Morgunblaðið - 25.07.1976, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 25.07.1976, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JULl 1976 Friðrik jafntefli —Guðmundur í bið Skinnbáturinn Brendan í Bátanausti við EHiðavog. Brendan sjósettur á ný á mánudaginn SKINNBÁTURINN Brendan verður sjósettur á nýjan leik í Elliðavogi á mánudaginn, en bátsmenn hafa nú lokið við að smyrja húðirnar, sem báturinn er gerður úr, með feiti, og eru nú um helgina að leggja síðustu hönd á undirbúning ferðarinn- ar til Grænlands. Tim Severin leiðangursstjóri sagði í samtali við Mbl. í gær að bátsmenn yrðu reiðubúnir til að halda af stað á þriðjudagskvöld, en nokkuð ylti á veðráttu, hvenær i þeir gætu haldið af stað. Sagði hann að þeir þyrftu helzt að fá hagstæðan austanbyr í 2—3 daga þegar þeir leggja af stað til þess að komast strax vel frá landinu. Severin sagði að dvöl bátsmanna hér hefði verið mjög ánægjuleg. Þeim hefði verið boðið að Bessastöðum á fimmtudag ásamt nokkrum Is- lendingum, sem verið hefðu þeim hjálplegir, og sagði Sever- in að þeir væru forseta íslands þakklátir fyrir gestrisni hans og áhuga á ferð þeirra. Hann sagði ennfremur að fjöldi ís- Ienzkra barna hefði komið í bát- inn til þeirra í Bátanaustum og rétt þeim hjálparhönd og hefðu bátsmenn haft gaman af þeim heimsóknum. Að endingu vildi Severin koma á framfæri þakk- læti til forstöðumanna og starfsmanna Bátanauts fyrir að láta bátsmönnum endurgjalds- laust í té aðstöðu og ýmsa að- stoð í Bátanausti. Mikil atvinna á Raufarhöfn SÍÐASTA umferðin á IBM- skákmótinu í Hollandi var tefld f gærmorgun. Friðrik gerði þá jafntefli við Sax en Guðmundur á tvísýna skák á móti Ligterink. Önnur úrslit f sfðustu umferðinni urðu þau, að Langeweg vann Szabo, Ivkov og Korehnoj gerðu jafntefli, og einnig Velimirovie og Gipslis. Aðrar skákir fóru f bið. Þá tapaði Guómundur skák sinni gegn Sax í umferðinni næst MORGUNBLAÐINU hefur borizt samþvkkt almenns fundar í Sál- fræðingafélagi íslands vegna kjaramála: „Kundurinn lýsir yfir megnri óánægju vegna úrskurðar kjara- dóms í launamálum sálfra'ðinga. Einnig átelur fundurinn harölega vinnubrögð fjármálaráðuneytis í nýafstöðnum samningum. — Sál- fræðingafélag Islands vill einkum beina athygli að eftírfarandi atriðum: I. Vilji fjármálaráðuneytis til samninga virtist nánast enginn. Kröfugerðum var svarað örfáum dögum áður en málið átti að ganga til kjaradóms. Lögðu samn- Söngskemmtun á Vopnafirði Vopnafirði 24. júlí. FYRR í sumar kom Karlakór- inn Jökull frá Höfn í Horna- fírði í heimsókn til Vopnafjarð- ar og hélt söngskemmtun í fé- lagsheimilinu Miklagarði. Var húsið þétt setið og gerðu heima- menn góðan róm af flutningi kórsins, sem var hínn vandað- asti í alia staði. Þurfti kórinn að endurtaka mörg lög og dróst því söngskemmtunin nokkuð á langinn. Á eftir var stiginn dans af miklu fjöri. Var það samdóma álit heimamanna, að heimsókn þessi hefði öll veríð hin ánægjulegasta. Stjórnandí kórsins er Sigjón Bjarnason, en undirleikar er Máni Sigurjóns- son. . Gunnlaugur. 198 hvalir á land SAMKVÆMT upplýsíngum frá Hvalstöðinni hafa nú .veiðzt um 19S hvalir og skiptist veið- in þannig að fengizt hafa 3 sandreyðar, 16 búrhveli og 179 langreyðar. Þetta er mjög svipaður fjöldi og var kominn á land um þetta leyti í fyrra, en veiðin þá hóf§t liölega hálfum mánuði seinna. Verið hefur jöfn veiðí fram til þessa en lélegt skyggni á mið- unum hefur háð veiðum nokk- uð á köflum. á undan. Staðan er nokkuð óljós vegna fjölda biðskáka, en .Korchnoj er efstur með 9V4 vinning, Sax er með 9 vinninga, Miles með 8‘/5 og biðskák, Velimirovic H‘/i, Szabo er með 8 vinninga, Farago og Böhm með 7Ví> og biðskákir, Gislis með 7H, Kurajica með 7 og biðskák, Kriðrik og Ivkov með 7 vinninga og Guðmundur og Ree með 6!ð og eina biðskák hvor. ingamenn fjármálaráðuneytis fram tilboð, og gáfu þeir til kynna að það væri endanlegt, enda hefðu þetr ekki umboð til frekari samninga. 2. Ekki verður annað séð en kjaradómur þverbrjóti lög, þar sem ekki virðist tekið neitt tillit til viðmiðunar við almennan vinnumarkað i nýföllnum dóm- um. 3. Ekki hefur verið tekið tillit til sjálfsagðra krafa'S. I. um feið- réttingu á launaflokkum til sam- ræmis við önnur aðildarfélög B. H. M. 4. I fjölmiðlum undanfarið hefur komið fram að heilbrigðis- stéttir fái 1. launaflokks hækkun nú þegar og siðan hina almennu hækkun er koma á til fram- kvæmda 1. jan. næstkomandi. Ut frá einhverjum annarlegum sjónarmiðum hefur kjaradómur ekki fiokkað sálfræðinga ríkis- spitalanna undir heilbrigðisstétt- ir þessu sinni og því ekki um neina slika hækkun að ræða til þeirra. Vinnubrögð fjármálaráðuneytis og kjaradóms hafa verið slíkut skrípaleikúr, að S. 1. telur að við slíkt verði ekki lengur unað. Það er þvf eindregin afstaða S. í., að hraða þurfí mjög umræðum um samningsréttarmál, og vínna þurfi að fullum verkfallsrétti til handa öllum aðildarfélögum B.H.M Kropp hjá loðnuskipum Sigurður með 700 lestir AKLI loðnuskípanna var ekki mikill i fyrrínótt, en þó er Morg- unblaðinu kunnugt um 4 skip, sem héldu til lands með góðan afla, og nokkrir aðrir voru komnir með allsæmilegan afla í gærmorg- un. Sem fyrr gengur skipunum illa að ná loðnunni og fást að meðaltali 20—30 tonn í kasti. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðið fékk hjá Loðnunefnd i gærmorgun, var vitað um Hákon ÞH á leið til Vopnafjarðar með 350 lestir og Rauðsey á leið til Akraness með 400 lestir. Ennfremur var vitað að Sigurður RE var búinn að fá 700 lestir og ætlaði skipið með aflann til Neskaupstaðar og Reykjaborg var komin með 400 lestír. Loðnuskipin voru að veiðum um 100—120 sjómílur norður af Siglunesi. Mikilatvinna á Eskifirði Eskifirði 24. júlí. MIKIL atvinna er hér á staðnum um þessar mundir og smærri bát- ar eru farnir að afla sæmilega. T.d. kom litill bátur inn í morgun með 11 lestir, sem fengust á Raufarhöfn 24. júlí. HER ER nú verið að undirbúa Ioðnumóttöku af fullum krafti. Unnið er að því að koma fyrir löndunarkrönum, þar sem ekki má lengur dæla loðnunni á land. Ef eitthvað af loðnu berst hingað á næstunni er Ijóst að um mann- eklu verður að ræða á staðnum, þar sem mikil atvinna er og hefur verið f sumar á Raufarhöfn. Afli smærri báta hefur glæðzt nokkuð að undanförnu og skuttogarinn Rauðinúpur mun vera búinn að tveimur sólarhringum i botn- vörpu. Þá er mjög mikið um bygg- ingarframkvæmdir og á sumrinu hefur verið úthlutað 19 einbýlis- húsalóðum, einnig er fjölbýlishús og nýr barnaskóli i byggingu. Nýr bátur var keyptur hingað fyrir skömmu. Heitir hann Þor- steinn. Skipstjóri og eigandi er Ingvi Rafn. Fréttaritari. landa 1500 tonn frá því um ára- mót. Það er unnið alla daga f frystihúsinu og stundum langt fram á kvöld. Miklar skipakomur hafa verið hér í vor og sumar. Stundum hafa verið 2—3 skip í höfninni og hef- ur það ekki átt sér stað síðan á síldarárunum. Ástæðan fyrir þessu er sú, að öllum varningi, sem á að fara til eða frá Kópa- skeri og Axarfirði fer nú um höfnina hér. Nokkur ferðamannastraumur er nú á Raufarhöfn og á hótel Norðurljós eru yfirleitt alltaf ein- hverjir útlendingar, sem stunda veiði í ánum hér í kring. Annars hefur laxveiði verið nokkuð treg það sem af er sumrinu, en heldur hefur hún glæðzt síðustu daga. Virðist laxinn vera eitthvað seinna á ferðinni en í fyrra. Fréttaritari. Mikið mal- bikaðíNes- kaupstað Neskaupstað 24. júlí. MIKIÐ hefur verið unnið að gatnagerð f Neskaupstað í sumar og er nú búið að malbika alla strandgötu bæjarins. Þá er búið að malbika kringum frystihús Síldarvinnslunar og koma þar upp grasflöt á milli. Lóð frystihússins er því orðin glæsi- leg á að líta. Talið er að gatnagerðarframkvæmdirnar kosti um 40 milljónir króna, en það er fyrirtækið Miðfell hf., sem sér um framkvæmdir. Mjög gott veður var í Neskaupstað í morgun og eins var í gær. Tíð hefur verið góð i sumar, þótt hún hafi ekki verið eins afburðagóð og s.l. sumar. Afli Norðfjarðarbáta hefur verið frekar tregur það sem af er sumrinu. Trillur fá lítinn sem engan afla á grunnslóð og ef eitthvað á að fást verður að sækja út fyrir 12 mílurnar, bezta afla hafa bátarnir fengið um 18 sjómílur frá landi. fréttaritari. Vallarsmyglið: f Afengismagnið orðið 20 kassar MEIRA áfengi hefur komið i leit- irnar við rannsókn smyglmáls þess á Keflavíkurflugvelli, sem Morgunblaðið skýrði frá fyrr í vikunni. Liggur nú nokkurn veg- inn fyrir að um 20 kössum af áfengi hefur verið smyglað út af vellinum eða alls um 240 flöskum. Grunur leikur á að einhverju hafi I verið dreift til Reykjavikur, og er jnú verið að kanna það frekar. Einn maður situr í gæzluvarð- haldi vegna þessa máls. Lögreglu- aðgerðin: Jeppi FOTUR og fit varð uppi i lög- reglunni í gærmorgun, þegar vökulir löggæzlumenn fundu rússneskan jeppa, sem skilinn hafði verið eftir á næsta ein- kennilegum stað í borginni — á miðjum gatnamótum Baróns- stígs og Egilsgötu. Löggæzlumennirnir árvök- ulu lögðu saman tvo og tvo, og fengu út að allt hátterni jepp- ans þarna á horninu- benti til þess að jeppinn væri stolinn. Þusti nú að allmikið lögreglu- lið og rannsóknarlögreglumað- ur var kvaddur sérstaklega á staðinn til að komast til botns í þjófnaðinum. I þann mund sem rannsókn málsins var að hefjast kom hins vegar hið rétta á daginn. Aðvífandi kom kona og gat gefið skýringar á veru jeppans á þessum stað. Hún hafði ekið jeppanum fyrr um morguninn, og svo óhönduglega tekizt til að jeppinn hafði einmitt orðið olíulaus á þessum stað. Sjálf hafði konan ekki krafta tíl að ýta jeppanum fyrir hornið, og hann þvi staðið þarna meðap hún brá sér frá eftir aðstoð. Sálfræðingar: Vinna þarf að full- um verkfallsrétti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.