Morgunblaðið - 25.01.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANUAR 1976
7
HUGVEKJA
eftirsr.
Þóri Stephensen
Fyrirsögnin er tekin úr einu
af guðspjöllum þessa sunnu-
dags, hins þriðja eftir
þrettánda Orðin eru þar höfð
eftir lærisveinum Jesú,
sem finna sig ekki of sterka á
svellinu á neinn hátt. En þeir
finna, að þetta er undir-
staðan. Því meiri trú, því
sterkari menn Og þeir áttu
eftir að sannreyna þetta.
Trúin á Krist bar þeim marg-
víslega blessun i skauti sér.
Og frá þeim hefur trúin
breiðst út og borist frá kyn-
slóð til kynslóðar
En ýmislegt breytist á
langri leið. Trúin breytist þó
e.t.v. ekki sem slík, en trúar-
viðhorfin verða oft önnur.
Saga kristinnar kirkju ber
þess ótvíræð merki. Stund-
um hefur verið lögð mest
áhersla á að kenna hina
réttu trú. En slík braut er
vandrötuð, því hver á þar að
dæma? Á öðrum tímum
hefur verið lögð einhliða
áhersla á hinar heitu til-
finningar trúarinnar. Sú leið
er einnig vandfarin, þvi þar
er skammt út í öfgar of-
stækisins. En þannig geta
verið ýmsar og býsna ólikar
stefnur á ferð, enda þótt
grundvöllur og bakgrunnur
sé hinn sami, sá Kristur, sem
guðspjöllin segja frá.
Ég er að vona að mönnum
verði það smám saman Ijóst,
að skýringin á stefnumun i
trúmálum þarf ekki að liggja í
orðunum rétt eða rangt,
hvort um sé að ræða rétta trú
eða ranga, heldurfullt svo
oft i mismunandi mann-
gerðum. Mennirnireru svo
ólíkir að gerð, margbreyti-
legir að hugsun og eðli.
Það er ekkert óeðlilegt við
það að leiðirnar séu margar
sem liggja til Krists. íhugum
hvernig lútherskir menn einir
hafa greinst í skoðanahópa,
sem allir rekja sig til Lúthers.
Bæði persóna hans og
skoðanir voru svo víðfeðma,
að slikt er í hæsta máta
eðlilegt. Rétttrúnaðarmenn
sjá í honum guðfræðinginn,
sem þeir vitna i nálega eins
og Biblíuna Heittrúarmenn
sjá þar hinn endurfædda
mann. Dultrúarmenn finna i
honum mikinn dulspeking,
og skynsemistrúarmenn
finna í honum hinn lifsglaða
heimsmann, sem ekki var
hræddur við að hafna
gömlum kreddum.
Þannig hefur Lúther
reynst, og er hann þó langt
frá því að vera sambærilegur
við Krist
Ég hef aldrei getað séð
neitt athugavert við það, þótt
við séum ekki allir sammála
um leiðirnartil Krists. Það er
hann sjálfur, sem skiptir
máli, en ekki leiðin til hans.
Hann bað aldrei um það, að
við yrðum allir eins í afstöðu
Auk
oss
trú
okkar til hans, en allir eitt,
það er annað mál. Við hljót-
um sem kristnir menn, að
eiga allir eitt markmið, en
leiðirnar að markmiðinu
hljóta alltaf að verða margar
og mismunandi, af þvi að við
erum ekki allir eins.
En tilhneigingin til að segja
öðrum fyrir verkum er svo
sterk okkar á meðal og það
jafnt í andlegum efnum sem
veraldlegum. Ég hygg þó, að
trú mannsins sé í raun það,
sem sist af öllu megi binda
eða fella undir eitthvert
ákveðið alhæft kerfi. Frelsi
og sjálfstæð hugsun eru
aðalsmerki nútímamanns, og
andleg spennitreyja, hvort
sem hún er kirkjuleg eða
stjórnmálaleg, er ekki í sam-
ræmi við hugsun hans.
Jesú Kristi verðuraldrei
þvingað inn í nútimann i ein-
hverri ákveðinni mynd eða
samkvæmt einhverri
ákveðinni aðferð. Jesús
Kristur er af sjálfum sér svo
eftirsóknarverður. að hver
einasti hugsandi maðursem
einhver deili veit á honum,
hlýtur að bera með sér. þótt
hann viðurkenni það kannski
ekki alltaf, þrá til að eignast
hann eða þau lifsgildi sem
hann boðar. Hvaða leið
hverjum og einum er svo
aftur heppilegust til hans, er
aftur mjög einstaklingsbund-
ið Þess vegna finnst mér
það skylda mín, hvenærsem
ég kynnist leitandi manni, að
hjálpa honum á hans eigin
leið Ég get ekki litið svo á að
min leið hljóti að henta
honum, þó að hún henti mér
betur en sú leið sem hann
fer. Aðalatriðið er að hann
nái að elska Krist og eignast
trú á hann og í gegnum
hann.
Mikið hefur verið deilt um
gildi spíritismans í þessum
efnum. Staðreynd er hins
vegar, að spíritismi eða sálar-
rannsóknir hafa hjálpað mikl-
um fjölda manns hérá landi
til Krists. Þess vegna er I
rauninni furðulegt, að þessi
leið skuli svo harkalega
vefengd sem raun ber vitni.
Sú vefenging virðist a.m.k.
ekki byggjast á mikilli þekk-
ingu á málefninu, sem um er
rætt Trúlega er þar ekkert
síður i bakgrunni of þröngur
skilningurá Kristi sjálfum, en
á manninum sem leitar hans.
Lesandi minn. Ég endur-
tek, að aðalatriðið er Kristur
sjálfur, ekki leiðirnartil hans.
— En svo er það með trúna
eins og flest annað eftir-
sóknarvert, að hana eignast
menn ekki i eitt skipti fyrir
öll. Trúarlíf er og verður bar-
átta. Það er ekki nóg að ná til
Krists. Þú verður lika að læra
að þekkja hann. Það gerir þú
með þvi að lesa um hann,
með þvi að koma til móts við
hann í bæn þinni og ekki sist
með því að lifa boð hans.
Þannig getúr þú í senn
aukið þekkingu þina og
dýpkað trú þina, gjört hana
að æ einlægara trausti á
þeim guðlega mætti, sem
hann er sendur með til móts
við manninn, hvern einstakl-
ing, hann hinn eilífi lifandi
Drottinn.
Með kirkjugöngu getur þú
sameinað flest það, sem upp
var talið hér að framan.
Minnstu þess, að i dag er
sunnudagur, Drottinsdagur.
Mundi það ekki gjöra þér
gott að vitja í dag sætis þíns i
kirkjunni þinni og taka þátt i
tilbeiðslunni, hlýða á það,
sem þar er lesið og leggja
kannski fram lítinn skerf til
þeirrar söfnunar, sem þarfer
fram handa holdsveikum
bræðrum okkar úti í heimi.
Eða þarft þú kannski ekki að
biðja þessarar gömlu bænar:
Auk oss trú?
Pantið þorramatinn
hjá okkur
Sendum heim og
tökum aö okkur þorrablót
Veitingahúsið
Simi 85660
Utsala — Bútasala
Terelynebuxur frá 1975 kr. Vattst. nylonúlpur
kr. 2675 kr. dömu og herra. Nærbuxur 1 50 kr.
Terelynefrakkar 3575 kr. Skyrtupeysur lítil nr.
675 kr. o.fl. Terelynebútar 670 kr. í herra-
buxur.
ANDRÉS, SKÓLAVÖRÐUSTÍG 22 A.
HELZTU KOSTIR:
★ 800w mótor
— tryggir nægan sogkraft
★ Snúruvinda
— drogur snúruna inn
í hjólið ó augabragði.
★ Sjálflokandi
pokar — hreinlegt að skipta um þá
★ Rykstillir
— lætur vita þegar
pokinn er fullur.
★ Sjálfvirkur rykhaus
rykhaus — lagar sig að fletinum
sem ryksuga é
Léttbyggð - Lipur - Stöðug
Verðtilboð
kr. 42.900.—
(Gildir til 1. marz).
Eignist slika vél með aðeins 10 000 kr. útborgun og
kr. 6.000 á mánuði i sex skipti.
\ förumarkaðurinn hf.
Ármúla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-112 Matvörudeild S-86-111. Vefnaðarv.d. S 86-113
V___________________________________/