Morgunblaðið - 30.07.1976, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JULI 1976
34
Ford fær mikilvægan
stuðning frá foringja
óháðra í Mississippi
Washington, 29. júlí. AP.
FORMAÐUR Repúblikanaflokks-
ins f Mississippi, Clarke Reed,
hefur lýst yfir stuðningi við
Gerald Ford forseta f forseta-
framboð. Þar með hefur keppi-
nautur forsetans, Ronald Reagan,
orðið fyrir fyrsta alvarlega áfall-
inu sfðan hann ákvað að velja
Skólarnir
tæmdust
Jóhannesarhorg, 29. júlí. NTB.
ALLIR skólar blökkumanna í
Soweto skammt frá Jóhannesar-
borg tæmdust á nokkrum tfmum f
dag.
Kveikt var i fjórum skólunt þótt
sérþjálfuð óeirðalögregla hafi
verið á verði í bænum síðan skól-
ar voru opnaðir að nýju fyrir
einni viku. Allir starfsmenn skóla
í Soweto voru fluttir burtu eftir
íkveikjurnar.
James Kruger dómsmálaráð-
herra sagði í viðtali í dag að
óeirðalögreglan yrði í Soweto
þangað til friður kæmist á. Félag
þeldökkra kennara vill að óeirða-
lögreglan verði flutt burtu þar
sem þeir telja að nemendur þori
ekki að sækja skóla af ótta við
hana.
Richard Schweiker, frjálslynda
öldungadeildarmann frá Pennsyl-
vanýu, fyrir varaforsetaefni sitt.
Yfirlýsing Reeds ætti að tryggja
Ford stuðning flestra ef ekki allra
fulltrúa Mississippi á flokksþingi
repúblikana f næsta mánuði að
sögn stjórnmálafréttaritara. Reed
spáði Ford sigri og skoraði á
repúblikana að sameinast gegn
demókrötum f kosningunum í
nóvember.
Fulltrúar Mississippi eru 30 og
óháðir. Þeir eru f jölmennasti hóp-
ur óháðra fulltrúa sem Ford og
Reagan hafa barizt um. Sam-
kvæmt könnun AP vantar Ford
33 atkvæði af 1330 sem hann þarf
að fá á flokksþinginu til að hljóta
útnefninguna.
„Að mfnu mati er baráttunni
um útnefninguna að heita má lok-
ið,“ sagði Reed, sem er einn af
áhrifamestu leiðtogum
repúblikana. Hann kvaðst hingað
til hafa hallazt að Reagan en skipt
um skoðun þegar Reagan valdi
Schweiker fyrir varaforsetaefni.
Ford er væntanlegur til
Mississippi á föstudag og Reagan
og Schweiker ætla þangað í næstu
viku. Áður en Reed gaf yfir-
lýsingu sína sögðu aðstoðarmenn
Fords i Mississippi að forsetinn
mundi fá stuðning meirihluta
fulltrúa flokksins, þar en senni-
lega ekki fyrr en á flokksþinginu.
Jafnframt hefur Ford rætt við
þingleiðtoga um val varaforseta-
efnis og þeir segja að til greina
komi margir ríkisstjórar, þing-
menn og aðrir, þar á meðal konur.
Þeir vilja ekki nefna nöfn en
segja að listinn lengist stöðugt og
viðurkenna að einn þeirra sem til
greina komi sé John Connally,
fyrrum rfkisstjóri Texas, sem
lýsti yfir stuðningi við Ford i
fyrradag.
Frambjóðandi demókrata,
Jimmy Carter, hefur rætt við
George Bush, yfirmann leyni-
þjónustunnar CIA í fimm og hálfa
klukkustund. Carter fór fram á
þennan fund þótt venja sé að CIA
gefi forsetaframbjóðendum
skýrslu. Á eftir sakaði Carter
stjórn Nixons og Fords um að
hafa valdið þjóðinni efnahags-
erfiðleikum með vísvitandi og
skipulögðum samdrætti sem hún
hafi talið að gæti gert henni kleift
að sigrast á verðbólgu.
vonbrigð
eða árangurs?
Briissel, 29. júlf AP.
EINU ári eftir undirritun Helsinki-samningsins telja sumir embættis-
menn f aðalstöðvum NATO f Brússel að nokkur árangur sé að sjá
dagsins ljós.
Þeir segja að gagnkvæm tortryggni Rússa og vestrænna þjóða sé
rótgróin og margra alda gömul og verði aðeins eitt á löngum tfma.
Til marks um aukið traust
benda þeir á að það sé orðin venja
að ríki í austri og vestri tilkynni
fyrirfram um liðsflutninga og
bjóði mótaðilanum að fylgjast
með heræfingum sínum.
Að vísu er sagt að leyniþjónust-
ur beggja aðila geti hæglega kom-
izt að því hvenær heræfingar fari
fram og að fulltrúarnir sem fái að
fylgjast með þeim geri ekki ráð
fyrir að sjá nokkuð að ráði.
Hins vegar er þetta talin nokk-
urs konar trygging því að ef ann-
ar hvor aðilinn tilkynni ekki um
— Fréttabréf
frá Djúpi
Framhald af bls. 3
kviku til sigurlandsins, en von er
þó flestra að takast megi
hrimróðurinn áður en þeir íklæð-
ast næstu kosningabuxum.
Þá hafa þeir Langstrendingar
gert ítrekaðar tilraunir til að fá
tvær talstiiðvar f hreppinn til lífs-
öryggis sér og sínum, og fengið
einhvern ádrátt, en á engum slík-
um maskínum bólar þó ennþá.
Eitt er það vcrkefni sem vega-
gerðin héfur tekið sér fyrir
hendur nú nýverið, að afmá hina
ágætustu vegvísa sem staðið hafa
hin síðari ár við neðri Langdalsár-
brúna í Nauteyrarhreppi. Einn
þeirra vísaði veginn yfir Þorska-
fjarðarhciði, annar til hins nýja
Djúpvegar, en sá þriðji að Ba-jum
á Sna-fjalláströnd með kílómetra-
tölu. Þetta þótti mjög til
skýringar þeim sem ókunnugir
eru. En nú í fyllingu hættra vega
og betri samgangna að ætla
ma-tti, dundaði vegagerðin við að
taka þessa ága-tu vegvfsa niður,
og setja aðeins einn í staðinn, sem
á stendur: Snæfjallaströnd með
einhverju númeri að auki. Vita
ekki ókunnugir annað en þeir séu
komnir útá Sna-f jallaströnd
þegar komið er yfir Langadalsár-
brú. Þykir þá þeim sem kunnugir
eru að hcldur hafi ströndin sú
arna teygst óeðlilega langt til
suðurs á ekki lengri tíma. — En
til glöggvunar hefur Kaldalón
verið talið skipta Snæfjalla- og
Langadalsströnd, og svo mun enn
vera.
Engin rúta frá Vestfjarðaleið
hefur komið hér að Djúpi í sumar
svo sem verið hefir undanfarið
um tugi ára. Þykir þetta hér um
slóðir stórt spor stfgið til afturfar-
ar, og þá nokkurt ámæli að
tryggja sér sérleyfi og plana það f
leiðabók, en sinna því svo ekki
frekar.
Þá eru það nokkrar fréttir, að
verið er að leggja nýjan veg yfir
túnið á Arngerðareyri, og má
segja að um það bil helmingur af
túni þessa forna höfðingjaseturs
fari undir veginn. Má vera að
hinir þjóðlegu höfðingjar er þar
áður setið hafa, — litu slíkar að-
farir ekki sem hýrustu auga, ef
uppúr gröfum sfnum mættu lfta.
Verið er að byggja nýja brú á
I.augardalsá í Ögurhreppi, um 40
metra langa. Einnig má til ný-
mælis telja, að nú er í fyrsta sinn
hér við Djúp — vinnuflokkur inní
Langadal við að harpa möl til
ofaníburðar vega.
Jens f Kaldalóni.
— Stórbætt
Framhald af bls. 36
um 2400—2500 milljónir miðað
við gengi í júnílok í ár. í júní f ár
voru tekin lán að upphæð 700
milljónir króna en í fyrra í júni
komu inn um 800 milljónir króna
í lánurn. Hin bætta gjaldeyris-
staða frá áramótum stafar að
nokkru leytí af auknum lántökum
en að mestu leyti af hagstseðari
viðskiptaþróun, þ.e. tiltölulega
meiri útflutningi vöru og þjón-
ustu og minni innflutningi.
— Mikil
- atvinna
Framhald af bls. 2
mjög duglegir í ferðalögum á
vetrum, oft við afar erfiðar að-
stæður, því alls staðar er yfir fjiill
að fara og héraðið stórt.
Almennt er fólk mjög ánægt •
með skipulag heilsugæzlu hjá
læknunum þrátl fyrir mjög
þröngan og erfiðan húsakost. Með
tilkomu nýju heilsugæzlustöðvar-
innar er von til að aðstaða verði
mjög góð.
Allir Vestur-Barðstrendingar á
milli 40 og 60 ára voru boðaðir í
hjartarannsókn sl. vetur og vor og
er mér sagt að almennt hafi verið
vel mætt í skoðunina.
Samgöngur
Mikill ferðamannastraumur
hefur verið hingað vestur nú í
sumar og þá sérstaklega síðustu
daga. Er þetta fólk hvaðanæva að
af landinu. Mikil umferð hefur
verið í þorpunum — eins hafa
margir lagt leið sína út á Látra-
bjarg, Rauðasand og fleiri staða.
Tíðarfar
Júnímánuður var mikill sól-
skinsmánuður hér á Vestfjörðum
og veður sérlega gott, en nú síð-
ustu daga hefur verið mjög vot-
viðrasamt og eru heyskaparhorf-
ur uppvænlegar ef ekki rætist úr
með veður mjög bráðlega, þar
sem spretta er mjög góð á túnum
og hætt er við, að gras fari að vaxa
úr sér ef það verður látið vera
lengi óslegið.
I fyrri hluta júlí gerði hér mikla
hitabylgju sem annars staðar
vestan og suð-vestanlands og 9.
júlí komst hitinn hér inni í fjörð-
um og dölum víða upp í 30 stig í
skugganum seinni hluta dagsins,
og þótti þá mörgum nóg um. Ann-
ars undra menn sig hér á hverju
það sætir hjá Veðurstofu Islands
að birta hita í innsveitum í öllum
landshlutum nema Vestfjörðum.
Hér heyrum við bara veðurlýs-
ingu^frá Hvallátrum, Galtarvita,
Æðey og Hornbjargsvita, en eng-
inn fær að heyra hitastigið inn á
fjörðum og dölum, þar sem jú allt
fólkið býr.
Páll.
— Kirkju-
garðurinn
Framhald af bls. 2
er eftir muni ekki endast nema til
2ja næstu ára.
Nokkur viðbót fékkst við Foss-
vogskirkjugarðinn fyrir fáeinum
árum, og er hann samtals um 21
hektari að stærð. Nú eru í kirkju-
garðinum ails um 25 þúsund graf-
stæði, sem þó gefur ekki alger-
lega rétta mynd af fjölda leiða,
þar eð töluvert er um að fólk láti
taka frá grafstæði fyrir sig við
hlið maka, sem þar hvílir. Yfir-
leitt er reiknað með 7'A—8 fer-
metra á hverja gröf en þá er þar
innifalin gangstígur og gróður-
reitur.
— Sitthvað nýtt
Framhald af bls. 3
1953. Affair With a Stranger.
Tekst af tveir vilja, í þýðingu
Stefáns Jökulssonar.
Á laugardag 7, ágúst er rétt
að vekja athygli á leikritinu
Anton og Kleópatra eftir
William Shakespeare. Sagði
Björn Baldursson að það væri
frá brezku sjónvarpsstöðinni
ITC en sú stöð hefur gert fleiri
myndir með leikritum Shake-
speares. Textagerð annaðist
Dóra Hafsteinsdóttir.
— Ráðherralisti
Frámhald af bls. 1
þessarar minnihlutastjórnar er
gerð með stuðningi kommúnista.
Verður þar með bundinn endi á
stjórnarkreppuna, sem verið
hefur I landinu sl. 3 mánuði.
Heimildir í Róm hermdu að
færri ráðherrar yrðu i stjórninni
en vant hefur verið í ítölskum
stjórnmálum og að meðal ráðherr-
anna yrðu nokkrir tæknikratar.
Miðstjórn italska kommúnista-
flokksins kom saman til fundar í
dag til að ræða afstöðu sina til
nýju stjórnarinnar, en gert er ráð
fyrir að þingmenn flokksins muni
sitja hjá við atkvæðagreiðslu um
traust á stjórnina og tryggja
þannig að hún haldi velli. Þetta
muni kommúnistar gera til að
binda enda á þá óvissu, sem ríkt
hefur i stjórnmálum landsins að
undanförnu. Sósíalistaflokkurinn
á ítaliu ákvað á miðstjórnarfundi
i gærkvöldi að sitja hjá við at-
kvæðagreiðslu um traust á stjórn-
ina eins og aðrir smáflokkar á
þingi hafa ákveðið að'gera.
Andreotti er 57 ára að aldri.
Hann var forsætisráðherra
landsins um eins árs skeið frá því
i júní 1972. Hann var fjárlaga- og
áætlanaráðherra i minnihluta-
stjórn Aldo Moros, sem fór frá í
apríl sl. er þing var rofið og boðað
til nýrra kosningar.
— Amin
Frarnhald af bls. 1
hann segði af sér. Þessir tveir
ættbálkar ásamt her landsins eru
hornsteinninn undir valdastóli
Amins. Amin er af Kakwaætt-
bálknum og er hann komst til
valda í janúar 1971 skipaði hann
menn úr þessum tveimur ættbálk-
um i lykilstöður innan hersins.
Herma heimildirnar að nefndar-
menn hafi sagt við Amin að
óhjákvæmilegt væri að hann
segði af sér þar sem efnahag
landsins væri mikil hætta búinn.
— Rannsóknir
Framhald af bls. 1
yfir þessu svæði. Tyrkneska utan-
rikisráðuneytið sagði að ekki
hefði orðið vart við nein grísk
herskip á þessum slóðum, en ótt-
azt hafði verið að Grikkir beittu
valdi til að hindra leiðangurs-
menn í störfum þeirra. Heimildir
í Ankara, höfuðborg Tyrklands,
herma að viðræður milli Grikkja
og Tyrkja um þetta mál hafi farið
fram að tjaldabaki og að báðir
aðilar vildu komast hjá átökum.
Verkefni Sismik I i þessum
fyrsta leiðangri er að kortleggja
hafsbotninn í NA-hluta Eyjahafs,
en ekki er ráðgert að skipið fari
inn á mjög viðkvæm og umdeild
svæði á Eyjahafi i þessum leið-
angri, sem eru suður og austúr af
Limnos, vestur af Lesbos og í
grennd við Rhodos.
— Friðrik
Framhald af bls. 10
þó búinn að þiggja boð um þátt-
töku í Wejk an Zee mótinu í
janúar en ég sigraði á þessu
móti í ár. Þá er annað mót í
Hollandi, Tilpulgr. Þetta er
nýtt mót sem stálverksmiðjur
þar í landi gangast fyrir og
verður í styrkleikaflokki 13.
90 stigahæstu
skákmennirnir
keppi á 6 mótum
— Á síðustu árum hefur
nokkuð verið rætt um að breyta
fyrirkomulagi heimsmeistara-
keppninnar en nú þurfa menn
að bíða f þrjú ár eftir að geta átt
möguleika á ný, falli þeir úr á
millisvæðamótunum. Nú hefur
FIDE, Alþjóða skáksambandið
komið fram með tillögu, sem
styttir þennan tíma niður í tvö
ár. Samkvæmt henni á að
sleppa svæðamótum, eins og nú
stendur yfir í Sviss en þess f
stað á að skipta 90 stigahæstu
mönnunum f heiminum niður á
6 mót og af þessum 6 mótum
komast siðan 2 af hverju móti f
áskorendakeppnina. Þetta er að