Morgunblaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1976 31 riddarakrossi íslenzku fálkaorð- unnar. Helgi hafði hlotið í arf marga góða eðliskosti ættar sinnar. Hann var meðal beztu frjáls- íþróttamanna okkar á yngri árum, enda var hann ein 16 ár skráður methafi i hástökki. Hann var og ágætur knatt- spyrnumaður um árabil og komst f úrvals lið okkar sem slikur. Helgi var einn af forvígismönn- um Knattspyrnufélagsins Vík- ings. Hann stundaði um skeið tennis og náði langt þar eins og á öðrum sviðum. Hin siðari ár æfinnar helgaði hann þó einkum golfíþróttinni frístundir sínar og náði þar ennþá lengra en i tennisíþróttinni. Féllu honum i skaut margir verðlaunagripir fyrir golfafrek sín, bæði hérlendis og erlendis. Maðurinn sem stóó á bak við þennan afrekalista var að mörgu leyti óvenjulegur maður. Hann var mjög vel á sig kominn líkamlega, mjúkur og liðugur, enda fórst honum allt með ágæt- um, er hann lagði hönd á. Þessum hæfileikum fylgdi jafn- vægi hugans og skapfesta. Helgi hafði til að bera mjög farsælar gáfur. Mér er í fersku minni, að ein- hverju sinni voru nokkrir menn i Utvegsbankanum að vinna verk, sem talsverða lagni þurfti til að leysa fljótt og vel af hendi. Ég man sérstaklega eftir hvað mér fannst Helgi flýta sér hægt. Varð ég því ekki lítið undrandi þegar í ljós kom, að Helgi var langfyrstur að ljúka sinum hluta verksins. Það var líkamleg mýkt og jafn- vægi hugans, sem hér reið bagga- muninn. Helgi stundaói talsvert lax- veiðar í frístundum sinum og var laginn þar eins og á fleiri sviðum, enda talinn ágætur laxveiði- maður. Þá var hann einn af kunnustu bridgespilamönnum höfuðborgar- innar og hlaut þar mikla viður- kenningu. Helgi var hinn mesti reglu- maður. Hann naut lífsins i rikum mæli, næstum til hins siðasta en sú lffsnautn byggðist á hollum lifnaðarháttum og heilbrigði. Auk þess sem þegar er getið tók Helgi umtalsverðan þátt í félags- málum. Helgi kvæntist 9. febrúar 1924 eftirlifandi konu sinni, Jóhönnu Árnadóttur, hinni ágætustu konu og áttu þau tvö börn, sem nú er ' uppkomin, Eirik Helgason stói kaupmann og Helgu Helgadóttu, húsmóður hér í borg. Ég vil ljúka þessum fátæklegu orðum mínum með því að vott aðstandendum Helga mína inr.. legustu hluttekningu. Þormóður Ögmundsson. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU r Stjórn Arkitektafélags Islands: Greinargerð um samninga um hönnun Seljaskóla Morgunblaðinu hefur borizt eft- irfarandi greinargerð frá stjórn Arkitektafélags Islands varðandi samninga um hönnun Seljaskóla. 1 framhaldi af ályktun félags- fundar Arkitektafélags Islands frá 9. marz s.l., sem send var dagblöðum borgarinnar til birt- ingar, þykir rétt að gera nokkuð nánari grein fyrir afstöðu félags- ins og þeim forsendum, sem fyrir þessari samþykkt eru. Fræðsluyfirvöld Reykjavíkur hafa nú um hálfs annars árs skeið staðið í samningum við fyrirtæki að nafni Itak h.f., um hönnun Seljaskóla í Breiðholtshverfi og jafnframt hefur fyrirtækinu ver- ið falin frumvinna verksins án þess að um þaó væri gerður sér- stakur samningur. Fyrirtækið Itak h.f. er stofnað í nóvembermánuði 1974, að því er virðist til þess að taka aó sér þetta verkefni fyrir Reykjavikurborg. Enginn stofnenda þess eða fyrir- svarsmanna hafði þá menntun eða réttindi á nokkru sviði, sem skilyrðislaust er krafizt hér á landi af þeim aðilum, sem standa fyrir hönnun mannvirkja, stórra sem smárra. Stofnendur fyrirtækisins eru 5 talsins.: Jens Oli Eysteinsson, garðprófast- ur MárGunnarsson, lögfræðingur Gestur Þorgeirsson, læknir Tómas Ásgeir Einarsson, tann- læknanemi Elisabet Benediktsdóttir, frú. Samanlagt hlutafé er 200.000.— kr. Starfsemi fyrirtækisins er með öllu óhugsandi án þess að það hafi í þjónustu sinni fagmenntaða starfsmenn, sem hver á sinu sviði bera persónulega f agábyrgð gagn- vart byggingaryfirvöldum og byggjanda. Um þá ábyrgð er ekki hægt að stofna hlutafélag „áhuga- manna" en i byggingarsamþykkt Reykjavíkur segir m.a. (11. gr.): „Sá, sem uppdrátt gerir, skal und- irrita hann með eigin hendi, og ber hann ábyrgð á, að uppdráttur- inn sé réttur og gerður skv. gild- andi lögum og reglum og brjóti ekki i bág við rétt annarra" Mátti þvi frá upphafi vera ljóst, að hlutafélagið Itak var að þessu máli alls óþarfur milliliður, sem ekki gat boðið þær ábyrgðir, sem lög kveða á um að fylgja skuli ráðgjafastarfsemi á þessu sviði. Stjórn A. I. og ýmsir félagar hafa haldið uppi fyrirspurnum um þetta mál hjá réttum yfirvöld- um nú um nokkurt skeið. Engin rök hafa þar komið fram, sem gætu gefið svo mikið sem grun um að þessi nýstárlegu vinnu- brögð opnuðu nokkra leið, sem ekki væri jafn vel eða betur fær með milliliðalausu samkomulagi aðila, né að Reykjavikurborg hafi nokkurn sýnilegan hagnað af þessu ráðslagi. Helst hefur mátt skílja, að með samningi við fyrirtækið vilji borg- in tryggja sig gegn sviksemi og/eða vanhæfni hönnuða svo og að fyrirhugað sé að bjóða bygg- ingu skólans út miðað við tvær mismunandi byggingaraðferðir. Um fyrra atriðið er það að segja, að eins og bent hefur verið á hér að framan, þá eru ábyrgðir hönnuóa persónulegar, og því mun borgin þurfa að semja við þá hvern og einn um þeirra þátt í verkefninu, verkframlag þeirra og hönnunartíma, aldeilis án til- lits til samningagerðar við Itak h.f. Hugsanleg ábyrgðartrygging sem tryggja ætti borgina fjár- hagslega gegn göllum í bygging- um, sem stafa af rangri hönnun, hlýtur einnig, eðli málsins sam- kvæmt, að bindast viðurkenningu tryggingarsala á reynslu þess starfsmanns, sem áritar teikning- ar og ber ábyrgð á þeim. Um siðara atriðið, útboð miðað við mismunandi byggingaraðferð- ir, ætti einnig að vera óþarfi að fjölyrða. Það hefur allt til þessa dags þótt sjálfsagt að engan millilið þyrfti sérstakléga í slíkum tilvik- um, og svo mun vera enn. A ein- um stað segir í röksemdafærsl- unni fyrir ágæti Itakssamning- anna, að „ýmsir hafi haldið því fram, að hús byggð úr einingum væri 20—30% ódýrari“. Er sannarlega ekki nema eðli- legt að sú hugmynd freisti þeirra sem falið er að gera mikil verk af litlum efnum. En sá er hængur á, að „ýmsir“ eru í þessu dæmi sölu- menn Itaks h.f., og tölumar fengnar úr kostnaðarágizkun, sem þeir hafa lagt fram án nokk- urra skuldbindinga, áður en raun- veruleg hönnun bygginganna er hafin og jafnvel áður en.fyrir liggur hvar þær eiga að standa. Enda mun það svo, að þeir sér- fræðingar borgarinnar, sem um byggingarmál fjalla, hafa ekki tekið þessa áætlun ýkja hátiðlega. En eins og kunnugt er starfræk- ir Reykjavíkurborg byggingar- deild, sem hefir eftirlit með fram- kvæmd verksamninga og fram- kvæmdum almennt, sömuleiðis hefur deildin eftirlit með undir- búningi útboða. Við skrifstofu fræðslustjóra hefur nú einnig verið ráðinn reyndur verkfræðingur til að ann- ast verksamninga við hönnuði og til að undirbúa og samræma hönnun skólabygginga. Sé hinsvegar fyrirtækinu Itaki h.f. ætlað einhverskonar eftirlits- hlutverk með hönnunarstarfinu fyrir hönd byggjanda, eins og einnig hefir flogið fyrir, þá hljót- um við að benda á að við blasir öllu háskalegri mynd. Þarf raun- ar ekki auðugt ímyndunarafl til að sjá fyrir hvert stefnir, ef farin er sú braut að fela fjármálafyrir- tækjum eftirlit með eigin gerðum fyrir hönd opinberra aðila. Viðvaranir og athugasemdir A. I. beinast fyrst og fremst gegn því, að teknir skuli upp samningar um hönnun bygginga á vegum opinberra aðila við fyrirtæki á borð við Itak h.f., sem ekki eru undir stjórn né í eigu fagmanna á því sviði. Með þessu er gengið á svig við það meginsjónarmið, sem hingað til hefur verið haft í heiðri þegar til samstarfs er stofnað milli byggjanda og hönnuðar, að hönnuður tekur. að sér persónu- lega ráðgjöf á sínu fagsviði, og að ráðgjafastörfin byggist á gagn- kvæmu trúnaðartrausti milli ráð- gjafa og þess aðila, sem ráðgjafa- störf eru unnin fyrir. Með þvi að troða þá braut sem nú virðist mörkuð, setur byggjandinn það milliliðum eða tilviljunum á vald hvaða einstaklingum er falin for- sjá hinnar raunverulegu fag- vinnu, eða jafnvel hvort nokkur hæfur hönnuður fylgir verki frá upphafi til loka. Séð undir þessu horni er milliliðurinn ekki aðeins nauðsynjalaus byrði, heldur báð- um aðilum, byggjanda og hönn- uði, til beinnar óþurftar. Nú hefur það gerst síðan A. I. tók þetta mál til opinberrar um- ræðu, að hluthöfum fyrirtækisins sem um er rætt hefur skyndilega fjölgað um helming. I tilkynningu framkvæmdastjórans fylgir kynning og afrekaskrá hinna ný- tilkomu, ásamt sérstakri yfirlýs ingu (að gefnu tilefni) um að hans fyrirtæki sé sko arkitekta- og verkfræðingafyrirtæki. Nú dylst að sjálfsögðu engum hvaða leik er verið að leika né að einn arkitekt og tveir verkfræðingar eru orðnir aóilar að fyrirtækinu, a.m.k. að nafninu til. Hitt dylst heldur engum, að það Itak, sem Reykjavikurborg hóf samninga við fyrir einu og hálfu ári, var ekki arkitekta- og verkfræðifyrir- tæki, þannig að „Nýtt Itak" er greinilega til orðið. Er nú enn eftir að sjá hvort borgaryfirvöld telja sig geta hlaupið svo eftir hverfulleik heimsins og flutt skuldbindingar sinar átakalaust frá Itaki til Itaks. Og einmitt þessi auðvelda meta- morfósa Itakanna skýrir i mynd- um það, sem við höfum reynt að gera skiljanlegt með orðum: Hvað sem líður yfirlýsingum og nafn- giftum, þá starfa svona ftök ekki á sama hátt og arkitekta- og verk- fræðifyrirtæki né lúta þau sömu lögmálum. Þau eru verzlunarfyr- irtæki í eðli sfnu og hlíta fyrst og siðast lögum kaupmennsku. 1 dag hentar þeim að selja „arki- tektúr“, á morgun verða það kannski fiskinet, kannski isskáp- ar, allt eftir því hvar fé hluthaf- anna vinnur þeim bezt. Og þegar svo er komið, að þeir sem itökin eiga, telja ekki lengur hagkvæmt að verzla með hönnun, þá spyr enginn um það hverjir séu hags- munir Reykjavíkurborgar eða annarra viðsemjenda. Það er nefnilega svo skelfing auðvelt að stofna til nýrra ítaka eða breyta gömlum, ef skuldbindingar fara að verðatil byrði. S. Helgason hf. STEINIOJA tlnholli 4 Slmar 24677 og 14254 Flóð á fíórðu hæð! (sprungið rör) ** Hvcr borgar? Húseigendatiygging borgar tjón á innréttingum, málningu, veggfóðri, flísum o.fl.þ.h. Heimilistrygging borgar tjón á innbúi ( húsgögnum, gólfteppum o.fl. þ.h.) Abyrgðartrygging húseigendatiyggingar borgar tjónið á 3.,2.,l.hæð og í kjallara. Allt með því skilyrði þó að húseigenda- og heimilistrygging sé fyrir hendi - annars ekki. Veitum tryggingarbeiðnum móttöku í síma 38500. SAMVINNUTRYGGINGAR GT ÁRMÚLA3.SIMI 38500 GAGNKVÆM TRYGGINGAFÉLÖG ERU SAMTÖK HINNA TRYGGÐU SAMVINNUTRYGGINGAR ERU GAGNKVÆMT TRYGGINGAFELAG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.