Morgunblaðið - 06.08.1976, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. AGUST 1976
íslendingar
nú í 12. sæti
Lundi, 5. ágúst. Frá Páli Bergssyni.
FIMMTA Evrópumeistaramóti
ungra manna í bridge var haldið
áfram { dag. Spilaðar voru þrjá
umferðir, þ.e. 10., 11. og 12. um-
ferð. t fyrsta leiknum spilaði ís-
ienzka sveitin við Hoilendinga og
tapaðimeð-fl gegn 20 stigum Hol-
lendinga. I annarri umferð var
spilað við Itali og unnu ltalir með
19 stigum gegn 1. í sfðasta leikn-
um var spilað við trland og unnu
tslendingar þann leik með 20
stigum gegn +1, en Irar eru nú
neðstir í mótinu.
Hollendingar eiga nú mjög
sterku liði á að skipa í þessum
aldursflokki og vakti það undrun
er þeir töpuðu nú í síðustu um-
feíðinni fyrir Póllandi með 20
gegn +1. Að loknum 12 umferðum
í mótinu er röð efstu sveitanna
þessi: 1) Svíþjóð 172 stig, 2) Aust-
urríki 160 stig, 3) Hollendingar
159 stig. tslenzka sveitin er i 12.
sæti af 18 með 102 stig. Á morgun
verða spilaðar þrjár umferðir og
þá spilar íslenzka sveitin við
Portúgal, Frakkland og Austur-
rfki.
— Maður hrapar
Framhald af bls. 36
Maðurinn slasaðist ekki lífs-
hættulega, en hlaut meiðsli á
höfði og baki. Lögreglan á Sel-
fossi kom á vettvang og tókst lög-
reglumönnum ásamt félögum
gamla mannsins að ná honum upp
úr gjótunni um það leyti sem
sjúkrabifreið úr Reykjavik kom á
staðinn og flutti manninn á Slysa-
deild Borgarspítalans.
— Bannað að
kvikmynda
Framhald af bls. 36
maður. Morgunblaðið ræddi við
Indriða í gær og spurði um mál
þetta. Sagði Indriði að þeir félag-
ar hefðu ritað samtökum græn-
lenzkra veiði- og fiskimanna
(skammstafað KNAPP), sem að-
setur hefur f Godtháb og óskað
leyfis um að fá að fara f veiðitúr
með grænlenzkum laxabát og
mynda. Kom neikvætt svar og
sagði þar m.a. að miklar umræður
hefðu orðið um veiði á laxi við
Grænland og andmæli komið
fram, og vildi stjórn Knapp ekki
taka áhættuna af því að þær um-
ræður blossuðu upp að nýju.
Laxakvótinn væri orðinn mjög lít-
ill við Grænland og KNAPP vildi
komast hjá öllum hlutum, sem
gætu orðið til þess að draga enn
meíra úr kvótanum. Auk þess
myndi enginn fiskimaður vilja
taka kvikmyndamenn um borð.
Sagði Indriði að Grænlendingar
hefðu bersýnilega misskilið er-
indið, haldið að taka ætti ein-
hverja áróðursmynd en ekki
heimildarmynd um laxveiðar f
sjó, en hann taldi ólíklegt að þeir
félagar myndu gera aðra tilraun
til að fá leyfi til að mynda veiðina.
Laxamyndin er tekin í litum, og
sagði Indriði að takan gengi vel.
Verður myndatökunni haldið
áfram til hausts og allt það mynd-
að sem viðkemur íslenzka laxin-
um, og kapp lagt á að sýna um-
hyggju íslendinga fyrir laxinum,
að sögn Indriða.
— Hlaupið
Framhald af bls. 36
inu og þyrfti að hafa gæzlu við
lónið á þeim tíma ársins, þegar
helzt væri von á hlaupi, svo hægt
væri að segja nákvæmlega fyrir
um hvenær hlaup koma. Hlaup úr
Súlu nær niður að veginum á
Skeiðarársandi á nokkrum
klukkustundum og sagði Sigurjón
að ef stór hlaup kæmu gæti það
verið mikið öryggisatriði að vakt-
maður væri við lónið til þess að
hægt væri að vara vegfarendur
við. Sigurjón sagði að hlaup hefði
komið í Súlu árlega um nokkurt
skeið, en áður hefðu hlaupin ver-
ið sjaldnar og þá vatnsmeiri. í
kringum árið 1950 hefðu hlaupin
t.d. verið um 5000 teningsmetrar
á sekúndu, en seinna hefðu þau
yfirleitt verið um 2000 tenings-
metrar. Ástæðuna fyrir þvf að
hlaupið í ár hefði verið þetta
stórt, kvað Sigurjón vera þá að í
fyrra hefði lónið ekki náð að
hreinsa sig og því hefði verið
meira í lóninu nú en oft áður.
— Eyjamenn
Framhald af bls. 3
það er einmitt tþróttafélagið Þór
sem sér um hátfðina að þessu
sinni.
Flugfélag tslands fer alls 36
ferðir til Eyja þjóðhátíðardagana
og þar af eru 19 aukaferðir, en
alls er reiknað með um
1500—2000 gestum flugleiðis um
flugbrúna auk þeirra sem fara
með Herjólfi, en hann mun verða
í stöðugum ferðum milli Þorláks-
hafnar og Eyja næstu daga og
mynda þannig brú fyrir þá sem
vilja fara sjóleiðina.
Þjóðhátíð Vestmannaeyja 1976
verður sett á Breiðabakka kl. 14 í
dag eftir að Lúðrasveit Vest-
mannaeyja leikur undir stjórn
Björns Leifssonar. Þá mun Sigur-
geir Ólafsson formaður Þórs setja
hátíðina og síðan mun séra Kjart-
an Örn Sigurbjörnsson prédika á
Guðsþjónustu á Bakkanum og
kirkjukór Landakirkju syngur
undir stjórn Guðmundar Guðjóns-
sonar. Kl. 16 leikur lúðrasveitin. ■
Þá verður á Bakkanum lyft-
ingamót, barnagaman með fjöl-
breyttri dagskrá og um kvöldið
verður kvöldvakan Kátt er á
Bakkanum. Þar mun lúðrasveitin
leika, Stefán Runólfsson fram-
kvæmdastjóri flytur hátíðarræðu,
Leikfélag Vestmannaeyja sýnir,
Þorvaldur Halldórsson skemmtir,
Árni Johnsen, Hjálmar Guðnason
trompettleikari og Spilverk Þjóð-
anna. Um nóttina fram til morg-
uns verða dansleikir á tveimur
pöllum þar sem Logar úr Eyjum
og Hljómsveit Þorsteins Guð-
mundssonar leika, en kl. 24 verð-
ur kveikt í brennunni á Bakkan-
um.
Á laugardeginum heldur síðan
áfram fjölþætt dagskrá, en hún
hefst á grasvellinum við Hástein
með leik Lúðrasveitarinnar. Þá
leika IBV og íþróttabandalag Isa-
fjarðar í 2. deild íslandsmótsins,
en að leik loknum mun Óskar
Svavarsson sýna bjargsig af Fisk-
hellanefi. A Breiðabakka verður
þó einnig dagskrá sem hefst kl. 14
og kl. 17 verður þar barna-
skemmtun með þátttöku ýmissa
skemmtikrafta, svo sem Halla og
Ladda og um kvöldið koma fram
fjölmargir aðilar á kvöldvökunni,
en að henni lokinni hefst dansinn
á báðum pöllum og kl. 12 á mið-
nætti verður flugeldasýning í um-
sjá skáta og varðeldur þar sem
fjöldasöngur verður kyrjaður.
Á sunnudag er síðan eitthvað
um að vera, víðavangshlaup fyrir
þá sem eru búnir að hita sig fyrri
dagana, barnaball og dansleikur
um kvöldið.
— Kissinger
Framhald af bls. 1
ekki staðfesta hvort Kissinger og
Callaghan hefðu rætt um stofnun
sérstaks sjóðs til að bæta hvítum
Rhódesíumönnum eignatjón sem
þeir verða fyrir ef meirihluta-
stjórn blökkumanna verður
mynduð.
Þeir ítrekuðu aðeins að það
væri ekki stefna brezku stjórnar-
innar að hvetja hvíta Rhódesíu-
menn til að flytjast úr landi.
— Skoðaði
„Kiey,,
Framhald af bls. 1
að vestræn rfki hefu enga
ástæðu til að óttast og neitaði
því að sovézki flotinn stæði
NATO framar í lofthernaði á
sjó.
Tveir eldflaugatundurspill-
ar, birgðaskip og aðstoðarskip
voru í fylgd með Kiev á sigl-
ingu skipsins á Norður-
Atlantshafi, Brezki eldflauga-
tundurspillirinn Norfolk og
bandariskur tundurspillir
fylgdust með ferðum þeirra.
Ferðinni er greinilega heitíð
til aðalstöðva sovézka norður-
fiotans á Kola-skaga. Kiev
kemur frá Miðjarðarhafi. Um
það var deilt hvort skip af
þessari tegund og stærð mætti
sigla um tyrknesku sundin.
— Eiturskýið
Framhald af bls. 1
sprengingu í svissnesku
Icmesa-efnaverksmiðjunni i
Seveso. Síðan hafa um 740
manns verið fluttir frá heimil-
um sinum á eitursvæðinu, og
250 til viðbótar verið til rann-
sóknar. Alls hafa um fjögur
þúsund íbúar svæðisins verið í
eitrunarhættu.
Tung prófessor segir í viðtali
við málgagn kommúmsta á
ítalíu, blaðið l’Unita, að gas-
eitrunin geti aukið ungbarna-
dauða um 50%. Á svæðum,
sem Bandaríkjamenn notuðu
svipuð eiturefni f Vietnam,
jókst ungbarnadauðinn úr 30 i
47 af hverjum 1.000 fæðingum.
Að sögn Tung getur dioxin
einnig valdið ófrjósemi og fóst-
urláti. Hann sagði að dioxín
ylli ekki mengun, heldur
beinni eitrun, og að hætta væri
á að eiturverkanir breiddust
enn út. „Þegar það er einu
sinni komið i jarðveginn, skol-
ar því burt f rigningu, út í
árnar og til sjávar, en þaðan
getur það dreifzt á ný með
fiskum og öðrum dýrum,“
sagði Tung.
- Sendir Útvarps-
ráði kæru ....
Framhald af bls. 2
hafa i þáttunum undir þessu
heiti, einkum þeim fjórða, sem
fluttur var f útvarpið 3ja þ.m.,
ekki gætt þess að fylgja ákvæðum
3ju greinar Utvarpslaga, þar sem
segir: „Það skal kappkosta að
halda uppi rökræðum um hvers
konar málefni, sem almenning
varðar á þann hátt, að menn geti
gert sér grein fyrir mismunandi
skoðunum um þau“. Og ennfrem-
ur: „Það skal virða tjáningar-
frelsi og gæta fyllstu óhlutdrægni
gagnvart öllum flokkum og stefn-
um í opinberum málum, stofnun-
um, félögum og einstaklingum.”
Kæran á hendur fréttamannin-
um er studd eftirfarandi rökum: I
nefndum útvarpsþætti, sem að
sögn stjórnanda átti að fjalla um
mistök, sem gerð höfðu verið í
raforkumálum, var að langmestu
leyti fjallað um Laxárdeiluna svo-
nefndu. Því réði augljóslega val
manna i þáttinn.Þar komu fram
þrír einsýnir fulltrúar annars
deiluaðilans, þ.e. Laxárvirkjunar-
stjórnar, formaður hennar, fram-
kvæmdastjóri og stjórnarmaður.
Auk þessa komu fram fimm aðil-
ar, sem starfa sinna vegna og/eða
fyrri afskipta af málinu hljóta að
teljast einhliða túlkendur „virkj-
unarsjónarmiða” f deilunni. Af
þeim sjö þátttakendum, sem þá
eru ónefndir, var enginn, sem
hafði staðgóða þekkingu á Laxár-
deilunni, orsökum hennar eða
upphafi. Enda lagði enginn þeirra
sig fram um að skýra sjónarmið
þess deiluaðila, sem engan full-
trúa átti í þættinum.
Með þessu vali sínu á þátttak-
endum, þar sem engum fulltrúa
annars deiluaðila þeirrar við-
kvæmu deilu, sem var aðalefni
þáttarins, var boðið að koma fram
eða nokkur tilraun gerð til að
skýra þeirra sjónarmið, þykir
stjórnandinn hafa brotið gróflega
fyrrnefnda meginreglu Utvarps-
laganna um meðferð á slíkum
málefnum í útvarpinu.
Þessu til viðbótar skal Utvarps-
ráði greint frá því, að forsvars-
menn Landeigendafélags
Mývatns og Laxár höfðu áður
komið á framfæri við stjórnand-
ann óánægju sinni yfir því að f
þriðja þættinum undir þessu heiti
var einnig vikið á óviðurkvæmi-
legan hátt að Laxárdeilunni þann-
ig, að á landeigendur var hallað
og m.a. látið að því liggja, að þeir
ættu sök á háu raforkuverði o.fl.
án þess að þeim væri gefinn kost-
ur á andsvörum. t þvf sambandi
fullvissaði stjórnandinn undirrit-
aðan um, að Laxárdeilan yrði ekki
til meðferðar í þeim þáttum, sem
þá voru eftir. önnur varð þó raun-
in á. Fyrstu orð fjórða þáttarins,
flutt án kynningar eða skýringar,
voru um Laxármálið og reyndust
þau vera viðeigandi sem kynning
á þema þáttarins og uppbygging
hans. Stjórnandi þáttarins vék
sfðan hvað eftir annað beint að
deilunni en aldrei á þann hátt að í
ljós kæmi, að hann teldi, að á
málinu væru fleiri hliðar.
Landeigendur vilja að sjálf-
sögðu áskilja sér allan rétt í þessu
máli, en fyrsta krafa þeirra er, að
eftir að Utvarpsráð hefur kynnt
sér efni nefndra þátta, geri það
ráðstafanir til þess að bætt verði
eftir því sem tök eru á, úr þeim
rangindum, sem þeir og aðrir,
sem barizt hafa fyrir verndun
Laxár og Mývatns, hafa orðið að
þola af hálfu nefnds stjórnanda
þáttanna. Jafnframt þessu verði
stjórnandanum veitt opinber
áminnign, þannig að ljóst verði að
slík vinnubrögð sem lýst hefur
verið, séu Utvarpsráði ekki þókn-
anleg.
Að lokum er þess farið á leit
fyrir hönd Landeigendafélagsins,
að í té verði látið afrit af nefndum
tveimur þáttum.
Með virðingu,
Jónas Jónsson.”
Utvarpsráð hefur fjallað um
bréf þetta á fundi sfnum og tók þá
ákvörðun að óska eftir því við Pál
Heiðar Jónsson, að fulltrúar
Landeigendafélagsins fengju að
koma á framfæri sjónarmiðum
sínum f næsta þætti hans um
orkumál, en að öðrum kosti geri
hann einhverja athugasemd við
framkomna gagnrýni.
— Súdan
Framhald af bls. 1
dæmdir fyrir að berjast gegn
Súdan eftir að hafa verið í þjálf-
un erlendis. Var skýrt frá því í
réttarhöldunum að Libýa hafi
stutt byltingartilraunina, en
Muammar Gaddafi, leiðtogi
Lfbýu, hefur harðlega mótmælt
þeim ásökunum.
Sadik al-Mahdi, fyrrum for-
sætisráðherra Súdan, er nú í
London, og ræddi hann á mið-
vikudagskvöld við fréttamenn
þar. Sagði hann að aftökurnar
ættu eftir að leiða til enn grimm-
úðlegri og ákveðnari aðgerða
gegn rfkisstjórninni f Khartoum.
Einnig viðurkenndi al-Mahdi að
það hefði verið hann sjálfur, sem
skipulagði byltingartilraunina, en
hann er leiðtogi súdönsku þjóð-
fylkingarinnar, sem stofnuð var
eftir að Nemery núverandi forseti
hrifsaði völdin í Súdan árið 1969.
— Varla
inflúensa
Framhald af bls. 1
ur frá rannsóknarstofum ríkisins,
sem benda til þess að það sé ekki
inflúensuveira, sem veldur fyrr-
um-hermanna veikinni. En á
þessu stigi getum við ekki stað-
hæft neitt." Þá sagði dr. David
Spencer forstöðumaður heilbrigð-
isstofnunar Bandarikjanna f
Georgíu að vaxandi líkur væru á
þvf að sjúkdómurinn væri ekki
smitandi. Sagði hann að ekki væri
að greina nein merki þess að ætt-
ingjar sjúklinga hefðu smitazt.
— Grafíkmyndir
Framhald af bls. 3
verður opin frá 16—22 virka
daga og frá 14—22 um helgar.
Auk sýningarinnar á grafík-
myndunum fer fram f öðrum
sal Kjarvalsstaða sýning á
myndum úr einkasafni Gunn-
ars heitins Sigurðssonar, sem
oft var nefndur Gunnar í Geysi.
Þar verður sýnt safn manns
sem stóð sjálfur í söfnun mynd-
listar. Er sýningin nokkurs kon-
ar dagbók fyrir tímabilið
1945—1960 og má sjá hér í
hnotskurn íslenska myndlist
þeirra ára. Sýningu þessari hef-
ur verið komið á af Listráði
Kjarvalsstaða með aðstoð og
einstakri velvild ekkju Gunn-
ars heitins. Eitt verk á sýning-
unni er í eign Listasafns ís-
lands, en það er eftir Kristján
Davíðsson og er af Gunnari Sig-
urðssyni. Sýningin verður opin
samhliða grafíksýningunni.
— Fjölbreytt
Framhald af bls. 23
séra Þorsteinn Lúther Jónsson.
Þá eru gamlir Eyjaslagarar og
spjall um Sigga Reim brennukóng
og siðast en ekki sízt er í blaðinu,
sem heitir Mjölnir, þjóðhátíðar-
söngur Vestmannaeyinga, Yndis-
lega Eyjan min eftir Sigurbjörn
Sveinsson.
— Skák
Framhald af bls. 13
höggi við Svisslendinginn
Lombard sem gleymdi eitt
augnablik veikleikanum á c4.
Hvftt: A. Lombard
Svart: I. Csom
Nimzoindversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rc3
— Bb4, 4. e3 — c5, 5. Bd3 —
Rc6 6. Rf3 — Bxc3 7. bxc3 —
d6, 8. e4 — e5, 9. d5 — Re7, 10.
Rh4 — h6, 11. f3 — Da5, 12.
Dc2 — g5, 13. Rf5 — Rxf5, 14.
exf5 — Bd7,15. Be3 — 0-0-0,16.
Kd2 — Hde8 17. Hael — Ba4,
18. Dbl — Kb8, 19. Bc2 — Bxc2
20. Dxc2 — Da6, 21. Db3 —
Rd7, 22. Bf2 — Hb8, 23. a4 —
Rb6, 24. He4 — Dxa4, 25. Dxa4
— Rxa4, 26. f4 — gxf4, 27. g3 —
fxg3, 28. hxg3 — Hbg8, 29.
Heh4 — Hg5, 30. g4 — Rb6, 31.
Hxh6 — Rxc4+, 32. Ke2 —
Hxh6, 33. Hxh6 — Hxg4, 34.
Hh7 — e4, 35. Hxf7+ — Kb6,
36. f6 — a5, 37. Hd7 — Hf4, 38.
f7 — a4, 39. Bg3 — Hf5, 40.
Bxd6 — a3 og hvftur gafst upp.
DilAIAIAn
Ikcifunni 11
Símar 81502 81510