Morgunblaðið - 15.04.1976, Side 31

Morgunblaðið - 15.04.1976, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976 31 8. Jon Lord 9. Eno 10. Edgar Winter MIKILVÆGUSTU HLJÓÐFÆRALEIKAR- AR 1. Ron Wood 2. Keith Richard 3. Elton John 4. Jimmy Page 5. Pete Townshend 6. David Bowie 7. Eno 8. Mick Ronson 9. Nicky Hopkins 10. Rick Derringer UPPTÖKUSTJÓRAR 1 Todd Rundgren 2. Gus Dudgeon 3. Jimmy Page 4. John Cale 5. George Martin 6. Tony Visconti 7. Glyn Johns 8. Bob Ezrin 9. Glimmer Twins 10. Phil Spector LAGASMIÐIR 1 Elton John/Bernie Taupin 2. David Bowie 3. Mick Jagger/Keith Richard 4. Bruce Springsteen 5. Jimmy Page/Robert Plant 6. Bob Dylan 7. Pete Townshend 8. Paul McCartney 9. Lou Reed 10. Ian Anderson 18plötarísumar 8 Töluvert af plötum er nú i bígerð hjá íslenskum tónlistar- mönnum og hafa líklega aldrei fleiri unnið að sliku samtímis. Til að fá nánari fréttir af þess- ari starfsemi hafði Stuttsíðan samband við nokkra þá er hlut eiga að máli. Fyrir hönd Steina h.f., sem mun vera stærsti út- gefandinn, svaraði Steinar Berg og sagði hann að næsta plata þeirra væri væntanleg í maí og að það yrði hin svo- nefnda „Kreppuplata". Á plöt- unni mun koma fram fjöldi manns og allir munu túlka kreppuhugtakið. Helstir eru Diabolis In Musica, með þrjú lög, Ómar Óskarsson, Spilverk þjóðanna, Þokkabót, Dögg, Kaktus og flokkurinn Liðsveit- in, með tvö lög hver Af tækni- legum ástæðum er þó hugsan- legt að fækka þurfi lögunum eitthvað, vegna þess hve saman- lögð tímalengd þeirra er mikil. Efni plötunnar má að mestu flokka undir „soft“-rokk, en fjölbreytni mun þó gæta. Öllum upptökum fyrir plötuna er lok- ið, en eftir er að hljóðbanda nokkur lög. Jakob Magnússon mun væntanlega klára plötu sina og Hvftárbakka Trfósins í maí, en þegar er búið að taka upp alla grunna. Platan, sem að sögn Jakobs mun hafa að geyma melódíska „funck“ mú- sík, er svo væntanleg á markað- inn í júní. Aðrar plötur, sem Jakob mun vinna að er plata með Steinunni Bjarnadóttur og Stuðmönnum. Vinna við plötu Steinunnar og Jakobs er byrjuð og hafa fjögur lög verið tekin upp. Á þessari plötu, sem verða á sannkölluð stuðplata, kemur auk þeirra fram nokkur fjöldi „session" hljóðfæraleikara, jafnt heimsþekktir erlendir hljóðfæraleikarar sem óþekktir íslenskir. 1 viðræðum nú í síð- ustu viku milli Spilverks Þjóð- anna og Jakobs Magnússonar var svo ákveðið að ráðast í gerð nýrrar Stuðmannaplötu. Áætl- að er að upptökur hefjist í júní, en nokkuð efni á plötuna er þegar fyrir hendi. Spilverk Þjóðanna ætlar að taka upp tvær stórar plötur á þessu ári. Önnur þeirra verður hljóðrituð á tónleikum í stúdíói Hljóðrita hf. nú um helgina og verða þar ejngöngu leikin lög, sem ekki hafa komið út á plötum áður með þeim. Vonast er til að þessi plata verði komin á markaðinn í mai. Hin platan verður stúdíó plata og byrjað verður á henni með vorinu. Á þeirri plötu verð- ur að öllum líkindum tónverk eitt mikið, sem nær yfir aðra hlið hennar alla. Hinum megin verða svo væntanlega nokkur styttri lög. Ölafur Þórðarson, fyrrverandi meðlimur Ríó tríósins og einn hluthafa í Steinum hf„ ætlar svo sjálfur að taka upp lög fyrir stóra plötu. Lögin, sem eru eftir hann og textarnir, sem eru eftir Halldór Gunnarsson I Þokka- bót, eru öll tilbúin og af léttara taginu. Upptaka hefst væntan- lega fyrri hluta sumars. Að lokum gat Steinar þess að rætt hefði verið um gerð stórr- ar plötu með Diabolis In Musica, en ákvörðun ekki enn verið tekin um það. Hjá Pétri Kristjánssyni fékk Stuttsiðan þær upplýsingar að þeir i Paradís stefndu að upp- töku stórrar plötu með vorinu. Utgefandi verður annaðhvort Gunnar Þórðarson, og platan þá tekin upp i Englandi, eða Rúnar Júlíusson, sem kosta mun upptöku I Bandarikjun- um. Lögin, sem væntanlega verða 10 til 12 talsins, verða samin af flestum meðlimum hljómsveitarinnar og munu endurspegla þá stefnu er ríkt hefur f lagavali hljómsveitar- innar. Hljómsveitin hefur nú hætt öllum ráðningum til dans- leikjahalds, en einbeitir sér þess í stað að æfingum og laga- smíðum. Ef allar áætlanir standast má vænta þess að plat- an komi á markað snemma I júli. Jafnframt þessu hefur Björgvin Gfslason gitarleikari þeirra hafið upptökur á lögum fyrir eigin plötu, í stúdíói Svav- ars Gests. Honum til aðstoðar verða ýmsir söngvarar, Ásgeir Öskarsson á trommur og Sig- urður Árnason á bassa, en á öll önnur hljóðfæri ætlar Björgvin að leika sjálfur. Að sögn Björg- vins, verður unnið við gerð plötunnar eftir hentugleikum og þvi óvist hvenær platan kem- ur á markað. Um lögin vildi Björgvin litið segja, en þó að ekki yrðu þau öll sungin. Jó- hann Helgason, fyrrverandi meðlimur Change, er um það bil að ljúka upptökum á eigin lögum fyrir plötu gefna út af Svavari Gests. Með Jóhanni leika á plötunni ýmsir hljóð- færaleikarar og má þar nefna Sigurð Karlsson, Jakob Magn- ússon, Rúnar Georgsson, Ásgeir Öskarsson, Árni Isleifsson og Sigurður Árnason. Efni plöt- unnar mun skiptast i tvennt að því leyti að á annarri hlið henn- ar munu flest lögin vera í ætt við þá tónlist er leikin var á árunum milli 1920 og 1930, en á hinni hliðinni verða lög af létt- ara tagi. Utgáfa er áætluð i byrjun maí. Á næstunni er svo einnig væntanleg stór plata með söng- konunni Sigrúnu Harðardóttur og var það hljómsveitin Júdas, sem sá um undirleik hjá henni. Utgefandi er Jón Ölafsson. Rúnar Júlfusson og Engil- bert Jensen starfa einnig um þessar mundir að eigin plötuút- gáfu. Rúnar er f Bandaríkjun- um og Engilbert í Bretlandi, en engar nánari spurnir hefur Stuttsíðan af þeim. Hljómsveit- in Haukar ætlar svo einnig til Bretlands bráðlega og mun taka þar upp plötu með aðstoð Gunnars Þórðarsonar, sem einnig mun gefa plötuna út. Lögin verða eftir ýmsa, m.a. Ómar Óskarsson, Gunnar Þórðarson, Jóhann Helgason Hauka sjálfa. Gunnar Þórðar son tekur svo einnig upp plötu með Rfó trfóinu, sem þó verður án Ólafs Þórðarsonar. Eikin ætlar lika í stúdíó að hljóðrita eigin lög og verður það væntanlega seinna í þess- um mánuði. Þeir er sóttu síð- ustu SAM-komu f Klúbbnum fyrir stuttu fengu forsmekk af þeirri lagasmfð er heyrast mun á plötu þeirra, en lögin voru i „funky" jass-rokk stil. Platan er svo væntanleg i júní og verður að líkindum gefin út af þeim sjálfum. Að lokum má svo geta þess að Olga Guðrún Árna- dóttir er farin að hugsa fyrir annarri plötu, sem væntanlega verður byrjað á með sumrinu. í þetta sinn má vænta nokkuð alvarlegra efnis frá henni og Ólafi Hauk Sfmonarsyni, en kom á Eniga Meniga. Gunnar Þórðarson verður bakhjarl þeirra eftir sem áður. Hér að framan hafa nú verið taldar upp 18 stórar plötur, sem unnið er að á miðju ári og er slíkt algert einsdæmi í fslenskri hljómplötuútgáfu, sem hingað til hefur að mestu verið miðuð við jólakaupæðið og ætla má að þeim eigi enn eftir að fjölga er kemur fram á sumar. Tvímæla- laust er þessi jákvæða þróun bættum upptökuaðstæóum að þakka og væri einnig óskandi að gæði tónlistarinnar bötnuðu í hlutfalli við bætt upptökuskil- yrði og meiri fjölda platna. Bald. J. B. Hljémplötngagnrýni: Einar Vilberg - Starlight 004 Steinar h.f. í ljósi stjörnu eru misjafn- lega bjartir geislar. Þessir geislar virka oft á tilfinning- arnar sem straumar hins visna löngu liðna eða hins myrkvaða skins, hins myrkvaða skins frumleikans. Eitthvað þessu lfkt virkar ytri sem innri bún- aður tónlistar Einars Vilbergs, þ.e. þeirrar tónlistar sem sköp- uð var með gerð hljómplötunn- ar Starlight. Starlight er önnu plata Einars Vilbergs. Þá hina fyrri hljóðritaði Einar með Jón- asi R. Jónssyni og láta þær þess- ar tvær all ólíkt í eyrum. Plata þeirra Jónasar og Einars var öll tónlistarlega rólegri og einfald- ari eða nokkurs konar „soft- rokk“, leikið á órafmögnuð hljóðfæri. Á hinn bóginn Star- light, hin nýútkomna plata Ein- ars, oft á tíðum ,,hard-rokk“ hið rafmagnaðasta. Tónlist Einars Vilbergs er sem sagt í dag all rafmagnað rokk, sem byggt er upp í kringum einfalda og oft fallega eða melódíska laglínu. Lögin hljóma yfirleitt nokkuð kunnuglega í eyrum, en slíkt má eflaust skrifa að miklu leyti á reikning útsetningarinnar á titillagi plötunnar, Starlight. Þar gefur að heyra mjög skemmtilega raddsetningu hins víðfræga og mæta Spil- Framhald á bls. 21 ■ ■ ■ ■ Hljómplötugagnrýni: B.G. os Inffibiörff - Sólskinsdaffur 005 Steinar h.f. ÉG HEF HEYRT. Ég hef heyrt. Hvað þá? Ég hef heyrt. Hvað Þá? Ég hef heyrt. Hvað þá? Hvað hefurðu heyrt? Að maður sé á meðal vor. Nú já hvað þá? Sem hefur bæði kjark og þor. Ó jáá aaa... Ég hef heyrt, heyrt ég hef, ég hef heyrt, heyrt ég hef, að maður sé á meðal vor, sem hefur bæði kjark og þor. Ég hef heyrt. Hvað þá? O.s.frv. Að segi hann við sérhvern mann. Nú já, hvað þá? Elska skaltu náungann. Ó jáá aaa... Ég hef heyrt, heyrt ég hef, ég hef heyrt, heyrt ég hef, að segi hann við sérhvern mann elskaðu náungann. Ég hef heyrt. Hvað þá? O.s.frv. Vilt þú verða vinur hans? La, la, la, la, la, la, la. la, Og ganga á vegi sannleikans? La, la, la, la, la, la, la. la. la. Komdu með. Já ég kem. Komdu með. Já ég kem. Komdu með. Já ég kem. Ó jáá aaa... Ég fer með. Kemur Þú? ég fer með. Kemur þú? Ég fer með. Kemur þú? Kemur þú með mér? Ég hef séð. Hvað þá? Ég hef séð. Hvað þá? Hvað hefurðu séð? Ég hef séð. Hvað þá? Ég hef séð. Hvað þá? Ég hef séð. Hvað þá? Ég hef séð hann, ég hef séð hann, ég hef séð hann, ég hef séð hann. La, la, la, la, la, la, la, la. Ég hef heyrt Vinur, Hesta-Jói, að Lftil börn leiki sér að Leik- föngum úti i haga á björtum Sólskinsdegi, þegar Baldurs- bráin blómstrar. — Fátt um svör og ég vildi að við værum á förum eitthvað langt, Langt út á sjó, frá tónlist sem höfuðverk mér gefur. Þv^f landi hausverk ég fæ, þvf ég ræ langt út á sjó. LANGT UT A SJÓ. Langt út á sjó, "ftqst einn ég ræ. Langt út á sjó, langt út á sjó, í landi er erill og ys til og frá og eintómir veggir sem rekst maður á. Þegar af heimskunni hausverk ég fæ ég ræ — ég ræ — ég ræ — ég ræ langt út á sjó. Einn ég öllu ræð langt út á sjó. Langt út á sjó. Langt út á sjó frið og ró ég finn langt út á sjó langt út á sjó. Ég sakna ei fólksins með ræður og rex þó rámur sé múkkinn og sífellt með pex greyið að líkindum greindari er. Ég fer — ég fer — ég fer — ég fer langt út á sjó langt út á sjó Einn ég uni mér langt út á sjó langt út á sjó. Hinn sama dag og plata Einars Vilbergs var send á markað kom út Sólskinsdagur B.G. og Ingibjargar. Hversu bjartur sá sólskinsdagur er, fer eftir því við hvað er miðað. Sé miðað við hinn bláleita ljós- geisla, sem hljómsveit Ingimars Eydals veitti lýðum þessa land« síðastliðinn vetur, þá verður hann æði bjartur. Ef hins vegar sé miðað við eitthvað annað gæti svo farið að þessi ljósgeisli slokknaði eða yrði gleyptur, líkt og ljósið hverfur í svörtu. Tónlist B.G. og Ingibjargar er hægt að benda á sem dæmi fyrir klassfska vínveitingahúsa- tónlist. Klassfska tónlist nefni ég, því gerð tónlistar við um- ræddar aðstæður á umræddum stöðum hefur af mörgum, ef ekki flestum, verið mjög virt, ef hún er einmitt á þessu plani. Þessu væri hægt að breyta t.d. með annars konar útgáfu. Mjög jákvætt spor í þessum efnum, var stigið f fyrra, með útkomu Stuðmannaplötunnar. Hljóm- sveit hlýtur að geta náð til fólks á dansleik og skapað stuð eða stemmningu á einhvern annan hátt en með slfkri vitleysu eða bulli sem textar þeir, er í upp- hafi voru birtir bera keim af. Kannski tilheyrir tónlist B.G. og Ingibjargar annari kynslóð, þó slfkt sem það sé synd að. segja, mjög syndsamlegt Ég hef heyrt. Hvað þá? ég hef heyrt. Hvað þá? ég hef heyrt. Hvað þá? ég hef heyrt að svo sé. Platan vekur mikinn áhuga t.d. hús- mæðra og þeirra annarra sem glaðan dag vilja eiga undir ein- faldri tónlist með einföldum textum, sem helst lærast um leið og þeir heyrast. A. J. ■ I ■ ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.