Morgunblaðið - 25.07.1976, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JULÍ 1976
41
félk í
fréttum
Ferðin tilíslands
var bezta gjöfin
+ UM ÞÆR mundir sem
sópransöngkonan heimsfræga,
Anneliese Rothenberger, sótti
okkur heim á listahátfð nú ný-
verið birtist grein um hana í
þekktu þýzku tfmariti þar sem
m.a. var fjallað um ferð hennar
hingað til lands. 1 fyrirsögn
greinarinnar kom fram að
söngkonan hygðist halda upp á
fimmtugsafmæli sitt á Islandi
og f upphafi greinarinnar segir
svo:
„Anneliese Rothenberger mun
halda upp á sinn fimmtugasta
afmælisdag, 19. júlf, í landi þar
sem vorið hefur enn ekki kvatt
og jafnvei ekki útilokað að enn
geti snjóað þótt komið sé fram í
júnf, á lslandi.“ — Seinna f
greininni er vitnað f viðtal við
söngkonuna þar sem hún segir
m.a. — „Frídögunum ætlum
við að eyða eins og hverjir aðrir
ferðamenn, skoða okkur um í
þessu fallega landi og sjá gos-
hverinn Geysi, eldfjallið Heklu
og hin stórkostlegu vatnsföll,
Dettifoss ogGullfoss.
Síðar segir f greininni:
„Söngkonan kveðst ekki vilja
gjafir f tilefni dagsins. —
„Ferðin sjálf er stórkostlegasta
gjöf sem ég get hugsað mér“ —
sagði sópransöngkonan, sem
nýlega var kosin vinsælasta
sjónvarpsstjarna Þýzkalands."
Saman
öllum
stundum...
+ Klisabeth Taylor og sendi-
herra Irans í Washington,
Ardeshir Zahedi, sjást nú sam-
an öllum stundum og virðast
þau, að sögn kunnugra, afar
hrifin hvort af öðru. Meðfylgj-
andi mynd var tekin við frum-
sýningu á kvikmyndinni „Blái
fuglinn" og strax á eftir flugu
þau skötuhjúin til Iran þar sem
Þau hyggjast eyða saman
nokkrum dögum í friði og ró ..
Billy bróðir...
+ Nei, — þetta er ekki hinn
síbrosandi demókrati Jimmy
C'arter, sem um þessar mundir
heyr harðvítuga baráttu fyrir
því að verða næstu forseti
Bandaríkjanna. Þetta er bróðir
hans, Billy Carter, sem sér um
jarðhnetubúskapinn á meðan
Jimmy reynir að verða forseti.
Að sögn gengur búskapurinn
vel undir stjórn Billys og ný-
lega seldi hann jarðhnetur fyr-
ir u.þ.b. milljón dollara og að
sjálfsögðu var öllum gróðanum
veitt út í reksturinn á ný ...
I sjötugs■
afmœti
RosseUinis
+ Ingrid Bergman birtist nú
fyrir skömmu á flugvellinum f
Róm f fylgd með dætrum sfn-
um Isabellu og Isottu og kom
hún til að heimsækja fyrrver-
andi mann sinn Roberto Rosse-
lini. Roberto sem er einn af
jöfrum ítalska kvikmyndaiðn-
aðarins varð nefnilega sjötugur
um daginn og komu þær mæðg-
ur til að halda upp á þau merku
tfmamót með gamla mannin-
um.
Til sölu barnafataverzlun
á góðum stað í borginni. Mjög góður
lager. Tilboð merkt: „Sjálfstæður atvinnu-
rekstur — 6132" sendist Mbl. fyrir 5.
ágúst.
Citroen
gerir
hringveginn
að hraðbraut!
Þó erhann enn þá sami hringvegurinn og í fyrra.
En við bendum á, að til er bill, sem lætur ekki mikið á
sig fá hvert ástand veganna er, eða hvaða vegi honum er
ekið.
CITROÉN^GS
Vegna hinnar óviðjafnanlegu fjöðrunar, verður akstur-
inn þægilegur, jafnvel á þvottabrettum.
Auk þess er hæð undir lægsta punkt stillanleg frá
1 6—26 cm óháð hleðslu.
Framhjóladrif gerir bílinn stöðugan á vegi.
Fjörug vél og þægileg gírskipting henta vel íslenzkum
fjallvegum.
Öll þessi GS þægindi kosta minna en þú e .t.v. heldur.
Talið við sölumenn okkar strax.
Við lofum yður góðum móttökum.
G/obusn
LÁGMÚLI5, SÍMI81555
k CITROÉN^ Á