Morgunblaðið - 11.02.1976, Qupperneq 1
28 SÍÐUR
33. tbl. 63. árg.
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRUAR 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Slmamynd AP
Frá viðræðum Joseph Luns og Henry Kissingers I Washington í gær.
Fer Júlí-
ana úr
hásætinu?
Haag, 10. febrúar. Reuter.
Hollenzka stjórnin skipaði
nefnd í dag til að rannsaka ásak-
anir um að bandarfska flugvéla-
fyrirtækið Lockheed hafi greitt
Bernharð prins 1.1 milljón doll-
ara f mútufé. Nefndinni var skip-
að að hraða störfum sfnum og
skila nákvæmri skýrslu.
Jafnframt er hafin rannsókn á
hugsanlegum tengslum yfir-
manns sænska flughersins við
Lockheed, Tanaka fyrrum forsæt-
isráðherra Japans hefur verið
framhald á bls. 12
Moro myndar
nýja stjórn
ViðræðurLuns við Fordog Kissinger:
Sterkur skilningur
á vanda íslendinga
ÞAÐ kom fram mjög sterkur skilningur Bandarfkjamanna á erfið- „Því næst var Luns í hádegis- erfitt með það — og aðeins reynt
leikum fslenzku ríkisstjórnarinnar að koma mikið til móts við Breta og
á þvf hvað þetta er miklu alvarlegra vandamál fyrir Islendinga en
Breta þótt ástandið sé býsna erfitt f fiskibæjunum f Bretlandi", sagði
Haraldur Kröyer sendiherra um viðræður Joseph Luns, aðalfram-
kvæmdastjóra NATO, við Ford forseta og Henry Kissinger utanrfkis-
ráðherra f Washington f gær um fiskveiðideilu Islendinga og Breta.
„Bandaríkjamenn munu hafa
lýst yfir stuðningi sinum við það
hlutverk Luns að reyna að koma
einhverju í kring i London, er
geti skapað þá aðstöðu á ný að
hægt verði að taka upp
viðræður,“ sagði Haraldur Kröyer
en kvaðst annars lítið geta sagt
efnislega frá viðræðunum.
„£g var fyrst á fundi með
Joseph Sisco varautanríkisfáð-
herra kl. 10 í morgun til að setja
hann sem bezt inn i myndina séð
frá sjónarhóli ríkisstjórnar okkar.
Síðan var Luns framkvæmda-
stjóri á fundi með Sisco í einn
klukkutíma og um það bil
helmingurinn af þeim fundartíma
mun hafa farið i að ræða deilumál
okkar við Breta til undirbúnings
för hans til London,“ sagði
Haraldur.
John Prescott
í „friðarferð”
JOHN Prescott, þingmaður
Verkamannaflokksins frá Hull,
sagði f gær að hann ætlaði að fara
til Revkjavikur á laugardaginn
til að reynda að binda enda á
fiskveiðideilu Breta og tslend-
inga. „£g er hræddur um að ef
þessu heldur áfram öllu lengur
kunni einhver kjósenda minna að
bfða bana f þessum dauóadansi,"
sagði hann.
Prescott dveist fjóra daga í
Reykjavík og sagði að ráðstafanir
hefðu verið gerðar til þess að
hann gæti hitt áhrifamenn að
máli og metið þannig möguleika á
samkomulagi. Prescott er í
vinstra armi Verkamannaflokks-
ins og hefur oft látið í ljós samúð
sína með vandamálum Islendinga
og málstað þeirra i fiskveiði-
deilunni.
Hann kvaðst oft hafa fengið boð
um að fara tíl tslands en aldrei
Prescott
þekkzt þau fyrr en nú. „Mér
finnst timi til kominn að fara og
kynna mér rækilega hvað mál-
staður þeirra er sterkur. Astandið
er þannig að allir stjórnmála-
menn ættu að minnsta kosti að
reyna að tala beint við þá menn
sem viðriðnir eru báðar hliðar
deilunnar,“ sagði hann.
Prescott sagði að einn helzti til-
framhald á bls. 12
verðarboði hjá Henry Kissinger
utanrikisráðherra og þar ræddu
þeir málið líka. Kl. 3 eftir hádegi
átti Luns fund með Ford forseta i
Hvíta húsinu og fyrsta málið sem
þar var fjallað um var okkar
mál,“ sagði hann.
„Luns hringdi i mig þegar hann
var kominn á hótel sitt áður en
hann fór út á flugvöll í kvöld til
þess að fara til London," sagði
Haraldur Kröyer „til að tjá mér í
stórum dráttum frá þvi sem farið
hefði á milli i viðræðunum. Næst
mun hann sem sagt ræða við
Harold Wilson forsætisráðherra
og James Callaghan utanrikisráð-
herra í London. Ekkert hefur
verið ákveðið um hvort hann
kemur til Reykjavikur en hann er
reiðubúinn til þess ef ríkisstjórn-
in telur að eitthvert gagn geti
orðið af þvi i ljósi þess sem fram
kemur í viðtölum hans í London."
„Yfirleitt má segja, “ sagði
Haraldur Kröyer aðspurður að
lokum, „að Bandaríkin hafi
forðazt að blanda sér efnislega
inn í deiluna — telji sig eiga
að stuðla að þvi að báðir aðilar
Framhald á bls. 15
Róm, 10. febrúar. Reuter.
STJÖRNARKREPPAN á Italiu
var leyst til bráðabirgða f dag
þegar Aldo Moro forsætisráð-
herra féllst á að mynda minni-
hlutastjórn kristilegra
demókrata. Stjórnin nýtur
stuðnings sósfaldemókrata en
sósfalistar og lýðveldissinnar
hafa samþykkt að berjast ekki
gegn henni.
Hlutverk stjórnarinnar verður
að lægja miklar öldur sem hafa
risið í stjórnmálum og efnahags-
málum eftir raunverulega 10%
lækkun lirunnar. Þetta verður 38.
stjórn Itala síðan 1943 og fimmta
stjórn Moros.
Luigi Gui, fráfarandi innan-
ríkisráðherra, hefur færzt undan
Framhald á bls. 15
Tillaga framkvæmdanefndar EBE:
Bandalagið ein heild
í fiskveiðimálunum
Bríissel — 10. febr.
einkaskeyti APtil Morgunblaðsins-.
A FUNDI utanrfkisráðherra
Efnahagsbandalagsrfkjanna f
gær var skýrt ýtarlega frá málum
sem ráðherrar munu þurfa að
taka afstöðu til á hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna, er
fram verður haldið f New York
15. marz n.k. I skýrslu, sem lögð
var fyrir ráðherrafundinn, kemur
m.a. fram að Efnahagsbandalagið
verður að taka sameiginlega
stefnu sfna f sjávarútvegsmálum
til endurmats. Þá er lagt til að
bandalagið skipi sérstakan aðila
til að koma fram fyrir sfna hönd
gagnvart utanaðkomandi löndum
I sambandi við fiskveiðar þeirra á
miðum á yfirráðasvæði Efnahags-
bandalagsins og fiskveiðar
aðildarrfkjanna á hafsvæðum
innan lögsögu annarra rfkja. I
skýrslunni kemur fram, að
aðildarrfkin þurfi að samræma
stefnu sfna fyrir ráðstefnuna f
New York.
Utanríkisráóherrarnir beindu
því til framkvæmdastjórnar Efna-
hagsbandalagsins, að hún skilaði
tillögum sinum fyrir 15. febrúar,
en enn er ekki vitað hvort störf-
um verður lokið fyrir þann tíma.
framhald á bls. 12
MPLA virðist hafa
tryggt sér sigurinn
London 10. febrúar. Reuter.
HERLIÐ Marxistahreyfingarinnar MPLA náði á sitt vald f dag hafnar-
bæjunum Lobito og Benguela og mætti engri mótspyrnu þegar það
sótti inn f bæina að sögn júgóslavnesku fréttastofunnar Tanjug. Þar
með virðist sigur MPLA vfs f styrjöldinni.
Suður-afrfskir hermenn og leifar herliðs Unita-hreyfingarinnar
höfðu hörfað frá Lobito og Benguela þegar herlið MPLA tók bæina að
sögn Tanjug. Sókn MPLA mun nú beinast að bænum Sa Da Bandeira.
Seinna sagði útvarp MPLA i Lu
anda að herlið hreyfingarinnar
hefði tekið Benguela og Lobito og
auk þess bæinn Catumbela. I Jó-
hannesarborg var sagt að fall
Benguela gæti þýtt að hernaðar-
mótstöðu Unita væri lokið og nú
virtist líklegt að Jonas Savimbi,
foringi hreyfingarinnar, skipaði
mönnum sínum að hörfa til skóg-
ar og hefja skæruhernað.
MPLA sagði einnig frá „óskipu-
legu undanhaldi" Unita á austur-
vigstöðvunum. Herlið hreyfingar-
irnar hefur þegar unnið viður-
eignina á norðurvigstöðvunum.
Víkingasveitir MPLA virðast hafa
sótt með stuðningi skæruliða
framhald á bls. 12