Morgunblaðið - 25.07.1976, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1976
11
— Viðtal við
Helga
Björnsson
Framhald af bls. 15
ekið á fullri ferð. í fyrstu
gengu mælingarnar vel. En
skyndilega hætti að fást endur-
kast. — Við héidum að bilun
hefði orðið í tækjunum, sagði
Helgi. En þegar komið var
niður á Tungnaárjökul, fengum
við aftur endurkast. Við sner-
um þá við til að athuga hvað ylli
þessu, meðan annar billinn hélt
áfram niður. Og þaó reyndist
svo, að eftir að við höfðum ekið
nokkurn spöl til baka, hvarf
endurkastið frá botni. Kom þá i
ljós, að tækið, sem við vorum
með, nær ekki dýpra en 450 m.
Það.tæki, sem við nú munum
smiða til mælinga á jöklum á
íslandi, verður öflugra og
næmara. Meðan við vorum að
leita að þessum galla, dróst í
tímann og þegar við komum
niður að Tungnaá kl. 11, var áin
orðin ófær. Við urðum þvi að
skilja snjóbílinn eftir og ganga
langleiðina upp að Kerlingum,
þar sem við gátum vaðið yfir
ána og síðan komizt niður i
skála í Jökulheimum. En það
var smáræði miðað við það, sem
ávannst við töfina. Bíllinn var
svo sóttur siðla nætur, þegar
minna var i ánni.
— Jú, ég er mjög ánægður
með ferðina og það eru brezku
vísindamennirnir lika, svaraði
Helgi spurningu okkar. Þeir
vilja fá að koma aftur næsta
sumar með endurbætt
mælingatæki, til þess að sanna
ennfrekar notagildi tækja
sinna. Við i num skiptast á
upplýsingum. Og við Raun-
vísindastofnunarmenn smiðum
okkar tæki. Með samvinnunni
við Bretana komumst við vel af
stað, en það flýtir fyrir þróun
tækninnar að unnið sé að
tækjasmíð á sem flestum stöð-
um. Við höfum sérþarfir á
þessu sviði á íslandi, sagði
Helgi. Hér höfum við þessa
miklu jökla, sem þarf að mæla á
næsta áratug. Við þurfum aó
gera tækin þannig úr garði, að
við getum mælt bæði úr flugvél
og úr snjóbíl. Því er mikilvægt
aðokkartæknimenn byrji strax
að kynna sér þessa mælitækni,
sem við verðum að þróa á
næstu árum.
I lok samtalsins færðum við i
tal aðrar mælingar, sem
leiðangurinn gerði í ferðinni,
þ.e. að mæla vatnshæðina í
Grímsvötnum. En þau hækka,
sem kunnugt er, árlega þar til
vissu marki er náð og fær vatn-
ið þá framrás og kemur fram
sem hlaup á Skeiðarársandi.
Sagði Helgi, að í Grimsvötnum
hefði nú mælst 1430 m yfir sjó.
— Árið 1960 og 1965 nægði
sú vatnshæð til þess að hlaup
yrði, sagði hann. Þegar hlaupið
varð 1972 var vatnshæðin rúm-
lega 1435 m. Svo að ég held að
ekki geti dregizt fram yfir árið
1977 að Grímsvötn hlaupi. En
margt bendir til að Skeiðarár-
hlaup komi fyrri hluta árs 1977.
Ég held að ég segi að gamni
minu að það verði í marz 1977,
sagði Helgi að lokum, þegar
blaðamaðurinn gekk harðar að
honum að'nefna tímann. Og nú
_skulum við sjá? — E.Pá.
Tvær
fjörugar
skákir
frá Sovét
Nú er nýlokið í borginni
Rostov við Don miklu opnu
skákmóti, þar sem 64 keppend-
ur tefldu 11 umferðir eftir ein-
hvers konar Mondrad-kerfi.
Sigurvegarar urðu þeir A.
Sacharov og V. Karasev, hlutu
9 v. hvor. Sacharov telst hins
vegar einn í efsta sæti þar sem
hann vann sjö skákir, tapaði 2
og gerði 4 jafntefli, en Karasev
vann 6, tapaði 1 og gerði 6
jafntefli. Ekki ætla ég að telja
hér upp aðra keppendur f ár-
angursröð, en á þátttakenda-
listanum má sjá nöfn eins og
Taimanov, Savon, Podgaets,
Gurgenidze, Suetin og Holmoff
svo einhverjir séu nefndir.
Kerfið sem teflt var eftir bauð
heim stffri vinningstafl-
mennsku og hér fara á eftir
tvær skemmtilegar skákir frá
mótinu:
Hvftt: A. Michalichin
Svart: A. Sacharov
Spænskur leikur
1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3.
Bh5 — a6, 4. Ba4 — Rf6, 5. 0-0
— Be7, 6. Hel — b5, 7. Bb3 —
0-0, 8. d4 — d6, 9. c3 — Bg4, 10.
d5 — Ra5, 11. Bc2 — c6, 12. h3
— Bxf3, 13. Dxf3 — cxd5, 14.
exd5 — Rc4, 15. Rd2 — Rb6,
16. Rfl — Re8, 17. g4 — g6, 18.
Rg3 — Bg5, 19. Khl — Bxcl,
20. Haxcl — Df6, 21. Dg2 —
Kh8, 22. Hcdl — Hc8, 23. He2
— Hc7, 24. Hfl — Df4, 25. Hgl
— Rg7, 26. Hdl — f5, 27. gxf5
— gxf5, 28. He3 — Dh6, 29.
Hf3 — Hcf7, 30. Re2 — e4, 31.
Hf4 — Rc4, 32. Hgl — Re5, 33.
Bdl — Rg6, 34. Dh2 — Rh5 og
hvftur gaf.
Hvftt: N. Popov
Svart: S. Makarichev
Hollenzk vörn
1. d4 — e6, 2. Rf3 — f5, 3. Bf4
— Rf6, 4. e3 — h6, 5. Rbd2 —
Bb7, 6. Bd3 — Be7, 7. h3 — 0-0,
8. c3 — Re4, 9. De2 — d6, 11.
SKák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
0-0-0 — Rbd7, 11. Hhgl —
Rdf6, 12. g4 — Kh8, 13. c4 —
b5, 14. gxf5 — exf5, 15. Rg5 —
Rxg5, 16. Bxg5 — bxc4, 17.
Bxf5 — Rd5, 18. Bxe7 — Dxe7,
19. Dh5 — g6, 20. Bxg6 — c3,
21. Re4 — cxb2+, 22. Kxb2 —
Hab8, 23. Kal — Rb4, 24. Rc3
— Be4!!, 25. Hd2 — Bxg6, 26.
Hxg6 — Hxf2, 27. Hxf2 —
Dxe3, 28. Hg8+ — Hxg8, 29.
Df3 — Hgl+, 30. Kxb2 —
Dxf2+ og hvftur gaf.
Fyrstir með skipulagðar sólarferðir i skammdeginu
flucfélac LOFTLEIOIR
/SLA\DS
Nu erað velja
sér
vetrarfetó
Jan.: 6. 9. 16. 20. 23. 27.
Feb.: 3. 6. 13. 17. 20. 24.
Mars: 6. 10. 13. 17. 24. 27.
Apr.: 3. 7. 21.
Hægt er að velja um 2ja og 3ja vikna feróir og gist-
ingu í smáhýsum og íbúðum eöa á hótelum.
Sért þú að hugsa um sólarfrí í skammdeginu — þá
snúöu þér til okkar.
Söluskrifstofur okkar, umboósmenn og ferðaskrif-
stofurnar veita allar nánari upplýsingar.
Feröaáætlun okkar fyrir Kanaríeyjaferðir næsta
vetur liggur nú fyrir.
Farnar verða 30 sólarferðir, 24 til Gran Canaría og 6
til Tenerife.
Dagsetningar ferðanna eru sem hér segir:
. 0-7
Nóv.: 18.
Des.: 2. 9. 12. 16. 19. 29. 30.