Morgunblaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1976 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1976 21 íslandsmótið í Júdó: Meistarar teknir tali Kára Jakobsson erfiðar. Viðar kvaðst hafa mikla ánægju af júdó. — Eg er rétt að byrja núna og ætla að halda áfram í þessu í langan tíma ennþá. Viðar sagði að næsta stór- verkefni væri Norðurlandamót- ið. — Ég hef ákveðið að gera mitt bezta þar og auðvitað vona ég að það nægi mér til að verða framarlega. Nú þá langar mig óskaplega að komast á Ölympíuleikana. Það yrði mikil og dýrmæt reynsla sem maður fengi á þvi að keppa þar. GlSLI ÞORSTEINSSON, ís- landsmeistari í léttþungavigt, er 23 ára gamall lögregluþjónn í Reykjavík og keppir fyrir Ar- mann. Þetta er hans fyrsti ís- landsmeistaratitill. — Þetta var ekki erfið keppni ef úrslitagliman er undanskilin, sagði hann eftir keppnina. Hann kvaðst leggja höfuðáherzlu á að standa sig vel á Norðurlandamótinu sem er á næstunni. Takmarkið þar væri 1.—3. sætið og ef það tæk- ist myndi hann fara að hugsatil Ólympíuleikanna, annars ekki. — Ég hef æft júdó í 3 ár og hef mjög mikla ánægju af íþróttinni, fæ virkilega útrás við iðkun hennar, sagði Gisli. Hann kvaðst ákveðinn í að halda áfram í júdó, en þess má geta að Gisli og Halldór Guð- björnsson öðluðust rétt til að bera svarta beltið tveimur dögum fyrir Islandsmótið. SVAVAR CARLSEN, Is- landsmeistari í þungavigt, er 37 ára kranastjóri í Reykjavík. Hann keppir fyrir Júdófélag Reykjavikur og hefur mjög oft orðið Islandsmeistari bæði í þungavigt og opnum flokki Is- landsmótsins. Hann var sá eini sem varði titil sinn frá i fyrra. — Þetta var nú tiltölulega létt mót, því Hannes Ragnars- son, minn skæðasti keppi- nautur, meiddist snemma í keppninni. Annars eru nokkrir efnilegir júdómenn að koma fram í þungavigtinni og keppn- in þar verður sifellt jafnari og skemmtilegri og erþað vel. — Ég byrjaði að æfa Júdó fyrir alvöru 1968, þá þritugur. Eg hef nú alltaf ætlað að hætta á hverju ári frá 1970 en það er eitthvað sem heldur í mann. En þegar ég hætti að keppa þá hætti ég alveg að iðka júdó. Ég ætla mér að verða með á Norðurlandamótinu og vona að ég standi mig þar. konur. I þungavigtinni gat ís- landsmeistarinn frá í fyrra, Sigurveig Pétursdóttir, ekki verið með vegna veikinda. Danski meistarinn í þungavigt, Conny Kristjánsson, sem gift er Sigurjóni Kristjánssyni júdó- kappa, tók þátt í þungavigtar- keppninni sem gestur. Hún varð að lúta í lægra haldi fyrir Þóru Þórisdóttur, en vann allar hinar stúlkurnar í flokknum. — SS. llalldór (iurthjörnsson hofur þarna betur í virtureign í léttmillivigtinni. Ljósm. Friðþjófur. Aðeins Svavari Carlsen tókstað verja titilinn SIGURÐUR PALSSON, ís- landsmeistari i léttvigt, er 26 ára gamall veggfóðrari í Reykjavík og keppir fyrir Júdó- félag Reykjavíkur. Hann hefur ekki áður orðið Islandsmeist- ari. — Ég er búinn að æfa júdó í 10 ár og alltaf haft það að tak- marki að verða íslandsmeistari, sagði Sigurður eftir keppnina — Ég er því að vonum yfir mig ánægður að það skuli nú loks- ins hafa tekizt. Sigurður kvaðst vona að þessi sigur yrði til þess að hann yrði valinn til þátttöku í Norður- landamótinu sem framundan er. — Ef ég verð valinn ætla ég mér að taka þátt í mótinu. Um hugsanlegan árangur þar er vissara að segja sem minnst. Sigurður kvaðst hafa mikla ánægju af júdóiðkun og sagðist ætla að æfa íþróttina áfram sér til hressingar og ánægju. GUNNAR GUÐMUNDSSON, Is- landsmeistari í léttmillivigt er 31 árs skipasmiður í Njarð- víkum. Hann keppir fyrir UMFK. Gunnar hefur ekki fyrr orðið íslandsmeistari í júdó. — Ég hef nú ekki æft júdó nema í 2 ár, sagði Gunnar. — Aftur á móti hef ég alltaf verið í fþróttum og fór i júdóið af því að ég var slæmur í löppunum. Ég hafði ekki hugsað mér að FJÓRIR nýir íslandsmeistarar sáu dagsins ljós í karlaflokkum íslandsmeistaramótsins í júdó, sem fram fór í íþróttahúsi Hagaskólans á laugardaginn. Allir íslandsmeistararnir frá í fyrra voru mættir til art verja titla sína en arteins einum þeirra tókst art verja titilinn, vSvavari Carlsen JFR í þungavigt. Í öörum flokkum máttu meistararnir frá í fyrra bíta í þart súra epli art tapa titlunum til nýrra manna. I léttvigt varð Sigurrtur Pálsson JFR meistari, í léttmillivigt Gunnar Guðmundsson UMFK, í millivigt Virtar Guðjohnsen Ármanni og í létt- þungavigt Gísli Þorsteinsson Ármanni. Keppendur voru 38 frá 6 félögum og var oft kappsamiega glímt í þær 6 klukkustundir sem keppnin stórt. Er augsýnilegt aö breiddin í júdóíþróttinni vex stöðugt. keppa í greininni en þegar ég fór að ná árangri fór ég að æfa af meiri alvöru. I fyrra var ég með á Islandsmótinu og tapaði þá fyrir Halldóri Guðbjörns- syni og varð annar. Ég var ákveðinn í að vinna hann núna og það tókst. — Þessi sigur í mótinu þýðir að ég kemst á Norðurlandamót- ið. Eg hef aldrei keppt erlendis áður og hlakka því mjög til. Ég er staðráðinn í að gera mitt bezta. VIÐAR GUÐJOHNSEN, Is- landsmeistari í millivigt, er 18 ára nemi i Fjölbrautaskólanum f Reykjavik. Hann keppir fyrir Armann og hefur ekki áður orðið íslandsmeistari í fullorð- insflokkum. Aftur á móti hefur hann orðið meistari í ungiinga- flokkum. — Þetta var nokkuð erfitt mót, sagði hann eftir keppnina Sérstaklega voru glímurnar við Léllvigt <6.! kg) I léttvigtinni voru mættir til leiks 9 keppendur og þar af komust eftirtaldir 4 keppendur í undanúrslit. Sigurður Pálsson JFR, Jóhannes Haraldsson UMFG, Eysteinn Sigurðsson A og Jón I. Benediktsson JFR. I undanúrslit- unum urðu þau óvæntu úrslit að Eysteinn sigraði Islandsmeistarann Jóhannes en Sigurður vann Jón örugg- lega á Ippon, afgerandi falli sem gefur 10 stig. Jóhannes var þar með búinn að tapa af titlinum, en hann krækti sér í 3. sætið með því að vinna Jón örugglega í úrslitaglímu á Ippon. Til úrslita um Islandsmeistaratitilinn glímdu þeir Sigurður Pálsson og Eysteinn Sigurðs- son og var Sigurður allan timann sterk- ari og vann á 7 stigum, og varð þar með Islandsmeistari í fyrsta skipti. Léltmillivigl (70 kg) I léttmillivigtinni voru einnig 9 keppendur mættir til leiks og þar af komust 4 í undanúrslit, þeir Gunnar Guðmundsson UMFK, Halldór Guðbjörnsson JFR, Omar Sigurðsson UMFK og Níels Hermannsson A. I undanúrslitunum sigraði Gunnar Níels í heldur tilþrifalítilli glímu en aftur á móti var viðureign Ömars Sigurðssonar og Halldórs Guðbjörnssonar hörku- spennandi. Þeir voru jafnir að glím- unni lokinni en dómarar dæmdu Ómari vinninginn þannig að Halldór var þar með búinn að tapa af titlinum sem hann vann í fyrra. Halldór glímdi ekki af þeirri ákveðni í þessu móti sem hann er vanur og í riðlakeppninni tapaði hann t.d. fyrir Gunnari. I keppninni um 3. sætið glímdi Halldór við Níels og náði Halldór fastataki við gólf sem hann hélt í 30 sek. og sigraði á Ippon. Til úrslita kepptu Gunnar Guðmunds- son og Oskar Omar Sigurðsson og vann Gunnar naumlega með 3 stigum og tryggði sér titilinn. Millivigl (80 kg) I millivigtinní voru keppendur 9 og var þeim skipt í riðla. Að ríðlakeppní lokinni stóðu 4 keppendur eftir, þeir Viðar Guðjohnsen A, Sígurjón Kristjánsson JFR, meistarinn frá í fyrra, Garðar Skaptason A og Kári Jakobsson JFR. I undanúrslitunum sigraði Viðar Sigurjón glæsilega á Ippon, og var Sigurjón þar með búinn að missa titilinn og Kári vann Garðar á 7 stigum. I keppninni um 3. sætið keppti Sigurjón við Garðar og vann Sigurjón á góðu Ippon.' Til úrslita glímdu svo Viðar og Kári og var Viðar samur við sig, vann á algjöru falli, Ippon. Er þetta líklega ekki siðasti titillinn sem þessi stórefnilegi júdó- maður hlýtur, en hann er aðeins nýorðinn 18 ára gamall. stöðugri framför. Annað sætið hreppti að þessu sinni Kristmundur Baldurs- son UMFK, Hákon Halldórsson JFR varð þriðji en Guðmundur 0. Kristjáns- son JRH varð fjórði. — SS. r- Armann fékk alla Léttþungavigt (93 kg) I léttþungavigtinni voru keppendur 6 taisins og var keppnín með útsláttar- fyrirkomulagi. Að aðalkeppninni lok- inni stóðu þeir eftir Islandsmeistarinn frá f fyrra, Benedikt Pálsson JFR og Gísli Þorsteinsson Á. Glímdu þeir til úrslita og var það hörð keppni. Bene- dikt hafði betur framan af en að þvi kom að Gísli náði fastataki við gólf sem honum tókst að halda í 30 sekúndur og þar meö hafði hann sigrað á Ippon. I 3. sæti varð Sigurjón Ingvarsson A en Finnur Finnsson JRH (Isafirði) hreppti 4. sætíð. Þungavigt (Yfir93 kg) I þungavigtinni voru keppendur 5, og kepptu þeir allir við alla. Meistarinn Svavar Carlson JFR var í nokkrum sérflokki og lagði alla sína keppinauta, en i þessum þyngdarflokki eru að koma fram á sjónarsviðið menn sem eru i kven- meistarana Hart barizt í kvennakeppninni á sunnudaginn. ISLANDSMEISTARAMÖT kvenna í jddó fór fram f sal JER við Brautarholt á sunnu- daginn. Til keppni mættu 13 stúlkur og voru viðureignir þeirra margar hverjar mjög skemmt ilegar á að horfa. Stór- stígar framfarir hafa orðið hjá kvenfólkinu f júdó og sumar stúlknanna kunna orðið mikið fyrir sér I iþróttinni. Keppni f opnum flokki kvenna verður á laugardaginn kemur í Haga- skólanum og fer hún fram sam- hliða keppni í opnum flokki karla. Urslit í einstökum flokkum urðu þessi: LÉTTVIGT (54 KG) 1. Magnea Einarsdóttir A 2. Sigurlína Júlíusdóttir JRH (Isaf.) 3. BrynjaHöskuldsdóttir JRH MILLIVIGT (60 KG) 1. Anna Lára Friðriksdóttir Á 2. Hildur Einarsdóttir A 3. Rósa Össurardóttir Gerplu ÞUNGAVIGT (YFIR 60 KG) 1. Þóra Þórisdóttir A 2. AnnaLíndalA 3. Guðný Elvarsdóttir UMFG Þær Magnea, Anna Lára og Þóra eru allar þekktar keppnis- Stúdentarmeð báðarhendurá bikamum STUDENTAR og IMA léku í 1. deild lslandsmótsins í blaki á laugardaginn. Leikurinn fór fram á Akurevri og lauk honum með sigri Stúdenta 3—0. Þar með eru þeir komnir með báðar hendur á bikarinn og höfum við reyndar sagt frá því áður, en fræðilegur mögu- leiki var hjá Laugdadum að hreppa titilinn, en til þess þurftu Stúdentar að tapa fvrir ÍMA. — Eitthvað voru Stúdentar seinir i gang og í fyrstu hrin- unni gegn IMA. Dálítið bar á mistökum hjá þeim og IMA hélt í við þá upp í 6—6 en eftir það var ekki spurning hvor var betri, 15—7 urðu úrsiitin í hrin- unni. IS vann aðra og þriðju hrinuna auðveldlega 15—2 og 15—4. ÍMA menn voru ekki mjög friskir og fóru ekki lengra en andstæðingurinn leyfði. Það kom varla fyrir að þeir næðu skelli því hávörn IS var mjög þétt og góð og varði marga bolta. Að venju var framspil og uppspil gott og allir menn liðs- ins ógnuðu við netið. Nýr leik- maður lék með 1S i þessum leik, frakki, og vöktu skellir hans athygli, en úlnliðshreyfing er mjög góð hjá honum. Hann gerir ekki meira en að styrkja lið Stúdenta, enda eru þeir orðnir leikreyndir mjög og f góðri þjálfun. Stúdentar eiga nú aðeins einn leik eftir i Islandsmótinu, gegn Laugdælum, og verður sá leikur fyrir austan. Laugdælir eru sjálfsagt farnir að hlakka til og eru þeir til alls vísir á heimavelli með 600 áhorf- endur með sér, ef miða á við hávaða. vo mikill hraói var í leik „gamlingjanna" t blaki um helgina að Friðþjófi Ijósmvndara tókst ekki að stilla „fókusinn" eins og glögg- ega má sjá á þessari mvnd. Sóknarpresturinn gaftóninn — hart barist í blakleikjum öldunganna ÍSLANDSMÓT í blaki öldunga hófst á sunnudags- kvöldirt og voru leiknir fimm leikir, allir í A-riðli, en liðunum hefur verið skipt í þrjá riðla. — Leikirnir á sunnudagskvöldið voru mjög skemmtilegir og margir hverjir mjög spennandi. Fyrsti leikurinn var á milli Þróttar og ÍBK. I liði þróttar eru leikmenn Línunnar sem tók þátt í haustmótinu 1974 og var lið þeirra mjög skemmtilegt og samvinna leikmanna góð. Þeir sigruðu Keflvikinga i báð- um hrinum, 15—2 og 15—4, og var þetta frumraun þeirra Suð- urnesjamanna. Þeir áttu þó eftir að koma á óvart síóar um kvöldið, þvi þeir sigruðu Armann 2—1 í mjög skemmtilegum leik. Keflvíking- arnir með sóknarprestinn í broddi fylkingar léku mjög ákveðið og var baráttan góð í liðinu. Armenningar voru samt óheppnir í þessum leik. Þeirra lið, ásamt liði Þróttar var með áberandi bestu boltameðferð- ina en þeir lágu samt fyrir IBK. Urslit hrinanna voru 15—8, 9—15 og 15—12 ÍBK í vil. Ármenningar áttu einnig i' brösum með stjörnuna í Garða- bæ og töpuðu þeir fyrir fyrstu hrinunni gegn þpim 11 —15, en þeir sýndu frábæran leik i ann- arri hrinunni og unnu glæsi- lega 15—3. Urslitahrinan var mjög skemmtileg og fór Ár- mann með nauman sigur af hólmi,15—12. Leikur Víkings og Þróttar var frekar daufur og var lið Þróttar mun betra. Urslit hrin- anna urðu 15—7 og 15—4 Þrótti i vil. Seinni leikur Vík- ings og jafnframt síðasti leikur kvöldsins var gegn Stjörnunni. Sá leikur var æsispennandi og skemmtilegur. Stjarnan komst i fyrstu hrinu í 7—1 en Víkingar jöfnuðu 9—9 og sigruðu fyrstu hrinuna 15—10. Næsta hrina var mjög jöfn og hafði Stjarnan lengst af forystu en Víkingar jöfnuðu 14—14. Stjarnan var sterkari á lokasprettinum og sigraði 16—14. Urslitahrinan var góður endir á skemmtilegu kvöldi. Stjarnan komst i 8—6, en Víkingar komust yfir í 13—10. Þá tóku Stjörnumenn til sinna ráða og tókst þeim á góðum endaspretti að sigra 15—13. SigrarhjáÞrótti (b) ogStiganda í2deild TVEIR leikir voru háðir í 2. deild Islandsmótsins í blaki um helgina. A sunnudaginn léku Þróttur-b og USK. Þróttur sigraði 3—1 i nokkuð jöfnum leik. Fyrsta hrinan fór 15—4 og voru Skagamenn úti á þekju, en þeir áttuðu sig brátt á hlutunum og i annarri hrinunni tóku þeir örugga forystu 6—0 og héldu henni út og sigruðu glæsilega 15—5. Þriðja hrinan var nokkuð jöfn, liðin skiptust á forystu. USK komst i 10—6, en þá skoruðu Þróttarar 5 stig í röð og breyttu stöðunni i 11—10 stig sér í hag. Skagamenn fengu siðan ekki fleiri stig i hrinunni og Þróttur sigraði 15—10. Þróttarar tóku góða forystu í fjórðu hrinunni, 12—6, en Skagamönnum tókst að minnka muninn i 13 —10, og lauk hrinunni með naumum sigri Þróttar 15—13. Einn leikur var í A-riðli islandsmótsins i 2. deild, og léku þar Stígandi og HK. Stígandi fór með sigur af hólmi og hafði áður tryggt sér sigur i riðlinum og þátttöku í úrslitakeppninni. Þeir sigruðu 3—0, i frekar daufum leik. Úrslit hrinanna urðu 15—9, 15—10 og 15—4. — I C-riðli hefur UMSE tryggt sér sigur og mætast þessi þrjú lið, Stigandi, Breiðablik og UMSE í úrslitakeppni um sæti i 1. deild næsta ár. Skróp hjá UBK EINN leikur átti að vera í Islandsmóti kvenna á sunnudagskvöldið. Víkingur og Breiðablik áttu að leika, en Breiðahliksstúlkur mættu ekki til leiks, nema fjórar, en fullskipað blaklið eru 6 leikmenn, hvorki fleiri né færri. Leikurinn var flautaður á og Víkingi dæmdur sigur 3—0, eða 15—0,15—0. Úr leik stúdenta og Þróttar á dögunum. Leikmenn IS sigruðu i þeirri viðureign sem í öðrum i vetur og eru nú enn orðnir Islandsmeistarar. (Ijósm. Sigfús R.B.Cassata).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.