Morgunblaðið - 15.04.1976, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. APRIL 1976
43
Reykjavíkumiót bama
í svigi m stórsvigi
o o ö
REYKJAVÍKURMÓT á skiðum
fyrir börn 12 ára og yngri fer
fram n.k. laugardag og sunnu-
dag í Bláfjöllum. Verður keppt
i svigi fyrri daginn og hefst sú
keppni kl. 12.00, en í stórsvigi
seinni daginn og hefst keppni
þá kl. 12.00. Nafnakall er
klukkustundu fyrir keppni.
Þá efnir Armann til
byrjendamóts á páskadag í Blá-
fjöllum og hefst það kl. 15.00.
Hefst innritun i það kl. 13.00.
Þess má svo geta að skiða-
kennsla verður á vegum
Armanns í Bláfjöliunum um
páskana, þá daga sem viðrar til
þess. Hefst kennslan kl. 14.00
og stendur til kl. 15.30. Innrit-
un fer fram hálfri klukku-
stundu áður en kennslan hefst.
mót á vegum IBK
1 TILEFNI af 20 ára afmæli .
Iþróttabandalags Keflavikur
mun körfuknattleiksráð IBK
efna til hátiðarmóts í körfu-
knattleik um páskana.
Mótið fer fram i íþróttahúsi
Njarðvikur dagana 18. og 19.
apríl. Fyrri daginn fara fram
leikir í 4., 3. og 2. flokki og eru
þátttakendur frá Grindavík,
Garði, Keflavik og Njarðvík.
Seinni daginn hefst mótið kl. 11
f.h. með úrslitaleikjum i 4. og 3.
flokki, en kl. 13.30 hefst hrað-
mót í meistaraflokki.
Þátttakendur i þvi móti eru
UMFN, Valur, IBK og Grinda-
vík. Leikir Vals og UMFN I
síðasta íslandsmóti voru mjög
jafnir og spennandi og má því
búast við mjög skemmtilegri
keppni milli þeirra. Lió Grinda-
víkur hefur verið gott í vetur,
og lék það m.a. til úrslita í 2.
deild.
Íþróttahátíð á Akranesi
IÞRÓTTABANDALAG Akra-
ness er þrjátiu ára um þessar
mundir. Af því tilefni gengst
IA fyrir mikiu fþróttamóti um
páskana. Hefst mótió á mið-
vikudagskvöld f Bjarnarlaug,
en þar fer fram Akranes-
meistaramót f sundi. A fimmtu-
dag fer fram frjálsfþróttamót
ínnanhúss meó þátttöku
fþróttafólks úr UMSK og IA og
þá fer efnnig fram knatt-
spyrnuleikur milli tslands-
meistara IA og bikarmeistara
IBK.
Á Iaugardag verður opið golf-
mót á golfveilinum, en á
íþróttavellinum fer fram
bæjarkeppni i knattspyrnu í
öllum yngri flokkunum milli
Akraness og Kópavogs.
A sunnudag verður leikið til
úrslita f badmintonmeistara-
móti Akraness og hraðmót
verður f körfuknattleik. Verða
islandsmeistarar Armanns þar
meðal þátttakenda.
Á mánudag verður borð-
tennismeistaramót Akraness,
hraðmót í blaki og taka þátt i
þvi nokkur af beztu liðum
landsins og einnig verður hrað-
mót i handknattleik og eru þar
meðal þátttakenda lið FH, Vals
og Víkings. Munu mótsslit
einnig fara fram þennan dag,
en fyrirhugað er að halda
afmælishóf sunnudaginn 24.
aprfl.
Stjórn ÍA skipa nú: Rik-
harður Jónsson, formaður, Þor-
steinn Þorvaldsson, Ingólfur
Steindórsson, Hörður Sverris-
son, Jón Runólfsson, Benedikt
Valtýsson, Guðjón Finnbogason
og Friðjón Eðvarðsson.
Gengu af velli
LEIKUR Stjörnunnar og Þórs frá
Þorlákshöfn f Stóru-bikarkeppn-
inni um sfðustu helgi var allsögu-
legur, þar sem þjálfari annars
liðsins, Þórs, kallaði sfna menn af
velli f seinni hálfleiknum til að
mðtmæla dómgæzlunni. Var þá
staðan f leiknum 2—1 fyrir Þór,
en sennilega tapast þeim leikur-
inn fyrir vikið. Um helgina léku
einnig Vfðir úr Garði og Grótta f
Stðru-bikarkeppninni og lauk
þeim leik með sigri Vfðis 3—2, en
Vfðir hafði haft 3—0 forystu unz
5 mfnútur voru til leiksloka.
Drengjahlaup
Armanns
DRENGJAHLAUP Ármanns fer
að venju fram fyrsta sunnudag í
sumri, 24. apríl n.k. Verður
hlaupið á félagssvæði Ármanns
við Sigtún. Keppt verður f nokkr-
um aldursflokkum.
KR
AÐALFUNDUR badminton-
deildar KR verður haldinn i KR-
heimilinu þriðjudaginn 20. apríl
n.k. og hefst kl. 20.30.
Magnea Magnúsdóttir hefur varið vftakast Jóhönnu Halldórsdóttur
sem labbar vonsvikin burtu.
MAGNGA VARÐI TVð VÍTAKÖST
IHÍ l>\« FMDIÍILMAWITITIIJW
Vitakastakeppni þurfti til þess að
fá fram úrslit I bikarkeppni kvenna I
handknattleik, er Fram og Ármann
mættust I fyrrakvöld. Var staöan I
leiknum jöfn eftir venjulegan leik-
tlma og eftir framlenginguna, en Ár-
mannsstúlkumar höfSu betur I vita-
kastakeppninni, skoruöu úr öllum
fimm köstum sinum. en Framstúlk-
unum mistókst hins vegar tvivegis.
VerSur ekki annað sagt en aS i meira
lagi sé hæpiS aS útkljá úrslitaleik i
bikarkeppni á þennan hátt og er von-
andi aS næsta þing Handknattleiks-
sambandsins breyti reglugerS bikar-
keppninnar og reyni i framtiSinni aS
skipa henni verSugri sess en veriS
hefur til þessa.
Ármannsstúlkurnar voru vel að sigri
sinum I leiknum komnar, þar sem lið
þeirra var mun yfirvegaðra i leik sinum
en Fram sem tók óþarfa áhættu þegar
mikils var um vert fyrir liðið að róa leik
sinn og biða eftir tækifærum Sýndi
það sig að dómararnir, Óli Ólsen og
Kjartan Steinbach, létu slika bið
óátalda og hefði verið sjálfsagt fyrir
Fram að leika eftir þeim nótum, þar
sem liðið hafði lengst af forystu i fyrri
hálfleiknum. Staðan i leikhléi var þó
orðin jöfn 5—5, eftir að Ármanns-
stúlkurnar höfðu skorað tvö siðustu
mörk hálfleiksins
í seinni hálfleik var barátta liðanna
mjög jöfn, og var staðan þannig 9—9
þegar langt var liðið á leiktímann Þá
skoruðu Ármannsstúlkurnar tvö mörk
og breyttu stöðunni í 1 1—9, en Fram
tókst að vinna þann mun upp á siðustu
stundu.
Framlengt var i 2x5 mínútur og i
fyrri hálfleik framlengingarinnar skor-
uðu liðin sitt hvort markið, en hins
vegar ekkert mark í seinni hálfleiknum,
þanníg að staðan var 12—12. Kom
þá til vitakastakeppni — fimm skot á
lið, og eftir tvö fyrstu skotin var staðan
enn jöfn 14—14. Þá tókst hinum
ágæta markverði Ármannsliðsins.
Magneu Magnúsdóttur, að verja víta-
skot Jennýar Magnúsdóttur og Magn-
ea varði einnig vitakast Jóhönnu Hall-
dórsdóttur. Ármann skoraði hins vegar
örugglega úr öllum sinum vítaköstum
og vann þvi leikinn 1 7— 1 5.
Beztar í Ármannsliðinu — eins og
svo oft áður — voru þær Guðrún
Sigurþórsdóttir, Erla Sverrisdóttir og
Þórunn Hafstein, en Magnea. sem kom
inná i seinni hálfleik, varði vel og bezt
þegar mest á reið Framliðið lék nú
ekki eins vel og það gerði undir lok
islandsmótsins, og munaði auðvitað
um að Arnþrúður Karlsdóttir gat ekki
leikið með því vegna meiðsla Oddný
Sigsteinsdóttir var atkvæðamest i
Framliðinu, en Jenný Magnúsdóttir
(yngri) átti einnig góðan leik.
Mörk Ármanns skoruðu: Guðrún
Sigurþórsdóttir 7 (3v), Erla Sverris-
dóttir 4 (4v), Þórunn Hafstein 3 (1v),
Sigriður Brynjólfsdóttir 1, Auður
Rafnsdóttir 1 (1v) og Jóhanna Magn-
úsdóttir 1 (1 v)
Mörk Fram skoruðu: Oddný Sig-
steinsdóttir 7 (7v), Guðrún Sverrisdótt-
ir 3, Helga Magnúsdóttir 2 (1v), Jenný
Magnúsdóttir (yngri) 1, Jóhanna Hall-
dórsdóttir 1, Guðríður Guðjónsdóttir 1
(1v). —stjl.
niii kimskiií
badmintonsnillingar
í heimsókn
Tu Teng-fing
Yao Hei-ming
Chur Tao-jung
Yang Lian-ying
Li Ting-ying
Kao Jung-hun
Han Cian
Kas Yin-tang
Yu Chiang-hung
HINN 21. apríl n.k. koma
hingað til lands á vegum
Badmintonsambands tslands
níu klnverskir badmintonleik-
arar, fjórir karlar og fimm
konur, ásamt þjálfara og tveim-
ur fararst jórum. Þessi hópur er
að hefja kynnisferð um
Evrópu, en sem kunnugt er eru
Kfnverjar meðal beztu hadmin-
tonleikara heims.
Kfnverjarnir taka þátt 1 fjór-
um mótum hérlendis, ásamt fs-
lenzkum badmintonleikurum.
Fyrsta mótið fer fram f Laugar-
dalshöllinni fimmtudaginn 22.
aprfl og hefst kl. 14.00. Daginn
eftir fara Kfnverjarnir upp á
Akranes og taka þar þátt f móti
um kvöldið, ásamt badminton-
leikurum frá Akranesi.
Laugardaginn 24. aprfl er
fyrirhugað að Kfnverjarnir fari
til Siglufjarðar og sýni heima-
mönnum listir sfnar f badmin-
ton, en sem kunnugt er eiga
Siglfirðingar marga snjalla
badmintonleikara og áhugi á
fþróttinni er mikill þar. Af
þessari ferð getur þó ekki orðið
nema flugveður verði, þar sem
fyrirhugað er að fljúga fram og
til baka sama daginn.
Sunnudaginn 25. aprfl fer svo
sfðasta mótið fram f Laugar-
dalshöllinni og hefst það kl.
14.00. 1 þeim mótum sem fara
fram munu allir okkar beztu
badmintonleikarar verða
meðal þátttakenda og er það
stefnan að sem allra flestir fái
að taka þátt f mótunum. Verður
gaman að sjá hvernig okkar
fólk stendur f samanburði við
kfnversku snillingana.
Kfnverjar eiga á að skipa
hópi af badmintonfólki sem
talið er að sé f fremstu röð f
heiminum, en þeir eru enn
ekki orðnir aðilar að alþjóða-
sambandi badmintonmanna og
þess vegna hefur borið minna á
þeim á stærstu mótum heims
en ella.
Þess má þó geta, að þeir
tóku þátt f Asfuleikunum fyrir
skömmu og sópuðu þar inn
verðlaunum, en þess ber að
geta að Indónesfumenn tóku
ekki þátt f þvf móti.