Morgunblaðið - 15.04.1976, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRIL 1976
33
Mynd um
œvi Krists
Á FÖSTUDAG er mynd f sjón-
varpinu sem nefnist Sagan
mikla. Er þetta bandarísk bíó-
mynd frá árinu 1965 og fjallar
um ævi Krists. Myndin er rúm-
ir þrír tímar að lengd og er
þýðandi hennar Dóra Haf-
steinsdóttir. Sagði Dóra að ævi
Jesú Krists væri fylgt, hæfist
myndin er vitringarnir væru að
fylgja stjörnunni og endaði
með upprisunni.
Ur myndinni Sagan mikla sem er f sjónvarpinu annað kvöld.
Myndin er rúmlega þriggja tfma löng.
Myndin skartar mörgum
frægum nöfnum leikara. Aðal-
hlutverkið, Jesú Krist, leikur
Max von Sydow, en Jóhannes
skírara leikur Charlton Heston.
Aðrir leikarar eru t.d. Dorothy
McGuire, Sidney Poitier, Sal
Mineo, John Wayne, Telly
Savalas og Jose Ferrer.
önnur kvikmyndahandbókin
sem fjallar um myndina telur
hana nú ekkert sérstaka og tel-
ur að betra sé að finna eitthvað
annað að gera fremur en að
horfa á hana. Segir hún að bók-
in hafi verið mun betri.
ueui
Staðreyndir um stríð
FJÓRTÁNDI þáttur Heims-
styrjaldarinnar sfðari er i
sjónvarpi kl. 21.30 á þriðjudag.
Myndin lýsir styrjöldinni i
Burma en Japanir höfðu landið
á valdi sinu f ein þrjú ár. Japan-
ir sóttust eftir gúmmí og'olíu
sem var f Burma og einnig
vakti fyrir þeim að eyðileggja
Burmabrautina svonefndu sem
Bandaríkjamenn notuðu tals-
vert til að flytja birgðir til
Kfna. Tókst Japönum fljótlega
að ná helztu hafnarborg Burma
sem var Rangoon og náðu síðan
öllu landinu á sitt vald. Voru
Bretar illa undir innrás Japana
búnir og kom árásin þeim
gersamlega á óvart. Þá olli það
miklu að Japanir kunnu að not-
færa sér skóginn sem Bretar
kunnu ekki á þessum tíma.
Seinna fóru Japanir inn í Ind-
land og var barizt mjög harka-
lega um borgirnar Imphal og
Kohima.
Eftir mikla bardaga á landa-
mærum Burma og Indlands
tókst svo að reka Japani til
baka. Var þá kominn liðsauki
amerfskra sjálfboðaliða en
einnig börðust tvær kinverskar
hersveitir með Bretum á þess-
um stöðvum. Voru þær undir
stjórn bandarísks hers-
höfðingja en fyrir þeim vakti
að opna á ný járnbrautarlínu til
Kfna.
Það er svo á árinu 1945 að
aftur tókst að ná Rangoon.
„Myndin er bara staðreyndir
um strið,‘' sagði þýðandi og þul-
ur myndarinnar, Jón O.
Edwald, „og sýnir hún vel
hvers lags brjálæði þetta er.
Þetta er vel til þess fallið að
vekja andúð manna á styrjöld-
um.“
Stríðsógnir og
gildi friðar
A ÞRIÐJUDAG er f sjónvarpi
hollenzk mynd sem nefnist I
nafni friðarins. Fjallar myndin
um þær hugmyndir sem börn
gera sér um strfð og frið. Þýð-
andi og þulur er Ingi Karl Jó-
hannesson.
Sagði Ingi Karl að myndin
hefði verið gerð f tilefni friðar-
dagsins árið 1969. Hefði verið
stofnað til teiknimyndasam-
keppni eða söfnunar á teikning-
um og var efni þeirra friður og
framtfðin. Bárust um 20.000
teikningar. Þar láta börnin í
ljós viðhorf sfn til strfðs og
friðar og beita óspart hug-
myndaflugi sínu. Er myndin að
mestu leyti sýning á þessum
teikningum með viðeigandi
skýringum. Er þannig brugðið
upp mörgum myndum og reynt
að sýna inn í hugarheim barn-
anna. „Börnin túlka þarna á
sinn hátt stríðsógnir og gildi
friðar," sagði Ingi Karl, „og
hvernig hinn nýi heimur eigi að
vera.“
Börnin munu vera á aldrin-
um 5 til 95 ára en mest er þó
eftir börn sem hafa fremur fá
ár að baki. Túlka þau hvað
þeim finnst um stríð og frið „og
myndin er raunverulega áróður
fyrir friði,“ sagði Ingi Karl að
lokum.
Það er undarlegt strfðið. I sfðasta þætti Heimsstyrjaldarinnar
börðust Nýsjálendingar við Þjóðverja fyrir Breta á ítalfu. Myndin
er frá styrjöldinni á austurvfgstöðvunum þó að sá þáttur sé að vfsu
ekki á þriðjudag.
Enn keppa
FJÓRÐI þáttur spurninga-
keppninnar Kjördæmin keppa
er í sjónvarpi kl. 20.35 á laugar-
dag. Að þessu sinni eru það
Norðurland vestra og Norður-
land eystra sem leiða saman
hesta sfna. Lið Norðurlands
vestra skipa þeir Hlöðver Sig-
urðsson fyrrverandi skóla-
stjóri, Lárus Ægir Guðmunds-
son sveitarstjóri og séra Ágúst
Sigurðarson á Mælifelli f
Skagafirði en hann hefur áður
tekið þátt í slíkri keppni í sjón-
varpi.
Lið Norðurlands eystra er
skipað eftirtöldum mönnum:
Gisli Jónsson menntaskóla-
kennari á Akureyri, Guðmund-
kjördæmin
ur Gunnarsson skattendurskoð-
andi, einnig á Akureyri, og
Indriði Ketilsson bóndi á Fjalli
f Aðaldal.
Eins og kunnugt er þá fellur
það lið sem tapar úr keppninni
þannig að eftir fjórða þáttinn á
laugardag verða eftir fjögur lið.
Þá verður dregið um það hvaða
lið keppa saman í næstu um-
ferð en að henni lokinni verða
aðeins tvö lið eftir sem keppa
til úrslita.
í hléi í þættinum á laugardag-
inn skemmtir hljómsveitin
Húsavíkur-Haukar.
Spyrjandi þáttarins er Jón
Ásgeirsson og dómari er Ingi-
björg Guðmundsdóttir.
Lið Norðurlands vestra: Hlöðver Sigurðsson, Lárus Ægir Guð-
mundsson og sr. Ágúst Sigurðsson.
Lið Norðurlands eystra: Gfsli Jónsson, Guðmundur GuimaiSson og
Indriði Ketilsson.
Myndin með læknunum nefnist Strandaglópar. Á meðfylgjandi
mynd er greinilega verið að ræða málin um borð í MS Begonia.
Fgrsti kjallaraþátturinn
NÝR flokkur tónlistarþátta
hefur göngu sína á mánudag
annan f páskum. Hefst þáttur-
inn kl. 21.25 og er 35 mfnútna
langur. Nefnist hann 1
kjallaranum og er umsjónar-
maður þessa þáttar örn Peter-
sén. í þessum fyrsta þætti koma
fram Diabolus in Musica sem
skipuð er þeim Aagot Vigdísi
Óskarsd- Uur, Guðmundi
Thorc .dsen, Jóhönnu Þórhalls-
dóttur, Jóni Sigurpálssyni,
Jónu Dóru Óskarsdóttur og Páli
Torfa önundarsyni. Þá kemur
einnig fram í þessum þætti
Bergþóra Árnadóttir.
Guðmundur Thoroddsen,
einn félaga Diabolus, sagði að
honum þætti talsvert erfitt að
gera grein fyrir hvers konar
músik það væri sem Diabolus
flytti. Hann hefði hrærzt svo
lengi f þessu að það væri svolít-
ið erfitt að skilgreina þetta. „Þó
má kannski útskýra þetta sem
einhvers konar sambland af
revíumúsik með tóluverðri
klassískri útsetningu og að
mörgu leyti svona léttri
sveiflu," sagði Guðmundur.
Þá sagði Guðmundur að
Diabolus flýtti fimm lög í
þættinum. Var tekin upp mynd
og hljóð jafnt og engin atriði
endurtekin. Þátturinn er tek-
inn þannig upp að það er eins
og hljómsveitin sé að æfa í þess-
um kjallara fyrir konsert sem
flytja á um kvöldið. Lögin eru
öll utan eitt eftir félaga
Diabolus. Sagði Guðmundur að
einhver einn ætti e.t.v. hug-
myndina en meðferðin þróaðist
hjá hljómsveitinni.
Fyrsta lagið er eins konar
draugalag og er úr þjóðhátíðar-
svftu.Heitir lagið Hvín f rjáfri
11 alda. Næsta lag nefnist Yf-
ir skammt er kallst samt
Timbuktu hjá félögum hljóm-
sveitarinnar. Segir þar frá
leitandi manni sem fer víða
(m.a. til Timbuktu) en leitar
e.t.v. langt yfir skammt. Þá flyt-
ur Diabolis Meðallag sem er að
sögn Guðmundar fornt og með
þungum takti. Siðasta lagið er
svo það lag sem ekki er eftir
hljómsveitina. Nefnist það
Gaggó-gæi og er eftir Björn
Jónasson. Lagið hefur að sögn
Guðmundar tekið miklum
breytingum frá þvf að það var
fyrst flutt fyrir fáum árum.
Að lokum sagði Guðmundur
Thoroddsen að öll væru þau í
Diabolus miklir jassunnendur
og e.t.v. mætti heyra slfk áhrif í
flutningi þeirra.
Þá eru einnig flutt f þessum
þætti lög eftir Bergþóru Árna-
dóttur og annast hún það sjálf.
Eru þetta þrjú lög en í tveimur
þeirra nýtur Befgþóra aðstoðar
Páls Torfa önundarsonar við
undirleik.
Þessar þrjár hnátur eru f Diabolus in Musica. T.f.v. Jóna Dóra,
Aagot og Jóhanna.