Morgunblaðið - 01.05.1976, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAl 1976
45
VELVAKAIMDI
Velvakandi svarar í'símfe 10-100
kl 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags
% Þakkir fyrir
gamanþætti
Ég vil ekki láta hjá líða að
biðja þig fyrir þakkir til Svavars
Gests fyrir leikþættina hans á
sunnudögum undanfarið í vetur.
Svavar er löngu landskunnur
fyrir hversu hann kann að hampa
græskulausu grini. Það sýndu
spurningaþættir hans I útvarpi á
sinni tíð. Oft var ég undrandi •
hversu viðbragðsfljólur hann var
að henda á lofti gaman og glens
eftir að hafa taiað við viðkomandi
þátttakanda og það án þess að
særa. Þetta er ekki öllum gefið að
henda svo á lofti og fyrir utan
hversu spurningar voru vandaðar
og auðskildar. Að semja svona
þætti eins og Svavar hefir gert í
vetur og stjórna þeim er ekki gert
með því að kasta til þess höndum.
Ef til vill er það erfiðasta verkið
að semja gamanþætti, því svo
margs þarf að gæta og þegar þeir
eru samdir fyrir alþjóð er oft
erfitt að blanda saman fortíð og
nútíð.Það þekkja þeir gerla sem
hafa lagt sig niður við að semja
skemmtiefni á góðum stundum.
Auðvitað verður svona efni eins
og hvað annað misjafnt að
gæðum. En hinu skal heldur ekki
gleymt að þær voru ekki margar
mínúturnar sem ekki var gaman
að.
Þeir eru ekki margir
íslendingarnir sem fást við
gamanþáttagerð en það er vin-
sælasta efni sem boðið verður
fólki á hvaða tima, því ber að
þakka það sem vel er gert i þess-
um efnum og þess vegna vil ég
færa Svavari minar beztu þakkir
og vona að hann láti hér ekki
staðar numið. Með sumarkveðju
# Köttur
í hættu
M. Skaftfells skrifar um
ketti:
„Marga hunda og manna dyggð
— má sér aftur veita, — en þegar
ég glata þinni tryggð, — þýðir ei
neitt að leita.“ — sagði Þorsteinn
Erlingsson. Og margur hefur
lofað köttinn i ljóði, enda öllum
til ánægju, sem vel fara með
hann. Og þeir sem segja köttinn
ötryggan, þekkja hann ekki.
Vinum er hann trölltryggur. Og
það er næsta harðneskjuleg
meðferð sem hann þolir ungum
börnum, án þess að beita kló til
varnar. Övitanum er hann mildur,
en ver sig fyrir öðrum. Ætti þetta
ekki að vekja okkur aðdáun og
virðingu? A hverju ári er skotinn
fjöldi heimilislausra katta. Og svo
og svo margir heimiliskettir
hljóta sömu örlög, beinlinis vegna
þess, að þeir eru ekki merktir.
Hverjum heimilisketti ætti því
að gefa þægilega hálsól með sima-
númeri heimilisins. í því er fólið
nokkurt öryggi.
Á þetta hefur oft verið minnzt.
Og þetta hefur verið rætt í hinu
nýstofnaða kattavinafélagi, sem
án þjónustuaðstöðu hefur samt
veitt mikilvæga þjónustu. Mér er
kunnugt um, að form., Svanlaug
Löve, hefur liðsinnt mörgum með
aðstoð bæði héraðs- og yfirdýra-
læknis, svo og konu hans. —
félagatala nálgast nú 160.
Ýmsir telja sérfélaga ekki
þörf. Það er misskilningur.
Stjórn heildarfélags kemst
ekki yfir nema hluta þess, er
gera þarf, því að öll störf eru
unnin í hjáverkum. Með sér-
félöguin ■ dreifast störfin, og
árangur verður meiri. Það ber því
að fagna stofnun hins nýja félags.
Og af henni mun m.a. leiða leið-
beiningarstarfsemi, bæði til
verndar, umhirðu og umgengni
við köttinn, eins og honum ber
réttur til. — Ég segi „réttur til“,
því að hvert dýr hefur rétt til, að
því sé sýnt fullt tillit. —
Það er kominn timi til, að niður
verði fellt úr íslenzkri tungu hug-
takið „skynlaus" i sambandi við
dýr. Þau hafa tilfinningar og vit,
mismunandi, eins og mannskepn-
an. Og þeir sem umgangast ekki
dýr sem skynibornar verur og
virða ekki rétt þeirra til góðrar
aðbúðar, eiga ekki að hafa Ieyfi til
að hafa dýr undir höndum.
Heimilislausi kötturinn á hér
ömurlega ævi. Þar er verkefni,
sem leysa þarf á sem mildastan og
virkastan hátt, i samvinnu við
Dýraverndarfélag Reykjavíkur,
sem auðvitað sinnir þessum
málum í heild. AUGLÝSINGAR:
Oft eru kettlingar auglýstir.
Gefendur óska áreiðanlega að
þeir komist í góðra hendur. En
því miður er á þessu misbrestur,
eins og dæmin sýna. En nú er
óhætt að benda fólki, sem gefa
vill kettlinga, á að snúa sér til
Kattavinafélagsins. Síminn er
14594.
Athuga þarf, hver gerð háls-
banda er bezt, og fá svo einhvern
til að framleiða þau eða flytja inn.
Öll þjönustuaðstaða batnar
þegar spítalinn tekur til starfa.
Keppa verður að því að það verði
sem fyrst. Drátturinn þegar
orðinn Ieiðinlega langur og ekki
vansalaust. — Auðvitað á
spítalinn að vera opinn ÖLLUM
dýrum, sem þar er unnt að sinna.
— Gleymum ekki að tíminn líður
hratt.
P.S. Kattavinir. Mjög falleg
kattarmynd er á forsíðu Dýra-
verndarans. Og snilldarteikning
inni í blaðinu.
Velvakandi birti hér með þessa
mynd, sem Magnús bendir á utan
á blaðinu.
Mér finnst þetta landslag líkjast
einum of mikið sviðinu 1 Macbeth
til að ég geti verið róleg. Held-
urðu ekki að bensfnið dugi. Stður
vildi ég við stæðum hér uppi
bensínlaus.
— Þú tókst bensfn f Barselona.
Þetta er allt í sómanum. Revndu
nú líka að slaka á.
Helen brosti og áfram var ekið.
Hún forðaðist að láta hann sjá
hversu mjög ferðin hafði tekið á
hana. Hún varð að duga honum
fyrst hún hafði tekist á hendur
þessa ferð með honum, en hún
fann að ekki miklu lengur gæti
hún haldið áfram.
David hallaði sér að henni og
þrýsti höndina ástýrinu hlýiega.
— Stoppaöu þarna augnablik,
sagði hann.
Hún hlýddi samstundis.
— Er þér að versna?
— Þú ert alveg að sofna, elskan
mfn, sagði hann. — Ég sá augn-
lokin á þér sfga grunsamlega. Við
skulum koma út úr bflnum og
hvfla okkur.
Þau fundu sér mjúkan stað og
hún breiddi teppi út á jörðina til
að sitja á. Þau lögðust niður og
Helen hvfldi með höfuðið á öxl
Davids og steinsofnaði um leið.
HOGNI HREKKVÍSI
<£
—
L- Jí! ]
- cP '
„Það kemur fyrir að mýs sjást hér í kjallaranum.
Skínandi pottar
og pönnur með
Brillo-sápu
Málverk
Málverk eftir rrokkra þekkta
málara verða til sýnis og sölu í
dag og á morgun í húsi
Iðnaðarmannafélags Suðurnesja,
Tjarnargötu 3 í Keflavík.
Opið báða daga kl. 2-10 e.h.
Nú
bjóðum við
larðhúsgögn
úr eik