Morgunblaðið - 12.03.1976, Síða 3

Morgunblaðið - 12.03.1976, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976 3 Danskur gestaleikur: Ebbe Rode leikur Góð- borgara og gálgafugla Um helgina sýnir danski leikar- inn Ebbe Rode leikritið Góðborg- ara og Gálgafugla eftir englend- inginn Patrick Garland á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Sýningar verða tvær: frumsýningin verður á sunnudagskvöld. 14 mars og önnur sýning mánudagskvöldið 15. mars. Leikritið GÖÐBORG- ARAR OG GALGAFUGLAR er bvggt á endurminningabók enska fræðimannsins og furðufuglsins John Aubrey BRIEF LIVES, en hann var uppi f Lundúnum á 17. ö)d. John þessi Aubrey safnaði alla ævi upplýsingum um menn og málefni, var grúskari mikill, skrifaði um fornleifafræði, bók- menntir, náttúruvfsindi og fjöl- ir? Ekkert er þessum aldna háð- fugli óviðkomandi. Verk þetta var fyrst sýnt i Bret- landi sem sjónvarpsleikrit og færði leikaranum Roy Dotrice verðlaun sem besti sjónvarpsleik- arinn það árið. Dotrice lék það siðan yfir 400 sinnum á sviói í Bretlandi og var nýlega á ferð um Bandarikin með sýninguna. Leiksýningin, sem hingað kem- ur var fyrst sýnd sem farandsýn- ing víða um Danmörku á vegum Harald Jörgensen Tournéen en vegna mikilla vinsælda var hún fengin inn á svið Konunglega leikhússins í Kaupmannahöfn og hefur þar fengið hinar ágætustu undirtektir. Ummæli danskra Ebbe Rode f Góðborgurum og gálgafuglum. Myndin var tekin áæfingu Kammersveitar Reykjavíkur fyrir skömmu, en flytjendur á tónleikunum á morgun eru átján að tölu. Samtímatónlist á kammertónleikum Þriðju tónleikar Kammer- sveitar Reykjavíkur á þessu starfsári verða í Menntaskólan- um við Hamrahlið á morgun og hefjast þeir kl. 16 A efnisskránni er eingöngu samtimatónlist eftir Stockhaus- en, Atla Heimi Sveinsson, Casliglioni og Berio. Einsöngv- ari á tónleikunum verður Ruth Little Magnússon, en stjórnend- ur verða Páll P. Pálsson og Atli Heimir Sveinsson. Auk fastra félaga i Kammersveitinni leika nokkrir hljóðfæraleikarar „gestaleik" með sveitinni á þessum hljómleikum. I lok hljómleikanna verða umræður tónleikagesta og flytj- enda um tónverkin, túlkun þeirra og gildi og stjórnar Atli Heimir umræðúnum. Með þess- ari nýbreytni er ætlunin að efla tengsl tónlistarmannanna og áheyrenda. Kammersveitin hefur frá upphafi lagt áherzlú á flutning tónlistar, sem litt er kunn hér 3 landi, og hefur frumflutt fjölda barokk-verka. Auk þess hefur sveitin lagt kapp á flutn- ing nútímatónlistar, og er þar skemmst að minnast frumflutn- ings á verki Páls P. Pálssonar í desember s.l. Börn og skólafólk fá afslátt af verði aðgöngumiða, sem seldir verða við innganginn. Þjóðlagahátíð ’76 í Austurbæjarbíói: mörg efni önnur. Hann dó tiltölu- lega óþekktur, en þegar fram liðu stundir tóku menn að veita verk- um hans athygli og endurminn- ingar hans eru taldar með merk- ari minningabókum heimsbók- menntanna. Leikritið lýsir síð- asta deginum í Iffi Aubrevs, sem býr yfir hafsjó skemmtisagna af ýmsum merkismönnum, þar á meðal sögufrægum persónum á borð við Hinrik 8, Elísabetu 1, Cromwell, Shakespeare, Ben Jon- son, Sir Walter Raleigh, Sir Thomas More svo að einhverjir séu nefndir. Milli þess sem Aubrey sinnir sinu daglega amstri og athöfnum, klæðist, kvndir upp, matbýr og paufast um vistarveru sína, lætur hann gamminn geysa, flvtur hugrenn- ingar og hneykslissögur um ýmsa samtimamenn sína og hefur skoð- anir á flestu sem nöfnum tjáir að nefna: barnauppeldi, trúmálum, læknislist, framhjáhaldi og aftök- um, siðfræði og sagnfræði. —Hvað sagði hirðdaman við Sir Walter? —Hvernig stóð á því að biskupinn gleymdi kvöldbæn- inni? — Hvernig má lækna munnangur og aðrar meinsemd- blaða um sýninguna á GOÐBORG- URUM OG GALGAFUGLUM voru öll á einn veg, var sýning- unni hælt mjög og Ebbe Rode hrósað á hvert reipi fyrir þá erf- iðu þraut að halda uppi heilli leik- sýningu aleinn af slíkum krafti í tvær klukkustundir. Leikstjóri sýningarinnar er Flemming Weiss Anderdsen, leikmynd gerir Sören Frandsen, leikmyndateikn- ari við Konunglega leikhúsið. Ebbe Rode er í hópi fremstu og þekktustu leikara Dana. Hann er nú 66 ára gamall og hefur leikið frá því um tvítugt. Lengst af hefur hann leikið á Konunglega leik- húsinu, þar sem hann lék fyrst 1932. Þá hefur hann leikið við leikhús viða um Danmörku og far- ið í gestaleiki til allra Norður- landanna og reyndar viðar. Hann hefur á litrikum ferli sínum leik- ið yfir 150 hlutverk á sviði og um 40 hlutverk i kvikmyndum. Ebbe Rode hefur tvívegis áður heimsótt Þjóðleikhúsið: 1958 með Folke- teatret, sem sýndi leikrit Soya „30 ára frestur" og í fyrravor flutti hann svipmyndir úr þekktum leikritum á Litla sviðinu i Þjóð- leikhúskjallaranum. r Okindin - nýtt skop- blað kemur út í dag OKINDIN nefnist blað sem hef- ur göngu sina í dag, og er áætl- að að hún herji á góðaborgara þessa lands vikulega hér eftir. A forsiðu blaðsins kemur fram að kjörorð þess er „óháð háð“ og i leiðara þess er stefnan enn skýrar mörkuð. Utgefandi Ökindarinnar er Sjón og saga sf. og eru að- standendur þess Ewald Ellert Berndsen, Hilmar Helgason, Hjalti Rögnvaldsson, Jökull Jakobsson, Magnús Guðjóns- son, Sig. Sverrir Pálsson og Stefán Jóhannsson. I fréttatilkynningu segir að víða verði leitað fanga i blaðið, en þetta fyrsta blað teikna Framhald á bls. 24 ÞJOÐLAGAHATlÐ '76 er nafn- ið á skemmtun sem hópur vísna- söngvara í Revkjavfk efnir til I Austurbæjarbfói á morgun, laug- ardag, kl. 2 eftir hádegi. Allur ágóói af skemmtuninni verður veittur til styrktar þroskaheftum börnum, en aðstandendur þjóð- lagahátíðarinnar ’76 - halda skemmtunina í sambandi við her- ferðarviku hjálparstofnunnar kirkjunnar áþessum vettvangi. Vísna- og þjóðlagasöngvararnir sem að skemmtuninni standa litu við hjá okkur á Morgunblaðinu til að kynna málstaðinn. Þeir sögð- ust hafa safnað saman fólki, bæði þekktu og óþekktu í íslenzka þjóð- laga- og vísnaheiminum og fengið það til að koma fram á skemmtun- inni i Austurbæjarbíói. Kváðust þeir hafa fengið mjög jákvæðar móttökur, en kynnir á skemmtun- inni verður Jón Múli Árnason. Trfóið Við þrjú: Frá vinstri: Sturla Erlendsson, Ingibjörg Ingadóttir og Haraldur Baldursson. Allir sem koma fram vinna ákeyp- is til styrktar málstaðnum, en að- gangseyrir verður 300 kr. Þeir sem koma fram eru: Guð jón Þór Guðjónsson með gítar og söng, Sigrún Magnúsdóttir með gítar og söng, Helga Möller með gítar og söng, Pétur Jónasson og Arnaldur Arnarson með klassisk- Franihald á bls. 24 J2’*tx+in, '76 Tugur þjóðlaga- og vísna- söngvara kemur þar fram

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.