Morgunblaðið - 12.03.1976, Page 2

Morgunblaðið - 12.03.1976, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976 Langir samninga- fundn* - h'till árangur SAMNINGAFUNDIR milli frvsti- húseigenda á Akranesi og kvennadeildar Verkalýðsfélags Akraness og milli farmanna og fulltrúa skipafélaganna stóðu enn yfir í gærkveldi, er Mbl. hafði samband við sáttasemjara rikisins, Torfa Hjartarson. Vildi hann ekki tjá sig um deilur þess- ara aðila, en fundur með Akra- neskonum hafði þá staðið frá því klukkan 10 um morguninn og með farmönnum frá klukkan 14. Samningafundur meó blaóa- mönnum og fulltrúum Félags blaöaútgefenda i Reykjavík, sem hófst i fyrradag, en var frestað síðdegis þar til klukkan 23 i fyrra- kvöld stóð til klukkan 06.30 í gær- morgun án þess að nokkur veru- legur árangur næðist. Blaðamenn hafa enn eigi boðað verkfall, en stjórn Blaðamannafélags Islands hefur á hendi verkfallsheimild og getur boðað verkfall hvenær sem er með viku fyrirvara. Þykir held- ur þunglega horfa um samkomu- lag. Nýr fundur hefur verið boð- aður í dag kl. 13.30. Torfi Hjartarson sagði að á veg- um embættis hans hefði ekki ver- ið haldinn sáttafundur með sjó- mönnum á Austfjörðum og út- vegsmönnum þar. Torfi sagði að enn hefði víða ekki verið gengið til atkvæða í félögunum þar eystra um samningana, sem náó- ust milli LlU og fulltrúa sjó- manna og því væri óhægt um vik fyrir sáttasemjaraembættið að gripa inn i. Séra Sigurður Guð- mundsson, varahéraðssáttasemj ari á Eskifirði, mun hafa haldið sáttafund eystra um sérkröfur, en fregnir af fundum í gær höfðu ekki borizt i gærkveldi. Þá var í fyrradag boðaður sátta- fundum milli sjómanna og útvegs- manna á Stokkseyri, en þar hafa gilt sjómannasamningar, sem hafa verið nokkuð frábrugðnir öðrum sjómannasamningum. Felldu sjómenn á Stokkseyri kjarasamningana, sem gerðir voru um daginn. I gærmorgun náðist si'ðan samkomulag í deil- unni og var það samþykkt á fé- lagsfundi sjómanna i gær og var því verkfalli sjómanna á Stokks- eyri aflýst, en það hafði staðið frá 14. febrúar sl. Ljósm. Mbl.: RAX KAUPMANNASAMTÖKIN — Ölafur Jóhannesson viðskiptaráðherra flytur ræðu sfna á fundi Kaupmannasamtakanna 1 gær. Hægra megin við hann sitja Sveinn Björnsson, Gunnar Snorrason, formaður Kaup- mannasamtakanna, og Magnús Finnsson framkvæmdastjóri. Hlaut 8 mán- aða fangelsi FYRRVERANDI oddviti Svarfaðardalshrepps varð i fyrra uppvís um fjárdrátt úr sjóði hreppsins á árunum um og eftir 1970 að upphæð sam- tals 1 milljón og 354 þúsund krónur. Er upphæðin töluvert hærri ef hún er færð á núver- andi verðlag. Oddvitinn hefur nú greitt fé þetta að fullu. Ný- lega gekk dómur á málinu og var oddvitinn dæmdur í 8 mán- aða óskilorðsbundið fangelsi. Sigurður Hallur Stefánsson héraðsdómari í Keflavík kvað upp dóminn, en hann var setu- dómari í málinu. Oddvitinn lét af störfum í júní 1974 og hafði þá gegnt starfinu í 10 ár. Varð uppvíst um fjárdráttinn í sam- bandi við skil hans á sjóðum hreppsins. Viðskiptamálaráðherra á aðalfundi Kaupmannasamtaka íslands: Æskilegt að ný verðlagslöggjöf taki við Jiegar verðstöðvun lýkur Úr lifshættu PILTUR sá, sem varð fyrir árás í Klúbbnum um s.l. helgi, er á góðum batavegi. Hann er talinn úr lífshættu og hefur verið fluttur af görgæzludeild Landspítalans. Maðurinn sem viðurkennt hefur árásina, var látinn laus að lokinni yfir- heyrslu. ráðherra gera sér grein fyrir að verzlunin ætti sem aðrar atvinnu- greinar við margvísleg vandamál að stríða Hann kvaóst gera ráð fyrir að þessi vandamál væru einkum tvenns konar — annars Gunnar Snorrason endurkjörinn formaður KI KAUPMANNASAMTÖK Islands héldu aðalfund sinn í gær. Á fundinum flutti viðskiptaráð- herra, Olafur Jóhannesson ávarp, Gunnar Snorrason, formaður Kl, og Magnús E. Finnsson fram- kvæmdastjóri samtakanna, gerðu grein fyrir starfsemi þeirra á sl. ári. Kom fram hjá þeim báðum að smásöluverzlunin á við miklaerf- iðleika að stríða um þessar mund- ir. Þá fór fram stjórnarkjör, og var Gunnar Snorrason endur- kjörin formaður Kaupmanna samtakanna, en Þorvaldur Guð- mundsson kjörinn varaformaður í stað Sveins Björnssonar er ekki gaf kost á sér. 1 ávarpi sínu kvaðst viðskipta- vegar erfiður rekstrargrundvöll- ur og hins vegar skuldir og lausa- fjárstaða, og væri hvort tveggja erfitt viðfangs. Þá væri að geta nýgerðra kjarasamninga en eftir væri að sjá hvaða áhrif þeir hefðu BSRB fær marzhækkun almennu samninganna Alþýðuflokkurinn 60 ára ALÞÝÐUFLOKKURINN er 60 ára I dag, 12. marz, en hann var stofnaður um leið og Alþýðu- samband Islans. 1 frétl frá Al- þýðuflokknum segir að flokk- urinn hafi verið stofnaður 1916 af fulltrúum sjö verka- lýðsfélaga f Revkjavík og Hafnarfirði. Voru stjórnmála- flokkurinn og verkalýðssam- bandið frá upphafi ein og sama stofnunin, og hélzt sú skipan allt til 1940, er þau voru aðskilin. Alþýðuflokkur- inn er elzti starfandi stjórn- málaflokkur landsins. Alþýðuflokkurinn mun minnast 60 ára afmælisins með sérstökum fundi flokksstjórn- ar næstkomandi laugardag en á sunnudag verður afmælishá- tíð á Hótel Sögu og hefst kl. 2 eftir hádegi. Strax og Alþýðuflokkurinn var stofnaður hófst framboð til bæjarstjórnar og Alþingis. Fyrsti þingmaður hans var Jörundur Brynjólfsson. Alls eru nú í Alþýðuflokkn- um 45 félög. Formenn flokks- ins hafa verið Ottó N. Þorláks- son 1916, Jón Baldvinsson 1916—1938, Stefán Jóhann Stefánsson 1938—1953 og síð- an þeir Hannibal Valdimars- son, Haraldur Guðmundsson, Emil Jónsson, Gylfi Þ. Gísla- son og Benedikt Gröndal. BANDALAG starfsmanna ríkis og bæja hefur náð samkomulagi Fylgi Vökuvex VAKA, félag lýðræðissinnaðra stúdenta bætti við sig umtals- verðu fylgi 1 kosningum til stúdentaráðs Háskóla Islands, sem fram fóru í gær. Á kjörskrá voru 2784, þar af greiddu atkvæði 1621, sem er 58,23%. A-listi Vöku hlaut 706 atkvæði eða 45.26% af greiddum og gildum atkvæðum. B-listi vinstri manna hlaut 854 atkvæði eða 54,74% af greiddum og gild- um atkvæðum. Auðir seðlar voru 46 og ógildir 15. 1 kosningunum f fyrra kusu 1558 af 2549 er voru á kjörskrá eða 61.12%. Þá hlaut A-listi Vöku 671 atkvæði en B-listi vinstri manna848 atkvæði. við fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs um hækkun á launa- töxtum opþinberra starfsmanna um 6% frá og með 1. marz og að ennfremur komi til 1.500 krónu láglaunauppbótar fvrir þá félags- menn í BSRB, sem hafa laun lægri en 54 þúsund krónur, og jafnast út á bilinu upp að 57 þúsund krónum. Er þetta í sam- ræmi við rammasamning ASI og VSl. Þessi hækkun er umsamin á gildandi samningstíma sam- Framhald á bls. 24 á verzlunina sem aðrar atvinnu greinar. Þó væri auðsætt að þeim myndi fylgja aukinn tilkostnaður, sem sjálfsagt væri ekki hægt að leggja á hið breiða bak verzlunar- innar heldur yrði að taka tillit til þessarar kostnaðaraukningar við verðlagningu. Ennfremur sagði ráðherra að sér væri ljóst að samfara sífelld- um hækkunum þyrfti verzlunin stöðugt á auknu fjármagni að halda til að geta haldið í horfinu, og yrði reynt að sækja það til banka og lánastofnana, sem ekki væri alveg auösótt mál nú á dög- um. Sú nauðsyn að setjaskorður á útlán þessara stofnana bitnaði óhjákvæmilega beint á verzlun- inni, en einnig óbeint, þar eð henni væri eins og öðrum gert að greiða hærra endurgjald fyrir það fé sem fengist að láni, þ.e. í vöxt- um. Kvað ráðherra ljóst af þeirri framvindu sem átt hefði sér stað í þessum efnum, að taka yrði öll rekstrarlán til éndurskoðunar. Varðandi útlánin að öðru leyti sagði viðskiptaráðherra að bank- Framhald á bls. 24 Alþýðusambandið 60 ára Niðurstaða athugana á flóðinu í Jökulsá á Fjöllum: OÉsaleg vetrarhláka oUi flóðinu, sem einnig kom fram í öðrum stórám KOMIÐ hefur I Ijós, eftir að Sigurjón Rist, vatnamælinga- maður, hefur kannað rennsli áa á Norðausturlandi, að flóðið, sem varð í Jökulsá á Fjöllum hinn 21. febrúar síðastliðinn, var af völd- um gífurlegrar asahláku á hálendinu. Athuganir á rennsli annarra áa sýna að á hálendinu hefur orðið ofsaleg vetrarhláka og er því ekki ástæða til þess að gripa til þeirrar skýringar að um jökulhlaup hafi verið að ræða. Sigurjón Rist sagði að það ætti að taka hrollinn úr mönnum, sem talið hefðu að þetta mikla flóð benti til einhverra umbrota í Kverkfjöllum. Athuganir Sigurjóns sýna að ofsalega hláku gerði með suðaust anátt hinn 20. febrúar og varð mikill vöxtur í öllum ám á Austur- landi og Norðausturlandi. Er gott samræmi á rennsli stóránna. Jökulsá á Dal fer í 880 tenings- metra á sekúndu hjá Hjarðarhaga á Jökuldal en meðalrennsli hennar er rúmt eitt hundrað tengingsmetrar, A þessum tíma á áin hins vegar að vera um 30 teningsmetrar. Jökulsá á Fjöllum fer í mestu flóðgusunni upp í 1.090 teningsmetra á sekúndu — eins og rakið er í frétt Mbl. frá séra Sigurvin Elíassyni á Skinna- stað í Öxarfirði. Þá ber þess einnig að geta að mikill vöxtur hljóp í Lagarfljót á sama tíma. Hækkaði Lögurinn hjá Egilsstöð- um á tveimur sólarhringum um 130 sm. Því bætast í Löginn um 90 gígalítrar eða 90 milljónir tengingsmetra og myndaðist þá m.a. hættuástand við Lagarfoss og varð að taka flóðgáttirnar úr við virkjunina klukkan 18.30 hinn21. febrúar en engu að síður hækkaði í Leginum. Þessir 90 gígalítrar eru nálægt því að vera tvöfalt það,'sem flóðtoppurinn i Jökulsá á Fjö'lum var, því að flóðtoppur- inn þar var um 48 milljónir tengingsmetra. Sigurjón Rist sagði að það sem skýrði þessa gífurlegu flóðöldu I ánum væri suðaustan stórrigning á Héraði hinn 20. febrúar til 21. og þá er á Brú á Jökuldal úrkoma sem nam 17,5 mm og fylgdi þessu Framhald á bls. 24 1 DAG — 12. marz — er Alþýðu- samband Island 60 ára. Stofn- endur þess voru 7 félög verka- fólks, sjómanna og iðnaðarmanna 1 Reykjavík og Hafnarfirði, með um 700 félagsmenn. Nú eru innan A.S.I. 189 félög með um 43 þúsund félagsmenn. 50 félög hafa beina aðild að A.S.Í. þar af 12 landsfélög, þ.e. félags- svæði þeirra er landið allt. Önnur félög hafa skipað sér í landssam- bönd eftir starfsgreinum og eru 8 talsins. Öll aðildarsamtök, sem í sambandinu eru, hafa fullt frelsi um innri mál, þó svo að ekki brjóti í bága við sambandslögin eða samþykktir í stéttabaráttu. 1 frétt frá A.S.I. segir, að á sjálfu afmælinu verði ekki mikið gert af hálfu Alþýðusambandsins til hátíðarbrigða. Verður það geymt til 33. þings sambandsins, sem haldið verður í nóvember í haust, eða um svipað leyti og framhaldsstofnþingið, sem endanlega gekk frá stofnun þess. Starfsemi sambandsins á árinu mun nokkuð mótast af afmælinu. Þannig er nú starfandi sérstök nefnd, er semja skal drög að stefnuskrá þess í félagslegum og menningarlegum efnum er lögð verður fyrir þingið. Þá er gert ráð fyrir að 1. maí hátíðarhöldin beri svipmót af af- mælinu. Ennfremur er ráðgerð uppsetning sögusýningar í -ykjavík og mun síðan kjarni hennar fara út á land og verða sýndur þar með viðbótum úr sögu viðkomandi verkalýðsfélaga. Einnig verður gefið út sérstakt afmælishefti af Vinnunni, helgað sögu , verkalýðssamtakanna og framtíðarverkefnum. Kaffi og Tropicana hækkar Frá og með deginum í dag hækkar hvert kíló af kaffi um 20%. Kostar nú kílóið 720 krónur en áður 600 krónur. Að sögn Gunnars Þorsteinssonar, fulltrú^ verðlagsstjóra, eru þetta fyrstu áhrif frost- skemmdanna sem urðu á kaffi í Brasilíu á s.l. hausti, en sem kunnugt er skemmdist eða eyðilagðist stór hluti uppsker- unnar. Þá hefur verðlagsráð sam- þykkt hækkun á Tropicana. Framvegis kostar hver o.95 litra ferna 163 krónur en áður var verðið kr. 146. 2 lítra ferna kostar nú 306 krónur en áður 272. Þessar hækkanir stafa af erlendum hráefnishækkunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.