Morgunblaðið - 12.03.1976, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976
13
Fréttabréf úr Reykhólasveit
TIÐARFAR hefur verið með
eindæmum ieiðinlegt það sem af
er vetri og varla komið sá dagur
að hægt hafi verið að lofa sauðfé
að viðra sig hvað þá meira.
FÉLAGSLlF
Félagslif er hér lítið að venju
og þó hafa verið haldin þorrablót
bæði í Króksfjarðarnesi og á
Reykhólum og voru þau vel sótt.
Einstaka sinnum lætur ung-
mennafélagið spila framsóknar-
vist á Mjólkurvöllum og er for-
maður þess félagsskapar frú Lilja
Þórarinsdóttir húsfreyja að
Grund i Reykhólasveit. Frúin var
svo heppin að heimta af fjalli
nýlega golsótta á sem hún á og var
hún í góðum holdum. Þessi ær
kom ekki heim í fyrra fyrr en
skömmu fyrir jól.
Hverju skiptir það hvort bóndi
gefur kálfi 100 eða 500 lítra af
mjólk. Talan er færð bæði tekna
og gjaldamegin. Skýrslurnar bera
of mikinn keim af búreikningum.
Nú eru það nokkrir bændur,
sem halda nokkuð örugga
búreikninga og má hafa þá til
hliðsjónar þegar reiknaðar eru út
hinar raunverulegu tekjur
bænda. Eftir þeim má svo líka
reikna ákveðið framleiðslugjald,
en það er vist kallað staðgreiðsla
skatta. Eg er sannfærður um að
með þessari aðferð kæmi skatta-
byrðin léttara niður á bændum
fyrir utan allan sparnaðinn á
vinnu og pappir. Einu sinni þótti
það goðgá að reikna þyngd á gær-
um eftir kjötþunga, en nú er
þetta gert og enginn talar um það.
Það er hægt að fá út með nokk-
urri vissu hvað kostar að fram-
leiða hvern mjólkurlitra og hvert
kjötkíló og skatturinn yrði svo
reiknaður þar af og ef upp er
gefið innlegg þá er hægt að sjá
meó meiri vissu hverjar eru
rauntekjur bónda Eg er viss um
að bændur mundu ekki tapa og þá
ekki „skatturinn" heldur.
SKÖLAMAL
I „Leiðarbók framsóknar-
manna“ eftir Kristján Friðriks-
son kennir margra grasa Einn
þátturinn fjallar um skólamál og
talar hann þar um forpokaðan
kratisma sem trtjllríði skólakerf-
inu. Sjálfstæðisflokkurinn fær
þar líka á baukinn, því að sagt er
að hann hafi enga fastmótaða
stefnu í skólamálum, enda liggur
hann vel við höggi þar sem hann
hefur sniðgengið þau mál i aldar-
fjórðung og á nýsköpunarárunum
afhenti sinu erkióvini fræðslu-
málin.
Leiðarbókin • segir að Fram-
sóknarflokkurinn fylgi mann-
gildisstefnu í skólamálum. Sú
stefna vill auka persónuleika
hvers einstaklings. Sem sagt að
forða hverjum einstakling frá því
að verða hópsál eða múg. Þessari
kenningu er ég sammála, en nú er
Framsóknarflokkurinn búinn að
fara með yfirstjórn menntamála
í tæp tvö ár og kominn tími til að
hafa meira en skrautbúin orð á
stefnuskrá sinni og breyta
skólunum i stofnanir sem auka á
manngildi og gera sitt til þess að
hver nemandi verði sjálfstæður
einstaklingur og verði fær um að
klæðast öðruvisi sálarflíkum en
fjöldinn. Annars væri fengur í
þvi að Kristján skrifaði kennslu-
bók fyrir síðasta árgang grunn-
skóla um þetta efni en auðvitað
þyrfti hann að þurrka út allan
flokksáróður.
Miðhúsum, 7. marz 1976
Sveinn Guðmundsson
Sovézkt
skip tekið
við Nýja
England
Boston 10. marz AP
BANDARlSKA landhelgis-
gæzlan tók sovézka skipið
Anton Tammsaare að meintum
ólöglegum humarveiðum á
landgrunninu um 12" míl-
ur suður af strönd Nýja Eng-
Iands i gær.
Um 90 manna áhöfn er á
skipinu, sem fært hefur verið
til hafnar í Boston, þar sem þvi
verður haldið þar til banda-
rískir dómstólar hafa fjallað
um málið.
MANNASKIPTI
1. marz urðu mannaskipti hjá
Kaupfélaginu í Króksfjarðarnesi
en útibússtjóri á Reykhólum var
Tómas Sigurgeirsson bóndi þar og
hefur hann starfað við útibúið frá
byrjun. Tómas á lúðurhljóm
samvinnumanna, enda Þingey-
ingur að uppruna. Þessi svana-
hljómur hefur breytzt hjá of
mörgum i hið hrjúfa garg skarfs-
ins.
Við starfi Tómasar Sigurgeirs-
sonar tekur Arnór Grímsson frá
Tindum i Geiradal.
SKATTASKVRSLUR
Nú er tíma skattaskýrslna lokið
að þessu sinni og held ég að miklu
starfi megi létta af bændum, ef
þær eru lagðar niður í því formi,
sem þær eru nú. Sumt er þar sem
kemur skatti ekkert við, eins og
sundurliðun á rekstrarvörum og
þar á ég við sundurliðun á
rekstrarvörum dráttarvéla.
Dagblaðið
kaupir hús
DAGBLAÐIÐ hefur keypt
húseignina Þverholt 11, sem er á
gatnamótum Þverholts og
Stórholts, af Kexverksmiðjunni
Esju fvrir 25 milljónir króna.
Jafnframt hefur Dagblaðið selt
verzlunarhúsnæði á götuhæð á
Laugavegi 42 Tfzkuverzluninni
Evu, en það hús keypti Dagblaðið
fyrir skömmu, og á það að öðru
leyti áfram. Stendur hús það á
gatnamótum Laugavegar og
Frakkastígs.
Sveinn R. Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Dagblaðsins, sagði,
er Mbl. spurði hann um þessi við-
skipti í gær, að Þverholt 11 væri
hús, sem myndi nægja Dagblað-
inu næstu ár fyrir afgreiðslu og
auglýsingadeild, en Dagblaðið
væri þar með slika starfsemi að-
eins hinum megin götunnar.
Sagði Sveinn að þeir Dagblaðs-
menn iegðu mikið upp úr því að
geta verið á þessum sömu slóðum
í námunda við Hlemmtorg og enn-
fremur kvað hann blaðið hafa
byggingamöguleika á lóðinni
Þverholt 11 í framtíðinni. Sveinn
kvað lóðina verðmesta af þessari
eign.
Dagblaðið ætlar nú að innrétta
Þverholt 11 fyrir starfseihi sína
og er fyrirhugað að flytja í hús-
næðið I sumar.
KJAVIK SIMI