Morgunblaðið - 30.07.1976, Page 13

Morgunblaðið - 30.07.1976, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1976 13 Þjóðvegaakstur Lanqar þig í tveggia tonna þungthðgg? Staðreynd: Árin 1972 til 1975 létust 33 ökumenn og far- þegar í umferóarslysum. Sannað: Bílbeltin fækka dauösföllum um 50%. Ályktun: Ef allir hinna 33ja ökumanna og farþega heföu notað bílbelti væru 17 þeirra aö öllum líkindum enn á lífi í dag. I árekstri á 50 km/klst hraóa beint framan á annan bíl eykst líkamsþyngd þín 30 falt. Þú getur því fengiö tveggja tonna högg frá framrúðukarmi, mælaboröi eöa stýri viö slíkar aöstæöur, — sértu ekki í bílbelti. Bílbelti þola þriggja tonna átak. Árekstur, sem aö framan greinir, gerist á o,4 sek. Á þeim tíma spennir þú ekki beltið. Geröu þaö því áöur en þú leggur af staö. U.þ.b. 60% allra meiösla í umferðarslysum eru höfuö- meiösli og þau leiða til 65% allra dauðaslysa meöal bíl- stjóra og farþega í framsæti. Bílbeltin fækka þeim sem slasast í umferðarslysum um 75%. Staðreynd: Áriö 1975 slösuðust 380 ökumenn og far- þegar í framsætum í umferðarslysum á íslandi. Sannað: Bílbeltin fækka þeim sem slasast í umferðar slysum um 75%. Ályktun: Ef allir hinir 380 ökumenn og farþegar heföu notað bílbelti heföu 285 þeirra hlotiö lítil sem engin meiösli. Verdlaunagetraun í haust gengst Umferðarráð fyrir verðlaunagetraun um umferðarmál, sérstaklega þjóðvegaakstur. Spurningar verða úr því efni sem hér birtist, svo og úr öðru efni sem birt verður í dagblöðum í sumar. Heildarverðmæti verðlauna mun nema kr. 400.000.— Fylgist því meó frá byrjun. UMFERDARRÁÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.