Morgunblaðið - 12.03.1976, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976
25
Nýnazistar
valda ugg í
N-Noregi
Hammerfest 11. marz — AP.
DEILD nýnorska nýnazistaflokks-
ins, „Noregsfylkingarinnar", í
Hammerfest virðist hafa komizt
yfir félagaskrá gamla nazista-
flokksins, „Þjóðlega sameiningar-
flokksins“, sem föðurlandssvikar-
inn Vidkun Quisling var m.a. í að
því er heimildir í Hammerfest
hermdu í dag. Fyrrum félagar í
flokki Quislings, þeirra á meðal
nokkrir, sem látnir eru fyrir
löngu, hafa nú fengið skrifleg boð
um að ganga í hinn nýja flokk. Er
still og slagorð bréfa þessara
beint upp úr nazistabæklingum
striðsáranna. Fólk, sem fengið
hefur þessi bréf, er skelfingu lost-
ið vegna þessa og vill ekki tengj-
ast nazískum flokki að nýju. Ekki
er ljóst hvernig „Noregsfylking-
in“ hefur komizt yfir félagakrána.
Nazistar gjöreyddu Finnmörku,
héraðinu umhverfis Hammerfest
árið 1944 er þeir flýðu undan
Sovéthernum.
— Alþingi
Framhald af bls. 14
þann áhuga, sem umræður bæru
vitni um á þessu þýðingarmikla
máli. Hann vakti athygli á nauð-
syn frekari rannsókna á mögu-
leikum loðnuveiða út af Norður-
og Norðvesturlandi. Úthafsrækja
væri og arbær atvinnugrein, sem
hér hefði ekki verið sinnt sem
skyldi, en gæfi mjög góða raun
við Grænland. Rannsóknum ánýj-
um karfamiðum þyrfti og mjög að
hraða. Hann taldi kolmunna
stærsta fiskstofninn á Atlantshafi
norðaustanverðu. Talið væri að
stofnin þyldi um 100 þús. tonna
meiri ársafla og loðnan enn meiri
viðbótarafla. Nauðsynlegt væri að
dreifa veiðiþunga fiskiskipastóls
okkar á fleiri fiskstofna og
tryggja það, að ekki þyrfti að
leggja honum hluta úr ári, eins og
ella væri hætta á.
— íþróttir
Framhald af bls. 39
Magnúsdóttur, TBR, þær Ásu
Gunnarsdóttur og Bjarnheiði
Ivarsdóttur í úrslitaleik, 15:4 og
15:7. I meyjaflokki 12—14 ára
sigraði Kristín Magnúsdóttir
Björgu S. Friðleifsdóttur í úrslita-
leik, 11:0 og 11:2, en í tvíliðaleik
sigruðu Björg S. Friðleifsdóttir og
Þórunn Öskarsdóttir þær Bryn-
dísi Hilmarsdóttur og Dröfn
Rafnsdóttur, 15:4, 8:15 og 15:7.
— Villiöndin
Framhald af bls. 12
en Villiöndin er fyrsta verkið
sem höfundurinn setur þessar
tvær andstæður fram i návígi.
1 síðasta verki Ibsens, Þjóð-
níðingnum, kemur hugsjóna-
maðurinn út sem hetja, en það
verður vart sagt um niðurstöðu
Villiandarinnar. Þar hefur
læknirinn lokaorðið um hug-
sjónamanninn: „Það væri vel
hægt að lifa lifinu ef maður
hefði einhverntíma frið fyrir
þessum rukkurum sem leggja
okkur kotungana í einelti til að
heimta hugsjónakröfuna
greidda“.
15 leikarar eru i Villiöndinni.
Segja má að aðalhlutverkin séu
sex talsins: Steindór Hjörleifs-
son I hlutverki Hjálmars Ek-
dals, Pétur Einarsson í hlut-
verki Gregars Werle, Margrét
Ölafsdóttir í hlutverki Ginu Ek-
dal, Valgerður Dan í hlutverki
Heiðveigar litlu Ekdal, Helgi
Skúlason í hlutverki Relling og
Guðmundur Pálsson í hlutverki
gamla Ekdals. Önnur hlutverk
eru I höndum: Sigurðar Karls-
sonar, Karls Guðmundssonar,
Haralds G. Haraldssonar, Jóns
Hjartarsonar, Valdimars Helga-
sonar, Jóns Sigurbjörnssonar,
Sigriðar Hagalin, Klemenz
Jónssonar og Gests Gislasonar.
Villiöndin er i 5 þáttum. I.
þáttur gerist heima hjá Werle
stórkaupmanni en næstu 4
þættir gerast heima hjá Hjalm-
ar Ekdals.
Villiöndin er þekkt heims-
bókmenntaverk öháð tíma og
íverustað, klassiskt að því leiti
að það hefur sömu forsendur og
mannlíf vítt um heim fyrr og
síðar og höfðar því ekki siður
til fólks nær hundrað árum
eftir samsetningu. Þótt siglt sé
á alvörutón i verkinu er jafnan
slegið á létta strengi, þvi það
eru léttar nótur á báða bóga hér
og hvar. — árni johnsen.
KJÖRGARÐI SÍMI16975 SMIÐJUVEGI6 SÍMI44544
Höfum fengið til sölu nýjan áfanga í miðbæ Kópavogs
tveggja, þriggja og fimm herbergja íbúðir í 5 hæða íbúðahúsnæði með lyftu ásamt
yfirbyggðum bifreiðageymslum. Hús og útivistarsvæði er hannað fyrir fólk í hjólastólum.
FASTEIGNASALAN HÁTÚNI 4A — SÍMAR 21870 — 20998.
STAPI - LAUFIÐ - STAPI -
Stórdansleikur
í Stapa.
Laufið dúndurhressir
eftir breytingarnar.
Það verður ofsafjör
með LAUFINU.
Stuð
Nafnskírteini
Sætaferðir
frá B.S.Í og
Hafnarfirði
Stuð —
LAUFIÐ - STAPI
Mætum öll í fjörið í STAPA