Morgunblaðið - 24.03.1976, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 24.03.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1976 7 r Bragð er að þá barnið finnur Hér í Staksteinum hefur undanfarið verið stiklað á staðreyndum um stefnu- leysi stjórnarandstöð- unnar. Um þetta efni segir svo f leiðara Þjóðviljans sl. sunnudag: „Morgunblaðið fer um það allmörgum orðum rétt enn einu sinni á fimmtu- dag, hve aumleg stjórnar- andstaðan sé. Hún hafi ekkert marktækt fram að leggja í þeim málaflokk- um sem mestu skipta, af- staða hennar einkennist af neikvæðu nöldri og við- leitni til að kljúfa þjóðina f stríðandi hópa, enda sé hún sjálf margklofin og sjálfri sér sundurþykk." Eftir að hafa borið f bætifláka fyrir brotabrot og mótsagnir stjórnarand- stöðunnar, fer svo að lok um, að Þjóðviljinn staðfestir og rennir frekari stoðum undir stað- hæfingar Morgunblaðsins um hringlandahátt og sundurlyndi hennar. „Hugmyndaleg ringulreið og pólitísk deyfð” Þjóðviljinn segir orðrétt f sunnudagsleiðara sfn- um: „En almenningi finnst einatt sem þau svör (stjórnarandstöðunnar) séu fyrstu viðbrögð við tiltekinni uppákomu, tilteknum aðstæðum, frekar en liður í vandlega uppbyggðri heildarstefnu. Sé þetta misskilningur þá vantar amk. eitthvað upp á að talsmenn stjórnar- andstöðu komi hugmynd- um sfnum á framfæri f aðgengilegu formi. Alla- vega er það Ijóst að hafi stjórnarandstaða ekki á hverjum tíma upp á að bjóða heillega stefnu, þar sem fléttað er saman lág- markskröfum og langtfma stefnumiðum, þá kemur hún sér í mikinn vanda. Hún á erfiðara með að bregðast við stjónarskipt- um og stjórnarþátttöku. Hún getur með van- rækslusyndum f stefnu- mótun stuðlað að hug- myndalegri ringulreið og pólitfskri deyfð meðal þjóðar, sem verður æ þreyttari á að fslenzkt þjóðfélag sé rekið með tólf mánaða víxlum." — Ja, bragð er að þá barnið finnur. Skyldi vanhugsuð og fljótf ærnisleg van- trauststillaga stjórnarand- stöðunnar hafa fengið öllu harðari umsögn á sfð- um Morgunblaðsins en í þessum Þjóðviljaleiðara eða eindæma léleg vinnu- brögð þingliðs stjórnar- andstöðunnar í vetur? „Hvað ætlið þið að gera?” Það er táknrænt og styður enn umsögn Morgunblaðsins um veik- leika stjórnarandstöðunn- ar að þessi leiðari Þjóð- viljans ber yfirskrift f spurnarformi: „Hvað ætlið þið að gera?" Þessari spurningu er beint til stjórnarandstöðunnar f aðalmálgagni hennar sjálfrar og undirstrikar átakanlega stefnuleysi og sundurlyndi hennar. í lok leiðarans er enn hert á þessari staðreynd og sagt að nauðsyn beri til að „sósíalistar hafi á tak- teinum skýr svör, nákvæm og raunsæisleg. við helztu spurningum þjóðar í vanda". Tilefni þessara skrifa er augljóst. Stjórnarand- staðan flutti, f miðju land- helgisstrfði og átökum við efnahagsvandann, van- traust á núverandi ríkis- stjórn. Þessi vantrauststil- laga var flutt án þess að tiltæk væri ný rfkisstjórn eða stefnumörkun af hálfu stjórnarandstöðunn- ar f vandamálum Ifðandi stundar. Það eina, sem stjórnarandstaðan náði samstöðu um, var van- trauststillagan sjálf. Hið neikvæða nöldur var einasta atriðið sem vinstri flokkarnir þrfr áttu sam- eiginlegt; sundurlyndið, þrætugirnin og stefnu- leysið einkenndi þá að öðru leyti f hinum raun- verulegu vandamálum og viðfangsefnum þings og þjóðar. Hvað ætlið þið að gera, spyr Þjóðviljinn. Þetta er einmitt spurningin, sem stjórnarandstaðan hefur hliðrað sér við að svara allar götur frá myndun nú- verandi rfkisstjórnar. Hún hefur gjörsamlega brugðizt hlutverki sínu og skyldum. Aumari og ráð- lausari stjórnarandstaða hefur ekki fyrirfundizt á Alþingi íslendinga frá þvf að fullveldi þjóðarinnar vannst árið 1918. HÁSKÓLABÍÓ 18. MARZ Efnisskrá: Jón Ásgeirsson, Fornir dansar Tsjaikovskv, Píanókonsert nr. 2 í G-dúr Stravinsky, Petrúshka, balletttónlist. Stjórnandi Páll P. Pálsson Einleikari Halldór Haraldssson. 11. tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitarinnar fóru fram í Háskóla- bíói sl. fimmtudagskvöld og voru að því leyti sérstæðir að þeir voru áeftir þeim 12. Ástæðan varsú að tvívegis varð að fresta þeim. í fyrra skiptið vegna verkfalla og síðan vegna seinkunar á nótum. Er það ekki í fyrsta sinn sem seinkun á nótum veldur vand- ræðum. Oft hefur verkefnaval forráðamanna Sinfóníunnar vak- ið furðu og svo er einnig nú eða niðurröðun verkefna væri e.t.v réttara að segja í þetta sinn. Eftir- taldir höfundar áttu verk á 11. tónleikunum: Jón Asgeirsson, Tsjaikovsky og Stravinsky, sém fyrr segir. Og hverjir voru það aftur sem áttu verk á þeim 12? Jú, Roussei, Tsjaikovsky og Stravinsky. Einhverjum þætti það allt að því jaðra við skort á skipulagi þegar þeim ágætu Rúss- um Tsjaikovsky og Stravinsky er stillt upp hlið við hlið konsert eftir konsert og þeir þar með af- Þorsteinn Valdimarsson Bókmenntlr eftir JOHANN HJÁLMARSSON Steinn Valdimarsson hefur ort nokkur ljóð, sem skipa honum i röð fremstu samtír.iaskálda. 1 Yrkjum eru mörg kvæði, sem lýsa hinni næmu náttúru- kennd Þorsteins Valdimars- sonar, dýrkun hans á fegurð landsins. Sum þessara kvæða eru með því besta sem ég hef lesið eftir hann. Þorsteinn er Hið ótrúlega er veruleikinn □ YRKJUR □ Ljóðeftir □ Þorstein Valdimarsson. Q Heimskringla 1975. ÞAÐ er mikið um tækifæris- kvæði i Yrkjum Þorsteins Valdimarssonar. Þessi kvæði eru ekki stórbrotinn skáld- skapur að mínum dómi, en mörg eftirtektarverð vel ort. Þorsteini Valdimarssyni leikur ljóð á tungu. Að heiman var hann búinn með gott veganesti íslenskrar alþýðumenningar. Móðir hans Guðfinna Þorsteins- dóttir, Erla skáldkona, var unn- andi skáldskapar og ævintýra og mótaði hug drengsins. Þor- steinn hefur alla tíð verið mjög háður uppruna sinum, trúr eig- in jarðvegi. Þessa njóta sum hugþekkustu kvæði hans, en ég held að skáldskapur hans i heild gjaldi þess nokkuð hve þröngan stakk hann hefur sniðið sér. Skáldskapur Þorsteins Valdi- marssonar er hefðbundinn. „Nýjungar" hans eru einkum leikur með gamalkunn form, rfm og hrynjandi. Þegar jafn- aldrar Þorsteins í hópi skálda endurnýjuðu Ijóðmynd sina lét hann sér nægja að leitast við að samræma gamalt og nýtt og var þá hið gamla yfirleitt ofan á. Hinu má ekki gleyma að Þor- einlægt skáld og hjartahlýja hans leynir sér ekki. Þegar minningar vefast saman við myndir úr náttúrunni og skáldið leitar svars við spurningum, sem öllum eru sameiginlegar, held ég að rödd þess sé hljómmest. Dæmi er hið skemmtilega ljóð Næturflug en það hefst á þessum tveim érind- um: Loksins. klukkan þrjú um nótt, lyfta vindarnir Iftillí baðstofu til flugs moð sölnandi laufum. Húsin við fljótið nálgast himin aðeins í draumi, — en horfa á hana hverfa eins ogstjörnu f iðu af norðurljósum. Við mamma sitjum við baðstofugluggann I m júku hægindi maulum bláber úr krukku og virðum útsýnið fyrir okkur, — dimmfægl vatnasilfrið f veizlutjaidi heiðarmánans; hann veifar til okkar geislastaf; svo hverfur jörðin okkur. „Hið ótrúlega er veru- leikinn!“ stendur síðar I þessu ljóði. Þorsteinn Valdimarsson hefur ekki glatað hinni barns- legu gleði yfir undrum lifsins. Rödd hans er „viðlag i vorfugla kór“ eins og hann yrkir i ljóði til Guðbjargar Þorsteinsdóttur. Henni er stefnt gegn „annar- legri draumferð um eyðileg torg“. Þótt braglist sé honum Framhald á bls. 18 Bókmenntlr eftir ERLEND JÓNSSON Jóhanna Þráinsdóttir: ÚTRÁS. 323 bls. Alm. bókaf. 1975. FYRIR tuttugu árum hefði þetta verið kallað klámbók. Fyrir tiu árum hefði hún verið sögð ,,djörf“. Nú veit maður ekki hvað segja skal. Góðir höf- undar hafa oft hneykslað fólk. Lélegir höfundar hafa í sama Jóhanna Þráinsdóttir Hvers konar útrás? mæli reynt að vekja á sér at- hygli með bersögli. Djörf eða ekki djörf — slik umsögn segir því ekkert. Jóhanna Þráinsdóttir kann til verka í þá veru að hún missir söguþráðinn ekki úr höndum sér. Þessi saga hennar ber vott um nokkuð sem löngum var kallað frásagnargleði (þó það sé nú dálitið tvíbent hugtak). En sem sagt — áreynslu- og þreytumerki lýta ekki frásögn- ina hvað sem öðru iíður. Þvert á móti spinnur hún sig áfram, hnökralaust og liðlega. Hins vegar er þetta meiri furðusaga en svo að unnt sé að flokka hana umsvifalaust undir alvarlegar bókmenntir. Persón- ur, atburðir, sögusvið — allt er þetta fjær en svo venjulegu lifi venjulegs fólks, að minnsta kosti héðra (sagan gerist mest i Ameríku) að maður geti gert upp hug sinn á stundinni og gefið henni einkunn. Afbrigði eru alltaf og alls staðar í lifinu. En i þessari sögu er flest s^o óraunverulegt að ævintýri er likast — með neikvæðu for- teikni þó; það er að segja ef ævintýri er skilið sem eitthvað barnalegt og fagurt. Hér er manni kippt inn í einhvers konar nútíma jötunheim, þursaborg. Adeila kannski? Hugsanlega ber svo að skilja. Fólk það, sem söguhetjan hittir fyrir í vesturför sinni, yfirgeng- ur flest það sem hér er nefnt einu nafni spilling. Það er stór- klikkað í einu orði sagt. Sögu- hetjan er samt látin halda sálar- ró sinni. Eða eigum við heldur að kalla það sljóleika? Það af- brigðilega óhemjulíf, sem á vegi hennar verður, snertir hana furðulítið, jafnvel þó hún taki sjálf þátt í herlegheitun- um. Hún er leiðitöm í bókstaf- legasta skilningi en þó með ein- hverjum dularfullum hætti hundaheppin: að lifa af ósköp- in. Loks hittir hún mann sem getur vakið með henni hvort tveggja: sjálfsvitund hennar og ást. Reynist hann vera marg- faldur tugthúslimur og eitur- lyfjamangari. Sé megintil- gangur sögunnar að vera ádeila er þessi tilhögun auðvitað skilj- anleg: illt má það samfélag heita þar sem glæpalýðurinn er skammskástur. Dregur nú senn til söguloka í (Jtrás. Og auðvitað týnir sögu- hetjan þessum draumaprinsi sínum þvi við flest eru eitur- lyfjasalar fremur brugðnir en að halda kyrru fyrir á sama stað. Þá er heldur ekkert að vanbúnaði að sagan endi eins og rósrauður eldhúsreyfari með hugljómun og heimþrá. Sögu- hetjan öðlast einhvers konar Framhald á bls. 18 greiddir, því hvorugan þeirra er að finna oftar í efnisy fi rliti tónleikaársins! Það breytir samt ekki þvi að tónleikarnir á fimmtudagskvöldið voru hinir ánægjulegustu og hófust með fornum dönsum eftir Jón Asgeirsson. Þetta er hressileg og skemmtileg tónsmið, þar sem Jón tekur til meðferðar ýmist þjóðlög eða frumsamin stef með þjóðlegum blæ og færir einfaldan Tónllst eftir EGn, FRIÐLEIFSSON Halldór Haraldsson en heillegan hljómsveitarbúning og tókst flutningur mjög vel und- ir öruggri stjórn Páls P. Páls- sonar. 2. píanókonsert Tsjai- kovskys er stór og viðamikil tón- smíð, sem býr yfir mikilli ljóð- rænni fegurð og glæsilegum til- þrifum. Þó hefur 2. konsertinn ætið staðið í skugga hins fyrsta og heyrist mun sjaldnar. Má geta þess að þetta mun í fyrsta sinn sem konsertinn er fluttur á tón- leikum hérlendis. Þó gefur hann þeim fyrsta ekkert eftir hvað við- kemur listrænni reisn nema siður sé. Einleikari var Halldór Haraldsson og gerði hann hlut- verki sinu góð skil. Leikur hans var vandaður og sannfærandi. Nokkuð virtist eðlilegur sviðs- skrekkur há honum einkum i upphafi, en glögglega mátti merkja þá alúð og natni er einkenndi leik hans og bar heima- vinnu hans fagurt vitni. Er frammistaða hans raunar að- dáunarverð, þegar haft er i huga hversu sjaldan hann leikur með hljómsveitinni. 2. píanókonsert Tsjaikovskys gerir miklar kröfur til einleikarans og enginn getur gert honum viðunandi skil, sem ekki æfir sig reglulega. Þáttur hljómsveitarinnar var einnig góður. Tónleikunum lauk svo með litríkri og bráðskemmtilegri tón- list Stravinskys úr Petrúshka- ballettinum og tókst flutningur sérlega vel, sem fyrst og fremst ber að þakka röggsamri stjórn Páls P. Pálssonar, sem hér sann- aði enn einu sinni ágæti sitt sem stjórnanda. Er það meining ýmissa að timabært sé orðið að gera Pál að aðaihjómsveitarstjóra Sinfóníunnar. Aheyrendur fögn- uðu hljómsveit, stjórnanda og ein- leikara mjög innilega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.