Morgunblaðið - 15.04.1976, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976
*
Háskóli Islands:.
FyrirL estur
um líl [nardráp
PHILIPPA Foot, þekktur sið-
fræðiprófessor, er starfar jöfnum
höndum við Oxfordháskóla og
Kalifornfuháskóla, heimsækir
Háskóla tslands um páskana.
Mun hún flytja opinberan fyrir-
lestur og fjalla um lfknardráp,
spurninguna um hvort réttlætan-
legt sé frá siðferðilegu sjónar-
miði að svipta mann Ilfi til þess
að létta af honum sjúkdómskvöl-
um, sem engin von er um að
binda megi enda á með öðrum
hætti. Fyrirlesturinn verður
fluttur I Hátfðasal Háskólans
laugardag fyrir páska, 17. aprfl,
kl. 5 sfðdegis.
Fjórir aðrir siðfræðingar munu
ásamt Philippu Foot taka þátt í
málþingi um siðfræði á vegum
heimspekideildar, er haldið
verður mánudag og þriðjudag, 19.
og -20. aprfl. Þessir prófessorar
eru auk próf. Foot þau Páll Árdal
við Queensháskóla í Kingston,
Ontario, Lars Hertzberg próf. f
Helsinki, Rosalind Hursthouse,
lektor við The Open University,
og Richard Lee við Trinity
College f Hartford. Meginvið-
fangsefnið er tvíþætt: nýjar kenn-
ingar Philippu Foot um eðli sið-
ferðis, en þær hafa vakið athygli
fræðimanna á sfðustu árum og
valdið miklum deilum, og refs-
ingar og siðferðileg réttlæting
þeirra. Um það efni verður próf.
Páll S. Árdal málshefjandi.
Missa Brevis frumflutt
í Isafjarðarkirkju
Isafirði, 14. aprfl —
AÐ KVÖLDI föstudagsins langa
mun sóknarnefnd eins og undan-
farin ár standa fyrir kirkjukvöldi
f ísafjarðarkirkju. Efnisskrá er
fjölbreytt og mun hljómsveit
Tónlistarskólans koma þar fram
undir stjórn Jónasar Tómassonar.
Kjartan Sigurjónsson, skólastjóri
Gagnfræðaskólans, mun leika lög
eftir J. S. Bach og M. Reger á
pfpuorgel kirkjunnar, en auk
hans munu nokkrir aðrir af tón-
listarmönnum bæjarins koma
fram.
Sunnukórinn hefur jafnan
verið einn af máttarstólpum
þessara kirkjukvölda og mun svo
verða einnig f þetta sinn. Auk
þess að flytja lög eftir J. S. Bach
og F. Schubert mun kórinn frum-
flytja nýtt verk eftir Jónas
Tómasson yngri. Verk þetta, sem
samið er fyrir Sunnukórinn og
heitir Missa Brevis, er f fjórum
þáttum og þrfr þeirra verða
fluttir að þessu sinni. Stjórnandi
Sunnukórsins er Hjálmar H.
Ragnarsson.
Jónas Tómasson fæddist á ísa-
firði 1946. Lagði hann stund á
tónsmíðar við Tónlistarskólann f
Reykjavík og við Tónlistarskól-
ann í Amsterdam. Undanfarin ár
hefur hann verið búsettur á Isa-
firði og kennt þar við Tónlistar-
skóla ísafjarðar.
— Fréttaritari.
Þessi mynd af grænlenzkum stúlkum var tekin f útstaðnum Ikerasak, sem er smáþorp fyrir norðan
Diskósund á Vestur-Grænlandi. Ljósmynd Mbl. Árni Johnsen.
Fjölþætt Grænlandsvika
í Norræna húsinu
Mjög unfangsmikil dagskrá
verður á Grænlandsviku
Norræna hússins, en hún mun
standa yfir dagana 24. aprfl —
2. maf. Meginhluti dagskrár
vikunnar Iiggur fyrir og á
blaðamannafundi hjá Maj-Britl
Imnander f Norræna húsinu
kom fram að öll starfsemi húss-
ins beinist þessa vikuna á sama
hátt og verið hefur um fyrri
menningarvikúrnar þrjár,
helgaðar Færeyjum, Sömum og
Álandseyjum, að þvf að kynna
ýmsar hliðar hinnar græn-
lenzku menningar. Og sem fyrr
er það ætlunin, að boðið verði
svo mörgum grænlenzkum þátt-
takendum sem tök eru á og
tengdir eru þeirri menningu,
sem á að kynna. Norræna húsið
vill fyrir sitt leyti stuðla að þvf
persónuleg tengsl megi skapast
milli grænlenzkra og íslenzkra
menningarfrömuða.
Þótt lengi hafi verið ætlunin
að halda Grænlandsviku, var
ýmissa ástæðna vegna tiltölu-
lega seint farið að hefja raun-
verulegan undirbúning. En vit-
að er á þessu stigi málsins, að 8
þátttakendur koma frá Græn-
landi, meðal annarra lista-
maðurinn og rithöfundurinn
Hans Lynge, fjárbóndinn Kaj
Egede og lýðháskólastjóri Karl
Elias Olsen. Karl Kruse ráðu-
nautur í Grönlands Oplysnings-
forbund skipuleggur vikuna af
Grænlandinga hálfu og kemur
einnig til Reykjavfkur. Lands-
ráð Grænlands og Grænlands-
málaráðuneytið hafa veitt fjár-
hagsaðstoð vegna vikunnar.
Samtímis þvf, sem Græn-
landsvikan stendur yfir í
Norræna húsinu verða hér á
ferð tveir efstu bekkir kennara-
skólans f Godtháb á Grænlandi
ásamt tveimur kennurum sfn-
um, og er annar þeirra skóla-
stjórinn, Ingmar Egede.
Kennaraháskóli Islands sér um
þennan gestahóp, en þeir taka
einnig þátt í „vikunni" í
Norræna húsinu.
A Islandi eru margir sér-
fróðir um Grænland, og þeir
hafa verið til ómetanlegrar að-
stoðar við undirbúning allan,
og svo er og um ýmsa opinbera
aðila, fyrirtæki og stofnanir.
Nokkrir íslendingar munu taka
þátt í dagskránni með fyrir-
lestrum eða á annan hátt. Tveir
fyrirlestranna verða á dönsku,
svo að hinir grænlenzku gestir
geti einnig notið þeirra.
Sýningar verða mjög mikil-
vægur þáttur Grænlandsvik-
unnar. Verður þar um að ræða
bókasýningu, bæði með göml-
um og nýjum bókum og listsýn-
ingu með grafík, málverkum og
höggmyndum. Jens Rosing sýn-
ir t.d. 30 teikningar af fuglum,
Hans Lynge sýnir málverk og
höggmyndir, Aka Hoegh og
Kristian Olsen sýna grafík, svo
að nokkur dæmi séu nefnd.
Svolítil innsýn gefst einnig
aftur í tfmann í grænlenzkri
list, þar sem verða sýndar lit-
skyggnur um grænlenzka al-
þýðulist og sýning á teikning-
um eftir Jacob Danielsen.
Frá Grönlandsk Folkekunst í
Godtháb kemur safn fallegra
hluta, og ennfremur kemur frá
konunglegu Grænlandsverzlun-
inni ýmis listiðnaður, og verða
þeir munir til sölu. Grænlands-
verzlunin sendir einnig mat-
væli, sem verða á boðstólum f
kaffistofu hússins.
Ætlað er, að daglega verði f
fyrirlestrarsal hússins kvik-
myndasýningar, ýmiss konar
fyrirlestrar og annað efni. Ekki
er ennþá hægt að leggja fram
fullsamda dagskrá, en við upp-
haf vikunnar verður búið að
prenta dagskrá, sem lögð
verður fram, og væntanlega
verður daglega auglýst í dag-
blöðum, hvað um verður að
vera hverju sinni í Grænlands-
vikunni.
Norræna húsið verður opið
daglega til kl. 23:00 meðan á
vikunni stendur og venjulega
lýkur hverri dagskrá með
stuttri kvikmyndasýningu kl.
22:00. Sýningasalirnir í kjallara
verða einnig opnir til 23:00, svo
og kaffistofan.
Inga Marfa Ey-
jólfsdóttir
Ingibjörg Mar-
teinsdóttir
Jón Vfglunds-
son
Ungir einsöngvarar
í Dómkirkjunni
Þrír söngvarar, nemendur
Marfu Markan, syngja einsöng við
messurnar í Dómkirkjunni á
páskadagsmorgni í verki Svein-
björns Sveinbjörnssonar, „Páska-
dagsmorgni“.
Einsöngvararnir eru Inga
María Eyjólfsdóttir, Ingibjörg
Marteinsdóttir og Jón Víglunds-
son. — Messurnar eru kl. 8 og kl.
Ilf.h.
Kabarett-
bingó í
Sigtúni
KABARETT-bingó Kvenna-
deildar Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra verður (
kvöld kl. 8.30 í Sigtúni við
Suðurlandsbraut. Spilaðar
verða 18 umferðir. Þrjár
utanlandsferðir, alls að verð-
mæti rúmlega 200 þús kr.,
standa til boða, en fyrir utan
utanlandsferðirnar verða allir
vinningar að verðmæti
10—50 þús. kr., þar á
meðal málverk, húsgögn,
matvara og alls konar vöruút-
tektir. Heildarverðmæti vinn-
inga er 700—800 þús. kr.
— Húsið er opnað kl. 7.30.
ömar Ragnarsson.
Við þjjú.
Ómar Ragnarsson mun
annast skemmtiatriði ásamt
Við þrjú, en það söngtríó er
skipað Haraldi Baldurssyrji,
Ingibjörgu Ingadóttur og
Sturlu Erlendssyni.
Allur ágóði af skemmtun-
inni rennur til Æfingastöðv-
arinnar við Háaleitisbraut og
starfseminnar í Reykjadal.
Tónleikar í
Bústaðakirkju
ÞRIÐJUDAGINN 20. aprfl kl.
20.30 heldur Snorri örn Snorra-
son tónleika I Bústaðakirkju.
Snorri hefur undanfarna 5 vetur
stundað nám f gftarleik við tón-
listarháskólann f Vfnarborg, en
hann tekur burtfararpróf þaðan
nú f vor.
Þetta eru fyrstu sjálfstæðu tón-
leíkar Snorra hér á landi, en hann
hefur leikið á tónleikum f
Austurrfki og Svfþjóð auk þess að
hafa gert upptökur fyrir sænska
og íslenska hljóðvarpið svo og
fslenska sjónvarpið. Snorri var
fulltrúi tslands f norrænu gftar-
keppninni sem fram fór f Kaup-
mannahöfn f fyrravor.
Á efnisskrá tónleikanna eru
m.a. verk eftir Bach, Villa-Lobos,
de Falla og Albeniz. Aðgöngu-
miðar fðst við innganginn.