Morgunblaðið - 06.08.1976, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 06.08.1976, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. ÁGUST 1976 Mikil umferð var um aðalgötu mótsvæðisins. — Allt vatn varð að flytja í brúsum þar sem ekkert rennandi vatn er á svæðinu. Ljósmyndir: Sv.P. Skátastúlkur frá Kópaskeri tálga kertastjaka úr lurkum. Var það liður f sveitakeppni. Bjargsig var leikið af þessum háa palli. Skáta- mót í Leyn- ings- hólum SKÁTAMÓT var haldið í Leyningshólum í Eyja- firði nú um verslunar- mannahelgina eða frá föstudagskvöldi til mánu- dagskvölds. Um 340 skát- ar frá 8 stöðum á landinu sóttu mótið, en fjölmenn- astir voru Akureyrar- skátar. Mótsstjóri var Gunnar Jónsson, en skátafélögin á Akureyri undirbjuggu mótið og sáu um framkvæmd þess. Mótið fór í alla staði hið besta fram, og skátarnir skemmtu sér konunglega viö alls konar viðfangs- efni og gamanmál. Um- hverfi er hið fegursta í Leyningshólum, veðrið var eins og best varð á kosið og skapið í stakasta lagi. Öllum kennileitum á mótssvæðinu voru gefin örnefni úr himingeimn- um og þá helst úr sólkerfi voru. Gefið var út dag- blað og fleira menningar- legt uppi haft. Margir eldri skátar sóttu mótið og blönduð- ust hinum ungu, og sér- stakar búðir voru fyrir foreldra skátanna, sem koma vildu. Mótið fór allt fram með hhium mesta sóma og varð bæði skát- unum bæði til vegsauka og sannrar gleði. Sv.P. Egilsstaðaskátar voru með frumlega gestabók, hreindýrsskinn. Þessar skátastúlkur voru að lesa á skinnið, þegar Ijósmyndarann bar að. Merki við einar tjaldbúðirnar. revndist það Ijúffeng máltfð. Frönsk tónlist í Skálholtskirkju UM ÞESSA helgi verða haldnir þriðju tónleikarnir á „Sumartón- leikum í Skálholtskirkju 1976“. Tónleikar þessir eru kl. 4 á laug- ardag og sunnudag. Aðgangur er ókeypis. Að þessu sinni verður eingöngu flutt frönsk tónlist. Verk þau, er flutt verða, gefa sýnishorn franskrar tónlistar frá barokk- tímabilinu og fram á okkar daga. Meðal ver.ka eru einleiksverk fyr- ir flautu, einleikssvíta fyrir klarí- nett, dúó fyrir flautu og klarinett og verk fyrir flautu og sembal. Flytjendur eru Manuela Wies- ler flautuleikari, Sigurður Snorrason klarfnettuleikari og Helga Ingólfsdóttir semballeik- ari. (Fréttatilkynning) Maðkaða hrökkbrauðið ÞAÐ ER allalgengt að maðkur finnist í alls konar innfluttum matvælum, að sögn Asgeirs Ein- arssonar heilbrigðisráðunautar, en við höfðum samband við hann í gærdag í framhaldi af frétt okk- ar um maðkaða hrökkbrauðið. „í stórum vöruhúsum geta flug- ur náð að verpa í kornvöruna meðan hún er enn óunnin og ópökkuð," sagði Asgeir. „Þetta er fyrst via, sem ómögulegt er að finna, og síðan getur vían komið fram sem lirfa, eða jafnvel fluga, á ólíkleg'ustu stöðum. Það er erfitt að koma í veg fyrir þetta, því þetta kemur næstum allt erlendis frá, en þau tilfelli, sem við höfum fengið, höfum við látið rannsaka á Keldum.“ Eskifjörður Til sölu 3ja herb. íbúð í góðu steinhúsi á Eskifirði. Upplýsingar í síma 97-6220. Hafnarfjörður — Norðurbær Til sölu tvær 4ra — 5 herb. íbúðir í fjölbýlishúsi á góðum stað við Breiðvang í Norðurbænum. Seljast tilbúnar undir tréverk, til afhendingar næsta vor. Sameign fullfrágengin og malbikuð bílastæði Suðursvalir. Bílageymslur fylgja. Fast verð kr. 8 millj. 650 þús. með bílgeymslu. Árni Gunn/augsson hr/. Austurgötu 10, Hafnarfirði, sími 50764. Jörð til sölu Til sölu er jörð ásamt íbúðarhúsi og útihúsum. Jörðin er í nágrenni Selfoss. Tún eru um 20 ha. Landstærð er um 1 20 ha. Nánari upplýsingar gefur Agnar Gústafsson Hr/. Hafnarstræi 1 1. Símar 12600 — 2 1 750.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.