Morgunblaðið - 15.04.1976, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976
19
Hjálp í viðlögum:
Hagræðing
slasaðra
Að hagræða slösuðum þar til næst I læknishjálp er
mikilsverður þáttur í hjálp í viðlögum til að bæta
ifðan manna og hindra frekari áhrif áfallsins. Hér
verða birtar nokkrar myndir um þetta efni með
stuttum skýringum, en að öðru leyti vísast til bókar-
innar „Hjálp í viðlögum“.
Mynd 1. Það eru eðlileg við-
brögð hjá öllum, sem detta, t.d.
í hálku, að reyna að rísa, sem
fyrst á fætur. Jafnvel þeir, sem
hljóta beinbrot, gera sér ekki
ávallt ljóst i upphafi, hvað um
er að vera. Því er um að gera að
róa þá og biðja um að þeir stigi
ekki í fæturna ef grunur um
beinbrot reynist réttur við
skyndikönnun. Biðjið um
sjúkraflutning.
Mynd 2. Ef erfitt er um öndun
vegna meiðsla á brjóstholi,
blóðhósta eða hjartakasts, skal
lögð áherzla á að sjúklingurinn
liggi kyrr og hafi hátt undir
höfði og herðum. Ræðið róandi
við sjúklinginn og veitið aðstoð
þar til læknishjálp berst.
Mynd 3. Kaldsveittur maður
með öskugrátt andlit (einkenni
losts) er látinn bíða eftir
læknishjálp með höfuóið lágt.
Aðkallandi að kanna meiðsli og
hlúa að honum með klæðnaði
og teppum.
Mynd 4. Verði manneskja fyrir
því að særast á kviðarholi, t.d.
við bílslys, skal hylja sár
hennar með innihaldi sára-
bögguls eða tiltækum hrein-
legum fatnaði svo sem skyrtu.
Vegna hættu á raski innyfla er
sjúklingurinn látinn liggja I
hvíldarlegu á bakinu með teppi
eða slíkt undir hnésbótum og
herðum.
Mynd 5. Gangi öxl úr liði, líður
sjúklingurinn miklar kvalir,
þar til honum hefur verið hag-
rætt eins og myndin sýnir; á
borði, bekk, lækjarbakka eða
annarri upphækkun með hang-
andi handlegg. Við leguna
slaknar á vöðvum og liðbönd-
um. Dregur þá brátt úr sárs-
auka og fyrir kemur að i liðinn
renni eftir alllanga stund.
Ráðgast skal við lækni svo fljótt
sem unnt er.
Mynd 6. Unnt er að stöðvar
útvortis blæðingar með búnaði
þrýsti- eða sárbögguls. Hækkið
undir fót eða handlegg, sem úr
blæðir og komist í samband við
lækni.
Mynd 7. Slasaður og meðvit-
undarlaus maður, sem liggur á
bakinu, er varnarlaus gegn
köfnunardauða. Leggið hann
strax í líflegu og haldið önd-
unarfærum opnum og hreinum.
Hlúð skal að sjúklingnum og
ráðstafanir gerðar til að koma
honum undir læknishendur.
Ef um útbreiddan bruna er
að ræða á hörundi, mátil bráða-
birgða leggja sjúklinginn I ker-
laug með volgu vatni.
Blóðgjöf og önnur læknis-
hjálp getur verið lífsnauðsyn.
Leitið því strax slíkrar hjálpar.
Jón Oddgeir Jónsson.
Þjóðleikhúsið til Færeyja
LEIKFLOKKUR frð Þjóðleikhús-
inu fer til Færeyja nú um pásk-
ana I boði Hafnar sjónleikarfé-
lags I Þórshöfn. Haldnar verða
tvær sýningar á leikritinu Lúkas
eftir Guðmund Steinsson, en
þetta leikrit var sýnt á litla sviði
Þjóðleikhússins I fyrra. Þá verða
fjórar sýningar á kaharettnum
Litlu flugunni — sem hefur að
uppistöðu lög Sigfúsar Halldórs-
sonar. Litla flugan var fyrst sýnd
á listahátlð 1974 og sfðan sýnd
fyrir fullu húsi, en sýningar hafa
legið niðri I rúmt ár vegna veik-
inda. Litla flugan verður sýnd
aftur I Þjóðleikhúskjallaranum (
vor.
Lúkas verður sýndur tvívegis í
Þórshöfn og Litla flugan einu
sinni. Sömuleiðis verða sýningar
á Litlu flugunni á Sandey, Suður-
ey og I Klakksvík.
Þetta er fyrsta ferð Þjóðleik-
hússins til Færeyja og farin í til-
efni 50 ára afmælis Hafnar sjón
leikarfélags á þessu ári. Hafa
Færeyingar fengið styrk úr nor-
ræna menningarsjóðnum til a<)
taka á móti Þjóðleikhúsmönnum.
Leikstjóri Lúkasar er Stefán
Baldursson, leikmynd eftir
Magnús Tómasson, en leikendui
þrír Árni Tryggvason, Guðrúi
Stephensen og Erlingur Gfslason.
Leikstjóri Litlu flugunnar er
Sveinn Einarsson og þar koma
fram Anna Kristín Arngrfms-
dóttir, Edda Þórarinsdóttir, Hall-
dór Kristinsson, Erlingur Gfsla-
son og Carl Billich.
Hópurinn fer utan á páskadag
og verður í viku i Færeyjum.
MYIMDAMÓTA
Aðalstræti 6 simi 25810
Það vita þeir, sem skoðað hafa nýja DAS-HÚSIO
er heitið á bráðfallegum rýateppum.
\ * teppin hlutu 1. verðlaun á stærstu
teppasýningu heims á þessu ári.Enda
seldist fyrsta sendingin upp strax.
Ný sending var að koma.
STjHRöR3-LS
fæst aðeins hjá okkur.