Morgunblaðið - 12.03.1976, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals í Sjálf-
stæðishúsinu Bolholti 7 á laugardögum
frá klukkan 14:00 til 1 6:00 Er þar tekið á
móti hvers kyns fyrirspurnum og ábend-
ingum og er öllum borgarbúum boðið að
notfæra sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 13. marz verða til viðtals:
Albert Guðmundsson, alþingismaður
Markús Örn Antonsson, borgarfulltrúi
Valgarð Briem, varaborgarfulltrúi
I
Jón Laxdal: Krotað niður í keisarastól
Martröð á sviði
Skólinn okkar var sendur í
leikferð um allt Vestur-
Þýzkaiand, þar sem við áttum
að halda uppi heiðri Max
Reinhardts og Austurrikis.
Leikritið hét „Das Grosse Salz-
burger Welttheater1' og var
eftir Hugo von Hof mannsthal.
Á þessari leikferð skeði
nokkuð, sem lét mig skjálfa á
skrokk og í sál lengi á eftir. Ég
tuggði þetta atvik í minningu
minni árum saman, mér til lær-
dóms og betrunar.
Frumsýningin átti sér stað
við mikla hylli og lófatak, blóm
og þessháttar, í lítilli borgar-
holu i Suður-þýzkalandi. Eftirá
var okkur gert mikið hóf af
hendi borgarstjórnar. Agætis
matur á borðum og feikna úrval
og magn af vinföngum. Við,
þessir glorhungruðu listnemar
úr Vinarborg, notfærðum
okkur svo vel, að það var einsog
við hefðum ekki fengið að éta í
heilt ár eðalengur, næsti dagur
væri heimsendir, og þetta væri
síðasta tækifærið til að eta og
drekka. Veizlan varð semsagt
bráðlega mjög rakasöm og kát,
og við skáluóum i fagnaðar-
vimu útaf velheppnaðri sýn-
ingu. Þannig leið á nótt,
klukkan varð sex, sjö, og um
áttaleytið sátum við enn við
skálir. Þegar klukkan var orðin
níu um morguninn slöguðum
við til ferðabílsins okkar.
Höfðu allmargir gleymt að sofa,
sérstaklega sá er segir frá. I
bílnum reyndi ég að bæta mér
gleymda nætursvefninn, en
blóðmagnið í æðum mínum var
svo lítilfjörlegt í samanburði
við áfengismagnið, að ekkert
gagn varð af svefntilraunum
þessum. Hvað um það; þar sem
ég sit i andlitsfarða og gervi i
búningsherberginu mínu um
kvöldið, finnst mér að eitthvað
sé ekki í lagi. Ég er semsé rok-
hífaður og meira en það. Ein-
hversstaðar innst í sálargrey-
inu hefjast efasemdir um það
hjá mér, hvort ég muni geta
staðið i stykkinu við þennan
feiknalanga texta, sem ég átti
að skila þarna um kvöldið í
þessu leikhúsi. Hér var um að
ræða betlarann í ofangreindu
leikriti, en hann talar reiðinnar
ósköp; eintöl og tvítöl við sjálf-
an sig, guð og aðra, endalaust
og í mikilli reiði. Þessi betlari
er eiginlega án hvíldar á svið-
inu stykkið út.
Jæja, við engu er að bifa;
áhorfendur hafa setzt í sæti sín,
og félagar mínir hafa komið sér
í „startholur" sinar, reiðu-
búnir að fara útá sviðið, og
tjaldið er að fara upp. Lfkt og i
þoku þreifa ég mig í gegnum
hálfrökkrið á baksviðinu, en á
mjög bágt með að finna sviðið,
og veit ekki hvað er framan og
hvað er aftan á því. Afleiðingin
Jón Laxdal
er sú, að ég geng afturábak á
vit áhorfenda, án þess ég taki
sjálfur eftir því. Vinkona mín,
sem leikur hlutverk Vizkunnar
í nunnugervi, varpar fyrstu
setningu framan í mig. Þetta
vekur eingöngu furðu mína, og
löng hættuleg þögn verður, sem
virðist ekki eiga sér nein enda-
lok. Hvað er erindi þessarar
konu? Hvað er ég að gera hér?
Ég ætti heldur að liggja í stóru
hótelrúmi i hvítum mjúkum
sængurfötum, og sofa rækilega
úr mér aumingjaskapinn, en
ekki að vera að sprikla hér í
uppljómuðum buðarglugga svo
að segja, þar sem hundruð
augnapara glápa á mig og eru
að bíða eftir að ég segi eitthvað
gáfulegt í bundnu máli og ljóð-
rænu.
Eitthvað í þessa áttina voru
þánkar mínir, skakkir og
bognir i minum pínda haus,
þegar ég heyrði þessa setningu,
sem krafðist svars. Hverskonar
starfi var þetta eiginlega, sem
ég hafði álpast útí?
Eftir þetta martraðarhlé og
ógnarlega kyrrð, — hin fræga
saumnál hefði virkað einsog
sprengja á þessu augnabliki, ef
hún hefði fallið — þá gerðist
loksins eitthvað í málinu; Það
talaði útúr mér. Einsog úr
yðrum jarðar talaði hás, mér
framandi rödd, og það var auð-
heyrt að hún kom úr barka
mínum. Þessi rödd fór meira að
segja kórrétt með texta Hof-
mannsthals, hægt og greinilega,
og þar sem ég var sjálfur ekki
„viðstaddur", lét ég þessa rödd
leiða mig gegnum allt kvöldið,
og allt kom í sviðsljósið, æfð
skref og augnatillit og við-
brögð, allt sem æft hafði verið á
tólf vikum, hnitmiðað og ná-
kvæmt eins og svissneskt úr-
verk. Um smáatriði frá þessu
kvöldi veit ég ekki margt, nema
það sem mér hefur verið sagt af
öðrum, sumt jafnvel mörgum
árUm seinna. Dauðaþögnin í
byrjun sýningar og i lokin, eftir
að „röddin" hafði farið með síð-
ustu setningu leikritsins,
þessar þagnir hafa grafist inn í
minningu mina, sömuleiðis
öskrandi hávaði áhorfenda
eftir síðari þögnina, lófatakið,
framkallanirnar og þeir mörgu
blómvendir, sem við vorum allt-
af að reka tærnar í, við fram-
kallið. Hvað var þetta? Hafði
enginn tekið eftir, að eitthvað
var bogið við mig? Og hafði
ekki gamli góðvinur minn og
stórleikari Indriði Waage, eftir
alltsaman hitt naglann á höf-
uðið þegar hann sagði; „Þjóð-
verjarnir, þeir geta lifað án
brauðs, en ekki án leikhúss"?
Svo glaðvaknaði yfir mér í
veitingahúsi hótelsins okkar,
þegar mér varð ljóst hyldýpið,
sem ég var nærri dottinn nióur
í á þessu kvöldi. Ég lauk við
kvöldverðinn, gekk uppá hótel-
herbergið mitt, og sór þar í ein-
veru, að fara aldrei með víni
framar uppá leiksvið. Nokkuð
erfiður eiður fyrir strák, sem
hefir gaman af því að kíkja í
glas, en þar sem mér hefur allt-
af fundist aó það hljóti að vera
erfiðara að leika stórt hlutverk
fullur, en jafnvel að keyra bíl
fullur, hef ég haldið sjálfum
mér þennan eið í þau nær
tuttugu ár, sem ég hef verið að
dunda við þetta starf mitt
siðan þetta atvik gerðist.
Keisarastól, 3. mars 1976.
o
ÞRUMUFLEYGUR skirau/e 1976
sktrau/e
ER ALLTAF
FREMSTUR
í FLOKKI
Vétsleði fyrir karimenn sem gera kröfu
Vönduð vél með krómuðum strokkum ca 45 hö.
Electronisk kveikja
Centrix sjálfskipting, þreföld drifkeðja.
Hitama»lir á hvorn strokk vélarinnar. r
17" e8a 15" breitt belti. j
Enn á ný hefur Skiroule sannað yfirburði slna
og nú f gllmu við islenzku fjöllin.
Ný sending var að koma .
wiriai
úvjban h.f.
Akureyri Glerárgötu 20 Simi 2-22-32
Reykjavík Suðurlandsbraut 16 Sími 3-52-00
ATH : Siðasta sending ^
Ef þú vilt ekki missa af Skiro
strax — þvl að hann er gjarn á