra og Wilsons
forsætisráðherra Breta og
fer hér á eftir fyrsta frétt
hans.
London 24. janúar.
Flugvél Geirs Hallgrfms-
sonar forsætisráðherra
lenti á Heathrowflugvelli f
London kl. 11.15 f dag og
tók Roy Hattersley að-
stoðarutanrfkisráðherra
Bretlands á mðti honum og
bauð hann velkominn. Þar
voru einnig Nfels P. Sig-
urðsson sendiherra fslands
og Helgi Ágústsson. Mikill
fjöldi fréttamanna, Ijós-
myndara og kvikmynda-
tökumanna var saman
kominn á flugvellinum er
forsætisráðherra steig út
úr þotu Flugleiða ásamt
föruneyti sfnu.
Þegar Geir Hallgrfmsson
hafði svarað nokkrum
spurningum fréttamanna
hélt hann rakleiðis til
Chequers, sveitaseturs
brezka forsætisráðherrans,
þar sem Wilson tók á móti
honum og bauð hann
velkominn. Áður en gengið
var til hádegisverðar rædd-
ust forsætisráðherrarnir
við f um 15 mfnútur og
sátu þann fund einnig
þeir James Callaghan
utanríkisráðherra og
James Peart sjávarútvegs-
ráðherra. Það vekur
athygli, að Callaghan skuli
taka þátt f viðræðunum
strax frá upphafi, en áður
hafði verið gert ráð fyrir
að hann myndi ekki taka
þátt f þeim fyrr en á sfðari
stigum, að þvf er fram kom
f samtali fréttamánns Mbl.
við Kenneth East, sendi-
herra Bretlands á tslandi,
um borð f Flugleiðaþot-
unni.
KÖNNUNARVIÐRÆÐUR
I viðtali við fréttamenn við
komuna til Lundúna sagði Geir
Hallgrfmsson forsætisráðherra,
að hér væri um að ræða könn-
unarviðræður. Hann kvaðst vera
ánægður með að til þeirra hefði
verið stofnað, en ekki hægt að
segja fyrirfram um árangurinn,
en kvaðst vonast til þess að allir
möguleikar til lausnar yrðu
kannaðir.
Forsætisráðherra var spurður
Framhald á bls. 43
Geir Hallgrfmsson forsætisráðherra við brottförina frá
Keflavfkurflugvelli f gærmorgun og er hann heilsar Roy
Hattersley aðstoðarutanrfkisráðherra Bretlands á Heat-
hrowflugvelli, þar sem Hattersley tók á móti honum og
fylgdi honum til Chequers, þar sem viðræður hans og
Harolds Wilson hófust um hádegisbilið. Á myndinni sézt
einnig Guðmundur H. Garðarsson alþm.
viðræðunum frá upphafi
Fjöldi fréttamanna á flugvellinum
Islendingar hafa nánast
ekkert svigrúm til samninga
The Times:
Lundúnum — 24. jan. — einkaskeyti AP tjl Morgunblaðsins.
Brezka blaðið The Times segir, að viðhorf tslendinga til samninga
séu jafnvel enn óaðgengilegri fyrir Breta nú en ( upphafi þorskastrlðs-
ins.
Trawling Times, málgagn
brezka fiskiðnaðarins, segir ts-
lendinga allt að þvl móðursjúka I
afstöðu sinni til málsins. Aðrir
brezkir fjölmiðlar fluttu f dag
fréttir af sfðustu atburðum á
miðunum og segja brezku rfkis-
stjórnina gera Iftið úr sam-
skiptum varðskipsins Ægis og
fimm brezkra togara s.l. föstudag.
Trawling Times lætur f jós þá
skoðun, að flotaverndin á tslands-
miðum hafi tekizt vel og frá upp-
hafi þorskastrfðsins og til ára-
móta hafi togarafiotinn aflað
tveimur þús. tonnum meira á
miðunum en á sama tfma f fyrra.
Þannig sé aflamagn brezkra
togara á Islandsmiðum nú að
jafnaði um 10 þúsund tonn á
mánuði. Um leið lætur Trawling
Times f Ijós ótta við að stjórn-
málamenn séu f þann veginn að
láta undan kröfum tslendinga til
lausnar deilunni.
BRETAR HAFA SJALFA
SIG AÐ FlFLUM,
SEGIR THE TIMES
The Times birti f gær grein, og
er höfundur hennar hliðhollur
málstað tslendinga. Hann telur
aðgerðir Breta á miðunum „óverj-
andi frá siðferðilegu sjónarmiði"
með tilliti til kröfu þeirra um
yfirráð yfir olfulindum úti fyrir
ströndum Bretlands.
Þá segir í greininni f The
Times:
„tslendingar hafa nánast ekk-
ert svigrúm til samninga vegna
stjórnmálaástandsins innanlands
og af fiskifræðilegum ástæðum.
Margir lslendingar líta svo á að
tilboð Geirs Hallgrímssonar f
nóvembermánuði um 65 þúsund
tonn hafi verið ailtof rausnar-
legt. Skoðun greinarhöfundar er
sú, að fslenzka rfkisstjórnin muni
riða til falls verði tilboð hennar
nú nálægt 65 þúsund tonnum.
„Það, sem brezka stjórnin og
brezki fiskiðnaðurinn hafa ekki
gert sér grein fyrir, er það, að
Islendingar eru alvarlega, og það
ekki að ástæðulausu, hræddir um
að þorskstofninn eyðist með öllu
verði veiðum haldið áfram á sama
hátt og nú er gert. Fiskifræðingar
telja, að i lok þessa áratugar verði
enginn þorskur eftir, nema
Bretar og tslendingar fari eftir
Framhald á bls. 43
Rússar kalla
Thatcher
„Járnfrúna”
Moskvu 24. janúar Reuter.
RAUÐA stjarnan, máigagn
sovézka varnarmálaráðuneytis-
ins, réðst I dag harkalega á
Margaret Thatcher, leiðtoga
brezka lhaldsflokksins, kailaði
hana „Járnfrúna" og sakaði
hana um að reyna að endur-
vekja kalda strfðið. Dálkahöf-
undur blaðsins, Y. Gavrilov,
herforingi, lýsti ræðu, sem frú
Thatcher fiutti í London á
mánudag, sem heiftarlega ill-
gjarnri í garð Sovétrfkjanna,
en f ræðunni sakaði frú
Thatcher Sovétmenn um að
auka herstyrk sinn um vfða
veröld.
Framhald á bls. 43