Morgunblaðið - 19.03.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 19.03.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1976 5 Drengjafermingaföt — Skyrtur — Leðurjakkar — Stakar buxur — Peysur — Slaufur o.fl. Stúlkna fermingardragtir — Kjólar — Kápur — Blússur — Peysur — Leðurjakkar o.fl. NYKOMIÐ Herraföt m/vesti — Skyrtur — Herrapeysur — Gallabuxur — Blússur — Stakir flauelsjakkar—Stakar terylene &l ullarbuxur — Margir litir — Herrakúrekastígvél o.m.fl. Mikid úrval af alls konar fatnadi fvrir fermingarnar TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS KARNABÆR AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Sífelld blíða á Húsavík Húsavík, 18. marz. TlÐARFAR hefur verid sérstak- lega gott allan þennan mánuð og svo má segja að verið hafi að mestu frá nýári. Aflabrögð hafa aftur á mðti verið frámunalega léleg og tveir bátar, sem reru héðan gáfust upp og róa nú frá Rifi á Snæfellsnesi. Rauðmagaafli hefur verið góð- ur síðustu dagana, en markaður er takmarkaður. Má ætla að það loft góðu um grásleppuveiði því ekki er ólíklegt að svipuð gegnd sé af báðum kynjum. Verð á grá- sleppuhrognum er gott. I dag og í gær lönduðu hérna tvö togskip. Bjarni Asmundur kom með 40 tonn og Hegranes með rúm 100 tonn. •- Fréttaritari. Fyrirtæki Breið- dælinga sameinuð: 14 millj. kr. söfnuðust í hlutafjársöfnun NÝLOKIÐ er hlutafjársöfnun á Breiðdalsvík í þvf skyni að sam- eina öll helztu atvinnufyrirtæki staðarins. Eitt helzta verkefni hins nvja fyrirtækis, verður að kaupa helming eignar í skut- togaranum Hvalbak, en það skip er sameign Breiðdælinga og Stöðvfirðinga. Sigurður Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri á Breiðdalsvik, sagði í samtali við Morgunblaðið, að alls hefðu safnast 14 milljónir króna í hlutafjársöfnuninni og hefði hún gengið einstaklega vel. Mætti segja, að allir íbúar Breið- dalsvíkurþorps og sömuleiðis sveitarinnar þar innaf, hefðu lagt eitthvað af mörkum. Hann sagði ástæðuna fyrir því, að Breiðdælingar ætluðu sér að kaupa hlut Stöðvfirðinga i Hval- baki vera, að fyrir stuttu hefðu verið seldir tveir 200 tonna bátar frá Breiðdalsvík, Sigurður Jóns- son og Arni Magnússon. Þá ættu Stöðfirðingar von á skuttogara frá Noregi um n.k. áramót. Hval- bakur væri nú eina skipið sem legði upp afla á Breiðdalsvik og væri nauðsynlegt að allur afli skipsins yrði lagður þar á land í framtíðinni, ef atvinnuástand ætti að vera tryggt. Þá sagði hann, að nýtt frystihús væri í byggingu á staðnum, en því hefur lítið miðað áfram síðustu mánuðina vegna fjármagnsvand- ræða. Ráðstefna um kjördæma- málið og starfshætti Alþingis HELGINA 27. — 28. mars n.k. gangast Heimdallur S.U.S. og Vörður F.U.S. fvrir ráðstefnu í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri, um kjördæmamálið og starfs- hætti Alþingis. Þátttakendur úr Revkjavík leggja af stað frá Revkjavik föstudaginn 26. mars síðdegis, og koma til baka sunnu- daginn 28. mars. Gist verður á Hótel Varðborg. Ráðstefnan hefst laugardaginn 27. mars kl. 10 og henni lýkur sunnudaginn 28. mars kl. 17. Eftirfarandi umræðuefni verða tekin fyrir. Breytingar á íslenskri kjör- dæmaskipan og meginþættir í kjördæmaskipan nágrannaþjóða okkar. (Halldór Blöndal kennari) Blandað kerfi hlutfallskosninga og einmenningskjördæma. (Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson frkv. stj.) Einmenningskjördæmi. (Jón Magnússon lögfræðingur) Kosningakerfið í Irska lýðveld- inu. (Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur). Umræður, fyrirspurnir. Starfshættir Alþingis og nauð- synlegar breytingar á þeim. (Þorsteinn Pálsson ritstjóri) Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Heimdallar, Bolholti 7. Væntanlegir þátttakendur skulu og láta skrá sig þar fyrir miðvikudagskvöld 24. mars. Sýnir 20 verk á Mokka GUNNAR H. Sigurjónsson hefur um þessar mundir sýningu á nokkrum verkum sfnum á Mokka við Skólavörðustig. Mvndirnar eru málaðar á sl. 2 árum og eru frá Hafnarfirði, Reykjavík og ná- grannabvggðum. Gunnar sýnir 20 málverk á Mokka og eru allar til sölu nema tvær, sem eru í einkaeign. Sýn- ingin stendur til 3. apríl. Gunnar H. Sigurjónsson hefur haldið þrjár einkasýningar og einnig tekið þátt í samsýningum. SIMI FRA SKIPTIBORÐI 28155 Xlca.YSINOASIMlNN 22480 Jtlorflimhlnliiti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.