Morgunblaðið - 24.03.1976, Page 5

Morgunblaðið - 24.03.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1976 5 Frá verzlunarmálaráðstefnu Sjálfstæðisflokks: Frjálst verðmyndunar- kerfi er neytendum í hag Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning v/ráðstefnu Sjálfstæðismanna um verzlunar- og neytendamál. 17.—18. marz s.l. efndi Full- trúaráð Sjálfstæðismanna í Reykjavlk til ráðstefnu um verzl- unar- og neytendamál. Varð ráð- stefnan vel sótt og umræður um hina ýmsu þætti verzlunarinnar mjög (tarlegar. Fjölmörg fróðleg og yfirgrips- mikil erindi voru flutt á ráðstefn- unni. Var i framsöguræðum fjall- að um viðskiptaleg tengsl við um- heiminn, fjármál og afkomu verzlunarinnar, fræðslumál verzl- unar, skattamál og þjónustu er verzlunin innir af hendi fyrir hið opinbera, verzlunarþjónustu í Reykjavik, fjármagnsstreymi verzlunar auk þess sem mörg önn- ur málefni tengd verzlun voru rædd i umræðuhópum svo og í panelumræðum sem í tóku þátt þeir Geir Hallgrímsson, forsætis- ráðherra, Gunnar Thoroddsen fé- lags- og iðnaðarráðherra og Matt- hías Á. Mathiesen fjármálaráð- herra Ágrip af þeim framsöguræðum er flutt voru á ráðstefnunni verða birt í Morgunblaðinu á næstu dög- um. I panel-umræðum með Geir Hallgrimssyni, Gunnari Thorodd- sen og Matthíasi A. Mathíesen kom meðal annars fram sú skoð- un ráðstefnugesta, að hið fyrsta yrði aó hverfa að fullu og öllu frá hinu þjóðhagslega skaðlega verð- myndunarkerfi, sem hér hefur tíðkast en þess í stað taka upp frjálst verðmyndunarkerfi í lík- ingu við það, sem ýmsar ná- grannaþjóðir hafa notað með góð- um árangri um langt skeið. I panel-umræðunum kom m.a. fram hjá ráðherrunum að unnið væri að endurskoðun verðlagslög- gjafarinnar; að ríkisstjórnin tæki afstöðu til þess í vor hvort tekinn yrði upp virðisaukaskattur; að unnið væri að nýjum fyrningar- reglum og í því sambandi athugað hvort heimila skuli fyrningu á endurkaupsverð; að vel kæmi til greina að ríkisvaldið féllist á, að einkaaðilar fengju að gefa ut verðtryggð skuldabréf eins og rík- issjóður; að nauðsynlegt væri að afnema hámark á arðgreiðslu. Hún ætti að skattleggjast hjá ein- staklíngum en ekki hjá fyrirtækj- um. Ennfremur kom fram að frumvarp um mjólkursölu yrði að öllum likindum afgreitt fyrir þinglok. í umræðunum var af ráðstefnu- gestum m.a. bent á, að fjárhags- örðugleikar Verzlunarskólans væru nú í dag mjög miklir og þyrfti jafnvel að loka af þeim ástæðum. Einnig var bent á, að verulega skorti á, að útlánastarf- semi bankanna markaðist af þvi, V estf irðingaf élagið: Flóamarkaður og bazar Vestfirðingafélagið efnir til flóa- markaðar og bazars í Langholts- skóla á laugardaginn kemur, 27. marz kl. 14.00. Ef vinir og félagar vilja gefa eitthvað mun stjórn félagsins veita gjöfum móttöku í Langholtsskóla eftir kl. 19.00 á föstudag. Allur ágóði rennur til Vestfjarða m.a. til Menningar- sjóðs vestfirzkrar æsku sem veitt er úr á hverju ári f byrjun ágúst- mán aðar. Hópf lug ítala á frímerkjauppboði Á VEGUM Félags frímerkjasafn- ara verður haldið frfmerkjaupp- boð f ráðstefnusal Hótel Loftleiða næstkomandi laugardag, 27. þ.m., og hefst það kl. 14. Á þessu uppboði verða um 240 númer. Siðustu ár hefur færzt verulegt lif i frímerkjauppboð F.F., enda hafa þau verið fjöl- breytt að efni og menn oft getað náð i marga góða hluti í söfn sin á hagstæðu verði. Þetta hafa frimerkjasafnarar fundið og þess vegna sótt uppboðin vel. Á uppboðinu næsta laugardag verða boðin upp mörg sjaldgæf íslenzk frimerki. Má þar nefna skildingafrímerki, bæði stimpluð „Sjóferð” Jökuls á Sauðárkróki Sauðárkróki 21. marz. Leikfélag Sauðárkróks hefur að undanförnu æft sjónleikinn Sjóferðin til Bagdad eftir Jökul Jakobsson. Leikstjóri er Kári Jónsson, en leikmynd gerði Jónas Þór Pálsson. Frumsýning verður sunnudaginn 28. þ.m., en þann dag hefst sæluvika Skagfirðinga á Sauðárkröki. Þetta er í fyrsta skipti sem leikfélag Sauðárkróks tekur til sýninga verk eftir hinn kunna leikritahöfund Jökul Jakobsson. Formaður leikfélags- ins er Helga Hannesdóttir —Guðjón. og óstimpluð. Er verð þeirra að vonum allhátt, en þó í hóf stillt, þegar miðað er við verðlistaverð og sölu þeirra erlendis. En að sjálfsögðu fer verð þeirra eftir ásigkomulagi og eins hvort þau eru með réttum stimplum. Mikið er af svonefndum aura- frímerkjum og svo flestum öðrum frimerkjum fram til 1970. Tölu- vert er af frímerkjum í pörum og blokkum, en söfnun þeirra hefur aukizt verulega siðustu ár. Þá er allmikið um góða stimpla og m.a. kórónu- og númerastimpla. Eins er á uppboðinu allmikið af fyrsta- dagsumslögum, m.a. með frimerkjum Matthiasar Jochums-' sonar frá 1935 og Geysi 1938, en þess konar umslög fyrir lýðveldis- stofnun eru sjaldgæf. Óvenjulegt má telja, að boðnar verða upp tvær stimplaðar seríur af Hópflugi Itala 1933. Er önnur þeirra metin á 145 þús. krónur (með vottorði Grönlunds) og hin á 130 þúsund. Eru þetta langdýr- ustu númer á uppboðinu. Þriðja dýrasta númerið er yfirprentað merki frá 1897, og er lágmarks- verð þess 70 þúsund krónur. Vönduð uppboðsskrá hefur ver- ið gefin út, og fæst hún í frimerkjaverzlunum og i herbergi F.F. að Amtmannsstíg 2 á mið- vikudag kl. 17—19. Er uppboðs- efni lýst þar nákvæmlega, en til sýnis verður það á sjálfan upp- boðsdaginn á Hótel Loftleiðum, kl. 10—14, en þá hefst uppboðið, eins og fyrr segir. að einkaverzlunin nyti sambæri- legrar aðstöðu og aðrar atvinnu- greinar að þvi er snertir rekstrar- og stofnlán, svo og nauðsyn þess að skattlagningu fyrirtækja yrði stillt í hóf þannig að þau geti myndað fjármagn til að treysta reksturinn og endurnýja sig og á þann hátt orðið óháðari lánsfjár- öflun. Ennfremur var bent á, að mánaðarleg innheimta söluskatts væri óæskilegt eins og hún er nú framkvæmd, einkum með tilliti til reikningsviðskipta við ríkis- stofnanir. Á þessu máli þyrfti nauðsynlega að verða breyting á. Niðurstöður verzlunarmálaráð- stefnu Sjálfstæðismanna i Reykjavík verða sérstaklega kynntar þíngflokki Sjálfstæðis- manna. Ljósm. Mbl.: Ól. K.M. Þessar þrjár hnátur komu á Morgunblaðið fyrir skömmu og voru þá nýbúnar að afhenda Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra tæplega 4.600 kr. sem þær höfðu aflað með hlutaveltu. Stúlkurnar eru allar úr Kópavogi en þar höfðu þær gengið I hús og fengið vinninga í hlutaveltuna. Stúlkurnar eru, talið frá vinstri: Margrét Marín Arnardóttir, Hafdfs Eygló Jónsdóttir og Bára Kristjánsdóttir. Á myndina vantar Hjördfsi Gústafsdóttur en hún var einnig með f að halda hlutaveltuna. Stúlk- urnar eru allar nemendur f Digranesskóla. ..Tilboð, sem ekki verður endurtekið... SKODA 110R Coupé verð HV tn öryrkja ca. kr. g kr. 600.0C til öryrkja ca. kr. 600.000. I tilefni af því að 30 ár eru síðan fyrsti Skodinn kom til landsins, hefur verið samið við SKODA verksmiðjurnar um sérstakt afmælisverð á takmörkuðu magni af árgerðum 1976. 5000asti SKODA bíllinn verður fluttur inn á næstunni. Hver verður sá heppni? SKODA 100 verð ca. kr. 630.000.- til öryrkja ca. kr. 460.000.- SKODA 110L verð ca. kr. 670.000.- til öryrkja ca. kr. 492.000. SKODA 110LS verð ca. kr. 725.000.- til öryrkja ca. kr. 538.000. SHODR TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDI H/F. AUÐBREKKU 44-46 KÓPAVOGI SÍMI 42600 AKUREYRI: SKODA VERKSTÆÐIÐ A AKUREYRI H/F. OSEYRI 8, EGILSTAÐIR: VARAHLUTAVERSLUN GUNNARS GUNNARSSONAR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.