Morgunblaðið - 15.04.1976, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.04.1976, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRIL 1976 Sverrir Hermannsson: Á GAGNVEGUM Fyrir skömmu átti greinar- höfundur þess kost að kynna sér lítillega skýrslur hinnar svokölluðu Svartoliunefndar. Við hraðan yfirlestur virtist þetta léttvaegur samtíningur. Við nákvæmari athugun kemur í ljós að ákaflega óvísindalega er að þessu verki staðið, svo ekki sé meira sagt. Ef-yfirvöld og bankar, sem hvetja til notkunar svartolíu í fiskiskip- um, hafa fyllzt áhuga í þvf efni við þann lestur, þá má lofa ólæsi. Nefndin kemst sem sagt ekki hjá þvi í syrpu sinni að auglýsa algjört reynsluleysi sitt á þessu sviði, þrátt fyrir góðan vilja. Fram á það má auðveld- lega sýna þegar til þarf að taka. Undirritaður hripaði stutta Sverrir Hermannsson miklu lengri reynslu af rekstri skuttogara.til dæmis.en við. Þar við bætist að togarar þeirra eiga um miklu lengri veg að sækja á fiskimiðin en okkar,en það er einmitt á löngum vega- lengdum, sem e.t.v. má fremur notast við svartolíu, þegar vélar eru keyrðar lengi með miklu álagi. Flögrar það að einhverjum að Þjóðverjar hafi ekki tekið eftir verðmismun á svartolíu og gas- oliu? Eða að þá skorti tækni til að ráða gátuna um notkun hinnar margumtöluðu svörtu olíu í fiskiskipum sínum? Fróðlégt á marga vísu væri að fá vitneskju um afstöðu hags- munasamtaka sjávarútvegsins í máli þessu. Eða Siglingamála- Svartolíuæði grein um efnið fyrir skemmstu í Morgunblaðið, þar sem honum er málið skylt. Viðbrögð af hálfu svartoliumanna hafa engin orðið, en þeim mun meiri af hálfu þeirra, sem eindregið eru þeirrar skoðunar, að notkun svartolíu í íslenzk fiski- skip sé hið mesta óráð. Að hafa streymt upplýsingar innlendar og erlendar, sem allar eru á eina bók lærðar: notkun svart- olíu til brennslu í vélum fiski- skipa er glæfraspil. Notkun svartolíu er því aðeins mögu- leg, að vélarnar séu sér- smíðaðar til þess arna. Engin vél í íslenzku fiskiskipi er sér- byggð til brennslu svartolíu. Nú hafa nokkrar útgerðir brugðið á það ráð að hefja notkun svartolíu. Ástæður eru augljósar: Menn freistast til þess vegna hins mikla verð- munar, sem er á svartolíu og gasolíu, enda hefir þeim verið talin trú um ágæti olíunnar af áróðursmönnum svartolíu og yfirvöldum, sem trúað hafa áróðrinum eins og nýju neti og prísa sig sæla að þar með sé leystur vandi útgerðar. Því miður virðist þessu vera öfugt farið. Ef marka má nýjar upplýsingar og álit fjölmargra sérfróðra aðila þá rasa þeir um ráð fram sem hvetja til þess að íslenzki fiskiskipaflotinn taki að nota svartolíu til brennslu. Góð ráð eru dýr. Reynslan hefir fært okkur heim sanninn um að oft grípur írafár um sig i íslenzkri útgerð. Næg eru dæmin um gusuganginn og ekki að sökum að spyrja þegar fyrirsvarsmenn hvetja til fram- kvæmda og bankar bjóða fram fé. Margur er dárinn í útgerð þótt ekki sé honum teflt upp með slíkum ódæmum. Má gera þá tillögu að dokað verði ögn við meðan óyggjandi reynsla fæst af þeim tilraunum, sem þegar eru hafnar hér- lendis? Væri ekki hyggilegt að skipa nýja rannsóknarnefnd, sem rannsaki málið vlsinda- lega, og leiti sér upplýsinga er- lendis hjá aðilum, sem þegar hafa rannsakað notkun svart- olíunnar? Þarf í þessu máli Iíka að leggjast á fjóra fætur fyrir bankavaldið og frábiðja sig allra mildilegast að taka fram- boðið lán til uppsetningar svartoliubrennslu, sem senni- lega mun eyðileggja vélar fiski- skipaflotans? Hvernig í ósköpunum stendur á því að Þjóðverjar, sem eru allra manna séðastir í öllum rekstri, skuli ekki láta sér til hugar koma að brenna hinni ódýru svartolíu i fiski- skipum sínum? Hafa þeir þó stofnunarinnar. Ekki geta þessir aðilar skellt skolleyr- unum við svo mikilvægu máli. Hér er ekki verið að amast við nýjungum. Hér er af marg- gefnum tilefnum verið að vara við að anað verði áfram að óat- huguðu máli. Þess er hér með krafizt af réttum yfirvöldum að þegar í stað verði gerð ítarleg rann- sókn á notkun svartolíu til brennslu i vélum íslenzka fiski- skipaflotans. Þar til þeirri rannsókn er lokið og niður- stöður fengnar ættu útvegs- menn að varast að bregða á svo vafasamt ráð sem notkun svart- olíu. Rannsóknir og skýrslugerðir Svartolíunefndar eru að engu hafandi í þá veru að rétt sé og hagkvæmt að brenna svartolíu í fiskiskipum. Þrátt fyrir góðan vilja til að færa sönnur á ágæti svartolíu, tekst ekki betur til en svo, að á annarri hverri síðu má lesa hið gagnstæða, enda mun það sönnu nær. Um margt ómerkilegra hefir verið skotið á ráðstefnu. Vilja ekki útvegsmannasamtökin svo vel gera og hafa forgöngu um slikt? Að visindalegri niður- stöðu kemst sú ráðstefna að sjálfsögðu ekki, en nauðsynlegt er að menn beri saman bækurnar hið fyrsta. Þögnin hljómar □ Björn E. Hafberg: □ AÐ HEYRA ÞÖGNINé HLJÓMA. □ Öhljóð. □ Myndir eftir Hallmund Haf- berg. □ Utgefandi höfundur 1975. Q Björn E. Hafberg: □ ERINDREKAR NÆTUR- INNAR □ Ljóð og smásögur. □ Myndir eftir Hallmund Haf- berg og Söru Vilbergsdótt- ur. □ Utgefandi höfundur 1975. BJÖRN E. Hafberg er ungur maður, sem kveður sér hljóðs með tveimur bókum í senn: Að heyra þögnina hljóma og Erind- rekum næturinnar. Um þessar bækur er þvi miður litið annað að segja en það að höfundurinn sýnir töluvert áræði með því að senda þær frá sér. Þær virðast ekki hafa farið I gegnum neinn hreinsunareld áður en fjöl- ritunarvélin tók við þeim. Ungir höfundar eru llklega hættir að hafa fyrir þvi að láta lesa yfir handrit sln og gagn- rýna þau. Mestu skiptir að koma þeim sem fyrst á markað. Þessarar óþolinmæði geldur Björn E. Hafberg eins og svo margir aðrir. Smekkvís maður hefði auðveldlega getað gert eina bók úr bókunum hans tveim. Utkoman hefði þá verið betri. Björn E. Hafberg yrkir um rykkorn á ströndinni, sem fyrr eða síðar fellur I sjóinn og gleymist. Hann yrkir einnig um þúsund blaða rósina, sem aldrei finnst þrátt fyrir ævilanga leit. Htnn vegsamar ástina, en beinir skeytum sínum gegn sjálfselsku og hræsni. Mengun er honum ofarlega I huga. Honum svíður eins og mörgum hvernig mennirnir leika jörð- ina: Tveir regndropar áleið til jarðar f gegnum skýin og geisla sálarinnar námu staðar I þrjátfu metra fjarlægð frá yfirborði jarðar, steini lostnir. Bókmenntir eftir JÓHANN hjalmarsson Myndskreyting eftir Söru Vii- bergsdóttur. Ur Erindrekum næturinnar eftir Björn E. Haf- berg. Þeir vildu ekki lenda fhvaða skftahaug sem var og sneru aftur til fyrri heimkynna sinna. Yfir sig undrandi á óþverra og skft mannanna. 1 Að heyra þögnina hljóma er Sagan um sandkornið, ekki óhnyttin frásögn af örlögum sandkorns. I Erindrekum næt- urinnar eru þrjár smásögur, sem ætlað er að vekja til um- hugsunar um samfélagið: and- varaleysi fólks og llfslygi. I þessum sögum eins og I sumum ljóðanna má sjá að Birni E. Hafberg er mikið niðri fyrir. Honum er I mun að tjá sig og hafa áhrif á fólk. En það verður að segja eins og er að viðfangs- efni hans eru enn sem komið er of almenn, að ekki sé sagt þvæld, til þess að vekja athygli. Auk þess skortir hann það, sem síst má vanta: öguð vinnubrögð. Leikfélag Ólafsfjarðar: Tobacco Road LEIKFÉLAG Ólafsfjarðar tók Tobacco Road eftir Erskine Cald- well til sýningar nú á ofanverðum vetri. Ég hafði ekki áður séð til þessa leikhóps; þótti verkefnið djarft og þvl forvitnilegt að sjá hversu til tækist. Að vlsu hafði ég haft spurnir af því, að leiklist á Ólafsfirði stæði hátt. Á hinn bóg- inn eru því takmörk sett, hversu 'mikils hægt er að ætlast til af áhugamönnum, einkanlega þegar sumir þeirra eru I aðgerð jafnað- arlega og þurfa að sæta lagi til að sinna áhugamáli slnu, leiklistinni. Þegar mér var sagt frá því, hvern- ig þetta fólk ynni fyrir brauði sínu, og hugðarefnum, lukust augu mín upp fyrir þvl, hversu fánýtt tal þetta er um 40 stunda vinnuviku til þess að öðlast lífs- fyllingu. Nú skyldu menn ætla, að þessi langi formáli sé eins konar afsök- un fyrir þessum skrifum. En það er síður en svo. Sýning Leikfélags Ólafsfjarðar á Tobacco Road var góð sýning. Mér var að vísu bent á stöku snurður á þræðinum. Ég tók ekki eftir þeim. Mér þótti sýningin öll samfelld og leikgleði stafaði frá hópnum; ég upplifði m.ö.o. engin þau augnablik, þar sem maður finnur sárt til þess, að áhugafólk er að reyna sér um megn. Á hinn bóginn var margt stórvel gert. Ég nefni sérstaklega til Elínu Haraldsdóttur I hlut- verki Ödu Lester, móðurinnar. Leikur hennar var stórkostlegur, persónusköpunin einlæg. Heift hennar, móðurást og fyrirlitning, — allt fas. Fyrir hugskotssjónum mínum stendur sönn túlkun, sönn persónusköpun, einstök meðal áhugafólks að ég ætla. Kristinn G. Jóhannsson skóla- stjóri er leikstjóri. Mér verður það stundum á að bera hann I huganum saman við skólastjór- ann Sigurð Hallmarsson á Húsa- vlk. Sigurður er meiri leikari en Kristinn, ég veit ekki einu sinní hvort Kristinn hefur nokkru sinni leikið. Báðir gera þeir leikmynd, svo að maður eins og ég sé þar engin missmíð á. Ég hef fyrir satt, að Kristinn sé kannski betri myndlistarmaður en Sigurður en skal ekkert um það segja. Og nú lýkur mannjöfnuði. Sameiginlegt eiga báðir þessir menn, að þeir lyfta staðnum, þar sem þeir eru; hrífa fólk með sér, eru persónu- gervingar þess, sem menningar- vitar kalla list um landið. Þarna er þessi list. Hún kom ekki með styrkjum að sunnan, heldur býr I fólkinu sjálfu I hinum strjálu byggðum og finnur sér farveg fyr- ir tilstuðlan manna eins og þess- ara. Og um leið kemur I hugann sú ömurlega hugdetta að ímynda sér Sigurð Hallmarsson skóla- stjóra I Austurbæjarskólanum I Reykjavík og Kristin I Réttar- holtsskóla. Hvernig skyldu sllk náttúrubörn I listinni dafna svo nálægt háskóla, svo nálægt þjóð- leikhúsi, svo nálægt listaskáldun- um vondu? Innan um malbik og steyptar stéttar en geta aldrei brugðið sér inn I beituskúrinn eða teflt I tvísýnu með færðina fyrir Múlann. Af einstökum leikurum nefni ég Jón Ólafsson I hlutverki iðju- leysingjans Jeeter Lester. Mér þótti honum takast vel upp I túlk- un sinni, kæringarleysið „féll að slðum“ og skoplegt látæði prýddi sýninguna. Guðbjörn Arngrlms- son lék strákinn Dudda, skilgetið afkvæmi föður síns, frfsklega og samleikur þeirra systur Bessie, Hönnu Maronsdóttur, var ágætur. Sigurður Björnsson náði góðum tökum á Lov Bensey, þessum úr- ræðalausa námumanni, sem i ein- feldni sinni reyndi þó að bjarga sér en allt gekk öndvert fyrir. Hanna B. Axelsdóttir túlkaði um- komuleysi og öfund Ellu Maju sannferðuglega. Með minni hlut- verk fóru Guðrún Víglundsdóttir, Ríkarður Sigurðsson, Guðlaug Jónsdóttir, Sigmundur Jónsson og Sigurður Snorrason og áttu öll, eins og fyrr segir, sinn þátt I að móta þessa eftirminnilegu leik- sýningu. Leikmynd gerði Kristinn G. Jó- hannsson, en leiktjaldasmiðir voru Grétar Magnússon og Jóhann Freyr Pálsson. Förðun annaðist Ingibjörg Einarsdóttir. Sjónleikur þessi er gerður eftir skáldsögu Erskine Caldwells, en höfundur leikgerðar er Jack Kirk- land og þýðari Jökull Jakobsson I lok þessara fáu orða hlýt ég að láta I ljós þá von, að framhald megi verða á því, að snjöllustu leikarar okkar við Þjóðleikhúsið og Leikfélag Reykjavlkur sjái sér fært að vinna með áhugafólki og leikfélögum úti á landi eins og í vetur. Mér virðist Leikfélag Ólafsfjarðar verðskulda slíka heimsókn. En þótt sá draumur rætist ekki I bráð, megum við hlakka til næstu sýningar, Það verður enginn fyrir vonbrigðum, sem eyðir kvöldstund með þeim samstæða hóp, sem er kjarni Leikfélags Ólafsf jarðar. Halldór Blöndal. Síðustu sýningar á Carmen NÚ FARA að verða síðustu forvöð að sjá Carmen- sýningu Þjóðleikhússins. Carmen hefur verið sýnd í allan vetur og eru sýningar orðnar 44 en 45. sýningin verður á annan í páskum og eru þá eftir örfáar sýn- ingar. Tala sýningargesta er nú um 23 þúsund, enda hefur verið uppselt á flestar sýn- ingarnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.