Morgunblaðið - 19.03.1976, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.03.1976, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1976 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. MaRZ 1976 17 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen, Styrmk Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10 100. Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið. Hagsmunir borgarsjóðs og borgarbúa hinir sömu Fjárhagsáætlun borgar- sfóðs og borgarstofnana var til ;. marrar umræðu i borgarstjórn Reykjavikur í gær. Meiri tiluti borgarstjórnar, borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins, stóðu að verulegum breytingartillögum við upphaf- legt frumvarp að áætlun Breyt- ingartillögurnar eru þríþættar. í fyrsta lagi nauðsynlegar breyt- ingar vegna nýrra laga um verkefnatilfærslu frá riki til sveitarfélaga í öðru lagi vegna launabreytinga i kjölfar nýrra kjarasamninga. í þriðja lagi eru breytingar á nokkrum rekstrar- og styrkjaliðum til samræmis víð endurskoðun á tekju- og útgjaldaáætlun borgarinnar. Ný löggjöf um verkefnaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga eyk- ur útgjöld Reykjavikurborgar, vegna aukinna verkefna að lög- um, um a.m.k. 205 m. kr. A móti kemur hækkaður sölu- skattshluti borgarinnar, 1 79 m. kr., svo áhrif þessarar lög- gjafar hefur neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu borgarsjóðs sem nemur 25 m. kr. á árinu. Önnur aðalbreyting á frum- varpinu á rætur i launa- hækkunum, sem rætur eiga í hækkun kaupgjaldsvisitölu 1 desember 1975, sem metin er á 1 2 m. kr.; vegna nýrra samn- inga ASÍ og vinnuveitenda, sem metin er á 221.5 m kr.; og áætlaðra launahækkana hjá borgarstarfsmönnum, sem væntanlega verða hliðstæðar því sem um semst við rikis- starfsmenn. í þriðja lagi er veruleg út- gjaldaaukning áætluð vegna ýmissa rekstrar- og styrkjaliða, sem nánari grein er gerð fyrir i ræðu borgarstjóra, Birgis ísl. Gunnarssonar, sem birt er í Morgunblaðinu í dag Samtals hækka rekstrarliðir borgarsjóðs um 1 20.4 m. kr. og styrkjaliðir um 36.9 m kr , sem m.a. stafar af hækkuðum styrkjum til íþróttastarfsemi. Sá útgjaldaauki, sem nú er fyrirsjáanlegur, umfram það, sem gert var ráð fyrir i upphaf- legu frumvarpi að fjárhags- áætlun borgarinnar, gerir nokk urn samdrátt í framkvæmdum borgarinnar óhjákvæmilegan Slikur samdráttur er nauðvörn, sem ytri aðstöður knýja fram, en traust fjármálastjórn og rétt viðbrögð á þrengingartímurr þjóna bezt hagsmunum borgar búa þegar til lengri tíma er litið Þessi samdráttur verður eflaust nýttur af minnihluta borgar- stjórnar til að aJa á óánægjt vegna ýmissa nauðsynlegra framkvæmda, sem biða verða um sinn. I því efni verður að treysta á heilbrigða dómgreind hins almenna borgara, réttsýni og mat á ríkjandi efnahags- aðstæðum Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir að útsvör verði sama hlut- fall af tekjum skattborgara og á sl. ári, þ e. er nýtt verði heimildarákvæði í tekjustofna- lögum um 10% álag á útsvör með sama hætti og á sl ári. Hlutfall útsvara í heildartekjum borgarsjóðs verður þó lítið eitt lægra en á sl. ári; verður 51.3%, var 53.2%, lækkun tæplega 2.0%. Niðurstöðutöl- ur í tekjuáætlun borgarsjóðs hækka um 30.8% frá fyrra ári, en rekstrarútgjöld um 37 5%, sem hlýtur að teljast hóflegt, miðað við verðbólguvöxt á liðnu ári, að viðbættum þeim launahækkunum, sem nýir samníngar gera ráð fyrir á yfir- standandi ári Afgangur sam- kvæmt rekstraráætlun verður 2 milljarðar 295.4 m kr., sem er hækkun um 61.5 m. kr. eða 17%. Hlutfall framlaga til eignarbreytinga i heíldarút- gjöldum lækkar því lítillega frá þvi, sem gert var ráð fyrir i upphaflegu frumvarpi, eða úr 30.5 í 29.3%. Borgarstjóri, Birgir ísleifur Gunnarsson, sagði fjárhags- áætlun borgarinnar bera svip af þeim efnahagsörðugleikum, sem nú eru í þjóðfélaginu. Ekki væri hægt að ganga eins langt í framkvæmdum og þjónustu við borgarana, eins og æski- legast hefðí verið og þörf væri á. Ýmsum framkvæmdum yrði að fresta illu heilli, vegoa ytri orsaka, því umfram allt væri nauðsynlegt að haga stjórn fjármála borgarinnar á þann veg, að hún gæti á hverjum tíma staðið við skuldbindingar sínar. Ætíð væri þörf að standa vörð um traustan fjárhag borgarinnar. en aldrei fremur en á þrengingartímum í efna- hagsmálum. Sjálfsagt sæktu þær freistingar á ýmsa borgar- fulltrúa, að flytja tillögur um vinsælar framkvæmdir, sem ekki væri fjárhagslegur grund- völlur fyrir i bili, en ábyrgð og fyrirhyggja yrði að ráða ferð, ef tryggja ætti til frambúðar traustan fjárhag borgarinnar. Þrátt fyrir allt yrði ráðist í veru- legar framkvæmdir á árínu, eða fyrir á þriðja milljarð króna, en sníða þyrfti þeim stakk eftir greiðslugetu borgarinnar. Borgarstjóri sagðí að lokum, að fjárhagur borgarsjóðs væri nú góður, en traust fjármála- stjórn væri sá grundvöllur, sem áframhaldandi framkvæmdir í þágu borgarbúa og nauðsynleg þjónusta hvíldi á. Þennan grundvöll þyrfti að treysta en gjalda varhug við ábyrgðar- lausum lillöguflutningi. Góður fjárhagur horgarsjóðs: Ný lög: Verkefna- tilfærsla frá ríki til borgar A fundi borgarstjórnar 18. desember s.l. var samþykkt að fresta afgreiðslu fjárhagsáætlunar borgarsjóðs og stofn- ana hans árið 1976, en þá höfðu verið boðaðar breytingar á lögum, er varða tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga af söluskatti og jafnframt á lögum er varða ýmis útgjöld sveitarfélaga. Félagsmálaráðuneytið samþykkti að veita borgarstjórn umbeðinn frest. Frv. að fjárhagsáætlun liggur nú fyrir til siðari umræðu og afgreiðslu borgarstjórnar ásamt brtt., sem fram koma i fundargerðum borgarráðs frá 12. og 16. þ.m. Brtt. má skipta i þrjá aðalflokka. I fyrsta lagi nauðsynlegar breytingar vegna ofangreindra laga- breytinga og til samræmis við fjárlög ríkisins. I öðru lagi vegna breytinga á launaútgjöldum í kjölfar hinna almennu kjarasamninga, sem gerðir voru í lok síðasta mánaðar. 1 þriðja lagi er um að ræða ýmsar minniháttar breytingar, einkum á styrkjaliðum, sem borgarráð hafði ekki fjallað um fyrir framlagningu frumvarpsins til fyrri umræðu, svo og á nokkrum öðrum rekstrarliðum, sem borgarráð hefur síðar tekið sérstaklega til athugunar og talið nauðsynlegt að gera breytingar á. Eg mun nú í aðalatriðum gera borgarstjórn grein fyrir þeim breyt- ingartillögum, sem fram koma í framangreindum fundargerðum borgarráðs, og víkja þá fyrst að þeim breytingum, sem leiða af setningu laga nr. 94 frá 30. desember 1975, um breyt- ingar á lögum vegna nokkurra verk- efna sveitarfélaga og kostnaðar við þau, sbr. einnig lög nr. 76 frá 23. desember 1975 um aukna hlutdeild Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í sölu- skattstekjum. Með fyrrnefndu lögunum var sú breyting gerð, að frá og með 1. janúar 1976 er felld niður skylda ríkissjóðs til þátttöku í eftirtöldum verkefnum sveitarfélaga: 1. Viðhaldi skólamannvirkja, þ.m.t. lóða svo og endurnýjun tækja og búnaðar. 2. Rekstri dagvistunarheimila. 3. Stofnkostnaði við dvalarheimili aldraðra. 4. Rekstri og byggingu almennings- bókasafna. 5. Heimilishjálp í viðlögum. 6. Vinnumiðlun. 7. Húsmæðraorlof. I einstökum liðum frumvarpsins eins og það var lagt fram 4. desember s.l. var að sjálfsögðu reiknað með kostnaðarþátttöku ríkissjóðs við framangreind verkefni eftir þágild- andi lögum, og nam kostnaðarhlutinn samtals kr. 204.441 þús., og eru þær fjárhæðir sundurliðaðar á viðkomandi rekstrarliði f brtt. borgarráðs frá 12. þ.m. Til að mæta þeim útgjöldum, sem framangreind iög fluttu af ríkissjóði yfir á sveitarsjóði landsins var, eins og áður segir, aukin hlutdeild Jöfnunar- sjóðs sveitarfélaga í söluskattstekjum úr 8% af 13 söluskattsstigum í 8% af 18 söluskattsstigum. Miðað við tekju- spár fjárlaga af söluskattstekjum er ætlað, að tekjuauki borgarsjóðs verði vegna þessarar breytingar kr. 178.9 millj. Umræddar lagabreytingar hafa þannig neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu borgarsjóðs um rúml. kr. 25 millj. á árinu 1976. Svo mun einnig vera um nokkur önnur stærri sveitarfélög, þ.e. auk þeirra, sem eins og ReykjavíKur- borg hafa lengst gengið í því að veita þá þjónustu, sem kostnaðarhluttaka ríkissjóðs er nú felld niður í, enda eflaust erfitt að breyta verkefnaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga þannig, að fullur jöfnuður náist við öll sveitar- félög landsins. Uppgjör í samræmi við gildandi lagaákvæði í ræðu hér í borgarstjórn 18. desember s.l. lét ég þá skoðun í ljós, að það gæti ekki hafa verið ætlun ríkis- stjórnarinnar, þegar ákveðið var við undirbúning fjárlaga að stefna að þeim breytingum, sem ég hef nú greint frá. að þær yrðu sveitarfélögum i óhag. Jafnframt sagði ég, að frumvarpið um breytta verkefnaskiptingu yrði ekki skilið á þann veg, að ríkissjóður myndi við uppgjör við sveitarfélög vegna út- gjalda á árinu 1975 beita ákvæðum þess, ef það yrði samþykkt, enda væru engin ákvæði í frumvarpinu þess efnis og slik túlkun eða framkvæmd myndi leiða til mun óhagstæðari útkomu fyrir sveitarfélög landsins, en þær tölur, sem ég nú hefi nefnt, segja til um. Daginn eftir, eða 19. desember s.l., svaraði hins vegar fjármálaráðherra fyrirspurn á Alþingi um þetta atriði á þann veg, að skilningur hans væri, að ákvæðum lagafrumvarpsins yrði beitt við uppgjör vegna útgjalda sveitar- félaga á árinu 1975. Þessi túlkun segir, að sveitarfélögum sé á árinu 1976 veitt- ur tekjuauki til að standa undir áfölln- um og greiddum kostnaði að hluta rikissjóðs á árinu 1975, sem leiðir aftur til þess að þennan sama kostnað á árinu 1976 eiga sveitarfélögin ekki að fá bættan fyrr en með tekjuauka, sem dreifist á árið 1977 og síðan koll af kolli. Af þessu tilefni ritaði ég bæði fjármálaráðherra og félagsmálaráð-' herra bréf hinn 23. desember s.l., þar sem ég gerði grein fyrir þessi/m atriðum og áhrifum lagasetningarinnar félög landsins ýmist þegar hafa gert eða hafa í undirbúningi. Útgjaldaaukning vegna launahækkana og nýrra samninga Önnur aðalbreytingin sem gerð er á frumvarpi að fjárhagsáætlun borgar- sjóðs er vegna launahækkana. Hér er annars vegar um að ræða hækkun kaupgreiðsluvísitölu frá 1. desember 1975 um 0.6%, en á árinu 1976 eru áhrif þessarar hækkunar metin á 11.956 þús. kr. Hins vegar er svo um að ræða launahækkanir í samræmi við samninga Alþýðusambands Islands og vinnuveitenda í febrúarlok, en áhrif þeirra launahækkana á árinu 1976 eru metin á kr. 221.540 þús. Þessi fjárhæð er reiknuð út á þann veg, að áhrif samninga aðila vinnumarkaðarins frá 29. febrúar s.l. eru talin jafngilda 28.8% hækkun á ársgrundvelli á launa- útgjöld borgarsjóðs sem tengd eru þeim samningum. Þá er áætlað að svipaðir kjarasamningar við aðra Birgir Isleifur Gunnarsson borgarst jóri. að notuð verði heimildarregla i tekju- stofnalögunum um 10% álag á útsvör, eða m.ö.o. að sömu álagningarreglum verði fylgt og gert var á árinu 1975, og verður því ekki um hlutfallslega hækk- un gagnvart gjaldendum að ræða. Mið- að við þessa tillögu verður hlutfall út- svarsins i tekjum borgarsjóðs á þessu ári 51.3% en var i fjárhagsáætlun 1975 53.2% eða hefur lækkað um tæplega 2.0% Niðurstöðutölur á tekjuáætlun borg- arsjóðs verða samkv. þessu kr. 7 millj- arðar 838.8 millj. og er það hækkun um 30.8%. Rekstrarútgjöld verða kr. 5 milljarðar 543.4 millj. og er það 37.5% frá áætlun 1975. Afgangur samkvæmt rekstraráætlun verður kr. 2 milljarðar 295.4 millj., hækkun um 61.5 millj. kr. eða 17%. Borgarfulltrúar hafa fengið yfirlit um tekju- og gjaldaiiði borgarsjóðs eins og þeir verða miðað við breytingartillögur borgarráðs. Samkvæmt þeim tillögum. sem hér liggja fyrir, hækkar framlag til eigna- breytinga um 61.5 millj. króna frá því, sem gert var ráð fyrir í frumvarpi til fjárhagsáætlunar fyrir þetta ár, og verður 2.295.4 millj. króna. Hlutfalls- leg hækkun eignabreytingafjárhæðar milli þessa árs og hins síðasta verður því um 17% miðað við endurskoðaða áætlun síðasta árs, en magnbreyting er nánast engin, séu þessar fjárhæðir færðar til sama verðlags. Hlutfall fram- laga til eignabreytinga í heildarút- T raust fjármálastjórn grundvöllur f ramkvæmda og framþróunar í Reykjavík á fjárhag borgarsjóðs, sérstaklega ef umrædd túlkun yrði látin gilda. Itrekaði ég þar þá skoðun, að ákvæði laganna beggja hlytu að gilda frá og með sama tíma, p.e. frá 1. janúar 1976, og að ríkissjóði beri við uppgjör vegna ársins 1975 að greiða sveitarfélögum hluta af rekstrarkostnaði þess árs sam- kvæmt þeim lagareglum, sem í gildi voru þegar til útgjaldanna var stofnað. Með bréfi frá 9. janúar s.l. svaraði fjármálaráðherra fyrir sitt leyti framangreindu bréfi mínu. Itrekaði hann þar þá túlkun, sem hann hafði flutt á Alþingi 19. desember, þ.e. að skilningur ráðuneytis hans og tilætlan með undirbúningi löggjafarinnar hefði verið sá, að auknum tekjum sveitar- félaga árið 1976 úr Jöfnunarsjóði væri ætlað að standa undir hluta ríkissjóðs vegna ársins 1975 í þeim sameiginlegu verkefnum rikissjóðs og sveitarfélaga, sem þátttaka ríkissjóðs hefði verið afnumin í íneð löggjöfinni. I framhaldi af þessum bréfaskiptum var haldinn fundur með fjármálaráð- herra og félagsmálaráðherra 26. febrúar um mál þetta. Itrekaði ég þar þau sjónarmið, sem ég hef áður gert grein fyrir, og lét í ljós þá skoðun, að sveitarfélög hlytu að standa fast á rétti sínum og senda ríkissjóði kröfur um uppgjör í samræmi við gildandi laga- ákvæði til síðustu áramóta Mæltist ég eindregið til þess, að lagaskýring fjár- málaráðuneytisins yrði tekin til endur- skoöunar þannig, að umrædd lög yrðu ekki látin virka aftur fyrir sig. Þótt fjármálaráðherra ítrekaði fyrn skoðanir sínar á málinu og benti raunar sérstaklega á. að í fjárlögum 1976 væri ekki heimild til greiðslu þessa kostnaðar frá árinu 1975, kváðust ráðherrarnir mundu taka málið til athugunar og er mér kunnugt um, að á vegum ráðuneytanna er nú unnið að frekari könnun málsins, bæði að þvi er tekui til fjárhagslegu hliðar- innar og einnig að því er tekur til hinnar lögfræðilegu hliðar þess. Borgarbókhald hefur nú að mestu iokið uppgjöri vegna umræddra kostnaðarliða á árinu 1975 og i sam- ræmi við þær skoðanir, sem ég hef hér greint frá, mun borgarsjóður senda ríkissjóði kröfu um uppgjör, og slíkt híð sama munu mörg önnur sveitar- Ræða Birgis Isleifs Gunnars- sonar, borgarstjóra, í gær við aðra umræðu um fjár- hagsáætlanir borgarsjóðs og borgarstofnana 1976 ■r samningsaðila borgarsjóðs jafngildi 25.06% hækkun á önnur launaútgjöld borgarsjóðs. Mismunurinn stafar fyrst og fremst af því, að láglaunahækkunin, sem um var samið, kemur nær eingöngu félagsmönnum A.S.I. til góða og einnig, að talið er að sérkröfur þær sem A.S.I.-félögin sömdu um jafngildi um 2% hækkun á viðkomandi launaút- gjöld borgarsjóðs. Hins vegar er rétt að vekja athygli á því, að samningum við Starfsmannafélagið, Hjúkrunarfélagið og Stéttarfélag verkfræðinga er ekki lokið, og er því hér byggt á spá um, að þeir verði að öðru leyti í samræmi við A.S.L-samningana Þær hlutfallstölur sem ég nefndi voru miðaðar við árs- grundvöll, en þar sem umrædd launa- hækkun dreifist á þrjú tímabil þessa árs, eru á árinu 1976 áhrif A.S.I.- samninganna talin jafngilda 12.66% hækkun á viðkomandi launaútgjöldum borgarsjóðs, en áhrif annarra væntan- legra kjarasamninga jafngilda 9.83% hækkun á viðkomandi launaliði. Hækkanir á styrkja- og rekstrarliöum Eins og fram kemur í fundargerðum borgarráðs frá 12. og 16. þ.m. eru gerð- ar breytingar á all-mörgum styrkjalið- um, eða 44 talsins, og nemur hækkunin samtals tæplega kr. 36.9 millj. Mestu breytingarnar verða á framlagi til íþróttastarfsemi, þ.e. til íþróttafélag- anna í borginni, 6.5 millj. kr.,til Lifeyr- issjóðs starfsmanna Reykjavikurborg- ar, þ.e. lán til starfsmannafélagsins vegna byggingar orlofshúsa, kr. 5.0 milij., og til Kirkjubyggingasjóðs kr. 4.0 millj. Þá er tvöfaldað framlag til reksturs dagvistunarstofnana í einka- eign, hækkun um tæpar kr. 6.0 millj., en þessi hækkun leiðir beint af breyttri lagasetningu um þátttöku rík- issjóðs í þessum rekstrarkostnaði, sem nú er felld niður og ég hef áður nefnt. Hækkanir á átta rekstrarliðum borg- arsjóðs eru samtals rúmlega kr. 120.4 millj. Meirihluti fjárhæðarinnar, eða kr. 70.0 millj., er vegna þátttöku borg- arsjóðs í sjúkratryggingum og er þá miðað við endurskoðaða kostnaðaráætl- un Sjúkrasamlags Reykjavíkur fyrir árið 1976. Af öðrum fjárhæðum má nefna hækkun um samtals 21.0 millj. vegna snjómoksturs og eyðingar á hálku og er þá miðað við kostnaðartöl- ur eins og þær nú liggja fyrir eftir veturinn, sem hefur reynzt óvenju um- hleypingasamur og snjóþungur. Þá verður að hækka kostnað vegna sorp- hreinsunar um 13.0 millj. kr. í sam- ræmi við breytingar á leigu fyrir sorp- bifreiðar. Kostnaður við rekstur Kjar- valsstaða er hækkaður um 4.7 millj., bæði vegna og hárrar tekjuáætlunar I frumvarpinu, en einnig vegna aukins kostnaðar i sambandi við starfsemi list- ráðs og ráðningu listfræðings. Þá er loks að nefna að til niðurgreiðslu á daggjöldum á einkaheimilum eru áætl- aðar kr. 8.0 millj. og er það i samræmi við ályktun borgarráðs frá 23. desem- ber s.l. Nokkur fram- kvæmdasamdráttur óhjákvæmilegur Til að mæta að hluta þessum hækk- unum á rekstrarliðum borgarsjóðs er lagt til, að framlag til gatna- og hol- ræsagerðar verði lækkað um tæplega kr. 123.8 millj. og verði samtals um kr. 728.5 millj. Þessi tillaga felur í fyrsta lagi i sér, að framkvæmdum við Sætún á kaflanum frá Skúlatúni að Kringlu- mýrarbraut, ásamt tengingum við Snorrabraut, verði frestað til næsta árs, en við það lækkar áður áætlað framlag tii gatnagerðar um 55.8 millj. kr. I öðru lagi er lagt til, að byrjunar- framkvæmdum við Súðarvog verði frestað, en áætlað var að þær fram- kvæmdir kostuðu um kr. 32.0 millj. Þessi ákvörðun mun þó ekki hafa áhrif á úthlutun lóða við Súðarvog siðar á árinu, enda er þá reiknað með að þær verði gerðar byggingarhæfar strax á næsta ári. Þá er i þriðja lagi framlag til gatnagerðar lækkað um kr. 40.0 millj. á grundvelli þess, að tilboð í verklegar framkvæmdir í nýjum borgarhverfum hafaveriðmun lægri en kostnaðaráætl- anir voru byggðar á. Þá er rétt að benda á, að lagt er til.'að 5.6 milij. kr. framlag vegna kostnaðar við Þjóðhátíð 1974 'falli brott, en nýlegt uppgjör virð- ist benda til, að þessi fjárveiting reyn- ist óþörf. Eg hef nú lokið við að gera grein fyrir brtt. borgarráðs frá 12. og 16. þ.m. við rekstrargjöld borgarsjóðs. Tekju- megin eru gerðar tillögur um hækkun á framlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfé- laga í samræmi við lagabreytinguna, sem ég hef áður gert að umtalsefni, svo og nýjan útreikning á tekjuspá af sölu- skatti samkvæmt fjárlögum. Nemur hækkunin samtals liðlega kr. 200 millj. Tiliaga um hækkun á húsa- og ióða- gjöldum um kr. 10 millj. er í samræmi við álagningu sem fram hefur farið eftir að frv. var samið, en tillaga um hækkun á útsvörum frá frumvarpsfjár hæð um samtals kr. 297.5 millj. er, eins og segir i bókun í 24. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. þ.m.,við það miðuð. gjöldum lækkar lítillega frá því, sem gert var ráð fyrir í frumvarpi, eða úr 30.5% í 29.3% Byggingafram- kvæmdaliður eignabreyttnga Aætluð útgjöld borgarsjóðs undir byggingarframkvæmdalið eignabreyt- inga hækka í heild um aðeins 12 millj. króna frá þvi, sem gert var ráð fyrir i frumvarpi, og verða 1.210.6 millj. kröna. Einstakir framkvæmdaliðir hafa þó tekið meiri breytingum en þessi niðurstaða gefur til kynna og skal nú nánar vikið að því. Við gerð fjárhagsáætlunarfrumvarps fyrir áramót stóðu vonir til þess, að unnt yrði að verja rösklega 790 millj. króna til skóabygginga á þessu ári, en i ræðu minni við fyrri umræðu um frumvarp að fjárhagsáætlun borgar- innar varaði ég jafnframt við of mikilli bjartsýni i þessu sambandi, þar sem þá var orðið ljóst af umræðum um fjárlög ríkisins, að búast mátti við tregðu af þess hálfu við að auka framlög til þess- ara framkvæmda sem og ýmissa ann- arra, enda varð sú raunin á. Endanleg- um hlut borgarsjóðs er hér haldið sem næst óbreyttum frá fyrri áætlun, en áætlað heildarframlag til skólabygg- inga lækkar um tæplega 136 millj. króna og verður 654.5 millj. króna. Ég gerði við fyrri umræðu grein fyrir hús- næðisskiptum ríkis og borgar, en þau voru sýnd í tvennu lagi í fjárhagsáætl- unarfrumvarpi. Annars vegar var um að ræða samningsbundnar fram- kvæmdir, sem rikissjóður hefur tekið að sér við Vogaskóla, Langholtsskóla og Kvennaskólann, en hins vegar var sýndur ráðgerður hluti ríkissjóðs i framkvæmdum, sem enn var ósamið um, en sá hluti skyldi koma til viðbótar lögbundinni kostnaðarhlutdeild ríkis- sjóðs í samþykktum framkvæmdum. Nú er sýnt, að greiðslur ríkissjóðs fyrir þann hluta, sem afgangs verður, þegar lokið er framkvæmdum við Vogaskóla, Langholtsskóla og Kvennaskólann, hefjast á næsta ári og þá þannig, að afgangurinn, alls um 16.500 rúmmetr- ar, greiðist á sjö árum. Þess ber þó að geta, að á þessu ári mun ríkissjóður flýta verulega greiðslum vegna skóla- bygginga, sem ríki og borg standa að sameiginlega, og er þess að vænta, að greiðslubyrði borgarsjóðs vegna þess- ara framkvæmda verði minni en raun hefur orðið á undanfarin ár. Þær breytingar verða helztar frá frumvarpi, að framkvæmdum verður frestað við Breiðholtsskóla og dregið verður úr framkvæmdum við verk- stæðisbyggingar Fjölbrautaskólans í Breiðholti, viðbyggingu Hlíðaskólans og fyrsta áfanga Ölduselsskóla. Aðrar breytingar á kostnaði við fram- kvæmdir á vegum borgarsjóðs eiga rætur að rekja til endurmats kostnaðar af ýmsum sökum, en samningsbundnar framkvæmdir á vegum rikissjóðs vegna húsnæðisskipta hækka nokkuð í heild og auk þess veröa bfeytingar á framlögum til einstakra framkvæmda. Að öðru leyti skal visað á ,,Gögn um framkvæmda- og fjáröflunaráætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 1976 til 1980", sem borgarfulltrúar hafa nú fengið í hendur, en þar er sem fyrr gerð grein fyrir framkvæmdaáföngum í einstökum atriðum. Rétt er að vekja athygli á þeirri breytingu frá frumvarpi, að gert er ráð fyrir því að verja 10 millj. króna til innréttingar á húsnæði Borgarbóka- safns að Þingholtsstræti 27. Þá hefur framlag til Kjarvalsstaða verið hækkað um 2.5 millj. króna, þar sem fyrirhugað er að ráðast i hellulögn fyrir sunnan húsið og lagfæra geymslur i kjallara, auk þess sem bilastæði verða raflýst svo sem fyrirhugað var. Ekki hafa orð- ið breytingar á fjárveitingum til æsku- lýðsmála og niðurstöður á öðrum liðum byggingarframkvæmda haldast óbreyttar frá frumvarpi. Þó þykir rétt að skýra frá nokkrum breytingum á einstökum framkvæmdum á sviði iþróttamála, heilbrigðismála og félags- mála. Skal þá fyrst vikið að gerð iþróttamannvirkja, en fresta verður framkvæmdum við iþróttavöll austan aðalleikvangs í Laugardal. Þessu veldur m.a. mikil tregða á greiðslum úr Iþróttasjóði rikisins til framkvæmda á vegum borgarinnar, auk þess sem framkvæmdakostnaður fór fram úr áætlun á síðasta ári, þrátt fyrir það, að framkvæmdum við Sundlaug Vestur- bæjar miðaði mun hægar en gert hafði verið ráð fyrir. Þar verður fram- kvæmdakostnaður því meiri á þessu ári en gert var ráð fyrir í frumvarpi. Framkvæmdir heilbrigðis- og félagsmála Framlög ríkissjóðs til framkvæmda á sviði heilbrigðismála verða i heild mun minni en gert var ráð fyrir í frumvarpi, auk þess sem umtalsverðar breytingap verða á framlögum borgarsjóðs til eip- stakra framkvæmda. Fyrirhugað er að verja rösklega 65 millj. króna til bygg- ingar þjónustuálmu Borgarspitalans, auk þess sem ólokið er framkvæmdum við dagheimili spítalans, sem ætlað er að muni kosta um 7 millj. króna. Smíði sjúkrahússins í Arnarholti miðaði hægar í fyrra en búizt var við og þykir liklegt, að kostnaður við framkvæmdir þar verði 70 millj. króna á þessu ári. Óeyddar fjárveitingar borgarsjóðs til þessarar framkvæmdar námu samtals 27.8 millj. króna um síðustu áramót, og lækkar þvi fjárveiting á þessu ári að sama skapi frá því, sem gert var ráð fyrir í frumvarpi. Framlag til Heilsu- gæzlustöðvar i Árbæjarhverfi hækkar úr 30 í 52 millj. króna vegna þess að minna varð úr framkvæmdum þar i fyrra en vænzt hafði verið. Þá er fyrir- hugað að verja 3 millj. króna til þess að koma upp læknamiðstöðvum í Domus Medica og í Efra-Breiðholti, en þar standa nú yfir viðræður um leigu á húsnæði að Asparfelli 12, og nokkur kostnaður fellur til vegna hönnunar heilsugæzlustöðvar í Neðra-Breiðholti, sennilega allt að 1 millj. króna. Fram- lög ríkissjóðs hafa tekið breytingum í samræmi við f járlög. I heild tekur áætlaður stofn- kostnaður vegna barnaheimila á þessu ári ekki breytingum frá því, sem gert var ráð fyrir f frumvarpi, en þó hefur verið ákveðið að verja 10 millj. króna til endurbóta leikskólans Tjarnar- borgar, auk þess sem framlag ríkis- sjóðs til stofnkostnaðar verður um 15 millj. kr. lægra en gert var ráð fyrir I frumvarpi. Hér er um að ræða 25 millj. Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.