Morgunblaðið - 15.04.1976, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976
Myndveröld Max
Myndir af Max Ernst voru ekki sfður dulúðgar en myndverk hans
svo sem greinilega kemur fram á hinum þrem myndum af lista-
manninum hér á sfðunum, svo og myndinni af honum og sfðari
konu hans (hin fyrri var listfræðingurinn Louise Strauss),
amerfsku listakonunni Dorotheu Tanning.
Max Ernst, New York 1942.
Max Ernst, Sedona 1946.
„Um þennan mann skal ekkert vitað“. Olfa á léreft, 1923.
Hin blessaða jómfrú tyftar Jesúbarnið frammi fyrir þremur vott-
um. A. B., P. E. og listamanninum. Olfa á léreft. (The Blessed
Virgin Chasties that Infant Jesus before Three Witnesses. A. B., P.
E. and the Artist“). 1926.
Garðyrkjukonan fagra. (Le belle jardinere"). Olfa á léreft 1945.
ÞEIR hverfa nú hver af
öðrum hinir miklu mynd-
listarmenn er komu fram
á fyrra hluta aldarinnar,
snillingar eru einnig
líkamlegum forgengi-
leika undirgefnir þótt
verk þeirra haldist frjó
og fersk. Er nú nýlega
látinn hinn mikli mynd-
smiður og jöfur i heimi
súrrealismans, Max
Ernst, 85 ára að aldri.
Andlát hans bar að í
París, daginn eftir að hin
aldna kempa hafði náð
þessum tímamótum.
Minnist ég þá í augna-
blikinu einungis ofar
foldu frá þessu tíma-
skeiði og er djúp spor
mörkuðu, þeirra Joan
Miró, Marc Chagall og
Oskar Kokoschka. Joan
Miró mun 83 ára, Marc
Chagall 89 ára, en
Kokoschka varð níræður
1. marz siðastliðinn og
mun ég af því tilefni
kynna hann hér á síðum
blaðsins eftir páskahelg-
ina og síðar rita um hann
í Lesbók, enda um
litríkan persónuleika að
ræða, sem er lítt þekktur
hérlendis.
Hér í páskablaðinu
kynni ég lítillega
magnaðan sjónarheim
hins horfna, mikla braut-
ryðjanda, Max Ernst, í
svart-hvítum myndum,
en bíða verður betri tíma
að kynna hann á verðug-
an hátt í Lesbók
með greinargóðu yfirliti
æviferils hans.
Svart-hvítar myndir af
myndlistaverkum segja
jafnan lítið, en í þessu
tilviki þó allnokkuð, því
að furðuheimur súreal-
istans byggist jafnt á
mynd og formi sem lit-
rænni tjáningu.
Max Ernst var í
heiminn borinn 2. apríl
1891 í smáborginni Briihl
skammt frá Köln. Faðir
hans var Phillip Ernst,
kennari daufdumbra og
tómstundamálari af lífi
og sál. Hann var strangur
faðir, vel við vöxt,
kaþólskrar trúar, en meó
léttri skapgerð. Móðir
hans hét Lúisa.
Max Ernst naut
almennrar skólamennt-
Uiláí' i UAUiii Og ictuiv
framhaldsskólanámi.
Fimmtán ára að aldri
flakkar hann um Þýzka-
land, Alsace og Holland
og skoðar fjölda safna.
Málar og teiknar eftir