Morgunblaðið - 06.08.1976, Page 22

Morgunblaðið - 06.08.1976, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. AGUST 1976 íslendingar nú í 12. sæti Lundi, 5. ágúst. Frá Páli Bergssyni. FIMMTA Evrópumeistaramóti ungra manna í bridge var haldið áfram { dag. Spilaðar voru þrjá umferðir, þ.e. 10., 11. og 12. um- ferð. t fyrsta leiknum spilaði ís- ienzka sveitin við Hoilendinga og tapaðimeð-fl gegn 20 stigum Hol- lendinga. I annarri umferð var spilað við Itali og unnu ltalir með 19 stigum gegn 1. í sfðasta leikn- um var spilað við trland og unnu tslendingar þann leik með 20 stigum gegn +1, en Irar eru nú neðstir í mótinu. Hollendingar eiga nú mjög sterku liði á að skipa í þessum aldursflokki og vakti það undrun er þeir töpuðu nú í síðustu um- feíðinni fyrir Póllandi með 20 gegn +1. Að loknum 12 umferðum í mótinu er röð efstu sveitanna þessi: 1) Svíþjóð 172 stig, 2) Aust- urríki 160 stig, 3) Hollendingar 159 stig. tslenzka sveitin er i 12. sæti af 18 með 102 stig. Á morgun verða spilaðar þrjár umferðir og þá spilar íslenzka sveitin við Portúgal, Frakkland og Austur- rfki. — Maður hrapar Framhald af bls. 36 Maðurinn slasaðist ekki lífs- hættulega, en hlaut meiðsli á höfði og baki. Lögreglan á Sel- fossi kom á vettvang og tókst lög- reglumönnum ásamt félögum gamla mannsins að ná honum upp úr gjótunni um það leyti sem sjúkrabifreið úr Reykjavik kom á staðinn og flutti manninn á Slysa- deild Borgarspítalans. — Bannað að kvikmynda Framhald af bls. 36 maður. Morgunblaðið ræddi við Indriða í gær og spurði um mál þetta. Sagði Indriði að þeir félag- ar hefðu ritað samtökum græn- lenzkra veiði- og fiskimanna (skammstafað KNAPP), sem að- setur hefur f Godtháb og óskað leyfis um að fá að fara f veiðitúr með grænlenzkum laxabát og mynda. Kom neikvætt svar og sagði þar m.a. að miklar umræður hefðu orðið um veiði á laxi við Grænland og andmæli komið fram, og vildi stjórn Knapp ekki taka áhættuna af því að þær um- ræður blossuðu upp að nýju. Laxakvótinn væri orðinn mjög lít- ill við Grænland og KNAPP vildi komast hjá öllum hlutum, sem gætu orðið til þess að draga enn meíra úr kvótanum. Auk þess myndi enginn fiskimaður vilja taka kvikmyndamenn um borð. Sagði Indriði að Grænlendingar hefðu bersýnilega misskilið er- indið, haldið að taka ætti ein- hverja áróðursmynd en ekki heimildarmynd um laxveiðar f sjó, en hann taldi ólíklegt að þeir félagar myndu gera aðra tilraun til að fá leyfi til að mynda veiðina. Laxamyndin er tekin í litum, og sagði Indriði að takan gengi vel. Verður myndatökunni haldið áfram til hausts og allt það mynd- að sem viðkemur íslenzka laxin- um, og kapp lagt á að sýna um- hyggju íslendinga fyrir laxinum, að sögn Indriða. — Hlaupið Framhald af bls. 36 inu og þyrfti að hafa gæzlu við lónið á þeim tíma ársins, þegar helzt væri von á hlaupi, svo hægt væri að segja nákvæmlega fyrir um hvenær hlaup koma. Hlaup úr Súlu nær niður að veginum á Skeiðarársandi á nokkrum klukkustundum og sagði Sigurjón að ef stór hlaup kæmu gæti það verið mikið öryggisatriði að vakt- maður væri við lónið til þess að hægt væri að vara vegfarendur við. Sigurjón sagði að hlaup hefði komið í Súlu árlega um nokkurt skeið, en áður hefðu hlaupin ver- ið sjaldnar og þá vatnsmeiri. í kringum árið 1950 hefðu hlaupin t.d. verið um 5000 teningsmetrar á sekúndu, en seinna hefðu þau yfirleitt verið um 2000 tenings- metrar. Ástæðuna fyrir þvf að hlaupið í ár hefði verið þetta stórt, kvað Sigurjón vera þá að í fyrra hefði lónið ekki náð að hreinsa sig og því hefði verið meira í lóninu nú en oft áður. — Eyjamenn Framhald af bls. 3 það er einmitt tþróttafélagið Þór sem sér um hátfðina að þessu sinni. Flugfélag tslands fer alls 36 ferðir til Eyja þjóðhátíðardagana og þar af eru 19 aukaferðir, en alls er reiknað með um 1500—2000 gestum flugleiðis um flugbrúna auk þeirra sem fara með Herjólfi, en hann mun verða í stöðugum ferðum milli Þorláks- hafnar og Eyja næstu daga og mynda þannig brú fyrir þá sem vilja fara sjóleiðina. Þjóðhátíð Vestmannaeyja 1976 verður sett á Breiðabakka kl. 14 í dag eftir að Lúðrasveit Vest- mannaeyja leikur undir stjórn Björns Leifssonar. Þá mun Sigur- geir Ólafsson formaður Þórs setja hátíðina og síðan mun séra Kjart- an Örn Sigurbjörnsson prédika á Guðsþjónustu á Bakkanum og kirkjukór Landakirkju syngur undir stjórn Guðmundar Guðjóns- sonar. Kl. 16 leikur lúðrasveitin. ■ Þá verður á Bakkanum lyft- ingamót, barnagaman með fjöl- breyttri dagskrá og um kvöldið verður kvöldvakan Kátt er á Bakkanum. Þar mun lúðrasveitin leika, Stefán Runólfsson fram- kvæmdastjóri flytur hátíðarræðu, Leikfélag Vestmannaeyja sýnir, Þorvaldur Halldórsson skemmtir, Árni Johnsen, Hjálmar Guðnason trompettleikari og Spilverk Þjóð- anna. Um nóttina fram til morg- uns verða dansleikir á tveimur pöllum þar sem Logar úr Eyjum og Hljómsveit Þorsteins Guð- mundssonar leika, en kl. 24 verð- ur kveikt í brennunni á Bakkan- um. Á laugardeginum heldur síðan áfram fjölþætt dagskrá, en hún hefst á grasvellinum við Hástein með leik Lúðrasveitarinnar. Þá leika IBV og íþróttabandalag Isa- fjarðar í 2. deild íslandsmótsins, en að leik loknum mun Óskar Svavarsson sýna bjargsig af Fisk- hellanefi. A Breiðabakka verður þó einnig dagskrá sem hefst kl. 14 og kl. 17 verður þar barna- skemmtun með þátttöku ýmissa skemmtikrafta, svo sem Halla og Ladda og um kvöldið koma fram fjölmargir aðilar á kvöldvökunni, en að henni lokinni hefst dansinn á báðum pöllum og kl. 12 á mið- nætti verður flugeldasýning í um- sjá skáta og varðeldur þar sem fjöldasöngur verður kyrjaður. Á sunnudag er síðan eitthvað um að vera, víðavangshlaup fyrir þá sem eru búnir að hita sig fyrri dagana, barnaball og dansleikur um kvöldið. — Kissinger Framhald af bls. 1 ekki staðfesta hvort Kissinger og Callaghan hefðu rætt um stofnun sérstaks sjóðs til að bæta hvítum Rhódesíumönnum eignatjón sem þeir verða fyrir ef meirihluta- stjórn blökkumanna verður mynduð. Þeir ítrekuðu aðeins að það væri ekki stefna brezku stjórnar- innar að hvetja hvíta Rhódesíu- menn til að flytjast úr landi. — Skoðaði „Kiey,, Framhald af bls. 1 að vestræn rfki hefu enga ástæðu til að óttast og neitaði því að sovézki flotinn stæði NATO framar í lofthernaði á sjó. Tveir eldflaugatundurspill- ar, birgðaskip og aðstoðarskip voru í fylgd með Kiev á sigl- ingu skipsins á Norður- Atlantshafi, Brezki eldflauga- tundurspillirinn Norfolk og bandariskur tundurspillir fylgdust með ferðum þeirra. Ferðinni er greinilega heitíð til aðalstöðva sovézka norður- fiotans á Kola-skaga. Kiev kemur frá Miðjarðarhafi. Um það var deilt hvort skip af þessari tegund og stærð mætti sigla um tyrknesku sundin. — Eiturskýið Framhald af bls. 1 sprengingu í svissnesku Icmesa-efnaverksmiðjunni i Seveso. Síðan hafa um 740 manns verið fluttir frá heimil- um sinum á eitursvæðinu, og 250 til viðbótar verið til rann- sóknar. Alls hafa um fjögur þúsund íbúar svæðisins verið í eitrunarhættu. Tung prófessor segir í viðtali við málgagn kommúmsta á ítalíu, blaðið l’Unita, að gas- eitrunin geti aukið ungbarna- dauða um 50%. Á svæðum, sem Bandaríkjamenn notuðu svipuð eiturefni f Vietnam, jókst ungbarnadauðinn úr 30 i 47 af hverjum 1.000 fæðingum. Að sögn Tung getur dioxin einnig valdið ófrjósemi og fóst- urláti. Hann sagði að dioxín ylli ekki mengun, heldur beinni eitrun, og að hætta væri á að eiturverkanir breiddust enn út. „Þegar það er einu sinni komið i jarðveginn, skol- ar því burt f rigningu, út í árnar og til sjávar, en þaðan getur það dreifzt á ný með fiskum og öðrum dýrum,“ sagði Tung. - Sendir Útvarps- ráði kæru .... Framhald af bls. 2 hafa i þáttunum undir þessu heiti, einkum þeim fjórða, sem fluttur var f útvarpið 3ja þ.m., ekki gætt þess að fylgja ákvæðum 3ju greinar Utvarpslaga, þar sem segir: „Það skal kappkosta að halda uppi rökræðum um hvers konar málefni, sem almenning varðar á þann hátt, að menn geti gert sér grein fyrir mismunandi skoðunum um þau“. Og ennfrem- ur: „Það skal virða tjáningar- frelsi og gæta fyllstu óhlutdrægni gagnvart öllum flokkum og stefn- um í opinberum málum, stofnun- um, félögum og einstaklingum.” Kæran á hendur fréttamannin- um er studd eftirfarandi rökum: I nefndum útvarpsþætti, sem að sögn stjórnanda átti að fjalla um mistök, sem gerð höfðu verið í raforkumálum, var að langmestu leyti fjallað um Laxárdeiluna svo- nefndu. Því réði augljóslega val manna i þáttinn.Þar komu fram þrír einsýnir fulltrúar annars deiluaðilans, þ.e. Laxárvirkjunar- stjórnar, formaður hennar, fram- kvæmdastjóri og stjórnarmaður. Auk þessa komu fram fimm aðil- ar, sem starfa sinna vegna og/eða fyrri afskipta af málinu hljóta að teljast einhliða túlkendur „virkj- unarsjónarmiða” f deilunni. Af þeim sjö þátttakendum, sem þá eru ónefndir, var enginn, sem hafði staðgóða þekkingu á Laxár- deilunni, orsökum hennar eða upphafi. Enda lagði enginn þeirra sig fram um að skýra sjónarmið þess deiluaðila, sem engan full- trúa átti í þættinum. Með þessu vali sínu á þátttak- endum, þar sem engum fulltrúa annars deiluaðila þeirrar við- kvæmu deilu, sem var aðalefni þáttarins, var boðið að koma fram eða nokkur tilraun gerð til að skýra þeirra sjónarmið, þykir stjórnandinn hafa brotið gróflega fyrrnefnda meginreglu Utvarps- laganna um meðferð á slíkum málefnum í útvarpinu. Þessu til viðbótar skal Utvarps- ráði greint frá því, að forsvars- menn Landeigendafélags Mývatns og Laxár höfðu áður komið á framfæri við stjórnand- ann óánægju sinni yfir því að f þriðja þættinum undir þessu heiti var einnig vikið á óviðurkvæmi- legan hátt að Laxárdeilunni þann- ig, að á landeigendur var hallað og m.a. látið að því liggja, að þeir ættu sök á háu raforkuverði o.fl. án þess að þeim væri gefinn kost- ur á andsvörum. t þvf sambandi fullvissaði stjórnandinn undirrit- aðan um, að Laxárdeilan yrði ekki til meðferðar í þeim þáttum, sem þá voru eftir. önnur varð þó raun- in á. Fyrstu orð fjórða þáttarins, flutt án kynningar eða skýringar, voru um Laxármálið og reyndust þau vera viðeigandi sem kynning á þema þáttarins og uppbygging hans. Stjórnandi þáttarins vék sfðan hvað eftir annað beint að deilunni en aldrei á þann hátt að í ljós kæmi, að hann teldi, að á málinu væru fleiri hliðar. Landeigendur vilja að sjálf- sögðu áskilja sér allan rétt í þessu máli, en fyrsta krafa þeirra er, að eftir að Utvarpsráð hefur kynnt sér efni nefndra þátta, geri það ráðstafanir til þess að bætt verði eftir því sem tök eru á, úr þeim rangindum, sem þeir og aðrir, sem barizt hafa fyrir verndun Laxár og Mývatns, hafa orðið að þola af hálfu nefnds stjórnanda þáttanna. Jafnframt þessu verði stjórnandanum veitt opinber áminnign, þannig að ljóst verði að slík vinnubrögð sem lýst hefur verið, séu Utvarpsráði ekki þókn- anleg. Að lokum er þess farið á leit fyrir hönd Landeigendafélagsins, að í té verði látið afrit af nefndum tveimur þáttum. Með virðingu, Jónas Jónsson.” Utvarpsráð hefur fjallað um bréf þetta á fundi sfnum og tók þá ákvörðun að óska eftir því við Pál Heiðar Jónsson, að fulltrúar Landeigendafélagsins fengju að koma á framfæri sjónarmiðum sínum f næsta þætti hans um orkumál, en að öðrum kosti geri hann einhverja athugasemd við framkomna gagnrýni. — Súdan Framhald af bls. 1 dæmdir fyrir að berjast gegn Súdan eftir að hafa verið í þjálf- un erlendis. Var skýrt frá því í réttarhöldunum að Libýa hafi stutt byltingartilraunina, en Muammar Gaddafi, leiðtogi Lfbýu, hefur harðlega mótmælt þeim ásökunum. Sadik al-Mahdi, fyrrum for- sætisráðherra Súdan, er nú í London, og ræddi hann á mið- vikudagskvöld við fréttamenn þar. Sagði hann að aftökurnar ættu eftir að leiða til enn grimm- úðlegri og ákveðnari aðgerða gegn rfkisstjórninni f Khartoum. Einnig viðurkenndi al-Mahdi að það hefði verið hann sjálfur, sem skipulagði byltingartilraunina, en hann er leiðtogi súdönsku þjóð- fylkingarinnar, sem stofnuð var eftir að Nemery núverandi forseti hrifsaði völdin í Súdan árið 1969. — Varla inflúensa Framhald af bls. 1 ur frá rannsóknarstofum ríkisins, sem benda til þess að það sé ekki inflúensuveira, sem veldur fyrr- um-hermanna veikinni. En á þessu stigi getum við ekki stað- hæft neitt." Þá sagði dr. David Spencer forstöðumaður heilbrigð- isstofnunar Bandarikjanna f Georgíu að vaxandi líkur væru á þvf að sjúkdómurinn væri ekki smitandi. Sagði hann að ekki væri að greina nein merki þess að ætt- ingjar sjúklinga hefðu smitazt. — Grafíkmyndir Framhald af bls. 3 verður opin frá 16—22 virka daga og frá 14—22 um helgar. Auk sýningarinnar á grafík- myndunum fer fram f öðrum sal Kjarvalsstaða sýning á myndum úr einkasafni Gunn- ars heitins Sigurðssonar, sem oft var nefndur Gunnar í Geysi. Þar verður sýnt safn manns sem stóð sjálfur í söfnun mynd- listar. Er sýningin nokkurs kon- ar dagbók fyrir tímabilið 1945—1960 og má sjá hér í hnotskurn íslenska myndlist þeirra ára. Sýningu þessari hef- ur verið komið á af Listráði Kjarvalsstaða með aðstoð og einstakri velvild ekkju Gunn- ars heitins. Eitt verk á sýning- unni er í eign Listasafns ís- lands, en það er eftir Kristján Davíðsson og er af Gunnari Sig- urðssyni. Sýningin verður opin samhliða grafíksýningunni. — Fjölbreytt Framhald af bls. 23 séra Þorsteinn Lúther Jónsson. Þá eru gamlir Eyjaslagarar og spjall um Sigga Reim brennukóng og siðast en ekki sízt er í blaðinu, sem heitir Mjölnir, þjóðhátíðar- söngur Vestmannaeyinga, Yndis- lega Eyjan min eftir Sigurbjörn Sveinsson. — Skák Framhald af bls. 13 höggi við Svisslendinginn Lombard sem gleymdi eitt augnablik veikleikanum á c4. Hvftt: A. Lombard Svart: I. Csom Nimzoindversk vörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rc3 — Bb4, 4. e3 — c5, 5. Bd3 — Rc6 6. Rf3 — Bxc3 7. bxc3 — d6, 8. e4 — e5, 9. d5 — Re7, 10. Rh4 — h6, 11. f3 — Da5, 12. Dc2 — g5, 13. Rf5 — Rxf5, 14. exf5 — Bd7,15. Be3 — 0-0-0,16. Kd2 — Hde8 17. Hael — Ba4, 18. Dbl — Kb8, 19. Bc2 — Bxc2 20. Dxc2 — Da6, 21. Db3 — Rd7, 22. Bf2 — Hb8, 23. a4 — Rb6, 24. He4 — Dxa4, 25. Dxa4 — Rxa4, 26. f4 — gxf4, 27. g3 — fxg3, 28. hxg3 — Hbg8, 29. Heh4 — Hg5, 30. g4 — Rb6, 31. Hxh6 — Rxc4+, 32. Ke2 — Hxh6, 33. Hxh6 — Hxg4, 34. Hh7 — e4, 35. Hxf7+ — Kb6, 36. f6 — a5, 37. Hd7 — Hf4, 38. f7 — a4, 39. Bg3 — Hf5, 40. Bxd6 — a3 og hvftur gafst upp. DilAIAIAn Ikcifunni 11 Símar 81502 81510

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.