Morgunblaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1976 37 VELVAKAIVIDI Velvakandi svarar í síma 10-100 kl 14—1 5, frá mánudegi til föstu- dags 0 Börn og fólk „Velunnari barna og ung- mcnna" skr'ifar: ,,Dag nokkurn fyrir skemmstu ök ég syni minum i skólann. Veð- ur var venju fremur slæmt — slagveðursrigning eins og hún gerist andstyggilegust. Þegar við komum að skólanum var klukkan rétt rúmlega átta, en kennsla hefst kortér yfir átta. Nokkur börn hímdu fyrir utah lokaðar dyrnar. Ég spurði drenginn hvort hann héldi ekki að dyrnar yrðu opnaðar fljótlega, því að mér fannst ófært að láta fólk standa úti i óveðrinu, jafnvel þótt við- komandi væru börn. Drengurinn sagði, að dyrnar yrðu ekki opn- aðar fyrr en hringt yrði inn. Rétt hjá er gagnfræðaskóli og sem ég ók mina leið sá ég að þar var sama sagan. Nú vildi ég beina þvi til þeirra þjóna hins opinbera, sem einkum er trúað fyrir forsjá barna og ung- menna, að teknir verði upp nýir og betri siðir í umgengni við þessa aldurshópa. Hvernig er hægt að ætlast til þess, að krakkar sýni tillitssemi og prúða frarn- komu, þegar þeiin er sýnd svona ókurteisi og dónaskapur. Ég er hra>dd um, að ekki þýddi að bjóða fullorðnu fólki upp á það að hima i roki og rigningu fyrir utan lok- aðar dyr, en hvernig stendur á þvi, að alltaf virðist vera hægt að umgangast börn og unglinga eins og einhvern óæðri þjóðflokk. Skólamenn fá kannski hroll þegar þeir hugsa til þess að þess- um fénaði verði hleypt inn í skól- ana fimmtán niinútum áður en kennsla á að hefjast, og hann lát- inn leika þar lausuni hala, en ég er sannfærð um, að hægt væri að haga því svo að vel fa'ri. Ég man vel eftir ábendingum strætisvagnastjóra, þegar ég var að alast upp, um það, að börn ættu að standa upp i vögnunum til þess að „fólkið" gæti setzt. Ég fékk það fyrst á tilfinninguna, að ég til- heyrði „fólki", þegar ég var orðin fullorðin." 0 Vinirokkar, smáfuglarnir Ingvar Agnarsson skrifar: „I vetur hefur oft verið hart í ári hjá smáfuglunum. Þúfutittl- ingar hafa flykkst heim að húsum manna morgun hvern, vikum sanian, og gott fölk hefur borið út til þeirra brauð og fuglafóður. Þessi gestrisni fólks hefur bjarg- að mörgum fugiinum frá illum dauðdaga. Og þetta góða fólk þau í eklhúsinu. Ul um opnar dyrnar út 1 portið sá David geran- íurnar í blóma og köttinn I fasta- svefni milli blómabeðanna. Hann þakkaði M. Valentin á sinni beztu frönsku fyrir máltíðina og Helen þakkaði honum ekki kíður. Þeint var hoðinn drykkur og gátu ekki neitað. M. Valentin var eldri en David hafði talið f fvrstu. Ifann var dálitið óútreiknanlegur í út- liti, likaminn virtist mun ung- legri en andlitið. Hann var vin- samlegur i framkomu en David fannst sterklega sem miklir og ólgandi skapsmunir kæmu iðu- lega upp á yfirborðið. Helen tal- aði við hann glaðlega og fjörlega og David sem kunni lítt í þeirri kúnst að halda uppi liflegum samra'ðum um ekkert efni, horfði á hana með aðdáun. Ilann kinkaði kolli, brosti og hristi höfuðið og gerði allt sem hann vænti að búizt væri við af honum, horfði í kring- um sig í þröngu eldhúsinu og furðaði sig á að hægt væri að framreiða svo gómsa'tan og fjöl- breyttan mal á öðrum eins þrengslum, þar sem öllu ægði saman og hvitlaukslvklin loddi i vitum hans löngu eftir að hann var kominn út. hefur fengið gestrisni sina marg- borgaða, með nærveru þessara fögru vina. Allir ættu að venja börn sín á að gefa fuglunum og sýna þeim mannúð og mildi, og kenna þeim að gleðjast yfir nærveru þeirra og fegurð. Jónas Hallgrfmsson orti eftir- minnilegt kvæði, Grátittlinginn, um litinn fugl, sem hann bjargaði frá dauða. Ættu öll börn og ungl- ingar að læra þetta kvæði. 0 Kvæði Jónasar Ég tek hér fáein erindi úr þessu fagra ljóði: Ég fann á millum fanna í felling á blásvelli lófa-lága við þúfu lítinn grátittling sýta. Flogið gat ekki hinn fleygi, frosinn niður við mosa, augun ótta-bljúgum á mig skaut dýriðgráa. Kalinn drengur í kælu á kalt svell, og ljúft fellur, lagðist niður og lagði litinn munn á væng þunnan. Þvddi allvel og eyddi illum dróma með stilli. sem að frostnóttin fyrsta festi með væng á gesti. — Gesti yðar. Þvf ástar óhvikul tryggð til byggða vorra leiðir á vorum \egar — slynga tittlinga. Litill fugl skauzt úr lautu. lofaði guð niér ofar, sjálfur sat ég í lautu sárglaður og með tárum. (Jónas Hallgrímsson.) Þetta hugljúfa kva-ði hins ást- sa'la skálds hefur löngum átt sinn þátt í að vekja fólki samúð og umhyggju fyrir smáfuglunum. Hið eina, sem við getum fyrir þá gert, er að gefa þeim mat, er þeir leita til „byggða vorra". Látum það ekki niður falla, því ynn er vetur i landi okkar, þrátt fyrir ha'kkandi sól. HOGNI HREKKVISI ,Nú — hvað er þad núna, piltar?' Rithöfundakvöld Fimmtudaginn 25. mars 1976 kl 20,30 les þýski rithöfundurinn Josef Reding úr verkum sínum í Norræna húsinu. Inngangur ókeypis. Félag þýskukennara Þýski sendikennarinn á íslandi við Háskóla íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.