Morgunblaðið - 12.03.1976, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976
^s«nihafid /s/
ands ÖO ára
Þessar myndir úr atvinnulífinu
tóku Ijósmyndarar MbL Rax oy
Friðþjófur í yœr
— ASI
Framhald af bls. 21
klofinn milli andstæöra flokka,
sameinaöist á stéttarlegum
grundvelli innan ASI og á
næstu 4 árum hækkaöi með-
limatala um 75 af hundraði. A
þessum stutta tíma urðu mikil
umskipti í hagsmunabaráttu
verkalýðsins. Atta stunda
vinnudagur var allt í einu
samningsbundinn um land allt.
Kaup og kjör verkafólks stór-
bötnuðu og orlof lögbundið.
Eftir skipulagsbreytingar 1940
breyttist öll aðstaða til stjórn-
málabaráttu innan Alþýðusam-
bandsins. Hafa myndazt tvær
pólitiskar heildir innan sam-
bandsins; vinstri menn, sem
njóta fylgis sósialista og vinstri
arms jafnaðarmanna, og hægri
menn, sem njóta fylgis hægri
arms jafnaðarmanna og sjálf-
stæðismanna og stundum líka
framsóknar. Deilur og átök um
völd innan ASl hafa farið dvín-
andi miðað við það sem áður
var, en samstaða á sviði verka-
lýðsmála batnað, þó stjórnmála-
ágreiningur sé engu minni en
áður.
Breytingin á skipulagi Al-
BÆTT LAUNAKJÖR —
STYTTING VINNU-
TÍMA — ÖRYGGI
Á þessum 60 ára starfsferli
ASI hafa aóalbaráttumálin ver-
ið bætt launakjör, stytting
vinnutíma og öryggi í vinnu-
málum á landi og sjó. Húsnæð-
ismál hafa mjög komið við sögu
og oft höfðá oddinum og lífeyr-
issjóðamál i samningum siðustu
árin. Alþýðusambandið rekur
margvislega þjónustustarfsemi
við þessi 165 aðildarfélög, upp-
lýsingastarfsemi og lögfræði-
lega þjónustu. Stofnaður
hefur verið Alþýðubanki og
mikið átak gert í byggingu or-
lofsheimila i Ölfusborgum. ASl
hefur eignazt listasafn. Og nú
síðast hefur fræðslustarfsemi
mjög færzt i aukana. Samnings-
gerð í launadeilum ber að sjálf-
sögðu hæst í starfseminni, en
ekki er ástæða til að fara nánar
út í það, svo mjög sem þau mál
hafa verið á oddinum i fjölmiðl-
um að undanförnu.
þýðusambandsins árið 1940 var
einungis i því fólgin að sam-
bandið hætti að vera póh'tískur
flokkur, en að öðruleyti hefur
það allt frá stofnun þess búið
við skipulag sem í öndverðu var
upp tekið. Þó hafa nokkrar
breytingar orðið á og verið
kosnar nefndir til að huga að
og gera tillögu um skipulags-
breytingar. T.d. hafa verið
stofnuð landssambönd innan
einstakra starfsgreina. Bættar
samgöngur, fjölbreytni í at-
vinnulífi og nýir tímar hafa að
flestra dómi gert stórbreyting-
ar á skipulagsháttum ASI óum-
flýjanlega nauðsyn, en reynzt
erfiðar í framkvæmd og margir
tregir til breytinga.