Morgunblaðið - 11.05.1976, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAl 1976
17
— Hraðað verði
Framhald af bls. 15
synlegt slíkt er vegna mikils álags
á Slysavarðstofunni.
Aðalfundurinn skorar á borgar-
yfirvöld að fjölga nú þegar dag-
vistunarstofnunum, þ.e. dag-
heimilum, leikskólum og skólaat-
hvörfum.
Heilbrigðismál.
Aðalfundur Bandalags kvenna í
Reykjavík, haldinn dagana 8. og
9. febrúar 1976 beinir þeirri
áskorun til heilbrigðisyfirvalda,
að hraðað verði eftir megni upp-
byggingu heilsugæslustöðva í
Reykjavík.
Aðalfundur Bandalags kvenna í
Reykjavík beinir þeirri áskorun
til menntamálaráðuneytisins og
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins, að nám í sjúkra- og
iðjuþjálfun við Háskóla íslands
hefjist næstkomandi haust.
Aðalfundur Bandalags kvenna i
Reykjavík lýsir stuðningi við
framkomna tillögu frá Heii-
brigðismálaráði Reykjavíkur, sem
fram kom 16. janúar s.l. svohljóð-
andi:
Heilbrigðismálaráð fagnar fram-
kominni þingsályktunartillögu,
er fjallar um aðgerðir hins opin-
bera til að hamla gegn tóbaks-
reykingum.
Ráðið væntir þess fastlega, að
tillaga þessi hljóti afgreiðslu á því
þingi er nú situr.
Heilbrigðismálaráð telur, að
róttækra aðgerða sé þörf, ekki síst
til að stemma stlgu við hinum
stórauknu reykingum meðal
skólanemenda og telur, að bann
við sölu tóbaks til barna og ungl-
inga á grunnskólaaldri sé áhrifa-
ríkasta aðgerðin i þessu efni.
Aðalfundur Bandalags kvenna í
Reykjavík skorar á borgaryfir-
völd að hraða byggingu húsnæðis
fyrir aldraða. Jafnframt beinir
fundurinn þeirri áskorun til
borgarstjórnar að hafist verði
sem fyrst handa um að koma upp
fámennum vistheimilum fyrir
aldrað fólk, sem þarf á aðstoð og
hjúkrun að halda og að stofnsett
verði dagheimili fyrir aldraða.
Aðalfundur Bandalags kvenna í
Reykjavik skorar á borgaryfir-
völd að koma á fót sem fyrst
hjúkrunarvakt um helgar og að
næturlagi, sem leita má til í
neyðartilfellum, ef ekki er unnt
að fá rúm á sjúkrahúsi. Neyðar-
vakt þessi verði ætluð gömlu fólki
og einstaklingum sem búa einir.
Aðalfundur Bandalags kvenna í
Reykjavík skorar á hið háa
Alþingi að láta Styrktarsjóð
vangefinna halda tekjustofni
sínum af sölu öls og gosdrykkja
og fjórfalda þá upphæð frá nú-
gildandi ákvæðum.
Kirkjumál.
Aðalfundur Bandalags kvenna í
Reykjavík, haldinn dagana 8. og
9. febrúar 1976 ályktar eftir-
farandi:
Aðalfundurinn telur fráleitt að
til komi aðskilnaður ríkis og
kirkju eins og nokkuð hefur verið
rætt í sambandi við breytingar á
stjórnarskránni.
Aðalfundurinn leggur áherslu
á, að enn meiri samvinnu væri
þörf milli kirkjunnar og hins
opinbera. T.d. væri eðlilegt, að
Reykjavíkurborg byggði safnað-
arheimilin með söfnuðunum og
ræki þar ýmsa menningarstarf-
semi í samvinnu við kirkjuna.
Aðalfundurinn vill sérstaklega
benda á þann mikla starfsaðstöðu-
mun, sem ríkir milli embættis-
manna kirkjunnar og annarra
opinberra embættismanna, þar
sem embættismenn kirkjunnar
verða flestir að skapa sér starfs-
aðstöðu.
Aðalfundurinn fagnar því, að
sóknargjöld skuli hafa verið
hækkuð en bendir á að enn
skortir mikið á, að sú hækkun sé í
samræmi við hækkanir á öðrum
sviðum.
Aðalfundurinn skorar á Alþingi
að gefa fjármálum kirkjunnar
meiri gaum. Sérstaklega bendir
fundurinn á, að endurskoða þurfi
frumvarp til laga um sóknargjöld,
sem lagt var fyrir Alþingi á síðast-
liðnu ári, þannig að tekjur kirkj-
unnar séu færðar til samræmis
við raunhæft verðlag á hverjum
tíma.
Aðalfundur Bandalags kvenna I
Reykjavík haldinn 8. og 9.
febrúar 1976, beinir þeirri
eindregnu ósk til stjórnarnefndar
ríkisspitalanna og yfirlæknis
kvensjúkdóma og fæðingar-
deildar Landspitalans, að útbúin
verði lítil kapella í byggingu
deildarinnar og með þeim hætti,
að sómi sé að.
Kvenskór
í miklu úrvali
Litur svart og hvítt
Verð 3.700,-
Litur rauður og brúnn
Verð 5.840 -
Litur brúnn
Verð 3.830,-
Skóbær
Laugaveg 49,
sími 22755
Póstsendum.
B/acks. Decken
SUMARIÐ
ER KOMIÐ
\B«D\
/
j
VERIÐ VEL UNDIRBUIN
FYRIR SUMARID
cSi
s
HÖFUM FYRIRLIGGJANDI
HINAR VINSÆLU RAFKNÚNU
GARÐSLÁTTUVÉLAR
ÖDYRAR, LÉTTAR,
HANDHÆGAR
LEITIÐ UPPLÝSINGA Á NÆSTA ÚTSÖLUSTAÐ
G. Þorsteinsson & Johnson
ÁRMÚLA 1 - SÍMI 85533
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
t2
ÞU AUGLYSIR UM ALLT LAN'D ÞEGAR
Þl Al'GLYSIR I MORGUNBLADINU
ding-dong
Dyrabjallan er einskonar
andlit hússins, vandið því
valið og lítið á okkar
mikla úrval.
Hjá okkur færð þú flest-
allar Ijósaperur, einnig
raftæki og efni til raf-
lagna.
Rafvirkjár á staðnum.
RyVFVCRUI?
Laugarnesvegur 52 Sími 86411
LAUGARNESVFGIJF