Morgunblaðið - 11.05.1976, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAI 1976
Konur fylgjast
betur með
hártízkunni
Húsfyllir í Sigtúni á sýningu Sambands
hárgreiðslu- og hérskerameistara
UARGRKIÐSIAJMEISTARAR
oj; hárskerar Iroðfvlllu Sif;(ún
á sunnudag, þcgar þar var hald-
in sýning á nýjuslu hárlí/k-
unni, scm tí/kufrömuðir I úl-
landinu hafa vcrið að kokka
(i|>|) á síökasliö. l>aö var Sam-
band hárgreiðslu- og hárskera-
incislara sem slóð að sýning-
unni, «g eflir aðsókninni að
da'ma virðist sem landanum sé
luluvert annl um hárið sill, því
að þarna voru um eill þúsund
nianns að fvlgjast með sýning-
unni. Alls var sýningarfólk um
90 lalsins og í kringum 60
meislarar.
Ilerralínan vakti ekki
minnsta athygli gesta, þvi að
hún er hin fjölbreyttasta og
siða hárið virðis! nú algjörlega
vera að vikja. Eftir því sem
Vilhelm Ingólfsson, formaður
Meistarafélags hárskera, tjáði
Morgunblaðinu, eru íslen/.kir
karlmenn yfirleitt seinir á sér
og venjulcga 2—3 árum á eftir,
og því fróðlegt að sjá hvernig
þeir hregðast við hinni nýju
linu. Hársíddin í hinni nýju
línu í sumar er niður undir
eyrnasnepil i vöngum, siðara að
aftan og allþykkt og mjög stutt
að ofan. Hins vegar voru áber-
andi i kvennalinunni stuttar
klippingar og rauður háralitur.
Vilhelm Lúðvíksson klippti tvo svni sína, Kristján Pétur, 5 ára, og
Ingólf, 15 ára, fvrir sýninguna. Klippingin er sótt I hina frönsku og
ensku línu og kallast „kiek-off“. llefur hún verið vinsæl undan-
farið.
Sýnishorn af því nýjasta í hártf/ku kvenna.
Þetta er nýjasta tí/ka í herraklippingu.
Hártízkan nú kemur sem fyrr
aðallega frá Frakklandi og Eng-
landi, enda voru það fulltrúar
þessara þjóða sem stóðu sig
bezt á heimsmeistarakeppninni
i New York fyrir fáeinum
vikum, en þessar línur sem
sýndar voru í Sigtúni eru að
miklu leyti þaðan komnar, eftir
því sem Vilhelm sagði. Vilhelm
sagði, að allflestir íslenzkir hár-
greiðslumeistarar og hárskerar
reyndu að fylgjast sem bezt
með hræringum í tízkuheim-
inum úti og kvaðst hann t.d.
sjálfur kaupa 5—6 fagblöð frá
jafnmörgum löndum til að vera
með á nótunum. „Það er nánast
útilokað að vera hárskeri núna
án þess að fylgjast með þvi sem
er að gerast frá mánuði til mán-
aðar,“ sagði hann, „enda þótt að
sé engan veginn auðvelt að inn-
leiða hér nýja tízku."
Vilhelm fullyrti í þessu sam-
bandi, að islendingar, og þá
einkanlega islenzkir karlmenn,
væru minnst tveimur árum á
eftir i hártizku miðað við það
sem gerðist í nágrannalönd-
unum. „Það er áberandi hjá
karlmönnum, að þeir koma inn,
setjast i stólinn og biðja um
klippingu, en allstaðar úti hins
vegar þekkist ekki annað en að
menn fái sér hárþvott, klipp-
ingu auðvitað og síðan þurrkun
— fyrr er klippingin ekki full-
komnuð. Og hér þýðir sjaldnast
að sýna mönnum tízkublöð, þeir
þora ekki að breyta til.“
Konur hér á landi fylgjast
hins vegar miklu betur með og
eru fyrri til að tileinka sér hár-
tízkuna, enda sagði hann, að á
sýningu þeirra í fyrradag hefðu
konur einmitt verið í miklum
meirihluta en lítið sézt af karl-
mönnum. „Það getur samt haft
sínar jákvæðu hliðar fyrir
okkur hárskerana, því að eigin-
konur eða mæður kunna að
hafa áhrif á menn sína og syni.“
Á næsta ári er mikið verkefni
framundan hjá samtökum hár-
greiðslumeistara og hárskera,
því að þá á að halda Norður-
landamót í Laugardalshöllinni i
hárskurði og hárgreiðslu.
„Fyrir svona fámenn samtök er
þetta auðvitað feiknalegt fyrir-
tæki, þvi að á mótinu koma
fram i kringum 500 manns. Við
stóðum okkur vel á síðasta
móti, þvi að ef þarna hefði
verið reiknuð út sveitakeppni
hefðum við áreiðanlega verið í
efstu sætunum, því að við
vorum með hvað jafnbeztu
keppendurna," sagði Vilhelm.
„Samtök okkar hafa lika lagt
geysilega mikið af mörkum til
þessa, þar sem við höfum alltaf
tvisvar á ári fengið hingað upp
toppmenn á sviði hárskurðar og
hárgreiðslu, ýmist Norður-
landameistara eða Evrópu-
meistara, sem hér hafa haldið
bæði sýnikennslu og námskeið.
Árangur þess er nú að skila
sér.“
Ljósmynd ÓI.K.M.
Sigurður Jónsson hafnarst jóri í Þorlákshöfn var fundarstjóri á fundin-
um og sést hann hér í ra'ðustól.
Elín Skeggjadóttir
kjörinn formaður ÝR
Erlingur Vigfússon óperu-
söngvari heldur siingskemmtun
Á laugardaginn komu aðstand-
endur starfsmanna Landhelgis-
gæzlunnar saman í Slysavarna-
félagshúsinu á Grandagarði. Þar
var formlega gengið frá stofnun
félags þessa fólks og hlaut það
nafnið YR. Formaður YR var
kjörin Elín Skeggjadóttir.
Elín, sem er gift Þorvaldi
Axelssyni skipherra sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
markmið félagsins væri: „Velferð
starfsmanna Landhelgisgæzl-
unnar og heimila þeirra.“
Að sögn Elínar komu um 70
Framhaid á bls. 29
ERLINGUR Vigfússon óperu-
söngvari heldur söngskemmtun í
Austurbæjarbíói í kvöld, þriðju-
dag, og hefst hún kl. 19. Undirleik
annast Ragnar Björnsson, en á
efnisskránni eru lög eftir ítölsk,
þýzk og íslenzk tónskáld.
Erlingur hóf söngnám 1958 hjá
Sigurði Franzsyni Demetz, en fór
Vitni vantar
FÖSTUDAGINN 7. maí var ekið á
bifreiðina B-812, sem er Tovota,
rauð að lit, þar sem hún stóð við
Snorrabakarí I Hafnarfirði. Gerð-
isf þetta á tfmabilinu frá kl. 6 að
morgni til kl. 3.
Þá var sunnudaginn 9. mai ekið
á utan í bifreiðina G-2632, sem er
óransgul sendiferðabifreið af
Volkswagengerð. Gerðist þetta á
timabilinu frá kl. 14 til 16, þar
sem bifreiðin stóð utan við
Hverfisgötu 45, fyrir utan Halla-
búð.
Báðir tjónvaldarnir stungu af
og eru það eindregin tilmæli
rannsóknarlögreglunnar i
Hafnarfirði, að þeir sem upplýs-
ingar geta gefið gefi sig fram, og
þá ekki síst þeir sem tjóninu ollu.
siðan til ítalíu þar sem hann nam
hjá þekktum kennara, Renato
Pastorini í Milanó. Árið 1966
innritaðist hann i Reinische
Musiekschule i Þýzkalandi og
eftir nám þar var hann í óperu-
skóla Kölnaróperu í tvö ár. Með
náminu þar söng hann einnig
minniháttar hlutverk við Kölnar-
óperuna.
Hann réðst til óperunnar í
Bonn árið 1971 en ári síðar var
hann svo fastráðinn við óperuna i
Köln, þar sem hann starfar enn.
Hann syngur þar um 30 hlutverk
árlega, bæði stærri og smærri og
hefur ferðast með óperunni viða
um heim.
Sjónvarpsmynd
Í TEXTA með mynd af
freigátunni Falmouth, sem birtist
hér í blaðinu síðastliðinn laugar-
dag, var nafn myndasmiðsins,
Haralds Friðrikssonar, skilmerki-
lega tíundað. Hins vegar láðist að
geta þess að myndin var tekin á
vegum fréttastofu sjónvarps, sem
góðfúslega heimilaði Morgunblað-
inu birtingu hennar.
Stjórnmálasam-
band við Albaníu
ÁKVEÐIÐ hefur verið að taka
upp stjórnmálasamband við
Alþýðuiýðveldið Albaníu.
Albanía óskaði eftir að taka upp
stjórnmálasamband við ísland
„og við neitum aldrei" — eins og
Hörður Helgason sagði við Mbl.
Enn hefur ekki verið ákveðið,
hvenær albanski sendiherrann
kemur til íslands né hver hann
verður. Þá hefur heldur ekki
verið ákveðið, hver verður sendi-
herra islands í Albaníu.