Morgunblaðið - 01.05.1976, Qupperneq 48
93. tbl. 63. árg.
LAUGARDAGUR 1. MAl 1976
Humarstofninn á mikilli uppleið:
Heimilt að veiða
2800 lestir í sumar
Sjávarútvegsráðunevtið hefur
ákveðið, að heimilt skuli að veiða
2800 lestir af humri í sumar, og
verða veiðarnar stöðvaðar fvrir-
varalaust þegar því magni hefur
verið náð. 1 fyrra var heimilt að
veiða 2000 lestir, en alls veiddust
þó um 2350 lestir á þeirri vertfð.
I fréttatilkynningu frá sjávar-
Norðursjórinn:
Vilja skipta
kvótanum miili
veiðiskipanna
Eigendur síldveiðiskipa sem
stundað hafa veiðar í Norður-
sjó komu saman til fundar hjá
Landssambandi íslenzkra út-
vegsmanna í fyrradag og
ræddu um hvernig bezt væri
að nýta þann kvóta, sem Is-
lendingum hefur verið útdeilt
þar, en það eru 9.200 lestir í
Norðursjónum og 3000 lestir
vestan 4. gráðu eða samtals
12.200 lestir.
Kristján Ragnarsson formað-
ur L.Í.Ú. sagði í samtali við
Morgunblaðið I gær, að menn
hefðu verið samþykkir, að
skylt yrði að sækja um veið-
arnar fyrir 15. maí n.k. og mik-
ilvægt væri að þeir einir sæktu
um leyfi, sem ákveðnir væru
Framhald á bls, 49
útvegsráðuneytinu segir, að
humarvertíð hefjist 16. maí n.k.
og megi ekki standa lengur en til
7. ágúst n.k.
Humarveiðileyfi verða ekki
veitt bátum, sem eru stærri en
100 brúttórúmlestir. Þó verði
stærri bátum veitt leyfi séu þeir
búnir 400 hestafla aðalvél eða
minni. Miðað verður við báta-
stærð og hestaflatölu vélar eins
og hún er i skipaskrá Siglinga-
málastofnunarinnar, sem gefin
var út í janúar 1976. — Þá segir
að umsóknir sem berist eftir 14.
mai n.k. verði vísast ekki teknar
til greina.
Hrafnkell Eiríksson fiskifræð-
ingur sagði í samtali við Morgun-
blaðið i gær, að humarstofninn
væri greinilega á mikilli uppleið
eftir nokkurra ára takmarkaða
friðun. Þó væru einstaka svæði
Framhald á bls, 47
17. landsþing Slysavarnafélags Islands var haldið 1 húsi félagsins við Grandagarð 1 gær. Þingið sátu
um 130 manns auk gesta. Sjá nánari frásögn af þingsetningunni á bls. 2. — Ljósm : rax.
Artic Corsair varð að fara
heim eftir að hafa siglt á Öðin
— Baldur og Óðinn klipptu í gær
BREZKI togarinn Artie Corsair
sigldi á varðskipið Óðin síðdegis f
gær, þegar varðskipið ætlaði að
skera vírana aftan úr togaranum.
Bæði skipin skemmdust nokkuð,
þó togarinn miklu meira. Gat
kom á stefni togarans, þannig að
sjór átti greiða leið niður f stafn-
hylki og keðjukassa. Áttu togara-
menn fljótlega f erfiðleikum, en
viðgerðarflokkur frá freigátunni
Galatheu var sendur um borð til
að þétta gatið. Gert var ráð fyrir,
að togarinn héldi áleiðis til Eng-
lands s.l. nótt í fvlgd annars
togara eða dráttarskips. Fyrr í
gær tókst Óðni að klippa á vfra
brezks togara og ennfremur tókst
Baldri að klippa á togvíra.
Gunnar Ólafsson talsmaður
Landhelgisgæzlunnar sagði í gær,
að þrjú varðskip hefðu tekið
saman þátt í aðgerðum á
miðunum um 17 milur suður af
Hvalbak, eða við Berufjarðarál.
Þar voru 22 togarar að veiðum og
tii varnar voru 3 dráttarbátar og 4
Framhald á bls. 47
Veruleg hækkun á físk-
blokk í Bandaiikjuiium
FISKVERÐ virðist enn
fara hækkandi á Banda-
I gærkvöldi lét úr höfn sovéska
flutningaskipið Nikolaj
Baumarn með 8000 tunnur af
saltaðri Suðurlandssfld. Þetta
er sfðasti farmurinn, sem af-
skipað er af saltsíldarfram-
leiðslu síðustu vertíðar. Sfldin
er fullverkuð og fer öll, beint í
verzlanir í Sovétrfkjunum í þvf
ástandi. sem hún er afgreidd
héðan.
Ljósm. Mbl. Friðþjófur.
Útflutningsverðmæti saltsíldar 1300 millj. kr.:
Söltuð síld aftur ein af þýðing-
armestu útflutningsafurðunum
I GÆR var lokið við að afgreiða
til útflutnings síðasta farminn af
saltsíld þeirri, sem framleidd var
á sfðustu sfldarvertfð hér sunnan-
lands, sem stóð yfir frá 15.
september til 1. desember s.I.
Þessi sfðasti farmur fer til Sovét-
ríkjanna og er sfldin seld þar f
verzlunum sem fullunnin neyslu-
vara, í því ástandi sem hún er
afgreidd frá Islandi.
Morgunblaðið fékk þær upplýs-
ingar frá Síldarútvegsnefnd, að
heildarframleiðsla saltsíldar á
vertíðinni hefði numið um 95000
tunnum, og mun útflutningsverð-
mæti hennar nema um 1300
milijónum króna. Samkvæmt
þessu er söltuð síld nú aftur orðin
ein af þýðingarmestu útflutnings-
afurðum landsmanna. Hinir
erlendu kaupendur voru að þessu
sinni Sovétmenn, Svíar, Finnar,
V-Þjóðverjar, Danir og Pólverjar.
Síidarsöltunin var framkvæmd
á samtals 16 söltunarhöfnum á
svæðinu frá Seyðisfirði suður og
vestur um til Ólafsvíkur. Af sölt-
unarmagninu voru um 80000
tunnur herpinótasíld og um
15.000 tunnur reknetasíld. Af
herpinótasíldinni voru um 15.500
tunnur saltaðar um borð.
ríkjamarkaði og nú síðast
hefur orðið veruleg hækk-
un á blokk og karfaflökum.
Nemur hækkunin mest um
7% á karfaflökum.
Samkvæmt þeim upplýs-
ingum, sem Morgunblaðið
aflaði sér hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna hefur
Coldwater Seafood Corp.,
dótturfyrirtæki SH i
Bandaríkjunum, enn
hækkað verð til framleið-
enda á íslandi. Kaupir
fyrirtækið nú þorskblokk-
ina á 75 cent í stað 70 áður,
ufsablokkin hefur hækkað
Slitnað upp úr samn-
ingaviðræðum sjó-
manna og útvegsmanna
1 GÆR siitnaði upp úr samninga-
viðræðum sjómanna og útvegs-
manna, og hafa frekari viðræðu-
fundir ekki verið ákveðnir í bráð.
Sjómenn og útvegsmenn hafa að
undanförnu setið á fundum með
sáttasemjara, en árangur hefur
enginn náðst.
úr 46 centum í 52 cent,
karfablokkin úr 73 centum
í 75 cent og ýsublokkin úr
70 centum í 75 cent.
Fiskur í neytendaumbúðum, að
Framhald á bls, 47
Þörunga-
vinnslan
tekin til
starfa
Miðhúsum, 30. apríl.
ÞÖRUNGAVERKSMIÐJAN
hefur tekið til starfa eftir
vetrarhvíldina. Aukið hefur
verið við sláttuflotann og fimm
nýir lallar hafa verið keyptir
og eru þeir nú 11 talsins.
Einnig hafa nokkrir bændur
hafið handskurð á þangi og
eru sigðir notaðar við skurð-
inn.
Síðan er þangið látið í net og
er það dregið að verksmiðju.
Bændur fá 3 kr. á hvert skorið
kiló.
Sveinn.