Morgunblaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1976 25 Gunnar Tómasson: INNGANGSORÐ Gjöful fiskimið hafa frá alda öðli verið undirstaða efnahagslegra og þjóðfélags- legra framfara á Islandi. Samhliða stöðugri þróun sjávarútvegs hefur þó lertgi verið ljós nauðsyn aúkinnar fjöl- breytni í islenzku atvinnulifi, svo fleiri stoðum yrði skotið undir hagsæld vax- andi þjóðar. Við upphaf síðasta áratugar þótti einsýnt, að brátt yrði náð efri mörk- um afkastagetu íslenzkra fiskistofna. Var því hafizt handa um uppbyggingu orkufrekrar stóriðju, en í óbeizlaðri orku íslenzkra fallvatna höfðu hugsuðir fyrri tíma séð glæsta möguleika til efl- ingar þjóðarhag. Um miðjan áratuginn varð bylting í veiðitækni og skipakosti við síldveiðar og afli margfaldaðist. Hagur almennings batnaði, og sú skoðun úrtölumanna stór- iðju efldist, að uggur um stöðu fiski- stofnanna væri ekki á rökum reistur. Fyrr en varði voru þó helztu síldarstofn- arnir nær gjöreyddir og þjóðartekjur minnkuðu. Hér sannaðist enn, að skortur eltir skammsýni, en brátt var samt tekið til við hliðstæða tæknibylt- ingu við þorskveiðar. I erindi, sem greinarhöfundur flutti á fundi Rotaryklúbbs Reykjavíkur sl. sumar, og sem birt var í Morgunblaðinu 13. júlí, sagði m.a.: „Elyðilegging síldarstofna á síðasta áratug og uggvænleg staða íslenzka þorskstofnsins nú síðustu árin sanna þó ótvírætt, að mjög hefur skort á skynsam- lega beitingu nýrrar veiðitækni við nýt- ingu þessara viðkvæmu auðlinda okkar. Er hér meginforsenda þeirrar sannfær- ingar minnar, að íslenzka þjóðin standi nú á alvarlegum tímamótum, þar sem meira mun reyna á manndóm hennar og skynsemi en nokkru sinni fyrr í sögu lýðveldisins. Ef vel tekst til, er ástæða til bjartsýni um framtiðarhagsæld þjóðar- innar. Að öðrum kosti kann að vera framundan tímabil stöðnunar og jafnvel versnandi almennra lífskjara." Með grein þessari er þráðurinn tekinn upp á ný og settar fram hugmyndir um lausn þess hagræna og þjóðfélagslega vanda, sem við er að etja. BYGGÐA- OG ATVINNUÞRÖUN Vandamál llðandi stundar ber að skoða í ljósi sögulegrar þróunar búsetu og atvinnulifs á Islandi. Núverandi dreifing byggðar er afleiðing knappra landsgæða, en þéttbýliskjarnar hafa skapazt í öllum landshlutum til verzlunarreksturs og annarrar þjónustu við landbúnað og sjávarútveg. Til fiskjar var róið úr sveitum i frávikum frá bú- verkum og úr þéttbýli. Kjör alþýðu voru rýr og fjármagnskostnaður í samræmi við afrakstur; fé gekk í haga og bátskel dugði til sóknar á heimamið. Fyrri hlutföll fjármagns og auðlinda hafa gjörbreytzt á þessari öld, og hraðar en nokkru sinni siðustu þrjátíu árin. Til sjávar og sveita varð tæknivæðing upp- haf stóraukinna afkasta og ört batnandi lífskjara. 1 sjávarútvegi var um upp- skeru eina að ræða og varð aukning afkasta þar enn meiri en í landbúnaði, þar sem einnig var þörf ræktunar. Aukinn fjármagnskostnaður stuðlaði að myndun stærri reksturseininga í út- gerð og fiskvinnslu, en sjómönnum fækkaði í hlutfalli við vaxandi afkasta- getu veiðiflotans. Samtímis jókst mannaflaþörf iðnaðar og þjónustu í þétt- býlinu, þó sjávarútvegur væri áfram beinn og óbeinn burðarás þess atvinnu- öryggis og þeirrar vaxandi hagsældar, sem íbúar þéttbýlis hafa búið undan- gengna áratugi. Ný vandamál á sviði byggðajafnvægis fylgdu í kjölfar aukins fjármagns- kostnaðar í sjávarútvegi eftir seinni heimsstyrjöldina Batnandi efnahagur þjóðarinnar veitti hins vegar nýja mögu- leika til úrlausnar, og hafði ríkisvaldið forgöngu um útvegun fjármagns til endurnýjunar fiskiskipaflota og upp- byggingar vinnslustöðva um allt land. Á meðan afkastageta sjávarauðlinda var ekki fullnýtt, þá mátti þannig tryggja almenn lífskjör og atvinnuöryggi, án verulegrar röskunar hinnar dreifðu byggðar, sem var arfleifð lífsbaráttu fyrri kynslóða. Auðgæfni gras- og beitilendis voru þrengri takmörk sett en auðlindum sjávar, og var tæknivæðing því ekki það úrræði til lífskjarabóta i landbúnaði, sem hún reyndist í sjávarútvegi. Var þvi mörkuð stefna stóraukins stuðnings við ræktun, byggingar, og tæknivæðingu i sveitum landsins svo dregið yrði úr tekjumisræmi og varnað yrði verulegum fólksflótta úr landbúnaði og fækkun býla. Veittist landbúnaði þannig hlut- deild i auðsköpun sjávarútvegs. Hér skal ekki fjölyrt um þörf stefnu- breytingar í íslenzkum landbúnaði, en vísað til greinar höfundar um það efni i Morgunblaðinu 21. janúar 1975. Þó skal getið nokkurra hagstærða úr land- búnaðarskýrslum, sem sýna að vandi landbúnaðar er ekki minni en sjávarút- vegs: (a) svipuð fjárfesting var í land- búnaði og iðnaði á árabilinu 1966—1972, þó hlutdeild landbúnaðar i atvinnusköp- un 1972 væri aðeins 11% en 18% í iðnaði; (b) magnaukning iðnaðarfram- leiðslu var 48% frá 1966 til 1973, en framleiðsluverðmæti landbúnaðaraf- urða, reiknað á föstu verðlagi að með- töldum niðurgreiðslum, jókst um aðeins 16%; (c) iðnaðarframleiðsla ver ekki niðurgreidd, en niðurgreiðslur námu um 31% af framleiðsluverðmæti land- Drögað nýskipan hagstjórnar búnaðarafurða 1972; (d) mjólkurfram- leiðsla jókst um 5% og framleiðsla kindakjöts um 1% frá 1967 til 1973, samtímis því að stærð ræktaðs lands og áburðarnotkun jukust um 24% og fóður- notkun um 31%. NÝ VIÐHORF 1 SJÁVARÚTVEGI Sá vandi, sem nú blasir við í sjávarút- vegi, er eðlileg afleiðing þess frelsis, sem verið hefur frá upphafi um sókn i nytjafiska okkar, svo og þeirrar stefnu yfirboða í stjórnmálabaráttu líðandi stundar, sem ráðið hefur fjárfestingu í veiðiflota og fiskvinnslu landsmanna síðustu árin. Því er nú ekki einungis fiskistofnum ógnað, heldur hefur ógæti- leg fjárfesting og hækkun olíuverðs svo aukið allan kostnað, að mikill hluti hins glæsilega flota er rekinn með tapi, auk þess sem fiskvinnsla berst í bökkum. Viðunandi lífskjör verða því aðeins tryggð, að jafnvægi komist á milli fjár- magns- og reksturkostnaðar og af- raksturs i sjávarútvegi (og landbúnaði), en slíkt er forsenda aukinnar fram- leiðni. Ljóst er að þessu markmiði verður ekki náð án róttækra breytinga á skipulagi og stjórnun fiskveiða og vinnslu. Jafnframt þarf að stórefla þróun annarra atvinnugreina, iðnaðar og stóriðju, svo Island verði komandi kynslóðum land hagsældar og atvinnu- öryggis. Þau hagrænu viðfangsefni, sem hin nýju viðhorf í sjávarútvegi skapa á sviði íslenzkrar þjóðmálaumræðu, má greina í þrjá meginþætti: (i) hvernig verður heildarafli takmarkaður við það magn, sem sér- fræðingar telja ákjósanlegt frá líffræði- legu sjónarmiði, jafnframt því sem þjóð- félagslegri og hagrænni röskun er haldið í lágmarki, en hámarksframleiðni er tryggð við veiðar og vinnslu; (ii) hvernig verður uppbygging nýrra atvinnufyrirtækja fjármögnuð og þeim búin hagstæð starfsskilyrði; og (iii) hvernig má samræma framtíðar- rekstursform útgerðar og fiskvinnslu þeim áður óþekktu viðhorfum, sem verða við takmörkun sóknar i íslenzka fiskistofna. HAGRÆÐING FISKVEIÐA OG VINNSLU Með hugmyndum þeim um hag- ræðingu fiskveiða og vinnslu, sem hér eru settar fram, er reynt að samræma sem bezt hagræn, þjóðfélagsleg og byggðasjónarmið innan þess óhjákvæmi- lega þrönga ramma, sem ástand fiski- stofnanna setur allri tillögugerð. Þannig er leitast við að gæta hagsmuna ein- stakra byggðalaga jafnt sem þjóðar- heildarinnar, og stefnt er að aðlögun yfir ákveðið árabil, svo tími gefist til þróunar athafnalífs og atvinnu utan sjávarút- vegs. Þó má ljóst vera, að róttæk breyt- ing hefðbundinna viðhorfa og afstöðu hinna ýmsu byggðálaga gagnvart auð- lindum sjávar verður ekki framkvæmd sársaukalaust. Lagt er til, að stjórnun fiskveiða og vinnslu verði sameiginlegt verkefni rikisvalds og landshlutasamtaka, og skal í upphafi mörkuð framtíðarstefna í sjávarútvegsmálum, sem framkvæmd yrði á skipulegan hátt yfir fimm ára tímabil, sem hér segir: (a) heildarafli helztu fiskistofna skal ár hvert ákvarðast af ráði sérfræðinga; (b) aflamagni þvi, sem þannig er ákveðið, skal skipt milli níu landssvæða í hlutfalli við fyrri hlutdeild þeirra í heildarafla á tilgreindu árabili; (c) landssvæði yrðu Suðurland, Vesturland, Vestfirðir, Norðurland vestra, Norðurland eystra, og Austfirðir, auk þess sem Reykjavík, Akureyri og Vestmannaeyjar teldust sérstök lands- svæði; (d) árið 1976 skal hvert hinna níu landssvæða hljóta hlutdeild í heildarafla í fullu samræmi við hlutdeild þess í aflamagni grunntímabilsins; (e) frá og með 1977 og fram til 1980 skal sjálfvirk hlutdeild hinna ýmsu landssvæða minnka ár hvert um tíu hundraðshluta hlutdeildar þeirra á grunntimabilinu, en þvi aflamagni sem þannig fæst til ráðstöfunar skal úthlutað til þeirra landssvæða, sem á liðnu ári hafa náð meira en meðalframleiðni við fiskveiðar, en um slíkt fást nú fullnægj- andi upplýsingar (ákvæði þetta yrði landssvæðum hvati til framleiðniaukn- ingar, og stæðu þau þar öll jafnt að vígi); (f) eftir 1980 skal hlutdeild hvers landssvæðis vera minnst 60% hlut- deildar í aflamagni grunntímabilsins, en þeim 40%, sem afgangs eru, skal úthlut- að árlega eins og greint er í lið (e) hér að ofan (með ákvæði þessu yrði öllum landssvæðum tryggð lágmarkshlutdeild í sjávarafla komandi ára, jafnframt því sem nokkuð hefði miðað í átt sérhæf- ingar i sjávarútvegi og framhald yrði á samkeppni landssvæða um aukna fram- leiðni); (g) að öðru jöfnu nytu þau landssvæði forgangs við staðsetningu orkufrekrar stóriðju, seoa mátt hafa þola mesta skerð- ingu hlutdeildar í heildarafla; (h) úthlutun aflamagns til einstakra útgerðaraðila innan hvers landssvæðis skal ákveðin með samkomulagi aðila sjálfra, að því tilskyldu að ákveðnum lágmarkshundraðshluta aflamagns sé út- hlutað ár hvert á grundvelli framleiðni hinna ýmsu verstöðva við fiskveiðar á undangengnu ári; (i) lánafyrirgreiðsla Þróunarsjóðs (sjá hér að neðan ) og annarra opinberra sjóða til hagræðingar í fiskvinnslu skal að mestu bundin þeim landssvæðum og verstöðvum, sem mestri framleíðni ná við fiskveiðar. NYSKÖPUN ATVINNULIFS Hagsæld síðustu áratuga hefur að jöfnu byggt á auðlegð íslenzkra fiski- miða og aðgangi að erlendum mörkuðum til sölu sjávarafurða og kaupa nauð- synja. Þáttur alþjóðlegrar verkaskipt- ingar og viðskipta í efnahagslegum framförum verður vart ofmetinn. Því mun þróun nýrrar útflutningsfram- leiðslu á samkeppnisfærum grundvelli, jafnframt vernd fiskistofna, skipta sköpum um lífskjör Islendinga á kom- andi árum. Sveiflukennd tekjuþróun ásamt hárri framleiðni í sjávarútvegi hefur verið iðnaðarframleiðslu og útflutningi þungur fjötur um fót; þó útflutningur áls og kisilgúrs hafi orðið töluverður síðustu árin, er útflutningur annarra iðnaðarvara enn óverulegur. Þar sem fátt er reynslunni fróðara, skal hér greint frá þeim atriðum hagstjórnar, sem einkum hafa hindrað æskilega þróun íslenzks iðnaðar siðasta áratug- inn. Þess er fyrst að geta, að góðæri til sjávar eykur tekjur þeirra, sem starfa við og í þágu sjávarútvegs, í samræmi við aukna framleiðni. Stefna tekjujöfn- unar krefst siðan ámóta kjarabóta í iðnaði og öðrum atvinnugreinum, án til- lits til framleiðnibreytinga í rekstri þeirra. Ef verðlagshöft hindra eðlilega verðmyndun eða rangskráð gengi veikir samkeppnisstöðu innlendrar fram- leiðslu, verður slík kröfugerð upphaf rekstursfjárskorts, en vaxandi verð- bólgu ella. Þar sem gott árferði til sjávar eykur einnig gjaldeyristekjur þjóðarbúsins, þá má um nokkurt skeið halda óbreyttu gengi krónunnar, þótt innlent verðgildi hennar fari minnkandi. Gengishrun ís- lenzku krónunnar 1967—68 og aftur 1974—75 kom í kjölfar áralangrar verð- bólguþróunar og timabils nær stöðugs gengis. Var þannig tvívegið að vaxtar- möguleikum iðnaðar, þar sem saman fóru hækkandi framleiðslukostnaður og versnandi skilyrði til samkeppni við er- lenda framleiðslu jafnt innanlands sem utan. Ráðagerðir um nýsköpun atvinnulífs hljóta að byggja á þeirri forsendu, að takast muni á ný að auka mjög fram- leiðni við veiðar og fiskvinnslu. Því er brýn nauðsyn. að tekin verði upp ný stefna í gengismálum, og að skráning krónunnar gagnvart erlendum gjald- miðli verði ætið í sem beztu samræmi við raungildi hennar í íslenzku atvinnulífi. Reynsla síðustu ára er staðhæfingu þessari sterk rök. Innlent verðlag og kostnaður hækkuðu um 130% frá 1969 til 1974, samtímis því sem verð gjald- eyris hækkaði einungis um 13% (miðað við ársmeðaltöl). Við ákveðna skiptingu framleiðslukostnaðar milli innlendra og erlendra liða, má ætla að verðlags- og gengisþróun þessi hafi jafngilt a.m.k. 35% sköttun heildartekna sjávarútvegs. Um hliðstæða byrði hefur verið að ræða hjá öðrum útflutningsgreinum, þ.m.t. ís- lenzku flugfélögin og skipafélög, og hjá þeim iðnaðarfyrirtækjum, sem keppt hafa við erlenda framleiðendur á inn- lendum markaði. Arðgæfni sjávarauðlinda yrði væntan- lega slík með þeim stjórnunaraðferðum, sem gerð var tillaga um að ofan, að sjávarútvegi væru að jafnaði búin full- nægjandi starfsskilyrði við hlutföll gengis og innlends kostnaðar og verð- lags, sem ekki samfýmdust ákjósanlegri þróun annarra atvinnugreina. Auk breyttrar gengisstefnu, krefst öflug upp- bygging atvinnu og athafnalífs því einn- ig nýs hagstjórnartækis, sem jafnað gæti þennan aðstöðumun. Hagstjórnartæki það, sem hér um ræðir, er auðlindaskattur, en um hann hafa verið gerðar ýmsar tillögur á liðn- um árum. Annar meginkostur auðlinda- skatts er sá, að hann gæti orðið tekjulind til fjármögnunar framkvæmda við ný- sköpun atvinnulífsins. AUÐLINDASKATTUR Auðlindaskattur í þeirri mynd, sem greinarhöfundur gerði að tillögu sinni i Eimreiðargrein 1974, yrði algjör and- stæða þess verðbólguskatts á atvinnu- lífið, sem lýst var hér að ofan. 1 fyrsta lagi legðist hann á allan innflutning og aðra notkun gjaldeyris, þar sem verð- bólguskatturinn hvetur til gjaldeyris- eyðslu. 1 öðru lagi myndi hann þannig Framhald á bls. 26

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.