Morgunblaðið - 24.03.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1976
„Æviráðningin dýr-
mæt hlunnindi”
— segir dr. Bragi Jósepsson
Morgunblaðið hafði samband við dr. Braga Jósepsson f framhaldi af
frétt blaðsins f gær um niðurstóður f máli hans við menntamálaráðu-
neytið vegna brottvikningar úr starfi. Mbl. spurði Braga að þvf hvað
hann teldi æviráðningaratriðið mikils virði fyrir opinbera embættis-
menn?
„Opinberir starfsmenn skiptast í
marga hópa,“ svaraði Bragi, „og
það er mikill munur á þessum
hópum, en ég tel að fyrir ýmsa
hópa embættismanna eins og t.d.
kennara og hjúkrunarkonur, sé
þetta atriði mikið mál og dýrmæt
hlunnindi, enda borgar fólk mik-
ið fyrir þetta. Það sýnir sig í því
að fólk er verr launað hjá rikinu
en t.d. sveitar- og bæjarfélögum
og einstaklingsfyrirtækjum.
Námskeið fyrir
landsprófsnema
HALLDÓR Þorsteinsson mun
eins og undanfarin 7 ár halda
námskeið í skóla sínum fyrir
nokkrar greinar landsprófs, þ.e.
málfræði, stafsetningu og setn-
ingafræði, stærðfræði, ensku,
dönsku, og eðlisfræði. Námskeið-
in hefjast í april og þeim lýkur 8.
maí.
— Bitaveita
Framhald af bls. 32
dýpi. Nú er gert ráð fyrir að
djúpbor verði sendur til Vest-
fjarða síðar á þessu ári og
lyrir skömmu var samþykkt á
orkuráðsfundi til að veita lán til
vinnsluborana úr orkusjóði að
upphæð 15 millj. kr. til Isafjarðar,
15 millj. til Bolungavíkur, og 1.8
millj kr. til borana í Vatnsfirði, en
þessar upphæðir eru 60% af áætl-
uðum kostnaði við gerð borhol-
anna og ef kostnaður verður
meiri hækkar lánveitingin í hlut-
falli við það.
Ennfremur var á sama fundi
veitt 6 millj. kr. til rýmkunar og
föðrunar borholu á Suðureyri,
sem þegar í sumar gaf nægilegt
vatn til hitaveitu þar.
Það er gert ráð fyrir frekari
aðgerðum í jarðhitaleitarmálum á
Vestfjörðum á þessu ári og þegar
er ákveðið að bora rannsóknar-
borun á Hólmavík og Þingeyri og
einnig verða undirbúnar rann-
sóknarboranir víðar. Þá eru til
meðferðar i orkuráði beiðnir um
lán til vinnsluborana á Patreks-
firði, Jálknafirði og Borðeyri og
víðar, en þessi nýju viðhorf ýta
undir þá nauðsyn að koma á sem
fyrst framtíðarskipan i orkumál-
um á Vestfjörðum."
I skipunarbréfi ráðherra segir
m.a.:
„Skal nefndin gera tillögur um
framkvæmdir, sem nauðsynlegar
eru til þess að nægileg orka fáist
frá vatnsaflsvirkjunum og jarð-
varma til að fullnægja orkuþörf á
Vestfjörðum þannig að tekið sé
tillit til almennrar notkunar og
iðnaðar og jafnframt séð fyrir
nægilegri orku til upphitunar
húsa.
Enn fremur er nefndinni falið
að gera tillögur um, hvernig. stað-
ið verði að stofnun Vestfjarðar-
virkjunar sem verði sameign rikis
ins og sveitarfélaganna þar, og
hafi það verkefni að annast
framleiðslu og dreifingu raforku
og hagnýtingu jarðvarma í þess-
um landshluta."
I nefndinga voru skipaðir eftir
greindír menn:
Engilbert Ingvarsson rafveitu-
stjóri, Snæfjallahreppi; Guð-
mundur H. Ingólfsson bæjarfull-
trúi, ísafirði; Ingólfur Arason
hreppsnefndarmaður, Patreks-
firði; Jóhann T. Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga, Isafirði en
hann var ritari nefndarinnar;
Karl E. Loftsson oddviti, Hólma-
vík; Ölafur Kristjánsson, forseti
bæjarstjórnar, Bolungarvík og
Þorvaldur Garðar Kristjánsson al-
þingismaður formaður orkuráðs.
Þetta fólk virðist því meta ævi-
ráðningaratriðið mikils. Hitt er
svo allt annað mál hvort það sé
eðlilegt að fólk sé ráðið til ævi-
loka, en ég er sannfærður um að
þetta mál á eftir að hafa mikil
áhrif á gang verkfallsréttinda-
kröfu opinberra starfsmanna.
Æviráðningin gildir, sam-
kvæmt niðurstöðum dómsins og
þar sem ráðuneytisstjórinn hefur
gerzt sekur um embættisafglöp
með því að gefa ráðherra rangar
upplýsingar og fá hann þar með
til þess að brjóta lög, finnst mér
að það ætti að vera krafa fólks að
ráðuneytisstjórinn víki úrstarfi."
I frétt Mbl. r gær um málið
slæddist inn sú vilia, að sagt var
að dómurinn hefði komizt að
þeirri niðurstöðu að uppsögn dr.
Braga hefði verið ólögmæt, því
hún hefði ekki verið gerð með
nægilegum fyrirvara. Það rétta er
að dómurinn komst að þeirri nið—
urstöðu að uppsögn dr. Braga
hefði verið ólögmæt og fyrirvara-
laus.
Stjórn Syrktarfélags Tjaldanessheimilisins ásamt heilbrigðisráðherra.
Fremri röð frá vinstri: Oddgeir Bárðarson, Matthfas Bjarnason og
Friðfinnur Olafsson. Aftari röð frá vinstri: Hafsteinn Sigurðsson,
Hjörtur Hjartarson og Björgvin Vilmundarson.
Ríkínu afhent Tjalda-
nes að gjöf í gær
STYRKTARFELAG Tjaldanessheimilisins, sem er ætlað vangefnum
börnum afhenti f gær rfkinu heimilið án nokkurra veðbanda. Frið-
finnur Olafsson, formaður stjórnar Tjaldanessheimilisins, afhenti
Matthfasi Bjarnasyni heilbrigðisráðherra heimilið til eignar og áfram-
haldandi reksturs við hátíðlega athöfn f Ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu f gær.
Eriðfinnur Ölafsson tók fyrstur
til máls og sagði að fyrir réttum
13 árum hefðu nokkrir menn
komið saman til þess að stofna
félag til styrktar heimili því sem
nú væri afhent ríkinu til fullrar
eignar skulda- og veðbandalaust.
Hann kvað verðmæti eigna
heimilisins á núverandi verðlagi
vera á milli 60 til 70 milljónir
króna. Upphaflega hafi stjórn
heimilisins fest kaup á þremur
hekturum lands, en siðan hafið
byggingarframkvæmdir. Frá upp-
hafi hafi verið lögð á það áherzla
að reist yrði stórt heimili, en ekki
lokað hæli.
Formaður stjórnar Tjaldaness-
heimilisins, Friðfinnur Ölafsson,
sagði, að ógerningur væri að telja
upp alla þá sem lagt hefðu
málefninu lið, en þó nefndi hann
Lionsklúbbinn Þór, Oddfellow-
stúkurnar Þorfinn Karlsefni og
Þorstein, Líknarsjóð Oddfellowa,
borgarsjóð Reykjavíkur, Alþingi,
ríkisstjórn, Sölusamband fisk-
framleiðenda, Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna, Styrktarfélag van-
gefinna og ýmis fleiri félög, sem
komið hefðu við sögu. Færði hann
öllum þessum aðilum alúðar-
þakkir. Þá kvað Friðfinnur ekki
mega gleyma bankastjórunum,
sem komið hefðu til hjálpar,
þegar neyðin var stærst, en hann
kvað þeim öllum hafa verið greitt
að fullu. Samt hafi þeirra verið
söm gerðin og þakklæti skyldi
látið í ljós. Friðfinnur Ölafsson
minntist eins látins manns, sem
styrkt hafði framkvæmdir félags-
ins, Benedikts Magnússonar frá
Vallá, sem ávallt gaf steypu til
byggingaframkvæmda við
heimilið og kvað hann seint
Framhald á bls. 18
Formaður stjórnar Tjaldaness-
heimilisins, Friðfinnur Ólafsson
til hægri, og Matthfas Bjarnason
heilbrigðismálaráðherra undir-
rita afsal að Tjaldanesheimilinu I
gær.
Hörð átök í Stúdentafélaginu
Kjartan Gunnarsson kjörinn formaður á róstursömum fundi
aður var af fráfarandi formanni,
Garðari Mýrdal, var vikið úr sessi
með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða og Kjartan Gunnarsson
kjörinn fundarstjóri. Að þessu
loknu var gengið til kosninga.
Kjartan Gunnarsson laganemi
var kosinn formaður félagsins og
f stjórn Geir Waage guðfræði-
nemi, Anna Jónsdóttir lyfjafræði-
nemi, Tryggvi Agnarsson laga-
nemi og Sigurður Helgason sagn-
fræðinemi. Til óspekta kom á
fundinum, er rætt var um laga-
breytingar þannig að fundar-
stjóri ákvað að fresta honum
Morgunblaðið sneri sér til
Kjartans Gunnarssonar, nýkjör-
ins formanns. Hann sagðist þakka
stúdentum veittan stuðning, eink-
um þeim, sem hefðu starfað að
þvf að gera sigurinn sem glæsileg-
astan.
Kjartan sagði ennfremur, að
því miður hefði nokkur hópur
fundarmanna ekki þolað ósigur-
inn, haft uppi hávaða og gert
ítrekaðar tilraunir til að trufla
fundinn. „Af þessum sökum taldi
ég,“ sagði Kjartan, „að fresta yrði
þessum aðalfundi, þar sem
óspektir væru að brjótast út og
átti ég og sumir aðrir fundar-
menn hendur okkar að verja.
Þetta taldi ég rétt og heimilt skv.
almennum fundarreglum og mun
nýkjörin stjórn félagsins boða síð-
ar til framhaldsaðalfundar.
Sumir fundarmanna brugðust
ókvæða við þessari frestun og
hugðust halda fundinum áfram.
Það var að sjálfsögðu ólöglegt og
eru allar samþykktir þess fundar
ólögmætar og mun nýkjörin
stjórn félagsins hefja starf sam-
kvæmt lögum félagsins.
Okkar fyrsta verkefni verður að
sækja gögn félagsins f hendur
fyrri stjórnar en fráfarandi for-
maður neitaði að afhenda hinni
nýju stjórn þau er fundinum
hafði verið frestað.
Þá verður það annað af megin-
Framhald á bls. 18
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
fréttatilkynning frá stjórn Stúd-
entafélags Háskóla tslands.
Aðalfundur Stúdentafélags Há-
skóla tslands var haldinn f Stúd-
entaheimilinu við Hringbraut,
þann 23. marz 1976. Fundurinn
var mjög f jölmennur og þrunginn
spennu. Fundarstjóra, sem skip-
Kjartan Gunnarsson
KIM opn-
ar sal með
sýningu
KtNVERSK-íslenzka menn-
ingarfélagið hefur tekið á
leigu lítinn sal I húsi Blindra-
félagsins við Hamrahlfð 17,
þar sem komið hefur verið fyr-
ir bókasafni félagsins og ýms-
um munum í eigu þess. Þar er
einnig aðstaða til fundarhalda.
Opnuð hefur verið þar kíversk
Ijósmvndasýning, sem er opin
þriðjudaga og fimmtudaga frá
klukkan 17 til 19 og laugar-
daga frá kl. 15 til 17.
Alþjóðaskák-
mótið hefst
24. ágúst
AKVEÐIÐ er að alþjóðaskák-
mótið í Reykjavík hefjist 24.
ágúst n.k. eg að það standi til
14. september. Á mótinu munu
tefla 8 útlendingar og 8 ts-
lendingar, að sögn Jóns Briem,
sem er í undirbúningsnefnd
mótsins.
Jón sagði að jákvætt svar
hefði borizt frá tveimur út-
lendum skákmönnum, þeim
Westerinen frá Finnlandi og
Húbner frá V-Þýzkalandi, en
þeir eru báðir stórmeistarar.
Þá hafa Rússar staðfest að þeir
sendi tvo stórmeistara, en
nöfnin voru ekki nefnd og þá
munu koma tveir ungir skák-
meistarar frá Danmörku og
Bandaríkjunum. Fjórir
íslenzkir skákmenn eru þegar
ákveðnir, stórmeistararnir
Friðrik Ölafsson og Guðmund-
ur Sigurjónsson, Helgi Ölafs-
son og Margeir Pétursson.
Mótsstaður hefur ekki verið
ákveðinn, en að öllum líkind-
um verður teflt i einhverjum
skóla höfuðborgarinnar.
Einsdæmi
Siglufirði, þriðjudag.
BÍLFÆRT er nú milli Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar. Miðað
við árstíma er þetta einsdæmi
hér um slóðir. — Það eru
jeppar sem komast. Kunnugir
hafa sagt mér að væri sendur
hefill eina bunu yfir, væri
vegurinn allur fær hvaða bíl
sem er eins og um sumardag
væri.
Líka má telja það til tiðinda
að sjá má húseigendur núna
vera að mála húsin sín, — svo
mild og hagstæð er tíðin hér
nyrðra núna. mj.
Líðan
piltanna
óbreytt
LtÐAN piltanna sem slösuðust
aivarlega í umferðarslvsi á
Laugaveginum aðfaranótt s.l.
sunnudags voru enn með-
vitundarlausir á gjörgæzlu-
deild Borgarspftalans f gær-
kvöldi þegar Morgunblaðið
leitaði fregna af líðan þeirra.